Morgunblaðið - 16.12.1982, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 16.12.1982, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1982 Norska ríkið veitir stórstyrk til álvers Hondúras: Dóttir for- setans rænt Cuatemalahorg, 15. desember. AP. STJÓKNVÖLD í Guatemala til- kynntu í gærkvöldi aö 33ja ára gamalli dóttur Roberto Suazo Cordoba, forseta Hondúras, hafi veriö rænt af vinstrisinnuðum skæruliðum þar í landi. Innanríkisráðherra Guatemala sagði í morgun, að dótturinni, Xia- mora Suazo Estrada, hafi verið rænt af ónefndum vinstrisinnuð- um skæruliðum, sem færu fram á að koma „pólitískum mótmælum" á framfæri í fjölmiðlum í Mið- Ameríku og Mexíkó í skiptum fyrir lausn hennar. Skæruliðarnir sögðu að ef ekki yrði gengið að kröfum þeirra fyrir föstudag yrði dóttir forsetans „í hættu“. Hvalveiðum Norð- manna mótmælt Osló, 15. desember. Krá Jan Krik Lauré, fréttaritara Mor^unblaAsins í Osló. VAXANDI mótstaða í Evrópu og Bandaríkjunum gegn hvalveiðum Norðmanna veldur Thor Listau, sjávarútvegsráðherra Norðmanna, miklum áhyggjum. Að undanlornu hafa birzt margar auglýsingar í bandarískum og evrópskum blöðum, þar sem hvalveiðum Norð- manna er mótmælt og fólk hvatt til þess að kaupa ekki norskar sjávarafurðir. Bandaríska dýraverndunarsam- bandið hefur lýst Norðmönnum sem löglausri þjóð. Hvetur sam- bandið alla til þess að líta ekki við norskum fiski en skrifa í þess stað mótmælabréf til forsætisráðherra Noregs. Þá er Japönum einnig lýst sem löglausri þjóð í sams konar auglýsingum, en þeir eru mesta selveiðiþjóð heimsins. Er fólk hvatt til sams konar mótmælaað- gerða gegn Japan og gegn Noregi. Þessi mikla auglýsingaherferð þykir sýna, að það eru voldug öfl, sem standa að baki aðgerðunum gegn hvalveiðunum. Listau sjávar- útvegsráðherra Noregs hefur hins vegar lýst því yfir, að Norðmenn muni efna til auglýsingaherferðar til þess að kynna málstað sinn í sömu blöðum og birt hafa mót- mælaauglýsingarnar. Þá verður sendiherrum Noregs út um heim falið að útbreiða sjónarmið Norð- manna á þessum vettvangi í enn ríkari mæli en áður. Hjartaþeg- inn þungt haldinn Salt Ijike ('ity, 15. desember. AP. BARNEY Clark, gervihjartaþeg- inn, var þungt haldinn í dag eftir uppskurð í gær, þar sem skipt var um hluta hjartans. Hann er kominn með lungnabólgu og er við slæma líðan, að því að haft er eftir læknum hans. „Hann var þungt haldinn áður en hann gekkst undir þennan upp- skurð og hann er enn veikari eftir hann,“ sagði læknir hans í dag, en Clark kom til fullrar meðvitundar tveimur klukkustundum eftir að- gerðina og gat svarað spurningum lækna sinna. Gervihjarta grætt í kálf Moskvu, 15. desember. AP. MOSKVUÚTVARPIÐ tilkynnti í dag að gervihjarta hefði í fyrsta skipti verið grætt í kálf þar í landi. Ekki kom fram í fréttinni hvort að- geröin hefði tekist. Gervihjartanu mun hafa verið komið fyrir í þriggja mánaða gömlum kálfi og mun prófessor nokkur í vísindastöðinni í Moskvu hafa framkvæmt aðgerðina. Lögreglan gefur engar upplýsingar hafa ekki viljað tjá sig um málið, en Ijóst þykir að ræningjarnir hafa þekkt til að einhverju leyti innan húss og athygli hefur vakið hversu auðvelt þeim hefur reynst þetta. Segist vera dóttir Paul McCartneys Bettina Hiibers (20 ára) heldur hér á mynd af Bítlinum Paul McCartney, en hún heldur því fram, að hún sé óskilgetin dóttir hans og hefur höfðað mál til viðurkenningar á því. Málið verður tekið fyrir í héraðsdómi í Vestur-Berlín í febrúar. Celenk kveðst ekki þekkja Ali Agca Vín, 15. deHember. AP. TYRKINN, sem eftirlýstur er af ítölsku lögreglunni vegna skotárásarinnar á Jóhannes Pál páfa II, hefur þvertekið fyrir að þekkja Mehmet Ali Agca, sem er tyrkneskur ríkisborgari ákærður fyrir tilræðið, samkvæmt fregnum frá búlgörsku fréttastofunni. „Bekir Celenk kveðst ekki þekkja Mehmet Ali Agca, hann hafi aldrei hitt hann og segir það uppspuna að hann hafi tekið þátt í tilræðinu,“ segir í fregnum búlgörsku fréttastofunnar. New Yorlt, 15. desember. AP. BANDARÍSKA alríkislög- reglan kveðst hafa „trausta þræði“ til að fylgja í rann- sókn á hinu mikla peninga- ráni í gær, þegar 9,8 milljón- um dollara var stolið úr flutningafyrirtæki nokkru sem tekur að sér að flytja verðmæti með brynvörðum vörubílum. Tveir menn munu hafa staðið að