Morgunblaðið - 16.12.1982, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 16.12.1982, Blaðsíða 48
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1982 Fæddur 20. maí 1893 Dáinn 9. desember 1982 Það var sumarið fyrir ragna- rökin miklu í Evrópu, er ég kynnt- ist Ásmundi Sveinssyni fyrst. Hann var þá að „leira" líkt og börn nefna það — nánar tiltekið var hann að rannsaka leirinn kringum litla hverinn við Laug- arvatn og var með leirhnullunga í lúkunum við hótelið, brosti breitt við ungum forvitnum smápollum. Okkur þótti hann vægast sagt undarlegur og dularfullur í hátt og mér varð þessi hægláti og trausti maður minnisstæður. Þarna var ég staddur fyrir sérkennilega skikkan forlaganna, því að faðir minn varð fyrir miklu slysi í Osló og fékk bætur til að dvelja á heilsuhæli og eyddi þeim á svo fagran hátt að láta fjöl- skylduna njóta þess, aðra en þá sem þegar voru komnir í vega- vinnu. Síst af öllu datt mér þá í hug, að ég ætti eftir að feta svip- aða braut og Ásmundur og löngu seinna, er ég var að taka út þroska, lét ég oft hugann reika til þessara dásamlegu daga á Laug- arvatni þar sem mér fannst ég lík- astur kotungi í konungsríki. Jafn- an var þá þessi síbrosandi maður mér í fersku minni, og mér fannst ylurinn frá honum, þessi mann- lega hlýja, lýsa mér veginn fram, þá er mest blés á móti. Og nú er hann allur, var lengi að skilja við lífið og kom þar fram sú mikla seigla, er einkenndi líf hans allt og gerði hann að einum snjall- asta listamanni, er íslenzk þjóð hefur eignast. Ætti ég mér eina ósk, væri hún sú, að þessum línum fylgdi mynd af höndum Ásmundar, þar sem hann handlék ástúðlega leirinn við Laugarvatn, og úr minni mínu hverfur aldrei. Aðra minningu á ég frá öðru löngu liðnu sumri, og hún er frá því er ég hafði vinnuaðstöðu í gagnfræðaskóla verknáms við Selsvör. Á björtum sumarnóttum átti ég erfitt með að slíta mig frá þeim síkvikulu litbrigðum náttúr- unnar, sem alstaðar voru þar í sjónmáli og ég reyndi af alefli að festa á léreft. Svo var gengið heim á Laugarásinn, og það var löng ganga, en ávallt fór ég framhjá kúlunni hans Ásmundar og horfði heillaður drjúga stund á þetta sig- urverk eins manns. Ég játa það hreint út sagt, að stundum fann ég tárin streyma niður vanga mína, en það voru gleðitár yfir allri þessari himn- esku fegurð og þakklæti til for- sjónarinnar yfir því að vera sam- landi Ásmundar. Og þá voru spor- in létt, það sem eftir var á Laugar- ásinn, og betur hef ég sjaldan sof- ið né hressari vaknað til nýs dags. Með eigin höndum byggði Ás- mundur sér tvö hús, og bæði eru þau einstök listaverk og íslenskum húsagerðarmönnum til umhugs- unar, enda hafa félagssamtök þeirra aðsetur í öðru þeirra. Hugvitssemi hans átti sér engin takmörk og hann glæddi erlend áhrif rammíslenskri vitund. Því var líkast, sem þessi maður væri sprottinn upp úr íslenzkum þjóðsögum og nú er svefninn langi hefur breiðst yfir ásjónu hans, er þakklætið efst í huga. Þakklæti fyrir þá miklu list og heilladrjúga fordæmi, er hann gaf okkur hinum yngri, að láta ekki deigan síga, en halda rólegir veginn fram með sannfæringu okkar í malnum. Ásmundur Sveinsson frá Kolstöð- um í Miðdölum í Dalasýslu mun ávallt lifa með sinni þjóð, vera henni ljósgjafi og afl með list sinni. Bragi Ásgeirsson Tugir ára eru liðnir frá því að ég gerðist svo djarfur að taka lista- manninn Ásmund Sveinsson myndhöggvara tali. Það var á málverkasýningu einni hér í borg- inni. Mig hafði lengi dreymt um að fá að sjá einhver verka hans — en hann var þá nýfluttur í vinnu- stofu sína við Freyjugötu — hafði áður