Morgunblaðið - 31.12.1982, Side 5
FRÉTT AGETRAUN
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1982 37
25.
Guðmundur J. Guðmundsson, al-
þingismaður og formaður Verka-
mannasambands íslands, kom í
hasti heim til íslands síðla sumars,
en hann var þá staddur í leyfi er-
lendis. I>essarar skyndilegu og
óvæntu heimkomu Guðmundar var
ekki tekið með fognudi í herbúðum
flokksmanna hans i Alþýðubanda-
laginu og var Ólafur Ragnar Gríms-
son borinn þeim sökum að hafa sagt
Morgunblaðinu símanúmer Guð-
mundar ytra. Ástæða heimkomunn-
ar var:
a) Stórfelld kjaraskerðing
„menntamannaklíkunnar" í Al-
þýðubandalaginu
b) Reka átti herinn úr landi í 100.
skipti
c) Svavar Gestsson ætlaði að
heimsækja vini sína í Moskvu
d) Ásmundi Stefánssyni, forseta
ASÍ, fannst kjaraskerðingin
ekki nógu mikil
26.
Ung kona lagði fram allsérstæða
kæru á hendur yngri manni, en
orsök kærunnar var ástarleikur sem
þau hjúin höfðu skemmt sér við þá
fyrr um nóttina. Ástæða kærunnar
var:
a) Maðurinn var ekki kærasti
konunnar eins og henni sýndist
í myrkrinu
b) Konan vildi hætta leiknum þá
hæst hann stóð, en það vildi
maðurinn ekki og fór hann sínu
fram
c) Konan gat ómögulega komið
leikfélaga sínum til
d) Maðurinn krafðist gjalds fyrir
veitta aðstoð, sem konan taldi
alls ekki fullnægjandi
27.
Setning i embætti fræðslustjóra í
Reykjavík i haust olli talsveröu
fjaðrafoki, því menntamálaráðherra
fór ekki að vilja meirihluta borgar-
stjórnar í málinu. Sá sem fékk stöð-
una var:
a) Sigurjón Fjeldsted
b) Sigurjón Pétursson
c) Áslaug Brynjólfsdóttir
d) Sæmundur fróði
28.
Guðmundur J. Guðmundsson var
ákaflega svekktur eftir að honum
hafði verið sópað út úr hafnarstjórn
Reykjavíkur af eigin flokks-
mönnum, en Guðmundur Þ. Jóns-
son, borgarfulltrúi Alþýðubanda-
lagsins, var settur þar í staðinn.
Guðmundur J. lét hafa eftir sér eftir-
farandi um nafna sinn Guðmund Þ.:
a) Hann væri skemmtilegasti
maður sem hann hefði kynnst
b) Hann væri allsendis óhæfur til
að taka sæti sitt í hafnarstjórn
c) Hann væri nógu greindur til
þess að rata um hafnarsvæðið
eftir kortinu í símaskránni
d) Að ekki væri nóg að heita Guð-
mundur til þess að geta staðið
sig í hafnarstjórn
29.
Bílaleiga íslendinga er umtalsverð,
miðað við höfðatöluregluna góð-
kunnu. Miðað við þá reglu eru fs-
lendingar:
a) í efsta sæti þjóða heims
b) í öðru sæti á eftir Bandaríkja-
mönnum
c) í fimmta sæti, næstir á undan
Sovétmönnum
d) í þriðja sæti, á eftir Tékkum og
Rúmenum
30.
Úrslit borgarstjórnarkosninganna sl.
vor þóttu tiðindum sæta. Nú er
skipting borgarfulltrúa þessi:
a) Sjálfstæðisflokkur 7, Alþýðu-
bandalag 5, Alþýðuflokkur 2 og
Framsóknarflokkur 1
b) Kvennaframboð 3, Sjálfstæðis-
flokkur 11, Alþýðubandalag 4,
Framsóknarflokkur 1 og Al-
þýðuflokkur 1
c) Sjálfstæðisflokkur 12, Fram-
sóknarflokkur 2, Alþýðubanda-
lag 4, Kvennaframboð 2 og Al-
þýðuflokkur 1
d) Sjálfstæðisflokkur 9, Alþýðu-
bandalag 3, Framsóknarflokk-
ur 1, Alþýðuflokkur og
Kvennaframboð 1V4
31.
Samband ísl. samvinnufélaga, SÍS,
fékk ekki leyfi til að dreifa stunda-
skrá frá fyrirtækinu i skóla í borg-
inni. Ástæðan var:
a) I stundaskránni var almennur
áróður fyrir Samvinnuhreyf-
inguna meginefnið
b) Stundaskráin var aðeins fyrir
eldri árgangana
c) Símanúmer SÍS var á hverri
blaðsíðu
d) Mynd af Jónasi frá Hriflu var
bæði á forsíðu og baksíðu
stundaskrárinnar
32.
