Morgunblaðið - 28.11.1982, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 28.11.1982, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1982 -10 Utför móðursystur minnar + STEINUNNAR GUDMUNDSDÓTTUR. frá Núpi Fljótshlíö, Álfheimum 13, Reykjavík, fer fram frá Fossvogskirkju Fyrir hönd vandamanna. þriöjudaginn 30. nóvember kl. 15.00. Jónheiöur Guðjónsdóttir. + Fööursystir mín SIGRÍÐUR GUDBJARTSDÓTTIR, Hátúni 10 B, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 30. nóvember kl. 13.30. Fyrir hönd vandamanna. María Helgadóttir. t ’.'.töurínn minn RUDOLF THEIL HANSEN, klæóskerameístari, Garöaflöt 7, Garðabæ, verður jarösunginn frá Hafnarfjaröarkirkju, þriöjudaginn 30. nóv. kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda. Margrét Finnbjörnsdóttir Hansen. + Þökkum auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför eigin- manns mins, föður okkar, tengdafööur og afa EIRÍKS JÓELS SIGURDSSONAR, vélstjóra, Aðalgötu 12, Keflavík. Stefanía Guðmundsdóttír, Jónína Valdís Eiríksdóttir, Guðrún Eiríksdóttir De L’Etoile, Sigurbjörn Reynir Eiríksson, Mona Símonardóttir, María Erla Eiriksdóttir, Birgir Valdimarsson, og barnabörn. + Þökkum auðsýnda samúö viö andlát og útför GUÐMUNDAR MARELS GÍSLASONAR, Sörlaskjólí 84. Soffía Benjamínsdóttir, Elín Guömundsdóttir, Bergmann Bjarnason, Gísli Guðmundsson, Inga Helgadóttir, og barnabörn. + Við þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns míns og fööur okkar HAFSTEINS HARALDSSONAR, Bragagötu 23, Reykjavík. Sigrún Björnsdóttir, Dagný Hafsteinsdóttir. + Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu AÐALBJARGAR ÓLADÓTTUR, Ljósheimum 20. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks á deild D. 13 Landsþítal- anum tyrir góóa umönnun í veikindum hennar. Margrét Jónsdóttir, Steinunn Jónsdóttir, Guörún Jónsdóttir Kratsch, Reynir Kratsch, Unnur Jónsdóttir Cannada, Thomas Cannada, Maggý Jónsdóttir, Gunnar Loftsson, Jens Jónsson, Ingibjörg Karlsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum auðsynda samúö og vináttu viö andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóöur, ömmu og systur HILDIGUNNAR JÓAKIMSDÓTTUR, Hrannargötu 9, ísafiröi. Halldór Kristjánsson, Jón Halldórsson, Sóley Sigurðardóttir, Auöur Halldórsdóttir, Mikael Rapnarsson, Ólína J. Halldórsdóttir, Arnaldur Arnason, Sigrún Halldórsdóttir, Björn Björnsson, María Jóakimsdóttir, barnabörn, Ólafur Jóakimsson, Ægir Jóakimsson. Minning: Björn Björnsson kaupmaður í London Það var sviplegt að frjetta, að Björn Björnsson, kaupmaður í London, hefði látizt þar í borg hinn 20. þ.m. af slysförum. Björn var fæddur á Sauðárkróki hinn 6. apríl 1898 og var því 84 ára gamall er hann ljezt. Foreldrar hans voru merkishjónin Björn gullsmiður Símonarson að Laugardælum í Flóa Bjarnasonar og kona hans Kristín Björnsdóttir bónda í Hjaltastaðahvammi Tómassonar. Björn gullsmiður hafði numið gull- og silfursmíði í Reykjavík en sigdli síðan til Kaupmannahafnar og lærði þar úrsmíði. Hann stund- aði iðn sína um skeið á Akureyri og síðan á Sauðárkróki. Alda- mótaárið fluttist hann til Reykja- víkur og vann þar að gull- og silf- ursmíði svo og úrsmíði það sem eftir var æfinnar, en hann andað- ist árið 1914. Jafnframt stofnaði hann brauðgerðarhús, sem hann nefndi Björnsbakarí. Bæði gullsmíðastofan og bak- aríið voru til húsa í Vallarstræti 4, og