Morgunblaðið - 16.12.1982, Blaðsíða 36
40
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1982
AIWA-
ferðatæki
Segulband frá AIWA
hafa allsstaöar fengiö
frábæra dóma.
AIWA-ferðatækin eru
engin undantekning.
Útlit, gædi, end-
ing. Allt eins og
best verdur á kos-
iö.
AIWA-ferðatæki jóla-
gjöfin í ár.
Altt tJI hljómflutnings fyrir:
HEIM/UD - BILiNN
OG
DISKOTEKIÐ
■J&
APMUIA38 Selmula meljin 105REYKJAVIK
^imap 11133 8.31/7 POSTHOLF 1366
ÁFRAM FJÖRULALLI
eftir JónViðarGuölaugsson
Ný sprenghlægileg bók um
Fjörulalla. I þessari bók heldur
hann áfram hvers kyns ærsl-
um og uppátækjum með
dyggri aðstoð bróður síns og
félaga þeirra.
ÁFRAM FJÖRULALLI er saga
um saklaust grín og gaman
sem öll fjölskyldan skemmtir
sér yfir.
Teikn: Búi Kristjánsson
Kr. 197,60
TRÖLLIN í TILVERUNNI
eftir Hreiðar Stefánsson
Jennu og Hreiðar Stefánsson
þarf ekki að kynna. TRÖLLIN
í TILVERUNNI er ný bók eftir
Hreiðar. Hér segir hann börn-
unum sögur sem honum ein-
um er lagið. Frásögnin er svo
lifandi og skemmtileg að börn-
in verða sjálf þátttakendur í
atburðunum. Bók fyrir unga
sem aldna.
Teikn: Ragnar Lár
Kr. 197,60
Freyjugötu 27, s. 18188
GEFIÐ BÖRNUNUM GÓÐAR ÍSLENSKAR BÆKUR
VIÐ GEFUM ÚT GÓÐAR
ÍSLENSKAR BARNABÆKUR
Kvikmynd, sem sýnir
hvernig læknar sanna
að líf sé að þessu loknu
- eftir Ævar
R. Kvaran
Framfarir í læknavísindum í
sambandi við þróun nýrra og betri
aðferða við endurlífgun, bjarga
með ári hverju æ fleiri mannslíf-
um. En þessar nýjungar í lækna-
vísindum gera fleira mannkyninu
til blessunar. Þær hafa fært lækn-
um, vísindamönnum og heimspek-
ingum nýjar upplýsingar um þá
reynslu sem það er að deyja.
Dauðinn hefur lengst af verið
eins konar feimnismál í íslenskri
opinberri umræðu. Sá sem þetta
hripar hefur því séð ástæðu til
þess að skrifa ritgerð um dauðann,
sem birt verður í þrennu lagi í
Lesbók Morgunblaðsins í janú-
armánuði eftir hátíðar. Ástæðan
til þess að farið er að vekja máls á
þessu nú þegar er sú, að höfundur
þessarar greinar átti þess nýlega
kost, að sjá kvikmynd, sem Bíóbær
hyggst sýna sem jólamynd, sem
lýsir raunverulegum atburðum,
sem gerðust í Bandaríkjunum um
það hvernig fólk deyr, en er aftur
vakið upp frá dauðum með nýj-
ustu tækni læknavísindanna til
endurlífgunar.
Ymsir Islendingar hafa reyndar
þegar kynnst slíkum málum með
því að lesa bókina Lífið eftir lífið
eftir lækninn Moody, sem vakti
gífurlega athygli um allan heim,
þegar hún kom fyrst út á ensku
1975. Kvikmynd sú sem hér er
gerð að umtalsefni er þó ekki
byggð á þessari bók, heldur á bók
eftir hjartasérfræðinginn dr.
Maurice Rawlings, sem er einn af
frægustu sérfræðingum á þessu
sviði læknisfræðinnar. Bók sína
kallar hann Beyond death’s door
(Að baki dauðans dyra). í bók
sinni skýrir læknirinn frá dauða
og endurlífgun fólks, sem hann
sjálfur annaðist. Allar þessar
persónur voru dæmdar látnar af
þeim læknum sem önnuðust þær,
svo það er þýðingarlaust að bera
því við, að þetta fóik hafi í raun-
inni ekki dáið. Öll einkenni lífs
voru horfin, andardráttur og
hjartsláttur. En nú kann einhver
að segja: Þetta er ekkert nýtt.
Þetta hefur margoft verið gert.
Það er rétt. En hvað er þá svona
athyglisvert við þessi dæmi? Það
er það, sem þessar manneskjur
hafa að segja frá í sambandi við
dauðann og það sem henti þær eft-
ir hann.
Spurningarnar í sambandi við
dauðann hafa frá alda öðli verið
margvíslegar. Táknar dauðinn
endi alls lífs? Er hann útþurrkun
persónuleikans? Eða táknar dauð-
inn endi eins lífs og upphaf ann-
ars? Veit nokkur hvað gerist eftir
dauðann? Hefur nokkur verið til
frásagnar um það? Hefur nokkur
reynt það? Hvernig er það? Er til
dæmis nokkuð sem styður eða
staðfestir lýsingu Biblíunnar á
víti? Og þannig mætti spyrja
endalaust. Dr. Maurice Rawlings
segir okkur meðal annars þetta:
„Sjúklingar, sem hafa snúið aft- '
ur til lífsins eftir að hafa dáið
segja okkur, að dauðinn, sem
venjulegu fólki þykir heldur öm-
urlegt umhugsunarefni, tákni ekki
endalok eða útþurrkun, heldur sé
hann þvert á móti aðeins hlið að
öðru lífi. Þar sé að ræða um til-
veru, sem sé sumum mjög eftir-
sóknarverð en öðrum skelfileg."
Og dr. Rawlings, sem er viður-
kenndur sérfræðingur í hjarta-
sjúkdómum við Diagnostic Center
og sjúkrahúsið í Chattanooga í
Tennessee-fylki í Bandaríkjunum,
heldur áfram: „Þegar dauða-
reynslan er þægileg, þá fullvissa
sjúklingarnir okkur um það, að
sjálfur dauðinn sé án nokkurs
sársauka, líkt og maður sofni."
Margir þeirra sem þannig hafa
verið lífgaðir við skýra frá því, að
þeim hafi fundist þeir yfirgefa lík-
ama sinn og stundum hitt fyrir
vini og vandamenn, sem áður voru
látnir. Og hér fer á eftir lýsing dr.
Rawlings á dæmigerðri sálför:
„Manneskja sem er að deyja
missir blátt áfram meðvitund án
nokkurs sársauka, þegar hún deyr,
og þrátt fyrir það getur viðkom-
andi heyrt lækni sinn lýsa því að
hann sé látinn. Þá uppgötvar hann
að hann er kominn úr líkama sín-
um, en er þó enn í sömu stofu, þar
vantar
þi3 gódan bíl?
notaöur - en i algjörum sérf lokki
Nýbýlavegi2 - Kópavogi
- Simi 42600
Til sölu þessi gullfallegi Subaru 4 WD station árg.‘80. Hann er á
nýjum vetrardekkjum meö útvarpi og hörku góöur í snjó.
JÖFUR hr