Samkvæmt rannsóknum visinda-
manna áttu að verða talsverðar
breytingar á rjúpnastofninum í ár.
Þessar breytingar eru:
a) Fjölgun um 100%
b) Fækkun um 50%
c) Fjölgun um 50%
d) Fyrirsjáanleg útrýming, Wgna
ofveiði undanfarinna ára
33.
Talið er að bilun, sem varð í bíi
rallkappanna Ómars og Jóns
Ragnarssona í haust, hafi verið
skemmdarverk. Bilunin varð í:
a) Vél og talið að einhver hafi
pissað á bensíngeyminn
b) Stimpli, sem potað hafði verið í
með skrúfjárni og skrúfa sett í
c) Stýrisbúnaði, en sagað hafði
verið í hann
d) Dekki, sem nagli hafði verið
rekinn í
34.
Friðrik Ólafsson tapaði kosningunni
um forsetastöðu Alþjóðaskáksam-
bandsins, en Filippseyingurinn
('ampomanes sigraði. Talið var að
hann hafi „beitt brögðum" í kosn-
ingabaráttunni, sem voru einkum:
a) „Keypt“ atkvæði með mútufé
b) Gert samkomulag við Rússa
um að senda Kortsnoj heim
áftur
c) Rak lítið gleðihús i Luzern,
þannig að sumir komust ekki á
kjörstað
d) Sagðist vera betri í skák en
Friðrik
43.
Selurinn á myndinni komst í frétt-
irnar vegna:
) Var fluttur hingað með Arnar-
flugi flugleiðis frá Hollandi
b) Beit formann hringormanefnd-
ar
c) Varð ekki um sel þegar hann
frétti af seladrápinu
d) Stakk af úr Sædýrasafninu
35.
Hjörleifur Guttormsson iðnaðar-
ráðherra hefur staðið í „heilögu
stríði" við svissneska fyrirtækið Alu-
suis.se. Helsta baráttumál ráðherr-
ans er að:
a) ÍSAL verði flutt til Langaness
b) Raforkuverð verði hækkað
verulega
c) Ragnar Halldórsson forstjóri
ÍSAL verði rekinn, en hann
sjálfur taki við forstjórastöð-
unni
d) Að álverið verði stækkað um
helming
36.
Kunnur maður spurði eftirfarandi
spurningar á flokksþingi Alþýðu-
flokksins: „Getur verið að Alþýðu-
flokkurinn fljóti í pólitísku tóma-
rúmi?“ Sá sem kastaði fram spurn-
ingunni var:
a) Árni Gunnarsson alþingismað-
ur
b) Vilmundur Gylfason alþingis-
maður
c) Sigurður E. Guðmundsson
borgarfulltrúi
d) Benny Goodman
37.
Reglugerð um stúdentspróf var
breytt á árinu. Breytingin fólst í því
að:
a) Sá sem fær yfir 5,0 í meðal-
einkunn er ekki fallinn
b) Sá sem fær undir 3,0 i tveim
greinum er fallinn
c) Sá sem fær 0,0 í einhverri grein
er fallinn
d) Sá sem ekki skrifar með blek-
penna lækkar um 0,5
38.
Nýi borgarstjórnarmeirihlutinn í
Reykjavík ætlar að gera kleift að
hægt verði að úthluta góðum slatta
af íbúðarlóðum á næsta ári. Hvað
eru lóðirnar margar?
a) 1716
b) 1617
c) 352
d) 2000
39.
Allsérkennileg yfirlýsing var gefin á
flokksþingi Framsóknarflokksins á
árinu, sem laut að því að blíðka
Tímamenn, sem áður höfðu verið
gagnrýndir. Því var lýst yfir að:
a.) Tíminn væri skemmtilegasta
blað norðan Alpafjalla
b) Þórarinn Þórarinsson væri
besti leiðarahöfundur á land-
inu
c) Tíminn væri grundvallarrit um
nytsemi og fegurð sauðkindar-
innar
d) Timamenn væru bara svolítið
kindarlegir
40.
Togarinn Ögri RE fékk óvenjulegan
afla á árinu. Hann var:
a) Tvíhöfða hákarl
b) Tundurdufl úr Falklandseyja-
stríðinu
c) Troll sem togarinn tapaði mán-
uði áður
d) Hafmeyja sem var til í tuskið
45.
íslendingum fjölgaði um 23 á einu
bretti í maímánuði sl. þegar þota
Flugleiöa lenti á Keflavíkurflugvelli.
Hvað fólk var þarna á ferðinni?
a) Pólskir flóttamenn
b) 23 knattspyrnumenn frá
Belgíu, sem sóttu um hæli sem
pólitískir flóttamenn.
c) Sovézkir flóttamenn
d) Bandarískir kommúnistar, sem
reknir voru úr landi og fengið
höfðu landvistarleyfi hér.
Lausn á innlendri fréttagetraun er á bls. 50.