Morgunblaðið - 16.12.1982, Síða 16
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1982
Verðfall á
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Baldur Oskarsson:
HRINGHENDA.
Ljóðhús 1982.
Baldur Óskarsson er eitt þeirra
fáu íslensku skálda sem enn yrkja
innhverf Ijóð. Þetta gildir j)ó ekki
um öll ljóð hans. Það eru til dæmis
mun útleitnari ljóð í Hringhendu
kenndum
en í fljótu bragði virðist. Við kom-
um að þeim.
Fordæmi Steins Steinarrs í
Tímanum og vatninu og ýmsum
stökum ljóðum rifjast upp þegar
Hringhenda er lesin. Ég er ekki að
tala um bein áhrif, heldur skyld-
leika og bæti við tveimur skáldum
úr atómfjölskyldunni: Sigfúsi
Daðasyni og Stefáni Herði
Grímssyni.
Hlutir, tákn hafa oft orðið
Baldri Óskarssyni að yrkisefni.
Svo er enn. En nú er eins og kald-
Baldur Óskarsson
hæðni sé að aukast, gáski í anda
svarta húmorsins. Kannsi er þetta
bölsýninni að þakka samanber
„Hófleg bölsýni, hún sefar hjart-
að“ eins og stendur í Þrem rifum.
Aftur á móti er eftirfarandi úr
sama ljóði óvanalegt hjá Baldri
Óskarssyni: „Hófleg bölsýni minn-
ir okkur á það að orð eru orð, en
athafnir heimsvon."
Nú gætir hjá Baldri í opnari
ljóðum en áður gagnrýni á samtíð-
ina, fræði sem eiga að kenna
okkur nýtt starfróf eins og minnt
er á í fyrsta ljóði bókarinnar:
Steinaríki II. Og Tvíljóð hefur líka
merkingu. Þar er skopast að
„tölvukyni" sem á hugsanlega „að
létta þrautina/ sem guð hefur
fengið mönnunum að þreyta sig
á“. Er það sem á að koma okkur til
bjargar: „Vél með vit í brjósti,
/ mál og styrkleik"?
Fyrsta erindið í Hið ókveðna er
líka gagnrýnið:
Fyrst er að skynja,
svo ad nefna.
... ég ætlaði að ta*pa á einhverju
og ekki láta hyggindin vísa mér veg,
ae — nú er verðfall á kenndum!
I Það sem fyrir mér vakir er enn
borið fram vantraust á gildi orð-
anna, að þeim takist í raun og
veru að segja nokkuð sem máli
skiptir:
hegar ég segi — fyrir mér vakir,
þá segi ég það til hægðarauka,
hujjur nær ekki til.
... í þi*ssari veraldarboru ...
Ilm hvað er þá að tala?
Ileimur andstæðna — andstæða þín?
Nei, ekki til hálfs!
Er það sem byrgir mér sýn
og það sem fyrir mér vakir eitt og hið sama?
Kjj var að spyrja manninn.
Hann leitar inn í óvissuna —
ég
tamasta orð tungunnar,
drögum nú úr því
alla merkingu.
Hringhenda er alls ekki eintóna
bók. Þar er til dæmis ljóð eins og
Brúðan sem lifir, um brúðu sem
lifir í hugskoti skáldsins og kann
ekki að deyja. Brúðuljóðið er ólíkt
þeim ljóðum sem hér hefur verið
vitnað til. Sama er að segja um
Haustnóttina og Morgunn. Svo
eru nokkrar tilraunir í Hring-
hendu: La bla, Hringhenda,
Sléttubönd, Tvídropi. Ljóð eins og
Fréttir tilkynningar og dagskrá,
Intermezzo og Sigurður og Guð-
mundur eru enn merki um vilja
Baldurs Óskarssonar til að færa
út landamæri ljóðsins, svipta það
sjálfhverfri gleði sinni. Þótt hann
vilji ef til vill fyrst og fremst sýna
fram á „rás Hringhendunnar" og
takist það betur en oft áður er bók
hans ekki síst athyglisverð fyrir
það hve hún er fjölbreytileg og til
marks um að orð skáldsins er ekki
„klaki".
Jóhann Hjálmarsson
Háskólafyr-
irlestur ^
Páls S. Árdal
PÁLL S. Árdal, prófessor í heim-
speki við Queen’s University í
Ontario í Kanada, flytur opinberan
fyrirlestur í boði heimspekideildar
Háskóla íslands, sunnudaginn 19.
desember 1982 kl. 15:00, í stofu 101
í Lögbergi.
Fyrirlesturinn nefnist „Að eiga
illt eitt skilið" og fjallar um refs-
ingar. Öllum er heimill aðgangur.
Jólaglaðningur
Nú geturöu virkilega látiö veröa af því aö fá þér skemmtilega stereo-samstæöu á hagstæöu veröi og
fínum kjörum.
HSILVER
Þessi glæsilega samstæöa kostar aðeins 11.950,- án hátalara. Meö Dantax WHT 60 40 watta
hátölurum kostar hún kr. 13.035.-. — Athugiö aö skápurinn fylgir meö.
Viö bjóöum þér fín kjör til jóla. Útborgun kr. 4.000,- og eftirstööar til 5—6 mánaöa.
Viö eigum geysilegt úrval samstæöa frá kr. 9.755.-- 45.200,- á úrvalskjörum. — Lítiö viö, þaö
borgar sig. ___
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
Bergstaðastræti 10 A Sími 16995
TEGUND 2310
PRJÓNA VÉL
Hefur alla þá kosti, sem prýtt geturprjórta-
vél til heimilisnota.
• Prjónar fínt og gróft garn, einnig lopa.
• Hefur munsturhanka, sem stjórnar
fjölbreyttu munsturprjóni, svo sem
litaprjóni, tvöföldu mynsturprjóni,
útprjóni eftir frjálsri teikningu, vefnaði
og gata og garðaprjóni.
• Prjónar sokka, heila í hœl og tá, hring-
prjón og klukkuprjón.
• Hefur tvö nálahorð, tvo bandleiðara
og 360 nálar alls.
• Fáanleg með rafmótor.
Atta tíma kennsla og íslenskur leiðarvísir
fylgir vélinni.
Leitið nánari upplýsinga um hagstætt verð
og góð greiðslukjör. .
<& RAFBÚÐ SAMBANDSINS
Ármula 3 ■ Simi 38900
SÝNIKENNSLA ÞRIÐJUDAGA OG FIMMTUDAGA KL.2-5