Morgunblaðið - 16.12.1982, Síða 22

Morgunblaðið - 16.12.1982, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1982 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1982 27 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 150 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 12 kr. eintakiö. Heilbrigðir lifnaðarhættir Landlæknir kynnti ný- lega niðurstöður rann- sókna á neyzlu áfengis, tób- aks, fíkni- og ávanaefna hér á landi. Niðurstöðurnar hljóta að vekja hvert mannsbarn til íhugunar. Milli 10 og 20 af hundraði allra innlagna á almenn sjúkrahús eiga rætur að rekja til áfengisneyzlu, en magasár, magabólgur, skorpulifur og heílarýrnun eru meðal sjúkdóma sem óhófleg áfengisneyzla orsak- ar. Þegar þess er gætt að tíunda hver útgjaldakróna hjá ríkissjóði rennur til heilbrigðismála má ljóst vera, hvern toll þjóðin greið- ir á altari vínneyzlu. Þó er ótalinn kostnaður af lög- gæzlu, fangelsum óg verð- mætatjóni, sem í kjölfar fylgir, að ekki sé talað um einstaklingsbundna harm- leiki, sem flestar fjölskyldur þekkja til. Það kom og fram í kynn- ingu landlæknis að milli 20 og 30% allra dauðsfalla af völdum krabbameins hér á landi stafi af tóbaksreyk- ingum, en tóbaksneyzla er og meðvirkandi í öðrum al- gengum kvillum, s.s. hjarta- og æðasjúkdómum. Þá kemur fram að notkun kannabis- og ávanaefna hef- ur stóraukizt hér á landi hin síðari árin, einkum hjá ungu fólki. Ofbeldi og rán, sem farið hafa vaxandi á höfuð- borgarsvæðinu liðin misseri, tengjast í flestum tilfellum fíkniefnaneyslu og fjár- mögnun hennar. Það er meira en tímabært að staldra við og huga að vörnum. Meginmáli skiptir að koma fræðslu á framfæri svo almenningur eigi þess kost að byggja viðhorf sín, sjónarmið og lífsstíl, ef svo má að orði komast, á raun- hæfri þekkingu. Þar hvílir fræðsluhlutverkið fyrst og fremst á uppalendum, því næst á skólakerfi en síðast en ekki sízt á heilbrigðis- stéttum og fjölmiðlum, þ.á m. hljóðvarpi og sjón- varpi, sem eru í daglegum tengslum við hverja fjöl- skyldu í landinu. Verulega skortir á að þessu hlutverki sé nægilega gegnt. Mir.na má á sem nú liggur fyrir Alþingi, flutt af Sigurlaugu Bjarna- dóttur og fleirum, þess efn- frumvarp, is, að bundin séu í grunn- skólalög ákvæði varðandi I fræðslu um áhrif af neyzlu áfengis og fíkniefna. Slík lagaákvæði væru verðug jólagjöf frá Alþingi til þjóð- arinnar. Heilbrigðir lifnaðarhætt- ir, hollt viðurværi, nauð- synleg hreyfing, háttvísi í samskiptum við náungann og létt lund skipta engu síð- ur máli fyrir hamingju ein- staklinga og þjóðar en þau hin umtöluðu „efnahags- vandamál", þó ekki skuli hér gert lítið úr skaðsemi stjórnmálalegrar sjálfheldu þjóðfélagsins. Hafi þeir heilar þakkir sem að framangreindri kynningu stóðu. Listamaður kvaddur Asmundur Sveinsson, einn af mikilhæfustu listamönrium þjóðarinnar, er allur. Útför hans verður gerð frá Dómkirkjunni í dag. Starfsævi hans var lit- ríkur kafli í listasögu þjóð- ar. Verk hans hafa um lang- an aldur sett svip