Morgunblaðið - 16.12.1982, Síða 34

Morgunblaðið - 16.12.1982, Síða 34
38 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1982 Svlþjóð: Um 18% útflutn- ingsverðmæta- aukning 1982 Spá um 10% verðmætaaukn- ingu á næsta ári Bráðabirgöatölur gera ráö fyrir því, að útflutningur Svía á þessu ári verði að verðmæti í námunda við 171 milljarð sænskra króna, sem er um 18% aukning frá fyrra ári. Ennfremur sýna þessar tölur um 2% aukningu umfram það sem áætlanir í september gerðu ráð fyrir. Á fyrri helmingi þessa árs var útflutningsverðmæti Svía um 83 milljarðar sænskra króna, sem var um 19% aukning miðað við sama tímabil á árinu 1981. Hins vegar benda tölur nú til, að út- flutningsverðmæti á seinni helmingi ársins verði um 88 milljarðar króna, sem er um 18% aukning frá sama tíma í fyrra. Sænskir efnahagssérfræð- ingar hafa gert spá um útflutn- ing landsmanna á næsta ári og samkv'semt henni verður út- flutningsverðmætið í kringum 188 milljarðar sænskra króna, sem er um 10% aukning frá yf- irstandandi ári. Hins vegar ger- ir spáin ráð fyrir heldur minni verðmætaaukningu í útflutningi iðnaðarvara, eða um 9%. Mikill vöxtur í vöru- flutningum Arnarflugs Skattheimtan um 10 milljarðar í ár: FRAKT er vaxandi þáttur í rekstri Arnarflugs, bæði í innalands- og millilandaflugi, segir í nýjasta fréttablaði Arnarflugs, en þar ketnur ennfremur fram, að aukn- ingin á fraktflugi í innanlandsflug- inu sé um 16% frá fyrra ári. Ekki er óalgengt, að farið sé sérstakt leiguflug vítt og breytt um landið með vörur. I milli- landafluginu hefur ennfremur orðið mikil aukning. Það eru ekki eingöngu vörur frá Hol- landi og nágrannalöndum þess, heldur ennfremur frá Banda- ríkjunum, Kanada og Austur- löndum. í fréttablaðinu segir, að Amsterdam sé góður tengistað- ur fyrir vörur frá fjarlægum stöðum og Arnarflug taki við frakt frá fimmtán flugfélögum, sem þar lenda og flytji til ís- lands. „Það er áberandi í hve miklum mæli íslenzkir aðilar eru farnir að nota hraðsend- ingarþjónustu ef þarf að fá varning eins og varahluti, lyf, MIKIL aukning hefur orðið á starfsemi upplýsingaskrifstofu ávexti eða aðra viðkvæma hluti." í fréttablaðinu segir að síð- ustu, að útflutningur fari enn- fremur vaxandi með vélum fé- lagsins, aðallega sé flogið með ullarvörur og matvæli. Verzlunarráðs tslands undanfarið. Krlendar fyrirspurnir fyrstu tíu mánuði ársins voru orðnar fleiri, en á öllu síðasta ári, sem var met- ár. Þessar upplýsingar koma fram í nýjasta fréttabréfí verzlunarráðs- Veruleg aukning er á starfsemi upplýs- ingaskrifstofu VI ins. Stefnir nú í 20% aukningu á þessu ári og er búizt við að þær verði um 3.000 að sögn Gríms Jósafatssonar, forstöðumanns upplýsingaskrifstofunnar. ís- lenzk fyrirtæki bregðast yfir- leitt fljótt og vel við þegar er leitað upplýsinga um starfsem- ina, enda farið með þær sem trúnaðarmál og þær aðeins gefnar öðrum til að greiða fyrir viðskiptum og efla viðskipta- traust. Nýr formaður Alþjóða Verzl- unarráðsins FRANCOIS Geyrac frá Frakklandi hefur verið kosinn formaður Alþjóða verzlunarráðsins fyrir árið 1983 og tekur hann við af Austurríkismann- inum Philipp von Schoeller. Geyrac hefur verið varaformað- ur Alþjóða verzlunarráðsins á þessu ári. Hann er kunnur fyrir áhuga sinn á þjóðfélagsmálum og hefur mikið látið