þar er Björnsbakarí enn svo sem kunnugt er. Björn þótti mesti ágætismaður, dugnaðarmaður mikill og mjög vel fær í iðn sinni. Það mun aðallega hafa komið í hlut Kristínar konu Björns að sjá um rekstur bakarísins enda var hún skörungur til verka og stjórn- söm vel. Björnsbakarí þótti líka á þeim árum eitt af helztu bakaríum höfuðstaðarins. í þessu umhverfi ólst Björn yngri upp, og snemma mun hugur hans hafa stefnt að því að leggja brauðgerðariðn fyrir sig, en bróðir hans Arni fetaði hinsvegar í fót- spor föður síns og lagði fyrir sig gullsmíði og rak um árabil gull- og skartgripaverslun hjer í Reykja- vík. Þriðji bróðirinn, hálfbróðir þeirra sammæðra, af fyrra hjón- abandi Kristínar, var hinn þekkti kaupmaður Haraldur Árnason, er rak hina umfangsmiklu karl- mannafata- og vefnaðarvöruverzl- un í Austurstræti við Lækjartorg, sem allir eldri Reykvíkingar kann- ast vel við. Björn var um skeið við brauð- og kökugerðarnám á Akureyri hjá móðurbróður mínum Axel Schiöth og minntist oft á síðari árum á dvölina á Akureyri með ánægju og jeg varð þess greinilega var hversu hlýjan hug hann ætíð bar til frændfólks míns þar. Síðar fór Björn til Parísar og lærði þar kökugerð, sem hann varð full- numa í. En dvölin í Frakklandi kom einnig til með að hafa mikil áhrif á líf Björns á annan hátt, því að hann komst svo vel inn í frönsku og franska menningu að aðdáun- arvert var. Að námi loknu kom Björn heim til Reykjavíkur og tók við rekstri bakarísins, sem hann annaðist af miklum dugnaði næstu árin, og blómgaðist þá allur rekstur þess mjög. Samtímis hafði hann mikil afskipti af starfsemi Alliance Francaise og sat í stjórn þess fje- lags í nokkur ár, er þá starfaði af miklu fjöri undir ötulli forystu frk. Þóru Friðriksson. Kom þá málakunnátta Björns sjer vel. Björn undi þó ekki hag sínum í Reykjavík, Á kreppuárunum flutti hann með fjölskyldu sína til Dan- merkur, en dvölin þar varð þó ekki löng, og rjett áður en heimstyrj- öldin skall á, fluttist fjölskyldan til London, og upp frá því átti Björn heima þar ásamt konu sinni og dætrum. Þegar til London kom tók Björn strax að fást við kaupsýslustörf og stofnaði sitt eigið fyrirtæki, sem hann í rauninni rak til æfiloka þrátt fyrir háan aldur. Viðskipti hans voru aðallega við ísland. Á stríðsárunum annaðist hann inn- kaup fyrir Árna bróður sinn og fjöldamarga aðra, bæði fyrirtæki og einstaklinga. Eins seldi hann iðulega ýmsar íslenzkar sjávaraf- urðir, einkum á síðari árum. Á stríðsárunum gengu flest verzlun- arviðskipti yfirleitt vel, og komst Björn þá í góð efni, en síðar minnkuðu þessi viðskipti og dróst þá kaupmennska Björns nokkuð saman, en alltaf hjelt þó rekstur fyrirtækisins áfram þótt í smærri stíl væri. Björn var einstakt ljúfmenni og lipurmenni og þarf ekki að efa að þeir eiginleikar hafi komið sjer vel fyrir hann í sambandi við kaup- sýslustörfin. Honum varð líka gott til vina, og aldrei heyrði jeg hann tala illa um nokkurn mann eða hallmæla neinum. Þetta ljúfa viðmót hans var ekki síður áberandi í starfi hans að fje- lagsmálum, en hann var í fjölda mörg ár í stjórn Islendingafjelags- ins í London og lengst af formaður þess. Hann bar hag þess fjelags mjög fyrir brjósti og lagði sig all- an fram til þess að fjelagið gæti blómgast sem bezt, enda varð hon- um mikið ágengt í þeim efnum. Fjelagsmenn mátu líka mikils hið mikla og