sinn á höfuðborgina — og hann eftirlét henni safn verka sinna og vinnustofur, sem lengi hafa verið eitt af dýrmætustu „sérkennum" borgarinnar. Það fer vel á því að Reykjavíkurborg heiðri minningu lista- mannsins með því að kosta útför hans. Það var einhverju sinni sagt að sá væri beztur mæli- kvarði á menningu þjóðar, hvern veg hún byggi að hinni öldruðu sveit, sem líð- andi ár hefur verið helgað. Vel má svo vera. En sá mælikvarði er a.m.k. einnig marktækur, hver starfsskil- yrði bjóðast listamönnum til að auðga mannlífið í um- hverfi sínu. Asmundur Sveinsson, sem lézt nær ní- ræður, færði samtíð sinni sanninn um, að roskinn maður getur gefið þjóð sinni af sjálfum sér með þeim hætti, að lifa mun með henni til langrar framtíðar. Hafi hann þjóðarþökk fyrir feril sinn og framlag til íslenzkrar menningar. Áróðursstríðið um álmálið á stjórnarheimilinu Hinn 6. desember síöastliöinn flutti Guömundur G. Þórar- insson, alþingismaöur og fulltrúi Framsóknarflokksins í álviö- ræöunefnd eftirfarandi tillögu í nefndinni og lagöi til aö iönaöar- ráöherra legði hana fyrir samninganefnd Alusuisse: 1. Fyrsta skref. 20% hækkun raforkuverðs frá og meö 1. febrúar. 2. Aöilar eru samþykkir lið 1. a—c í símskeyti Alusuisse frá 10. nóv. meö breytingum. 3. Aöilar samþykkja tafarlaust viöræöur um raforkusamning samkvæmt lið 2. a í sama símskeyti meö veröhækkunarform- úlu. 4. Aöilar samþykkja tafarlausar viöræöur um endurskoöun aöalsamnings varöandi ákvöröun framleiöslugjaldsins sam- kvæmt liö 2. b í sama símskeyti. 5. Ríkisstjórnin samþykkir sem meginatriöi (í þrinsiþþinu): a) Stækkun álbræöslunnar, enda náist samkomulag meö frekari samningaviöræöum um m.a. 3. og 4. lið hér aö ofan; b) þátttöku nýs hluthafa í ÍSAL. 6. Alusuisse samþykkir sem meginatriöi (í prinsippinu) aö gefa ríkisstjórn íslands kost á aö gerast hluthafi í ÍSAL. 7. Samningaviöræðum skal vera lokið fyrir 1. apríl 1983. Tillagan er birt hér eins og hún birtist í Tímanum 14. desem- ber. Þar stóö einnig: „Tillagan er tilraun til aö hefja samninga- viðræður án allra skuldbindinga af hálfu íslendinga." lönaöar- ráöherra, Hjörleifur Guttormsson, neitaöi aö flytja þessa tillögu á fundi með dr. Paul Múller, aöalsamningamanni Alusuisse, hinn 7. desember. Hinn 8. desember tilkynnti Guömundur G. Þórarinsson þaö í fréttatíma sjónvarpsins, aö hann heföi sagt sig úr álviðræöunefnd. Þar meö hófst áróöursstríö milli Alþýðu- bandalagsins og Framsóknarflokksins, sem stendur enn. Helstu þáttunum í því stríöi er lýst í þeirri samantekt sem hér birtist. Enn hafa samningaviöræður milli ríkisstjórnar íslands og Alu- suisse ekki slitnað, aöilar hafa skipst á símskeytum eins og frá hefur verið skýrt í Morgunblaöinu undanfarna daga. Þótt iönaö- arráöherra og málgagn hans hafi lýst því yfir í hita áróöurs- stríösins í síöustu viku, aö nú í þessari viku ætti aö grípa til einhliða aögeröa gegn Alusuisse bólar ekki á þeim, enda nýtur ráðherrann ekki stuönings til þess utan eigin flokks. Hins vegar ákvaö iönaöarráöherra einhliöa á þriöjudag aö leggja álviö- ræðunefndina niöur og sagöi, aö Framsóknarflokkurinn heföi „eyöilagt" hana. í þingræöu sagöi Guðmundur G. Þórarinsson hins vegar: „Ég ætla ekki aö sitja í einhverri nefnd sem iönaðarráðherra ætlar aö reka eins og eitthvert rússneskt hænsnabú. Þaö er ábyrgðarhluti aö bera lengur ábyrgö á því hvernig iönaðarráöherra heldur á þessu máli.