Morgunblaðið - 16.12.1982, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.12.1982, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1982 Enn frekari samdráttur í starfsemi Cargolux Allt að 150 starfsmönnum sagt upp Cárgoluxflugfélagið í Luxemborg hefur átt við gríðarlega rekstrar- erfiðleika að stríða undanfarna mán- uði, sem m.a. hefur leitt til þess, að hátt á annaö hundrað starfsmönnum Sverrir Leósson fer í prófkjör SVERRIR Leósson, útgerðar- stjóri á Akureyri, hefur ákveðið að gefa kost á sér 1 prófkjöri sjálfstæðismanna í Norður- landskjördæmi eystra vegna næstu kosninga til Alþingis. „Ég fer í þetta prófkjör með góðu hugarfari, og ákvörðunin er mín eigin. Hver sem niður- staðan kann að verða, mun ég leggja mitt litla lóð á vogar- skálar velgengni Sjálfstæðis- flokksins í næstu alþingis- kosningum," sagði Sverrir í samtali við blaðamann Morg- unblaðsins í gær. Sverrir hefur um árabil starfað innan Sjálfstæðis- flokksins, var formaður Varð- ar FUS á Akureyri, formaður Sjálfstæðisfélags Akureyrar og á sæti í stjórn Kjördæmis- ráðs flokksins í Norðurlandi eystra. hefur verið sagt upp störfum. Stjórn félagsins mun á næstu dögum taka ákvöröun um enn frekari samdrátt í starfseminni, sem mun leiða til frek- ari uppsagna starfsmanna. Samkvæmt upplýsingum Mbl. vinna fulltrúar félagsins nú að því að ná samkomulagi við banka og aðra lánardrottna um framleng- inu lána og annarra fjárskuld- bindinga félagsins, auk þess sem farið hefur verið fram á aðstoð ríkisstjórnarinnar í Luxemborg. Stjórn félagsins hefur undan- farið rætt frekari samdrátt í starfseminni vegna almenns sam- dráttar í flutningum og aukinnar samkeppni, en gert er ráð fyrir, að annarri Boeing 747-Júmbóþotu fé- lagsins, verði annað hvort lagt, eða henni fundin verkefni annars staðar. Síðan er gert ráð fyrir, að félagið verði með í rekstri hinnar Boeing 747-vélarinnar, auk tveggja véla af DC 8-gerð. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Mbl. hefur aflað sér, mun þessi samdráttur þýða uppsagnir 100—150 starfsmanna á næstu mánuðum. Þegar hagur félagsins var í blóma á síðasta áratug unnu liðlega 600 starfsmenn hjá því, en ef til þessar uppsagna kemur, munu starfsmenn verða á bilinu 250-300. Krabbameinsfélag Islands: Dr. Kristján Sigurðsson yfirlæknir Leitarstöðvar Þessi mynd var tekin á þriðjudagskvöldið, en þá léku Stuðmenn til kl. þrju um nóttina. MorgunblaAiA/ RAX Maraþontónleikarnir í Tónabæ: Hljómsveitin Gift lék samfleytt 1 24 tíma NÚ SÍGUR á seinni hluta mara- þontónleikanna í Tónabæ. Tón- íeikarnir hófust þann 4. desember sl. og er áætlað aö þeim Ijúki á sunnudaginn. Það er spilað allan sólarhringinn, en opið fyrir áheyr- endur frá kl. niu á morgnana til kl. tólf á kvöldin. SATT, samtök alþýðutón- skálda og tónlistarmanna, og Tónabær standa sameiginlega að þessum tónleikum og er mark- mið þeirra tvíþætt: annars vegar að slá lengdarmet í tónleikahaldi og komast þannig inn í Guinn- ess-metabókina, og hins vegar að sýna fram á hina miklu breidd sem er í íslenskri rokktónlist. Þegar hafa 31 hljómsveit leik- ið, en hver hljómsveit verður að leika í minnst 6 tíma. Nokkrar hljómsveitir hafa haldið út leng- ur, t.d. Pass, sem stóð á sviðinu samfleytt í 20 tíma þann 9. des- ember, og hljómsveitin Gift, sem hélt út í 24 tíma, eða frá kl. 11.00 að morgni þriðjudagsins til kl. 11.00 daginn