Morgunblaðið - 16.12.1982, Side 28

Morgunblaðið - 16.12.1982, Side 28
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1982 r A TVEIR góöir, sterkir og stílhreinir Stálstóllinn TiflG Vadina fellistóll úr völdu beykí Verö kr. 773,- Hannaöur af Marcel Breu- er 1927. „Bauhaus“. Fjaö- urmagnaöur, stílhreinn. Fáanlegur í beyki, hnotu og svartlakkaöur. Verö kr. 273.- Hvítlakkaöur kr. 307.- Stóll fyrir heimili, skóla, samkomuhús, sumarbú- staöi, svalir, garöa og vinnustaöi. Nýborg^ BYGGINGAVÖRUR O Ármúla 23, húsgagnadeild, sími 86755. Eftir fall er risið upp í alvöru B nninra Hljóm Finnbogi Marinósson Madness. Rise and Fall. STIFF STEEZ 46/ Steinar. 26. október 1979 var útgáfu- dagur á fyrstu plötu Madness, „One Step Beyond". Platan varð feikn vinsæl og í kjöfarið fylgdi svokallað „Madness“-æði. við á Islandi stóðum nokkuð utan við það en Englendingar og þá sér- staklega Lundúnarbúar fóru ekki varhluta af vitleysunni. Tónlistin sem þessir sjö ungu sveinar spiluðu heltók alla sem á hlýddu og fyrr en varði var hlustandinn farinn að dilla sér eftir takti laganna. Slíkt var fjörið og lífsgleðin í tónlist pilt- anna. Næsta plata olli nokkrum vonbrigðum. Hún var ekki eins fjörug og grípandi og sumum þótti sem hljómsveitin væri komin inn í blindgötu. „Abso- lutely" hét hún, en þrátt fyrir einhver vonbrigði seldist hún vel og Madness virtist ekki vera að fatast flugið hvað vinsældirnar snerti. Þriðja platan, „7“ var beint framhald „Absolutely" og fannst þá mörgum borið í bakka- fuilan lækinn. „One Step Be- yond“ var frábær breiðskífa, ör- ugglega einhver líflegasta og best heppnaða dans- og skemmtiplata seinni ára. Hinar tvær, „Absolutely" og „7“ eru þyngri. Ekki er eins mikið glens í tónlistinni enda hefði þeim ekki enst stíll fyrstu plötunnar lengi. Fyrir stuttu kynnti Madness svo sína fjórðu plötu sem þeir kalla „Rise and Fall“. Á plötunni eru 13 lög og í heildina er platan gjörólík því sem búast mátti við. Eg var eiginlega meira hissa en vonsvikinn þegar ég hlustaði fyrst á „Rise and Fall“. Lögin eru öll miklu rólegri og yfirveg- aðri nú en áður. „Skaið" er engu að síður á sínum stað en ekki eins áberandi og nú eru þeir far- nir að sækja sköpunarform sitt til fyrri afreka. Þá um leið minnkaði áhuginn á plötunni til muna. Það lá beint við að sætta sig við þá staðreynd, sem virtist blasa við, að Madness væri búin að renna sitt skeið á enda. En fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott. Þegar far- ið er að skoða umslag plötunnar þá finnst lykillinn að gátunni um horfna Madness-gamanið. Á fyrstu plötunni hét söngvarinn á umslagi plötunnar Suggs og trommarinn Woody Woods Woodgate. Sniðug nöfn og hluti af öllu ruglinu. En hvað gerist? Á „Rise and Fall“ er söngurinn skráður á einhvern virðulegan G. McPherson og trommuleikur- inn er í höndum D.M. Woodgat- es. Jú, hljómsveitin er að reyna að fá fólk til að taka sig og tón- listarsköpun sina alvarlega. Gamanið er að mestu búið og al- varan tekin við. Með þessa vís- bendingu í höndunum jókst áhuginn og eftirvæntingin aftur til muna. Við meiri hlustun vann platan stöðugt að og þegar öllu er á botninn hvolft er hún hreint af- bragðs góð. Þeim piltum hefur tekist snilldarlega að klifra ofar í þróunarstiganum án þess þó að segja alveg skilið við gamla sjarmann. Allt er miklu hæv- erskara en enn býr mikill húmor og ádeila í textum piltanna. Eig- inlega ætti ekkert meira að segja um þessa plötu heldur að láta hvern og einn um að upplifa hið nýja viðhorf. Eini gallinn við plötuna er að ekkert texta-blað fylgir henni. „Rise and Fall“ er plata fyrir alla sem hafa gaman af góðri tónlist og eitt er víst að með henni hefur Madness eignast nýtt gildi í mínum augum og ég er örugglega ekki einn um þá skoðun. FM/AM. r-p jí Glæsilegur jólamarkaðu í KJALLARA KJORGARÐS ilS, Wi r ATH.: Nýjar vörur bætast við daglega GERIÐ SVO VEL AÐ LÍTA INN Gífurlegt úrval af leikföngum. Mikiö úrval af styttum. Skartgripir á hlægilegu veröi. Sængurfatnaður — vefnaöarvörur. Fatnaöur og skór á alla fjölskylduna og margt margt fleira. JOLAMARKAÐURINN I KJALLARA KJORGARÐS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.