“ Alþýðubandalagið um framsókn og Guðmund G. Þórarinsson: Hið „dæmalausa framferðiu hefur eyðilagt samningsstöðuna „I>að alvarlegasta i málinu er svo það, að með framferði sínu er fulltrúi Kramsóknarflokksins að flytja víglín- una í þessu máli frá átökunum við Alu- suisse og yfir í innanlandsátök. Hann gerir tilraun til að kljúfa þjóðina á örlagaríku augnabliki, og gengur í þeim efnum Ivírnalalaust lengra en stjórnarandstaðan hefur gert til þessa hvað álmálið varðar," sagði Hjörleifur Guttormsson, iðnaðarráðherra, á for- siðu l'jóðviljans 9. desember, daginn eftir að Guðmundur G. Þórarinsson hafði tilkynnt úrsögn sína úr álviðræðu- nefnd. Hjörleifur sagðist telja, að Fram- sóknarflokkurinn væri að „fara á taugum í þessu örlagaríka máli“ og hann bætti við: „Með þessu dæma- lausa framferði er Guðmundur að eyðileggja, a.m.k. í bili, samnings- stöðu okkar íslendinga. Hér virðist sem undarlegar flokkspólitískar og persónulegar ástæður ráði ferðinni og að þær séu settar skör hærra en þjóðarhagsmunir í þessu máli.“ Sama dag og Guðmundur tilkynnti afsögn sína úr álviðræðunefnd ritaði Svavar Gestsson, formaður Alþýðu- bandalagsins, bréf til Framsóknar- flokksins þar sem hann spurðist fyrir um það, hvort flokkurinn standi að baki „gerðum fulltrúa sítis" eins og það er orðað á forsíðu Þjóð- viljans 9. desember. „Framsóknarflokkurinn á eftir að heyra frá fólkinu sem hefur treyst honum í álmálinu," sagði Hjörleifur Guttormsson á forsíðu Þjóðviljans 10. desember og Svavar Gestsson sagði einnig á forsíðunni: „Þettar er enginn leikur sem hér á sér stað. Hér er spurningin um það hvort Alu- suisse tekst að reka fleyg í samstöðu þjóðarinnar, eða hvort þjóðinni tekst að sækja rétt sinn gagnvart Alu- suisse. Þess vegna er hér tvímæla- laust um að ræða eitt alvarlegasta mál sem upp hefur komið í tíð núver- andi ríkisstjórnar. Vonandi spillir tveggjaaura tillaga Guðmundar G. Þórarinssonar ekki meira en orðið er fyrir samningsstöðu Islands." Forystugrein Þjóðviljans 10. des- ember heitir: „Dýrt frumhlaup". Þar sagði meðal annars: „Og Framsókn- arflokkurinn hefur tekið ábyrgð á framgöngu þessa fulltrúa síns. Það er þokkaleg flokksstefna, a tarna. Við trúum því ekki, að stuðnings- menn Framsóknarflokksins séu al- mennt svo hörmulega á vegi staddir ... Þjóðarsamstaða hefur verið rof- in. Sá verknaður er á ábyrgð forystu- manna Framsóknarflokksins Samningsstaðan hefur verið eyði- lögð. Þess vegna verður að reyna á einhliða aðgerðir." Á baksíðu Þjóðviljans 10. desem- ber segir, að í svari við bréfi Svavars Gestssonar komi fram, að Fram- sóknarflokkurinn taki formlega ábyrgð á „frumhlaupi" Guðmundar og af því tilefni er haft eftir Svavari: „Eg tel það augljóst mál að svona vinnubrögð bæta ekki vinnuaðstöðu ríkisstjórnarinnar og var þó þörf á öðru þegar vandamálin eru jafnal- varleg og hvarvetna sést.