eftir! Og 10 aðrar hljómsveitir hafa leikið í 12 tíma. Hljómsveitin Gas hefur verið að spila í nótt og verður að til kl. 11.00 a.m.k. Eins og fyrr sagði lýkur tónleikunum á sunnudag- inn en þá verður einnig fjöl- skylduhátíð í Tónabæ með jóla- sveinum og öllu tilheyrandi. „Björgun úr sjávarháska“ sett upp á hafnarsvæðinu HAFNARSTJÓRN samþykkti á fundi sínum fimmtudaginn 9. þessa mánað- ar, aö í fjárlögum nefndarinnar skyldi gert ráð fyrir ákveðinni upphæð til að reisa afsteypu af verki Ásmundar Sveinssonar, myndhöggvara; Björgun úr sjávarháska. Að sögn formanns hafnarstjórn- ar, Ingibjargar Rafnar, eru uppi hugmyndir um að verkið verði reist í samvinnu við fleiri aðila, meðal annars Óttar Ellingsen, sem á af- steypurétt verksins. Ekki er ljóst hvenær eða hvort endanlega verður af þessari hugmynd, en Ingibjörg sagði, að með þessu væri möguleik- inn þó fyrir hendi. Gunnar B. Guðmundsson, hafnar- stjóri, sagði að þessi hugmynd hefði legið nokkuð lengi fyrir, en hefði ekki komizt á skrið fyrr en nú. Sagði hann, að ekki væri ljóst hvar verkinu yrði valinn staður, yrði það sett upp, en talað hefði verið um Selsvör. Fjárlagafrumvarpið: Framlag til for- seta FIDE lækk- að um 640 þús. FRAMLAG sem ætlað var forseta FIDE í fjárlagafrumvarpinu fyrir ár- ið 1983 upp á kr. 800 þúsund var lækkað í meðforum fjárveitinga- nefndar um 640 þúsund kr. Þeim 160 þúsund krónum sem eftir standa er ætlað að renna til uppgjörs á kostnaði við kosn- ingabaráttu Friðriks Ólafssonar, en eins og kunnugt er tapaði Frið- rik kosningunni. Einar Birnir, formaður Félags íslenzkra stórkaupmanna: Mjög erfiðlega gengur að innheimta skuldir og erfiðleikar steðja að mörgum fyrirtækjum DR. KRISTJÁN Sigurðsson hefur verið ráðinn yfirlæknir Leitarstöðvar Krabbameinsfélags íslands frá og með 10. desember 1982. Kristján var eini umsækjandinn um stöðuna. Eftir að Guðmundur Jóhannes- son yfirlæknir lést af slysförum í desember 1981 hefur Gunnlaugur B. Geirsson yfirlæknir Frumu- rannsóknastofu Krabbameinsfé- lagsins jafnframt gegnt yfirlækn- isstörfum við Leitarstöðina, þar til dr. Kristján var settur yfir- læknir í september sl. Kristján Sigurðsson er 39 ára. Hann lauk læknaprófi frá Háskóla íslands 1972 og hlaut lækninga- leyfi 1974. Hann stundaði fram- haldsnám í kvensjúkdómum í Stokkhólmi 1974—1978, en á því ári var hann viðurkenndur sér- fræðingur í þeirri grein í Svíþjóð. í Stokkhólmi og Lundi stundaði hann sérfræðinám í kven-krabba- meinslækningum (gynecologisk oncologi) til ársins 1981. Er hann fyrsti íslenski sérfræðingurinn á því sviði. í byrjun september 1982 varði Kristján doktorsritgerð við há- skólann í Lundi. Fjallaði ritgerð hans um forspárþætti og meðferð krabbameins í eggjakerfi (A study of Prognostic Factors and the Eff- ects of Combined Treatments). Dr. Kristján Sigurðsson er kvæntur Sigrúnu Ingadóttur og eiga þau eina dóttur. Dr. med. Kristján Sigurðsson. „ÞAÐ liggur alveg Ijóst fyrir, að erf- iðleikar steöja að mörgum fyrirtækj- um í innflutningsverzlun. Á sama tíma og allur tilkostnaður fyrirtækj- anna hækkaði stöðugt á sl. ári, stóð álagning fyrst í stað, en síöan var hún lækkuð, þrátt fyrir þá stað- reynd, að hún var verulega of lág í flestum tilfellum," sagði Einar Birn- ir, formaður Félags íslenzkra stór- kaupmanna, í samtali við Mbl., er hann var inntur eftir stöðu innflutn- ingsverzlunarinnar