Morgunblaðið - 31.12.1982, Síða 6
IÞROTT AFRETT A
38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1982
Innlent
í.
Best að hyrja þessa innlendu íþrótta-
fréttagetraun á nokkrum spurning-
um úr því hjartansáhugamáli margra
íslendinga, knattspyrnunni. ís-
landsmeistarinn í knattspyrnu 1982
var sama lið og hreppti hnossið 1981,
hvaða félag vann það afrek að verja
titil sinn?
a) Víkingur
b) Fram
c) ÍA
d) Haugasund
e) UMF Æðarfuglinn Flatey
2.
Fyrst við erum að ræða um knatt-
spyrnuna þá reka menn kannski
minni til að í 2. deild féll gamalfrægt
Reykjavíkurfélag sem jafnan hefur
barist við topp deildarinnar, en ekki
á botninum. Hvaða félag var
það????
a) Víkingur
b) Fram
c) Armann
d) Bræður
e) UMF Drengur
3.
Framherji nokkur hjá Val skoraði
nokkur mörk á keppnistímabilinu
svo sem endranær, eitt þeirra var að
því leyti til merkilegt, að með því
jafnaði hann markamet í 1. deild.
Hver var þessi markvissi Vals-
ari?????
a) Pétur Ormslev
b) Hinrik Þórhallsson
c) Valur Valsson
d) Valdimar Örnólfsson
e) Ingi Björn Albertsson
4.
íslensk landsliðskona í knattspyrnu,
Rósa Valdemarsdóttir úr Kópavogi
fékk athyglisvert tilboð er keppnis-
tímabilinu var nýlokið. f hverju fólst
tilboðið?
a) Að dansa í sundfötum á næt-
urklúbbi í Islamabad
b) Að líta á aðstæður hjá norsku
knattspyrnufélagi
c) Að gerast eiginkona Hosni Mu-
baraks Egyptalandsforseta
d) Að leika atvinnuknattspyrnu
með hollensku knattspyrnu-
stórveldi
e) Að gerast sprengjusérfræðing-
ur hjá norska hernum.
5.
Valsmenn töpuðu dýrmætum stigum
á íslandsmótinu í knattspyrnu vegna
kærumáls sem upp kom vegna Al-
berts Guðmundssonar. Tvö lið
kærðu tilvist Alberts í liði Vals og
unnu kærurnar. Liðin tvö sögðu Al-
bert vera ...
a) Launson Geirs Hallgrímssonar
b) Samningsbundinn bandarísku
hornaboltaliði
c) Tékkneskan ríkisborgara
d) Samningsbundinn bandarísku
knattspyrnuliði
e) Samningsbundinn Ungmenna-
félagi Súgandafjarðar
6.
Nýliðar ÍBÍ í 1. deild höfðu þá sér-
stöðu á mótinu, aö ...
a) Skora flest mörk í 1. deild
b) Leika eitt liða í skíðagöllum
c) Leika eitt liða með 15 tommu
rakvélablöð undir skónum í
stað takka
d) Fá á sig fæst mörkin í 1. deild
e) Að eiga markakóng 1. deildar
7.
íslenskir handknattleiksmenn hafa
löngum gert garðinn frægan í Vest-
ur-Þýskalandi. En hróður landans
jókst enn þar eystra, er ...
a) Meistaraflokkur UMFA keppti
í Búndeslígunni sem gestur og
sigraði með fullu húsi stiga.
b) Jóhann Ingi Gunnarsson fyrr-
um landsliðsþjálfara tókst að
þjálfa Kiel með góðum árangri.
c) 15 íslenskir handknattleiks-
menn stofnuðu félag í þýska
handknattleiknum og urðu
Evrópumeistarar fyrir hönd
V-Þýskalands.
d) Friðrik Guðmundsson hjá HSÍ
var skipaður landsliðsþjálfari
Þjóðverja, eftirmaður hins
fræga Vlado Stenzel.
8.
Guðrún Ingólfsdóttir íþróttakona
gerði góða hluti á árinu, hún ...
a) Setti hvert kúluvarpsmetið af
öðru
b) Skoraði 59 mörk í 1. deildar-
keppninni í knattspyrnu
c) Felldi hvað eftir annað 2,30 í
stangarstökki
d) Opnaði hamborgarasölukeðju
undir nafninu Barónsborgarar
e) Keppti á 5 mótum á dag, í 4
greinum
9.