“ Jafnframt er frá því skyrt, að á fundi Alþýðu- bandalagsfélags Reykjavíkur 9. des- ember hafi verið lýst einróma stuðn- ingi við Hjörleif Guttormsson. Forystugrein Þjóðviljans 11. des- ember heitir: „Túskildingur fram- sóknar". Þar sagði meðal annars: „Ef tillaga Guðmundar hefði verið lögð fram þá hefði bilið í deilu aðila um orkuverðið verið orðið stutt, og snú- ist um 2 aura á kílówattstund. Ekki er ólíklegt að Alusuisse hefði þá boð- ist til að mæta okkur á miðri leið og hækka orkuverðið um 1 eyri ... Það er snjall samningamaður Guðmund- ur G. Þórarinsson, eða finnst ykkur það ekki? ... Margt misjafnt hefur yfir Framsóknarflokkinn gengið á langri leið, en er þetta ekki dýpsta fallið?" Forystugrein Þjóðviljans 14. des- ember heitir: „Stöndum á réttinum!" Þar sagði meðal annars: „Ekki fer á milli mála, að fulltrúar Alusuisse hafa jafnan þóst geta treyst á góða vini hér innanlands, og atburðir síð- ustu daga sanna með átakanlegum hætti að ekki var til einskis beðið af þeirra hálfu ... Og menn ættu að taka vel eftir því, að svo lítilþæg og smátæk sem tveggja aura tillaga Guðmundar G. Þórarinssonar var, •- \ v'\ / r- ia \a c*-0 6. 12. 1982 2o% Propoeal , rlrBt etep.1*3r"increeo« ln energy prlce ee from the 1 et. of l^/d- 2. Fartlee agree teleI of l0th °f "OV- 1 p^'tlea agree on lmnedlate dlecueelone on power contract according 3- tS I :!d«rt.ler. according to 2 b. |n same telex. 5. The Goverrunent agreee in principle on: .) Expanelon of the emelter. eubj.ct to furtb.r n.gotlatlone inéer alia on pointe 3 and 4 above. 6) Alueuleee agre.e In prlnclpl. on an optlon for th. Goe.rnm.nt of Iceland to become a ehareholder in Ieai, b) Partlcipation of a new ohare holder ln leal :iple on an op iholder in Iee sWjlí “V r /(Jr o C i <-< K d J <?CJ /. 3. c!Uc[ Tvíeyringstillaga Guðniundar Hér að ofan er Ijósmynd af tillögu Guðmundar G. Þórarinssonar alþm. sem hann lagði fram í álviðræðunefnd á dögunum, og hann byggði úrsögn sína úr nefndinni á. Tillagan er á ensku, vélrituð með handskrifuðum breytingum, og er lauslega þýdd og útskýrð á baksíðu. Með þessum hætti skýrði Þjóðviljinn frá tillögu Guðmundar G. Þórarinssonar 10. desembcr sl. MOÐVHMN Fulltrúi Framsóknar þjónaði Alusuisse nda c „örarln>>o— „TIUttUN TIL AÐ KOMA MAUNU UT UR ÓÞOLflNDI SJÁLFHELDU þá fór því fjarri, að hann vildi setja hana fram sem úrslitakosti til Alu- suisse, heldur átti að bjóða þetta, að- eins til þess að koma af stað viðræð- um!! — Og svo þá væntanlega að mætast á miðri leið? ... Hvert barn ætti að geta sagt sér til hvers vinnu- brögð af þessu tagi hlytu að leiða. En þingflokkur Framsóknarflokksins lætur sig hafa það, að lýsa eindregn- um stuðningi við gerðir Guðmundar! Hjörleifur Guttormsson, iðnaðar- ráðherra, hefur