búið á Laugarnesspítala, og enda þótt það hús væri nærri mín- um bernskuslóðum, hvíldi viss bannhelgi yfir þeim stað, þannig að þangað fór enginn, sem ekki átti þangað brýnt erindi. Þessi stutta viðkynning varð mér ógleymanleg, eitthvað í fari listamannsins heillaði mig strax, góðlátleg kímni og velvilji, en um leið krafa til listamanna. Árin liðu og leiðir okkar lágu saman með ýmsum hætti, t.d. átt- um við saman sæti í safnráði Listasafns íslands, á fyrstu árum eftir að sú stofnun hafði verið lögfest, og þar lagði hann jafnan gott til málanna. Seinna naut ég þeirrar ánægju að vera lögmaður hans og átti þátt í því, að Arki- tektafélag íslands keypti Ás- mundarsal við Freyjugötu. Hann hafði gaman af því, að einmitt samtök arkitekta skyldu eignast húsið. Sem leiðsögumaður erlendra ferðamanna um höfuðborgina átti ég iðulega erindi í listaverka- skemmu hans við Sigtún. Mér fannst það hluti af kynn- ingu á Reykjavík að leiða erlenda ferðamenn til listamannsins. Hann var þarna eins og persónuJ gervingur söguritunar, forneskju og framúrstefnu í senn og bauð milljónamæringum í nefið. — Nokkrum þeirra datt í hug að spyrja, hvort verkin væru föl, ein- staka, svo sem olíukóngar frá Houston í Texas, vildu kaupa allt safnið. Nei, þetta safn var eign þjóðarinnar — eign Reykjavíkur — verkin voru ekki föl. Einn skugga bar á í þessum ferðum, en það var, að verkin voru úr gifsi en ekki steypt í eir. Ein- hvern tíma barst það í tal á milli okkar, að það væri gaman, ef hægt væri að sýna verkin í réttu efni. Það atvikaðist líka svo, að rneð okkur tókst samstarf um það að láta steypa nokkur verka hans er- lendis, m.a. „Eva yfirgefur Para- dís“, „Eva talar", „Galdramaður", „Gaídrahjallur" o.fl. Það var alltaf ánægja að hitta þau í listaverkaskemmunni, Ingrid eiginkonu Ásmundar og listamanninn í skemmunni. Ingrid kvaddi þennan heim 1976. Hún var honum mikil stoð. — Voru leið- sögumenn erlendra ferðamanna þéim ávallt aufúsugestir. Fyrri kona Ásmundar var Gunnfríður Jónsdóttir mynd- höggvari, mikill kvenskörungur. Auðvitað átti ég allt of fáar stundir með listamanninum, en þær voru ógleymanlegar. — Mér er t.d. minnisstætt, þegar í undir- búningi var að steypa verkið „Eva yfirgefur Paradís", hvernig lista- maðprinn hugleiddi um verkið. Hann vildi láta það koma fram, að Eva hefði yfirgefið Paradís með reisn, því hún vissi, hvað Jiún átti í vændum. Þótt hún væri rekin úr Paradís, þá kímdi hún við. Slíkur var húmor Ásmundar. Eða fögn- uður Evu, þegar hún, hin fyrsta kona, gerir sér ljóst, að hún getur talað — og dansar af gleði. Ef hægt er að segja að einstakl- ingur sé ímynd íslenskrar þjóðar- sálar, þá var það Ásmundur Sveinsson. Hann var óvenjulegur persónuleiki og stór í öllu, sem hann gerði, — fjölkunnugur af- reksmaður. I honum voru sumir bestu þættir íslenskra sveita- manna, svo sem hin þrotlausa at- orka og hrjúfa hlýja — að öðru leyti var hann heimsborgari og kemur það fram í list hans. Fyrir mörgum árum sátum við Jóhannes Sv. Kjarval saman yfir kaffibolla á veitingastað. Kjarval var mikið niðri fyrir. Hann las fyrir mig brot úr umsögn gagn- rýnanda um verk listamanns, sem kvatt hafði þennan heim. Hann býsnaðist mikið yfir orðinu „heit- inn“ og sagði: „Enginn listamaður getur verið heitinn, því hann lifir áfram í list sinni. Myndirðu nokk- urn tíma segja Shakespeare heit- inn eða Grettir heitinn.