til sín taka í þeim efnum innan Alþjóða verzl- unarráðsins. Geyrac var einnig nýlega kosinn formaður efnahags- og þjóðfélagsmálanefndar Efna- hagsbandalags Evrópu, EBE. Höf- uðstöðvar Alþjóða verzlunarráðs- ins eru í París í Frakklandi. Meira hugsað um hækkun skatta en öryggi og eðli þeirra skattstofna, sem fyrir eru sagði Olafur Nilsson á fundi fram- kvæmdastjórnar Verzlunarráðsins ÓLAFUR Nilsson, endurskoðandi, ræddi um skattamál og undanbrögð frá skattheimtu á fundi stjórnar Verzlunarráðs íslands á dögunum. Ólafur sagði í upphafí, að meira hefði verið hugsað um það á undan- fornum árum að hækka skatta, en gæta að öryggi og eðli þeirra skatt- stofna, sem fyrir eru og hvernig mætti nýta þá með einfaldari hætti, að því er segir í nýjasta fréttabréfi Verzlunarráðs íslands. Það kom fram hjá Ólafi, að skattheimta ríkis og sveitarfélaga yrði um 10 milljarðar króna á þessu ári og 80% af heildartekjun- um kæmu frá þremur skattstofn- um, 24% af sköttum á tekjur, 20% af gjöldum á innflutning og 36% af söluskatti. Hann ræddi síðan um kosti og galla hvers tekjustofnsr Vaxandi erfiðleikar eru á því í flestum löndum, að koma fram álagningu á tekjuskatt með eðlilegum hætti. Þetta skapar óánægju og tor- tryggni og aðgerða er krafizt án þess að grunnurinn væri nægilega skoðaður. Virðisaukaskattur hefur víða komið í stað söluskatts vegna uppsöfnunar og áhrifa hans á framleiðslukostnað. Þá sagði Ólafur, að aðstöðu- gjaldið á atvinnurekstur hefði einnig uppsöfnunaráhrif, þó því væri minni gaumur gefinn, auk þess væri velta fyrirtækja í alla staði óraunhæf sem skattstofn. Ólafur ræddi nokkuð um virðis- aukaskatt, en fjármálaráðherra hefur lýst því yfir, að frumvarp um hann verði lagt fram á þessu þingi. Ólafur sagði, að undanbrögð frá skattheimtu sköpuðu mismunun í þjóðfélaginu, en enginn vissi hvert raunverulegt umfang slíkra und- anbragða væri. Á því hefðu engar rannsóknir farið fram. Á hinn bóginn hélt hann því fram, að undanbrögð væru mest á tekju- skatti, en ekki á söluskatti, eins og margir virtust halda. Ólafur benti á, að margir væru Ólafur Nilsson tilbúnir að draga undan skatti, en undanbrögðin færu eftir aðstöðu manna. Aðstaðan væri bezt þegar 2 smáir semji um viðskipti sín á milii eða þegar um tilfallandi tekjur fyrirtækja og einstaklinga væri að ræða. Þá væri það vaxandi vandamál, að stærri hluti launa væri greiddur í hlunnindum, en áður, bílastyrkir, fæði og fleira. Erfitt væri að meta slíkt til pen- inga, þannig að það skapaði ekki mismunun. Að lokum fjallaði Ólafur Nils- son nokkuð um úrbætur í skatta- málum og nefndi m.a., að meiri formfestu vantaði varðandi smærri atvinnurekstur og skrán- ingar fyrirtækja. Efla þyrfti starfshæfni skattstofa og taka þar upp jákvæðari vinnubrögð gagn- vart skattborgurunum og efla gagnkvæmt traust. Einnig mætti draga úr undanbrgöðum með því að samræma lög því sem væri framkvæmanlegt. Skatthlutfall tekjuskatts, 65%, í efstu þrepum væri alltof hátt, þannig að veru- lega myndi draga úr undanbrögð- um ef það væri lækkað. Þá þyrfti að efla raunhæft eftirlit með sköttum og skattstofnum, því ekki væri gætt að veikleikum skatt- stofnanna þegar skattar væru hækkaðir og kæmi það í veg fyrir virkt eftirlit. I AVIIVI'

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.