reynt flest sem í mannlegu valdi stendur til að ná frambærilegum samningum við Alu- suisse, — en hann hefur ekki viljað selja auðhringnum sjálfdæmi." Hinn 14. desember skýrir Þjóðvilj- inn frá því, að á miðstjórnarfundi Alþýðubandalagsins 11. desember hafi verið lýst yfir stuðningi við iðn- aðarráðherra en fordæmingu á full- trúa Framsóknarflokksins. Forystugrein Þjóðviljans 15. des- ember heitir: „Hvaða viðmiðun?" og þar sagði meðal annars: „Dagblaðið Tíminn, málgagn Framsóknarflokks- ins rembist við það þessa dagana að bera í bætifláka fyrir Guðmund G. Þórarinsson og afsaka frumhlaup hans. En hver átti þá að vera grundvöllurinn að áframhaldandi viðræðum við Alusuisse samkvæmt tillögu Guðmundar? — Þar kemur nú fyrst að alvöru málsins ... Við skulum enn vona að hjá Guðmundi sé ekki annað verra á ferð en sú glópska sem mörgum kemur í koll.“ Hinn 15. desember sendir Ingi R. Helgason, fulltrúi Alþýðubandalags- ins í álviðræðunefnd, Guðmundi G. Þórarinssyni opið bréf í Morgunblað- inu. Þar sagði meðal annars: „Hitt er annað mál, að þú þykist styðja nú- verandi ríkisstjórn. Rökrétt fram- hald þessara stóru orða er auðvitað að þú sem alþingismaður standir við þau og flytjir á formlegan hátt van- traust á þennan iðnaðarráðherra á Alþingi. Þá myndu kannski línur skýrast í íslenskri pólitík nú í svart- asta skammdeginu." — En þennan sama dag sagði Steingrímur Her- mannsson, formaður Framsóknar- flokksins í samtali við Tímann: „Ég tel að það komi ekki til greina af okkar hálfu að flytja vantrauststil- lögu á iðnaðarráðherra. Ég vil mót- mæla því, að við höfum verið með eitthvað samsæri gegn Hjörleifi ...“ Framsóknarmenn um álmálið og iðnaðarráðherra: „Þjóðarsamstaðan um núllið“ hefur verið rofin af Guðmundi „Ég hef sagt mig úr álvidræðunefnd- inni vegna þess að iðnaðarráðherra hundsaði vilja meirihluta nefndarinnar í samningaviðræðunum við Alusuisse," sagði Guðmundur G. Þórarinsson á for- síðu Tímans fimmtudaginn 9. desem- ber og endurtók þar með það sem hann hafði fyrst sagt í sjónvarpsfréttum kvöldiö áður. „Þegar ég kynnti tillögur mínar í álviðræðunefnd var vel tekið í þær og voru lagðar þar til breytingartillögur af nefndarmönnum. M.a. gerði Ingi R. Helgason fulltrúi Alþýðubanda- Iagsins nokkrar breytingartillögur. Meðal þeirra var að í stað 20%, sem iðnaðarráðherra telur óalandi, og rangtúlkar á allan hátt, komi 25%. Það var meirihluti fyrir því í álvið- ræðunefnd að leggja fram slíkar hugmyndir, sem ráðherra legði síðan fram í viðræðum við Alusuisse, án þess að binda hendur hans á nokkurn hátt. En tillögurnar voru ekki lagðar fram og hér stendur iðnaðarráðherra og getur nánast ekki greint rétt eða sagt frá í neinu aðalatriði. Ég hlýt enn að spyrja hvort það skyldi allt vera satt sem hann segir okkur frá viðræðum sínum við Alusuisse eftir að verða vitni að hvernig hann túlk- ar mínar tillögur," sagði Guðmundur G. Þórarinsson á alþingi 9. desember samkvæmt frásögn Tímans hinn 10. desember. Frásögn