ráninu, sem er hið mesta í sögu Bandaríkj- anna. í fyrstu var álitið að upphæðin, sem þeir höfðu á brott með sér hafi verið 5,3 milljónir dollara, en í dag var tilkynnt að saknað væri um 9,8 milljóna dollara. Þeir sem að rannsókninni standa fyrir hönd lögreglunnar Hitler ítölsk stjórnvöld hafa sem kunnugt er farið fram á framsal á Celenk, sem tilkynnt hefur ver- ið að hafi verið handtekinn fyrir viku síðan í Búlgaríu. Samkvæmt fregnum frá Ítalíu mun Celenk hafa boðið Agca 1,2 milljónir dollara fyrir að myrða páfa og kynnt hann fyrir búlgörskum njósnurum sem voru í tengslum við málið. Einn búlgarskur yfirmaður hefur verið handtekinn á Ítalíu og gefnar hafa verið út þar í landi handtökuskipanir á tvo aðra Búlgari og fimm Tyrki, þ.á m. Celenk. Agca afplánar nú lífstíðardóm vegna tilræðisins. Búlgararnir hafa neitað öllum tengslum við málið. Búlgarska fréttastofan segir að á föstudag verði haldinn blaðamannafundur í Sofia, þar sem bæði Celenk og hinir Búlgararnir, sem ítalska lögreglan hefur farið fram á að fá framselda, verði viðstaddir Einnig birtust í dag fregnir um það að utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, George P. Shultz, hefði sagt að fregnir þess eðlis að Jó- hannes Páll páfi II hafi tjáð hon- um að hann væri viss um að það hefði verið sovéska leyniþjónust- an KGB, sem hafi staðið að baki tilræðinu við sig, væru „algjör- lega rangar" og ekki væri í þeim sannleiksvottur. sviptur heidri Trier, V-I*ýzkalandi, 15. deoember. AP. TIL ÞESS að minnast þess, að senn eru 50 ár liðin frá þvi að Adolf Hitler komst til valda í Þýzkalandi, þá hef- ur verið borin fram tillaga i borginni Trier þess efnis, að Hitler verði sviptur rétti sinum sem heiðursborg- ari þar. Ilitlcr var veittur þessi heió- ur 18. april 1933, aðeins nokkrum mánuðum eftir að hann komst til valda í Þýzkalandi. Það eru jafnaðarmenn í stjórn borgarinnar, sem lagt hafa tillög- una fram og óska þeir eftir sér- stökum fundi borgarstjórnarinnar til þess að ræða tillöguna og til þess að fá kristilega demókrata, sem hafa meirihluta í stjórn borg- arinnar, til þess að samþykkja hana. Veöur víöa um heim Akureyri 44 skýjaö Amsterdam 9 rigning Aþena 18 heiðskfrt Barcelona 10 skýjað Berlín 4 rigning BrUssel 11 rigning Buenos Airea 28 heiðskfrt Chicago 4 rigning Dyftinni 10 heiðakírt Feneyiar 7 skýjað Franklurt 3 skýjað Færeyiar — vantar Genl 6 skýjað Helsinki 0 skýjað Hong Kong 18 skýjað Jerúsalem 13 heiðskfrt Jóhannesarborg 29 heiðskírt Kairó 21 akýjað Kaupmannahófn 2 rigning Laa Palmaa 6 skýjað Liaaabon 14 skýjað Lontfon 13 skýjað Loa Angelea 20 heiðskírt Madrid 10 skýjað Malaga 15 heiðskfrt Mallorca 15 hálfskýjað Mexíkóborg 18 heiðskfrt Miami 23 skýjað Montreal 44 snjókoma Moakva 2 skýjað Nýja Delhí 25 hefðskfrt New York 4 heiðskfrt Ósló 1 heiðskfrt París 13 alskýjað Reykjavík 44 skýjað Rio de Janeiro 36 rigning Róm 15 skýjað San Francisco 9 skýjað Stokkhólmur 41 skýjað Tókýó 12 heiðskirt Vancouver 9 skýjsð Vín 3 skýjað íþrótt eða ekki íþrótt? Ilnefaleikar hafa verið bannaðir á íslandi um langa hríð, en eru með vinsælustu íþróttagreinum um heim allan. Menn greinir mjög á um ágæti þessarar íþróttar og þeir eru ófáir, sem segja hana lífshættulega i mótsögr. við íþróttaandann. Tíð dauðsfóll kappa í hringnum styðja þá skoðun. Ivssi mynd er tekin í bardaga þungavigtarkappanna Dokes og Weavers í l.as Vegas um sl. helgi. Dæmi hver fyrir sig. NOR.SKA ríkið hefur ákveðið að hlaupa undir bagga með álverinu Árdal Sunndal Verk, sem er i ríkis- eign og veita því 94 milljón dollara styrk eða 1.550 milljónir ísl. króna með auknu hlutafé. Fjármagnið verður nýtt til að mæta halla á fyrir- tækinu á þessu ári og frekari styrk- veiting er í athugun miðað við af- komuna á næsta ári. Erfið staða á álmarkaðinum hefur haft mjög slæm áhrif á Ardal Sunndal Verk og talið er, að tveir þriðju hlutafjár félagsins hafi gengið til þurrðar í lok þessa árs. Alverið tapaði 9 milljónum dollara, tæplega 150 milljónum ísl. króna á síðasta ári og reiknað er með stórtapi í ár og á næsta ári. Að sögn norska iðnaðarráðuneyt- isins er það sett sem skilyrði fyrir hlutafjáraukningunni, að hið nýja fjármagn stuðli ekki að launa- skriði hjá starfsmönnum álvers- ins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.