Morgunblaðið - 16.12.1982, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1982
19
Frægt lokaorð?
Hljóm-
plotur
Finnbogi Marinósson
Supertramp
famous last words ... “
A & M 63732
Hljómsveitin Supertramp var
stofnuð seint á sjötta áratugnum
og fyrstu árin voru miklar
mannabreytingar innan hennar.
Fyrstu plötuna gaf hún út 1970
og síðan hafa komið út sjö plötur
og áttundu plötunni bættu þeir
við fyrir stuttu. Mikill gæða-
stimpill hefur ætíð verið á tón-
list þeirra stráka og nægir að
nefna plötur eins og „Crime of
the century" og „Even in the qui-
etest moments", sem taldar eru
til „super“-platna poppsins.
Þrátt fyrir vandaða tónlist og
slíkt, hefur verið nokkuð for- |
múlulegt bragð af lögunum sem
þeir hafa gert vinsæl í gegnum
árin. Þetta kemur vel í ljós þegar
hlustað er á „... famous last
words ... “ . Af henni varð lagið
„It’s raining again" strax vin-
sælt og þar kemur ekkert í ljós
sem ekki hefur heyrst áður í
tónlist Supertramp. Þannig er
platan reyndar öll. Einföld,
vönduð en nákvæmlega eins og
síðustu plötur þeirra. Um þetta
má nefna ótal dæmi. Til dæmis
er ekkert nýtt að heyra í saxa-
fónsólóum John Helliwells. Þau
eru mikið til alveg eins út alla
plötuna og hann gerir ekki til-
raun til að breyta til eða reyna
eitthvað nýtt. Hver hefur ekki
heyrt byrjunina á fyrsta lagi
plötunnar, „Crasy", áður. Hún er
svo notuð að í spurningaþætti
mundi það vefjast fyrir kunnug-
um af hvaða plötu hún væri.
Fyrstu þrjú lögin á hlið eitt
eru góð en gölluð á fyrrgreindan
hátt. Hin tvö lögin eru ekki eins
skemmtileg og lítið spennandi.
Seinni hliðin er ekki eins auð-
meltanleg en bíður heldur ekki
upp á neitt spennandi, að einu
undanskildu, þ.e.a.s. píanóút-
setningunni í „Waiting so long“.
Hún er hreint afbragð og sýnir
hversu vel tæknimennirnir í
kringum hljómsveitina kunna
vel til verka. Þetta afbragðs
handverk kemur ekki bara í ljós
í þessu lagi, heldur er öll platan
jafn vel unnin. En allt kemur
fyrir ekki. Geld tónlistarsköpun
kemur í veg fyrir að platan
standi jafnfætis fyrri plötum.
Mér datt í hug þegar ég hlust-
aði á síðasta lagið á hlið tvö
hvort það væri yfirlýsing til
heimsins um að hljómsveitin
væri að hætta. Platan heitir
„Fræg lokaorð", síðasta lagið
„Ekki yfirgefa mig núna“ og með
smáhugmyndaflugi mætti túlka
fyrri hluta texta „Ekki yfirgefa
mig núna“ sem bónorð um að yf-
irgefa ekki hljómsveitina þrátt
fyrir erfiðleika í tónlistarsköpun
hennar. Að lokum er síðasta
setning textans þessi: „When I’m
old and cold and grey and time is
gone ..."
Svo er bara að bíða og sjá.
AM/FM
s Áskriftarsíminn er 83033
■-- u»aT8,::v
VilttWáöasúpaaö
'T&Z**"*
Jr NautasteiK
* Monica Abendroth leikur á hörpu
og Pétur Sigurösson á selló.
gf'' ★ Haukur Morthens syngur viö und-
I irleik Árna Elvars.
f/ ★ Magnús Kjartansson leikur dinn- j
I/ ertónlist.
★ Frumsýning
"S Dansstúdíó Sóleyjar Jóhannsdótt-
ur frumflytur dansinn THE STRIPPER.
★ Dolli og Doddi leikararnir Sigurður Sigurjónsson og Randver Þor
láksson flytja Ijúfan skemmtiþátt.
★ Helga Möller syngur nokkur lög af nýútkominni plötu Þú og Ég.
★ Björgvin Halldórsson syngur meö hljómsveit sinni fram eftir nóttu.
★ Veislustjóri veröur hinn sívinsæli Haukur Morthens.
Allir gestir fá hatta og knöll.
114 \i
ýársfagnaður Broadway verður nú
haldinn með miklum glæsibrag 2.
I janúar nk. og þá aðeins fyrir matar-
gesti. Kl. 19.00 tekur lúðrasveit á móti mat-
argestum utan dyra. Gestir fá nýársblóm í
barminn og fordrykkur verður fram borinn.
Hér er eins og sjá
má á ferðinni
meiriháttar hátíð
aðeins fyrir
spariklædda
matargesti.
Allar frekari
upplýsingar og
miðapantanir eru í
síma 77500 kl. 9—5
daglega.
IMÝJA ÍSLENSKA SPILIÐ SEM...
VEKUR UMW. O&AmY6<J í
SAMSnSÐA
SurturSTRESS Móðir JÖRÐ Ljós LIFANDI
Surtur STRESS er settur saman úr 18 þrí-
hyrningum, sem allir eru eins í laginu.
Móðir JÖRÐ er sett saman úr 16 ferningum,
og Ljós LIFANDI úr 9 ferningum.
Myndirnar eru allar í stærðinni 30x30 sm
- saman settar.
Nú er bara að meðhöndla hvern hlut fyrir sig og
finna honum réttan stað í heildarmyndinni.
öll lifum við og hrærumst í andstæðum lífsins.
Um þessar andstæður - sjáanlegar og ósjáanlegar
- og gróandan á jörðinni fjallar SAMSTÆÐA.
rmui/'b-