“ Auðvitað var þessi athugasemd réttmæt — Ásmundur Sveinsson lifir áfram í verkum sínum — í sinnl miklu gjöf til íslensku þjóð- arinnar. Við erum stórum ríkari að eiga Ásmund Sveinsson. Ég votta dóttur hans, Ásdísi, og tengdasyni, Helga E. Helgasyni, og dóttursonunum, Ásmundi og Helga Sæmundi, virðingu mína og þakklæti. Listin er óendanleg en lífið stutt. Gunnlaugur Þórðarson Vestur á Seltjarnarnesi stendur myndin Trú eftir Ásmund Sveinsson og mér er nær að halda að þessi mynd hafi verið honum kærust allra verka, er hann vann á löngum listamannsferli sínum. Upphafið að gerð þessarar mynd- ar var hugmynd er hann lagði fram að skjaldarmerki fyrir Reykjavík um 1955, og eru súlurn- ar sem nú bera verkið uppi það eina sem eftir varð frá frumhug- myndinni, en næsta þróun mynd- arinnar varð svo skírnarfonturinn í kirkju Óháða safnaðarins og var þá reyndar endanleg gerð mynd- arinnar fullmótuð. Um þessa einu mynd Ásmundar mætti skrifa langan fyrirlestur um trúarviðhorf Islendinga í gegnum aldirnar og fá umræðu- efni voru honum hugstæðari en gildi trúarinnar fyrir mannlífið. Strax á námsárunum í París verð- ur honum rík í huga þjóðsagan um Sæmund og heimsiglinguin á seln- um. Aðeins hin helga bók gat bjargað frá eilífri glötun. En þeg- ar á allt er litið, var manninum það mikilvægast að trúa á Móður jörð og geisla sólarinnar, sem gáfu öllu líf. Þann sannleika túlkaði Ásmundur í fjölmörgum verka sinna. Sjálfum var honum það nauðsyn að stinga upp garðinn sinn og setja niður útsæði til að komast í snertingu við vorið. Upp- runinn sagði glöggt til sín og hug- ur Ásmundar var oft bundinn við minningar frá æskustöðvunum vestur í Miðdölum, einkum hin síðari ár eftir að hann hóf mótun tröllamyndanna, sem hann kallaði svo, en þá vöktu fyrir hugskoti hans minningar frá dögum hjáset- unnar í Geldingadal, þegar dimm- viðri og þoka mögnuðu kletta- borgir og fjalladranga og hann sá þær furðumyndir fyrir sér alla tíð sem meistarasmíð sköpunarinnar. Mörgum sinnum höfðum við áformað heimsókn í dalinn hans, en það varð aldrei annað en ráða- gerðin. Sjálfum finnst mér þó, að dalnum hans megi ég til með að kynnast af eigin sjón, svo margt var Ásmundur búinn að segja mér frá honum, og ef af þeirri för verð- ur einhvern daginn, þá trúi ég því, að vinur minn verði mér nálægur og bendi mér á markverðustu tröllamyndirnar, sem þar eru geymdar, myndirnar sem vöktu hjá honum þrá til að fara út í heim og kynnast handbragði fornra meistara á sviði höggmyndalistar. En hvar sem hann fór, gleymdi hann ekki daln- um sínum né fólkinu sem bjó þar við erfið kjör og hreggviðri, sögu þessa lands og landvættum. Myndir hans fjalla um Island og eru í takt við það líf sem landið býður upp á. Verk hans munu standa um ókomin ár, þótt sjálfur hafi hann kvatt eftir langan starfsaldur. Hafliöi Jónsson Daginn sem ég frétti lát Ás- mundar Sveinssonar, sagði ég við vin minn: „Ásmundur er dáinn" og hann svafáði: „Þar fór mikill öðl- ingur". Það eru orð að sönnu, því öðru eins ljúfmenni hef ég ekki kynnst og ég býst við því að öllum sem kynntust Ásmundi sé það sama í huga. Ég man fyrst eftir honum þar sem hann var að brasa við að koma stórri mynd út úr Ásmund- arsal, þar sem hann hafði vinnu- stofu. Við vorum þrír skólabræð- ur, sem gengum gjarnan framhjá húsi Ásmundar þegar við fórum heim úr skóla og við stóðum þarna og horfðum á. Asmundur fór strax að ráðgast við okkur um það hvernig best væri að koma mynd- inni út og auðvitað var mikið spekúlerað og málin rædd frá öll- um hliðum. Ég minnist aðeins á þetta atvik vegna þess að Ás- mundi var svo létt að tala við hvern sem var, það var sama hvort það var ellefu ára strákur úr barnaskólanum eða þjóðhöfðingi. Hann talaði alltaf um högg- myndir eða aðrar listir og talaði ávallt máli listarinnar. Eg