Morgunblaðið - 31.12.1982, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1982
51
*
4. timferð Olympíumótsins:
Vonir Ungverja urðu að engu
Stórsigur Tékka yfir Svíum voru
þau úrslit sem mesta athygli vakti
rjóröa dag Olympíumótsins. Aö-
eins Andersson gerði jafntefii viö
Hort, en ungu Svíarnir á hinum
boröunum þremur, þeir Schiissler,
Karlsson og Schneider, töpuðu
fyrir stórmeisturunum Smejkal,
Ftacnik og Plachetka. Þar með
voru Tékkar komnir í efsta saetið
ásamt Sovétmönnum, sem þó
lögðu Júgóslava að velli 2Vt—V/i.
Sú viðureign var mjög sviptinga-
söm og um tíma voru jafnvel líkur
á að Rússar myndu tapa henni. All-
ar skákirnar fjórar fóru í bið og
virtist að af Rússunum hefði að-
eins Kasparov vinningsmöguleika
gegn Gligoric, en á hinum borðun-
um stóðu Júgóslavar betur.
Rússar brugðu þá á það ráð að
bjóða jafntefli, 2—2, en því var
hafnað. Þá buðu Rússar
1 'k —1 'k og að Karpov og Ljubo-
jevic myndu halda áfram að
tefla. í þeirri skák hafði Júgó-
slavinn aðeins smávægilega
vinningsmöguleika þannig að
þessu tilboði var einnig vísað á
bug. Síðan hófst taflmennskan
og fljótlega kom í ljós að Kasp-
arov hafði fundið örugga vinn-
ingsleið gegn Gligoric. Skömmu
síðar sömdu þeir Beljavsky og
Kovacevic og daginn eftir lauk
hinum skákunum tveimur einnig
með jafntefli, því Tal tókst með
þrautseigju að hanga á endatafli
með peði minna gegn Ivanovic.
Nú þegar var komið í ljós að
sigurvegararnir í Buenos Aires
1978, Ungverjar, myndu ekki
taka þátt í baráttunni um efsta
sætið, því þeir töpuðu óvænt
l'A—2'Á fyrir Argentínu. Frá-
bær frammistaða þeirra á
tveimur undanförnum ólympíu-
mótum hafði komið geysilega á
óvart því á pappírnum virtist
sveit þeirra standa hinni rússn-
esku langt að baki. En nú náðu
þeir ekki upp sama kraftinum og
áður og burðarásarnir, Portisch,
Ribli og Sax, virtust allir hafa
hrokkið í óstuð í einu. Getgátur
voru uppi um það að þreyta eftir
millisvæðamótin í sumar hefði
háð þeim og kann það að vera
rétt, en þá hefðu fleiri en þeir
haft ástæðu til að tefla illa.
Islenzka sveitin var fremur
heppin með andstæðinga í þess-
ari umferð þar sem var titillaust
lið Ný-Sjálendinga. Góður sigur
fleytti okkur líka langt upp á við:
ísland — Nýja-Sjáland 3—1
Guðmundur — Small Vi — 'fa.
Jón — Sarapu 1—0
Helgi — Nokes 1—0
Smith — Jóhann 'k — 'k
Andstæðingur Guðmundar
náði snemma að skipta upp á
miklu liði og fjaraði skákin síðan
út í jafntefli. Sarapu, sem Jón
tefldi við, er gamalreyndur al-
þjóðameistari sem gerir sér eng-
ar grillur um að hann geti unnið
ungu meistarana, en stillir liði
sínu jafnan upp til varnar og
heldur sér fast. Á þann hátt stóð
hann t.d. lengi í Kasparov í
fyrstu umferðinni. Gegn Jóni
gekk hræðslutaflmennska þessi
eftir áætlun lengi framan af, en
þá gerðist Ný-Sjálendingurinn
djarfur á röngu augnabliki,
gleypti eitrað peð og tapaði.
Helgi vann sína skák örugg-
lega með hvítu eftir miklar
sviptingar í tímahraki þar sem
báðum urðu á mistök eins og
gengur. Jóhann hafði greinilega
ekki jafnað sig eftir áfallið gegn
Albaníu og fékk mjög erfiða
stöðu eftir byrjunina. Andstæð-
ingur hans missti hins vegar af
beztu leiðinni og þá fékk Jóhann
unnið. En þá fataðist honum aft-
ur og Smith sást jafnvel yfir
vinningsleið í tímahraki áður en
Marga rak I rogastans er þessi
mynd af Kasparov birtist í mótsblað-
inu margumtalaða með myndatextan-
um: „Hvað gerir þennan mann fremri
öllum öðrum skákmönnum í heimin-
um?“
Að vísu eru ýmsir á þeirri skoðun
að Kasparov sé þegar orðinn beztur,
en það er annar maður sem á þessa
upphefð skjalfesta, Anatoly nokkur
Karpov. Síðar kom fram að prent-
villupúkinn hafði verið með í spilinu
og þessi texti átti að vera undir mynd
af Karpov. Heimsmeistarinn var auð-
vitað beðinn afsökunar á þessum
óútskýranlegu mistökum, en það hef-
ur líklega bætt lítið úr skák, því það
versta er að Karpov er geysilega hjá-
trúarfullur.