blaðsins af ræðu Guðmundar lauk með þessari tilvitn- un í orð hans: „Það þarf þjóðar- samstöðu um hagsmuni íslendinga en ekki þjóðarsamstöðu um Hjörleif Guttormsson." í forystugrein Tímans 10. desem- ber sagði: „Hinu er hins vegar ekki hægt að neita, að vinnuaðferðir Hjörleifs Guttormssonar hafa oft verið hinar ákjósanlegustu fyrir ál- hringinn og auðveldað honum að sýna þrjósku í viðræðunum við ís- lensk stjórnvöld. Það hefur lengi ver- ið opinbert leyndarmál, að fram- sóknarmenn hafa verið gagnrýnir á vinnubrögð Hjörleifs, þótt opinber- lega hafi verið látið kyrrt liggja, bæði vegna stjórnarsamstarfsins og hins að rétt þótti að reyna til þraut- ar, hvort Hjörleifur fengist til að taka upp skynsamlegri vinnubrögð." í Tímanum birtist 11. desember viðtal við Steingrím Hermannsson, formann Framsóknarflokksins, sem þá var á Jamaica. Hann taldi tillögu Guðmundar G. Þórarinssonar „til- raun til að koma málinu út úr óþol- andi sjálfheldu" og sagði einnig: „Ég hef alltaf talið það óskynsamlegt að ætla að pína Alusuisse til samninga með hótunum, og talið að það leiddi ekki til neins árangurs." Hinn 11. desember birtir Tíminn einnig svarbréf Halldórs Ásgríms- sonar, varaformanns Framsóknar- flokksins, til Svavars Gestssonar, formanns Alþýðubandalagsins, en Svavar hafði bréflega spurst fyrir um það, hvort Framsóknarflokkur- inn stæði að baki Guðmundi G. Þór- arinssyni. Bréfi Halldórs lýkur með þessari samþykkt: „1. Þingflokkur Framsóknarflokksins lýsir yfir full- um stuðningi við störf Guðmundar G. Þórarinssonar í álviðræðunefnd. 2. Þingflokkurinn mun ekki tilnefna annan mann í álviðræðunefnd að óbreyttum aðstæðum." Hinn 11. desember heitir forystu- grein Tímans: „Hjörleifur er ekki þjóðin“. í Helgar-Tíma sem út kom 11. des- ember heitir forystugreinin: „Ótrú- legar rangfærslur" og hefst hún á þessum orðum: „Það er með algjör- um ólíkindum til hversu mikilla rangfærslna talsmenn Alþýðubanda- lagsins telja sig knúða til að grípa um tillögugerð Guðmundar G. Þór- arinssonar í álviðræðunefndinni sál- ugu. Fátt er skýrara dæmi um slæma samvisku en slíkar rangfærslur. Ef málstaður iðnaðarráðherra er jafn góður og hann og nánustu fylgis- menn hans telja, hvers vegna þá ekki að halda sig við sannleikann?" Og enn segir: „Sumir alþýðubandalags- menn hafa jafnvel lotið svo lágt að fullyrða að Guðmundur hafi aðeins ætlað að semja við álverið um tveggja aura hækkun á raforkuverði og veita þeim þar að auki margskon- ar fríðindi. Málflutningur iðnaðar- ráðherra á þingi var mjög í þessum anda.“ Tíminn ber þetta til baka með því að vitna 5 þessi orð Guðmundar: mbci Iwn2 þriójiiJagur 4' argangu: 2$l. lolublaó Orkuverð til álversins og almenningsveitna Munurlnn áfram flmmfaldur samkvæml tillögu Guðmundar LANDSVIRK JUN 36,4 mill meöalheildsöluverð á raforku 6,5 mill "T* i i i i i i r— r r...i i i i 69 1970 71 72 73 74 75 76 77 78 79 1980 81 82 83 Um þetta línurit sagði í forystugrein Tímans 15. desember: „Forsíðumyndin í Þjóðviljanum í gær er hámark óþverrans í íslenskri blaðamennsku...