man svo vel eftir þegar hann var að hamra á því að list ætti að vera úti en ekki inni í stofum, því að úti njóta fleiri og það var aðalmálið fyrir Ásmundi að sem flestir gætu notið listarinnar, vegna þess að list er mannbætandi. Ásmundur var frumkvöðull að stofnun Myndlistarskólans í Reykjavík og kenndi þar í mörg ár. Þessi skóli var fyrsti skólinn á íslandi sem kenndi skúlptúr. Þegar hann var að kenna, þá var hann alltaf svolítið forvitinn og spenntur að sjá hvað nemendurnir væru að gera og hann hafði ótrú- lega góð og jákvæð áhrif á alla. Nú eru mörg ár síðan Ásmund- ur fékkst við kennslu en verk hans eru og munu verða ómetanlegur þáttur myndlistarkennslu hér á landi og um ókomna framtíð. í máli hans kom ávallt fram ást og virðing fyrir listinni og því að búa til og gera eitthvað fallegt. Hann talaði um fegurð, list, list- amenn og stefnur og hann var alltaf jákvæður. Jafnvel fáránleg- ustu hugmyndir sem um var rætt hverju sinni fengu umfjöllun, og alltaf var þetta ljúfa jákvæða viðhorf fyrir hendi. Ásmundur var að sjálfsögðu maður hins þrívíða forms, gerði myndir sem hægt var að ganga í kringum og skoða frá öllum hlið- um. Myndir hans eru ótrúlega þrí- víðar og þótt sumar séu smáar í sniðum, þá eru þær yfirleitt hugs- aðar mjög stórt. Og þegar við skoðum verkin hans sjáum við að þau eru ekki bara framhlið og bakhlið, heldur virka þau sem heild forma sem veita okkur gleði og undrun. En við nánari skoðun sjáum við að formin geyma í sér skoðanir og lífsviðhorf lista- mannsins. Og skoðandinn uppgötvar þessa fallegu trú Ásmundar á lífið og tilveruna, þessa trú sem við sjáum í myndum eins og Móður Jörð og Sonatorreki og fleiri höggmyndum sem hann hefur auðgað samfélag okkar með. Verk hans munu standa um ókominn tíma sem minnisvarði um þann myndhöggvara íslenskan sem hvað mest hefur stuðlað að því að gera myndlist aðgengilega fyrir almenning, og um leið að fegra umhverfið. Reykjavíkurborg hefur á undan- förnum árum eignast margar myndir eftir Ásmund en þó er mest, að hann hefur nú arfleitt Reykjavíkurborg að öllum verkum sínum, bæði úti og inni, og hef ég ekki heyrt af annarri gjöf jafn stórri. Að gefa lífsstarf sitt er ótrúlega fallegt. Lífsstarf hans var þrotlaus vinna að myndlist þann tíma sem kraftar hans ent- ust. Hann hefur auðgað líf okkar með því sem aldrei verður metið til fjár, en það er trúin á lífið og listina. Við kveðjum þennan mikla öðl- ing með djúpri virðingu og þökk. Myndhöggvarafélag Islands Jón Gunnar Árnason Einn af merkustu samtíðar- mönnum okkar er látinn og verður til moldar borinn í dag. Ásmundur Sveinsson var einn þeirra manna, sem skilja eftir sig verðmæti, sem ekki verða metin til peninga. Okkur, sem umgöng- umst verk Ásmundar svo til dag- lega í þessari borg, er hollt að minnast þess, að þessi verk skóp Ásmundur, þrátt fyrir andstreymi og erfiðar aðstæður um langan tíma. Framan af var Ásmundur allt að því einn á báti með nýjung í listum, sem ekki átti sér marga stuðningsmenn hérlendis, enda þótt höggmyndalistin, í þeim bún- ingi, sem Ásmundi var nærtæk- astur, hefði þegar fest rætur í evr- ópskri menningu og breiðzt ört út um lönd með margvíslegum stíl- brögðum og ýmsum hliðarsporum. Lífið og listin tóku örum breyting- um á fyrstu tugum aldarinnar, og hræringar þær, sem þá áttu sér stað, fóru ekki fram hjá bóndasyn- inum úr Dölum vestur. Ásmundur Sveinsson var einn þeirra manna, sem skópu islenzka menningu tuttugustu aldarinnar. Hann stóð föstum fótum í því hefðbundna, en var jafnframt boðberi þess nýja í höggmyndalist, og um það vitna verk hans