óeigingjarna starf hans fyrir fjelagið. Björn var hamingusamur mað- ur í einkalífi sínu. Þau hjónin, hann og Hulda, hjeldu hátíðlegt demantsbrúðkaup sitt fyrr á þessu ári og höfðu lifað saman í ástríku hjónabandi í um það bil tvo mannsaldra. Heimili þeirra í Pur- ley var eitt fegursta heimili, sem jeg hefi komið á, smekklegt og hlýtt, og viðmót hjónanna þannig, að gesturinn fann strax og komið var inn, að þar var hann velkom- inn. Dæturnar tvær, ungar og elskulegar, þegar við hjónin kynntumst þeim fyrir þrjátíu ár- um, eru báðar giftar ágætum enskúm mönnum, hin eldri Inga, er gift John Crocker lögfræðingi, forstjóra í tryggingarfjelagi og hin yngri Kristín, er gift Ian Daniel viðskiptafulltrúa hjá stórfyrirtækinu Unilever. Á heimili þeirra Björns og Huldu dvaldi lengst af systir hennar Elínborg Bjarnasen, mikil mannkostakona, og var alveg + Þökkum auösýnda samúö og hlýhug vegna andláts og jaröarfarar móöur okkar og tengdamóöur ELKU JÓNSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunardeild Heilsuverndar- stöðvar Fteykjavikur fyrir góöa hjúkrun í veikindum hennar. Guörún Runólfsdóttir, Ármann Kr. Einarsson, Fanney R. Greene, Mark R. Greene, Geir Runólfsson, Sigrún Jóhannesdóttir. + Þökkum auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför HELGA S. GUÐMUNDSSONAR, fyrrv. skrifstofustjóra, Suöurgötu 45, Hafnarfiröi. Fyrir hönd vandamanna. Eyrún Eiríksdóttír. ómetanlegt fyrir heimilið að hafa hana þar til trausts og halds. Ekki sízt nutu dæturnar umhyggju hennar og aðstoðar er þær stofn- uðu sín eigin heimili. Elinborg ljezt fyrir allmörgum árum. Þegar jeg nú minnist míns látna vinar koma mjer í hug margar góðar minningar um ánægjulegar samverustundir, bæði hjeðan frá Reykjavík og eins frá dvölinni í London. Jeg mat vináttu Björns mikils, og við hjónin munum sakna vinar í stað þegar hann nú er horfinn sjónum okkar fyrir fullt og allt. Hugur okkar beinist til Huldu, sem á við aldur og heilsubrest að stríða, til dætranna og fjölskyldna þeirra, sem nú eiga öll að baki að sjá góðum eigin- manni og elskulegum föður. Þau hafa mikið misst og við sendum þeim innilegar samúðarkveðjur. Agnar Kl. Jónsson Sjálfvirkur sími á Barða- ströndina Innri-Múla, Harðastrond, 26. nóvember. LOKIÐ hefur verið aö tengja sjálf- virkan síma í Barðastrandarhreppi, á svæðinu frá Auðshaugi að Siglunesi, samtals 51 númer. Enn er handvirkur sími í Rauðasandshreppi og er ráð fyrir því gert að kominn verði sjálfvirk- ur sími í hluta hreppsins á árinu 1984. Hér hefur tíð verið góð en kalt að undanförnu og bændur farnir að hýsa féð. SJÞ. Aðalfundur LÍÚ: Kristján Ragnarsson endurkjörinn formaður KRISTJÁN Ragnarsson var einróma endurkjörinn formaður Landssam- bands íslenskra útvegsmanna á að- alfundi samtakanna, en honum lauk í gær. I stjórn til þriggja ára voru kosnir: Ólafur Björnsson, Kefla- vík, Jakob Sigurðsson, Reykjavík, Sverrir Leósson, Akureyri, Finnur Jónsson, Stykkishólmi, Gísli Jón Hermannsson, Reykjavík, og Björgvin Guðmundsson, Reykja- vík. Aðrir í stjórn LÍÚ eru: Guð- mundur Guðmundsson, ísafirði, Hallgrímur Jónasson, Reyðarfirði, Kristinn Pálsson, Vestmannaeyj- um, Tómas Þorvaldsson, Grinda- vík, Valdimar Indriðason, Akra- nesi, Vilhjálmur Ingvarsson, Sel- tjarnarnesi, Vilhelm Þorsteinsson, Akureyri, og Þórhallur Helgason, Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.