“ Og einnig: „IJnuritið, sem Þjóðviljinn birtir á forsíðu í gær og átti að vera Guð- mundi G. Þórarinssyni til svívirðingar, sýnir best hversu illa Hjörleifi Gutt- ormssyni hefur gengið að halda á orkumálunum." EC LVSI ALLRI ðBVRGÐ Á , A vttvangl datcsins DYRMUNDI HJQR- LEIFUR ALLUR® „Þessi hækkun sem ég stakk upp á er eingöngu á orkuverði strax til þess að Alusuisse sýndi það, að þeir vildu ganga til samninga um hækkun raf- orkuverðs með góðum vilja. Þetta veit iðnaðarráðherra vel.“ Hinn 14. desember birtir Tíminn ályktun framkvæmdastjórnar Sam- bands ungra framsóknarmanna, þar sem lýst er fullum stuðningi við Guð- mund og fordæmingu á iðnaðarráð- herra og sagt, að hann beri alla ábyrgð á því tekjutapi sem orðið hef- ur vegna dráttar á endurskoðun samningsins við Alusuisse. Hinn 14. desember heitir forystu- grein Tímans: „Utúrsnúningar og rangfærslur". Þar er snúist gegn „út- úrsnúningum" Þjóðviljans og sagt meðal annars: „Hjörleifur Gutt- ormsson iðnaðarráðherra kallaði til- lögu Guðmundar „sveitamennsku eða eitthvað þaðan af verra", í sjón- varpi sl. föstudagskvöld. Líkast til er enginn sveitamennskubragur á þeim fundum er þeir hittast heimsborgar- arnir Hjörleifur Guttormsson og dr. Múller og þrasa um guð má vita hvað. í tvö ár hafa þeir karpað og eftir hvern fund er niðurstaðan sú sama. Enginn árangur." Hinn 14. desember birtir Tíminn stutt yfirlit yfir helstu þættina í deilunni við Hjörleif Guttormsson undir fyrirsögninni: „Dýr mundi Hjörleifur allur". Þar segir meðal annars: „Árangur iðnaðarráðherra er eng- inn í tvö ár. Iðnaðarráðherra hefur sjálfur lýst málinu svo í sjónvarpi að enginn árangur hafi náðst. Þjóðin hefur stórtapað á þessari tveggja ára sjálfheldu. Frammistaða iðnaðarráð- herra þýðir að enn er raforka til ÍSAL á útsöluverði. Ef miðað er við tvöföldun raforkuverðs hafa tapast á þessum tveim árum 16 milljónir doll- ara. Ef miðað er við þreföldun hafa tapast 32 milljónir dollara eða rúmir 50 milljarðar gkróna. Telja menn að þjóðin hafi efni á að halda svona áfram? ... Áframhaldandi aðgerðir í hans (Hjörleifs, innsk. Mbl.) dúr þýða núll í hækkun orkuverðs til ís- lendinga. Engin leið er að standa lengur að þjóðarsamstöðu um núllið. Málið verður að fara í nýjan farveg." Hinn 15. desember heitir fyrri for- ystugrein Tímans: „Sök Hjörleifs". Þar segir: „Klaufaskapur og óhygg- indi Hjörleifs Guttormssonar hafa verið fólgin í því, að hann hefur fest sig eins og kræklingur við stein við deiluna um reikninga og skattamál fyrirtækisins. Hann hefur ekki séð neitt annað ... Forsíðumyndin í Þjóðviljanum í gær er hámark óþverrans í íslenskri blaðamennsku, en með henni er gefið í skyn, að til- laga Guðmundar hafi fjallað um, að orkuverðið hækkaði ekki nema um 20%, þó að þar væri aðeins um að ræða byrjunarhækkun, en síðan yrði samið um aðalhækkunina. Svona gersamlega hefur sök Hjörleifs blindað þá Þjóðviljamenn.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.