um þessar mundir. „Menn náðu því alls ekki upp þeim tekjum, sem nauðsynlegar voru, þrátt fyrir að veltan hafi verið mikil í mörgum tilfellum. í lok þessa árs blasir því við betur en oftast áður, að mikil velta þýðir alls ekki í öllum tilfellum miklar nettótekjur," sagði Einar Birnir. „Allt tal um gríðarlegan hagnað innflutningsverzlunarinnar, vegna mikils innflutnings, er því alger- lega á misskilningi byggt. Þessi mikla innflutningsaukning hefur hreinlega skapað vanda hjá mörg- um,“ sagði Einar Birnir. Aðspurður um fjármagnsskort innflutningsfyrirtækja sagði Ein- ar Birnir, að hann væri auðvitað mikill, eins og hjá öðrum atvinnu- fyrirtækjum í landinu. „Við eigum auðvitað erfitt með að endurnýja okkar lager á eðlilegan hátt í 60% verðbólgu, þegar fjármagns- fyrirgreiðsla er skert eins og raun ber vitni. Þessi vandræði eru ein- faldlega afleiðing þeirrar stefnu, sem fylgt hefur verið, að svelta innflutningsverzlunina," sagði Einar Birnir ennfremur. Einar Birnir sagði augljóst, að erfiðleikatímabil færi í hönd. „Ég hef heyrt á starfsfélögum mínum, sérstaklega þó þeim sem eiga viðskipti við útgerðarfyrirtæki og ríkið, að mjög erfiðlega gengur að innheimta skuldir um þessar mundir," sagði Einar Birnir að síðustu. Grímsstaðir á Fjöllum: Skálað í kampa- víni fyrir nýjum leirbrennsluofni (irímsstöóum á Fjöllum, 15. dcscmber. f MORGUN var flest fólk hér á Grímsstöðum samankomið í Leirmuna- verkstæði Ólafar Bjarnadóttur, sem er staðsett í nýbyggðri vélageymslu hér á staðnum. Tilefnið var að Ölöf var að brenna fyrstu leirmunina í þar til gerð- um leirbrennsluofni. Heppnaðist það vel og fengu menn sér kampavín og laufabrauð til há- tíðabrigða. Jólaundirbúningur er hér í fullum gangi eins og annars staðar, og erum við að vonast til að fá skólafólk og gesti hingað heim um næstu helgi. Hér er sæmileg færð núna, en venju- lega flýgur fólk á Aðaldalsflugvöll og fer þaðan upp í Mývatnssveit. — Hcnedikt Könnun Borgarlæknisembættisins í Reykjavík: Mikið hefur dregið úr reykingum nemenda Stúlkur reykja enn meira en piltar ÞAÐ virðist heyra til undantekn- inga aö 12 ára börn og yngri séu farin að reykja. Þessar upplýsingar koma fram í Takmarki, riti Krabbameinsfélags Reykjavíkur, en þar er byggt á könnun, sem borgarlæknir lét gera í apríl síð- astliðnum. Könnunin náði til grunnskólanema 10 ára og eldri og í flestum skólum einnig til 9 ára nemenda. Þeim sem reykja hefur hlutfallslega fækkað í öllum ald- ursflokkum frá því að samsvarandi könnun var gerð vorið 1978 og enn frekar ef miðað er við könnun frá árinu 1974. Mest hefur breytingin orðið meðal 12 ára barna. í vor sagðist eitt af hverjum fimmtíu reykja, en fyrir átta árum eitt af hverj- um níu. Minnst hafa reykingar minnkað meðal 14 og 15 ára nemenda, en þó talsvert. í elzta aldursflokki, 16 ára, reykir rúm- lega þriðjungur nú, en meira en helmingur 1974. I ölium aldursflokkum frá og með 13 ára reykja mun fleiri stúlkur en piltar. Þetta er ekki nýtt fyrirbæri, því sömu sögu var að segja 1978 og 1974 var munurinn enn meiri. Samkvæmt nýjustu könnuninni er þessi munur mestur hjá 16 ára nem-. endum. í þeim hópi reykja þrjár stúlkur á móti tveimur piltum. Samanburður á reykingum 12—16 ára grunnskólanemenda í Reykjavík samkvæmt könnunum Borgarlæknisembættisins 1974, 1978 og 1982.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.