þessari æsispennandi skák lauk
á sanngjarnan veg með jafntefli.
Staðan eftir fjórar umferðir:
1.—2. Sovétríkin og Tékkóslóv-
akía 13 v.
3.-4. Sviss og V-Þýzkal. !2 v.
5.-8. Holland, Argentína, Júgó-
slavía og Austurríki 11 Vfe v.
9.—14. Bandaríkin, England,
Búlgaría, ísrael, ísland, Dan-
mörk 11 v.
Hvítt: Sarapu (Nýja-Sjálandi)
Svart: Jón L. Arnason
Sikileyjarvörn
1. e4 — c5, 2. Rf3 — e6, 3. b3 —
b6, 4. c4 — Bb7, 5. Rc3 — Rc6, 6.
Bb2 — Rf6, 7. Be2 — a6, 8. (M) —
Db8!
Athyglisverð hugmynd. Eftir
8. — d6, 9. d4 — cxd4,10. Rxd4 er
komin upp vel þekkt staða þar
sem viðurkennt er að hvítur
stendur heldur betur.
9. h3 — Bd6, 10. Hel — 0-0, 11.
Bfl - Rd4, 12. d3 — Rxf3+, 13.
Dxf3 — Bh2+, 14. Khl — Be5, 15.
Habl — Dc7, 16. Re2 — Bxb2, 17.
Hxb2 — d5
Hvítur hefur ekki teflt af
miklum innblæstri, en leitast við
að ná uppskiptum. Svarti hefur á
meðan tekizt að ná til sín frum-
kvæðinu.
18. exd5 — exd5, 19. Dg3 — De7,
20. Hbbl — Hfe8, 21. Kgl —
Hac8, 22. a3 — h6, 23. Rd4! —
Dd7
23. — Dxel, 24. Hxel — Hxel,
25. Rf5 er svörtum auðsjáanlega
óhollt.
24. Rf3 — dxc4, 25. bxc4 — Hxel,
26. Rxel — b5, 27. cxb5 — axb5,
28. Rc2 — Bd5, 29. Re3 — Be6, 30.
De5 — I)d4, 31. Rg4 — Dxe5, 32.
Rxe5
32. — c4!, 33. Hxb5?
Hvítur hefði átt að halda
áfram að vera lítilþægur og leika
33. dxc4 — bxc4, 34. Hcl — c3,
35. Bd3
33. — c3, 34. Hbl — c2, 35. Hcl —
Bb3, 36. Rc4 — Rd5, 37. Be2 —
Rc3, 38. Bg4 — f5!, 39. Bxf5 —
Re2+, 40. Kfl — Rxcl og hvítur
gafst upp.
Eftir að hafa orðið neðstur á
millisvæðamótinu í Moskvu náði
argentínski stórmeistarinn
Quinteros sér nú vel á strik og
innsiglaði sigur sveitar sinnar
yfir Ungverjum.
Hvítt: Quinteros (Argentínu)
Svart: Portisch (Ungverjalandi)
Drottningar-indversk vörn
1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rf3 —
b6, 4. g3 — Ba6, 5. be — Bb4+, 6.
Bd2 — Be7, 7. Bg2 — Bb7, 8. 0-0
— 0-0, 9. Rc3 — Ra6
Þessi staða kom einnig upp í
skákinni Torre-Portisch, milli-
svæðamótinu í Toluca í sumar.
Sem aðstoðarmaður Torre á því
móti hefur Quinteros greinilega
velt stöðunni mikið fyrir sér.
10. Bcl!? — d5, 11. Bb2 — c5, 12.
Re5 — Rc7?
Betra en 12. — Hb8
13. dxc5 — bxc5, 14. Ra4 — Hc8,
15. IIcl — Ra6, 16. Rd3 — Re4,
17. e3 — dxc4, 18. Hxc4 — f5, 19.
Rc3! — Rxc3, 20. Bxc3 — bxg2, 21.
Kxg2 — Dd5+
I fljótu bragði virðist þessi
skák leysa vandamál svarts, en
hvítur á mjög öflugt svar:
22. e4! — fxe4, 23. Rf4 — Dc6
Eftir skákina sagði Portisch
að hann hefði ætlað að fórna
skiptamun á f4, en sá nú að eftir
23. - Hxf4, 24. gxf4 - Hf8, 25.
Dxd5 — exd5, 26. Ha4 væri mót-
spil svarts ófullnægjandi.
24. Dg4 - e3+, 25. Kgl - exf2+
Eftir þetta verður hvíta sókn-
in óstöðvandi. Reynandi var 25.
- e5, 26. Bxe5 - Bf6.
26. Hxf2 — Bf6, 27. Rxe6 — h5,
28. I)f5 — Bxc3, 29. Rxf8 — Bf6,
30. Rh7! — Bd4, 31. Hxd4 og
svartur gafst upp, því eftir 31. —
cxd4 leikur hvítur 32. Rg5.
Vib sendum landgrriönnum
öllum ógkir um fargaeld
á nýju ári og þökkum
ánaegjulegi gamgfarf
EIMSKIP
*
w