bezt. Maðurinn Ásmundur Sveinsson var ógleymanlegur öllum þeim, er urðu þeirrar ánægju aðnjótandi að kynnast honum. Hann var sérkennilegur persónuleiki, sem kom mönnum á óvart með vits- munum sínum og skarpskyggni. Hann var margslunginn listamað- ur, sem gekk ótrauður nýjar slóð- ir, sem stundum nutu lítillar hylli meðborgaranna. Margir munu minnast þess úlfaþyts, sem varð hér í sambandi við Vatnsberann, en öll sú saga er nú fyrnd og næsta ótrúleg í augum yngra fólks. Og Vatnsberinn var ekki einasta verk Ásmundar, sem kom samtíð hans í opna skjöldu; orð hans og athafnir gátu líka orðið til þess. Þegar Ásmundur Sveinsson varð sextugur, en síðan eru liðin 29 ár, fór hann í reisu með konu sinni til Parísar, en þar hafði hann dvalið fyrir mörgum árum við nám hjá sjálfum Bourdelle. Svo bar við, að einmitt á sama tíma og þau hjón komu til Parísar, var ég staddur þar í borg, og leiðir okkar lágu nokkuð saman. Þeir dagar standa mér ljóst í minni. Mér er sérstaklega minnisstæð heimsókn, sem ég fór í með Ás- mundi, til hins fræga myndhöggv- ara Zadkins. Sú heimsókn var meira en einnar messu virði. Ég rifja þetta upp hér, vegna þess að hún gefur dálitla innsýn í per- sónuleika þessara tveggja manna. Ásmundur hafði setið á kaffihúsi með okkur nokkrum Islendingum, þegar Zadkin bar þar að, eins og hans var vani. Hann staldraði svolítið við, horfði á hópinn, og síðan var hann horfinn fyrir horn. Daginn eftir bar fundum okkar Zadkins saman. Hann spurði mig, hver sá maður hefði verið, sem sat með okkur í gær. Ég gat frætt meistarann um það og það tók engum togum, að hann vildi clmur, að ég kæmi með Ásmund í vinnustofu sína daginn eftir. „Ég hef áhuga á þessum rnanni," sagði hann. Það var engum vanköntum bundið af hálfu Ásmundar, og við fórum. Zadkin tók vel á móti okkur, og þeir meistararnir tók strax tal saman. Zadkin var Rússi, en talaði ensku. Ásmundur var ís- lendingur og talaði sænsku. Hóf- ust nú upp einar merkilegustu samræður, sem ég hef heyrt , en verða þær ekki raktar hér. Báðir töluðu erlent mál, en þó ekki það sama, en ekki var annað að merkja en að þeir skildu hvor ann- an til fullnustu. Þarna varð til mikitl vinskapur og gagnkvæm virðing, er entist báðum frá þeim degi. Slíkri uppákomu gleymir maður ekki. Annar atburður er mér minn- isstæður frá þessari Parísardvöl. Ásmundur vildi endilega sýna konu sinni, hvar hann hefði gengið í læri á sínum tíma. Hann gerði sér því ferð með henni að skóla- húsinu, þar sem hann hafði lært að móta í leir. Þegar þangað kom, lá leið þeirra hjóna um gang, er lá frá götu inn í stórt port að húsa- baki. Þar í ganginum var gömul kona að bjástra við að skúra tröppur. Það voru eitthvað um þrjátíu ár síðan Ásmundur hafði verið þarna seinast á ferð. Þegar þau hjón ganga þarna framhjá, lítur sú gamla upp andartak og segir við Ásmund: „Nei, ert þú nú kominn aftur." „Þarna getur þú séð,“ sagði Ásmundur, „svona eru Frakkarnir. Tryggðatröll, ef þeir taka manni á annað borð.“ Þetta litla atvik segir einnig sína sögu. Nú þegar Ásmundur Sveinsson, sem var orðinn heil stofnun í lif- anda lífi, er kvaddur í hinsta sinn, er það ekki með söknuði, heldur með gleði yfir, að slíkur maður skuli hafa verið til á þessu landi. Ég læt það verða mín síðustu orð hér, sem Ásmundur sjálfur sagði um Rodin: „Höggmyndin hefði aldrei náð eins langt og raun ber vitni í nútímabúningi sínum, ef Rodin hefði ekki notið við.“ Ég tek mér það bessaleyfi að breyta þess- ari setningu og segja „ef Ásmund- ur hefði ekki verið“. Valtýr Pétursson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.