Á yfirstandandi íslandsmóti i hand-
knattleik hefur einn hlutur öðrum
fremur vakið athygli ...
a) Aðeins hafa verið skoruð fleiri
mörk en 10 í þremur leikjum
b) Framarar hafa ekki fengið á
sig minna en 55 mörk í hverjum
leik.
c) Alls hafa 4—8 dómarar dæmt
hvern leik
d) Nýliðar 1. deildar, Stjarnan,
hafa verið í hópi bestu liðanna
e) Mótanefnd HSÍ hefur gefið út
500 síðna litprentaða mótaskrá.
10.
fslandsmeistarar Víkings hófu ekki
handknattleiksvertíðina gæfu-
lega ...
a ) Þ e i r töpuðu fyrsta leiknum
með tíu marka mun
b) Fengu rangar upplýsingar og
mættu hálfum mánuði of
seint í fyrsta leikinn
c) Fengu allir garnaflækju af
stressi og fengu fyrsta leikn-
um frestað vegna þessa
d) Þeir ætluðu í rútu til Hafnar-
fjarðar, en það sprakk 12
sinnum á leiðinni suður eftir
e) Þeir töpuðu með 6 marka mun
fyrir Þrótti
11.
Snörum okkur í körfuknattleikinn.
Á íslandsmótinu nú gerðist það, að
ÍR tapaði öllum fyrstu leikjum sín-
um, en síðan vænkaðist hagur liðs-
ins þar sem ...
a) Rauði krossinn gekkst fyrir
fjársöfnun til handa liðinu
b) Jólatréssala liðsins gekk von-
um framar
c) John þjálfari Dooley dró fram
skóna g reyndist yfirburða-
maður
d) Kristinn og Jón stráðu laxa-
flugum i skó andstæðinganna
með þeim afleiðingum að ÍR
vann nokkra leiki
e) Pétur Guðmundsson gekk til
liðs við félagið
12.
Úrslit á síðasta úrvalsdeildarmóti,
sem lauk síðasta vor, urðu þau,
að ...
a) Njarðvík varði titil sinn
b) Valur varði titil sinn
c) Þór Vestmannaeyjum varð
meistari í fyrsta skipti
d) Öll liðin sex urðu jöfn að stig-
um og aukakeppni hefur enn ekki
farið fram
e) Úrslit fengust ekki, þar sem
veðurfar hamlaði því að mótinu
lyki
13.
Rikharður Hrafnkelsson körfubolta-
maður úr Val var heiðraður af Mbl.
snemma á árinu fyrir afrek á ís-
landsmótinu þar á undan. Ríkharð-
ur ...
a ) B æ ð i skoraði flest stig og
var kjörinn maður mótsins
b) Skoraði flest stig, hirti flest
fráköst, barði flesta dómara
og sleit flestum skóm allra
leikmanna
c) Braut flesta körfuhringi
d) Var með bestu vítanýtinguna
e) Lék 88 landsleiki fyrir 12 þjóðir
á árinu
14.
John Dooley, hinn bandaríski körfu-
þjálfari ÍR vissi vart hvaðan á sig
stóð veðrið skömmu eftir að hann
kom til landsins er ...
a) Skattalöggan gerði eiginkonu
hans upptæka sem fyrir-
framgreiðslu
b) KKÍ bauð honum landsliðs-
þjálfarastöðu
c) Öll hin úrvalsdeildarfélögin
reyndu að tæla hann til sín
með peningatilboðum
d) Einar Bollason vildi fá hann til
liðs við FH, gera hann að fyrir-
liða
e) Landsliðsnefnd KKI valdi hann
í landsliðið
15.
Vippum okkur aftur i handknattleik-
inn. Útkoma KR-inga í Evrópu-
keppninni var vægast sagt einkenni-
leg, en félagið mætti júgóslavnesku
stórliði og —
a) Vann fyrst með fimm mörkum
og tapaði svo með sjö mörkum
b) Tapaði fyrst með fimm mörk-
um, svo með 23 mörkum
c) Leikmenn júgóslavneska liðs-
ins voru allir með diplómata-
passa, þannig að ekki mátti svo
mikið sem anda á þá
d) Vann báða leikina með núlli
e) Gaf báða leikina þar sem þjálf-
ari liðsins fékk blóðeitrun rétt
fyrir leikinn