Morgunblaðið - 31.12.1982, Síða 8
\f/
ERLEND
40
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1982
1.
Annan janúar var skýrt frá því, að
Mchmet Shehu, forsætisráðherra
Albaníu, hefði látið af embætti.
Ástæðan var:
a) eiliglöp og alvarleg veikindi
b) hann var svo smámæltur að
hann gat ekki sagt „Stalín"
skammarlaust
c) hann var skotinn á miðstjórn-
arfundi albanska kommúnista-
flokksins
d) stytti sér aldur í þunglyndis-
kasti
2.
I'egar mánuður var frá herlögum
settu Rússar skilyrði fyrir efnahags-
aðstoð við bræðraþjóðina. Það var:
a) að aldrei framar yrði minnst á
morðin í Katyn-skógi
b) að Samstaða yrði opinberlega
bonnuð
c) að Pólverjar tækju upp rússn-
eska stafrófið
d) að Jaruzelski yrði skírður upp
og kallaður Lech Walesa
3.
llm miðjan janúar hrapaði farþega-
þota á brú í Washington í Bandaríkj-
unum og fórust með henni 74
manns. Áin, sem brúin er yfir, heitir:
a) Mississippi
b) Rio Grande
c) Hanomac
d) Potomac
4.
Forsetakosningar fóru fram í Finn-
landi. Sá, sem bar sigur úr býtum,
heitir:
a) Koivisto
b) Pikkolainen
c) Runeberg
d) Kalevala
5.
Yfirhugsjónafræðingur hins komm-
úníska rétttrúnaðar lést austur í
Moskvu. Hann hét:
a) Ivan grimmi
b) Mikhail Suslov
c) Igor Ruslakov
d) Gregor Gennakin
6.
Bandaríska hershöfðingjanum Jam-
es L. Dozier var bjargað úr haldi hjá
liðsmönnum Rauðu herdeildanna.
Mestu hrellingarnar, sem hann
mátti þoia í fangavistinni, voru:
a) að taka þátt í leshring um
marxísk fræði
b) að hlusta á langar tölur um
illsku Bandaríkjamanna
c) að hlusta á rokktónlist tímun-
um saman
d) að hlusta á fangaverði sína
syngja saman Internationalinn
7.
„!>að er nauðsynlegt að finna upp á
einhverju nýju og hættulegu ef
Dæmigerð mynd frá hörmungunum í Beirút I Líbanon á þessu árí.
menn vilja viðhalda frægðinni,"
sagði franskur ofurhugi. í þvi skyni:
a) ók hann niður Mont Blanc í
Peugeot-bifreið
b) fylgdi umferðarreglunum í
París í heilan dag
c) ók öfugan hring í Monte Carlo-
kappakstrinum
d) kynnti sér niðurtalningu
Framsóknar síðustu þrjú árin
8.
Alvarlegur búfjársjúkdómur kom
upp í Danmörku. Þar var um að
ræða:
a) liðagigt
b) hettusótt
c) gin- og klaufaveiki
d) taugabilun
9.
Stjórnarkreppa varð í Færeyjum í
lok marsmánaðar. Því olli:
a) deila stjórnarflokkanna um
ferjukaup
b) frést hafði að íslendingar ætl-
uðu að fjölmenna á Ólafsvök-
una
c) Suðureyingar vildu segja sig úr
lögum við Dani
d) Afkomendur Þrándar í Götu og
Sigmundar Brestissonar fóru í
hár saman
10.
Annan apríl varð sá atburður, sem
sagt var um, að væri „mesta auð-
mýking Breta síðan i Súezmálinu
1956“. Þá var átt við:
a) að í ljós kom, að breska leyni-
þjónustan var að mestu skipuð
KGB-mönnum
b) innrás Argentínumanna í
Falklandseyjar
c) að hljóðbært varð um íslenskan
ættföður drottningar
d) Bretar töpuðu fyrir
Bandaríkjamönnum í landsleik
í knattspyrnu
11.
ísraelar réðust inn i eitt nágranna-
landa sinna. Þar var um að ræða:
a) árás á Filistea þegar þeir
fréttu af nýjum Golíat
b) herför austur til Babylon til að
hefna herleiðingarinnar
c) árás á Egypta til að hefna með-
ferðarinnar á Móse
d) innrás i Líbanon til að jafna
um Palestínumenn
12.
Argentínumenn gáfust upp fyrir
Bretum á Falklandseyjum við litinn
orðstír. Undir það síðasta stjórnaði
foringi þeirra vörninni:
a) á fjórum fótum í aðalstöðvum
sínum
b) úr þarabrúki í fjörunni
c) niðri í stærsta holræsi bæjar-
ins
c) frá hótelherbergi í Argentínu
13.
Allt ætlaði af göflunum að ganga
þegar fréttist af barnsfæðingu í
Bretaveldi. Foreldrið var:
a) Járnfrúin, sem ól af sér stál-
sleginn son
b) Díana prinsessa, sem varð létt-
ari og fæddi sveinbarn
d) Andrew prins og þótti útstáels-
ið á honum hafa borið ískyggi-
legan árangur
d) Margrét prinsessa
14.
200.000 þýskum mörkum var stolið
af heimili dansks kommúnistafor-
ingja. Skýringin, sem hann gaf á
fénu, var sú, að um væri að ræða:
a) hagnað af starfsemi danska
kommúnistaflokksins
b) fé, sem bandaríska leyniþjón-
ustan hafði komið fyrir á heim-
ili hans
c) fé, sem átti að verja í „alþjóð-
legt samstöðustarf"
d) peninga, sem hann hefði ekki
hugmynd um hvernig væru til
komnir
15.
Nordsat-áætlunin var samþykkt á
fundi Norðurlandaráðs, sem haldinn
var í Helsinki. Hún hljóðar upp á
það:
a) að Norðurlandabúar sitji alltaf
saman hvar sem þeir eru
staddir
b) að þeir sitji á strák sínum
hverjir við aðra
c) að þeir sitji ávallt við sama
borð
d) að sameiginlegum fjarskipta-
hnetti verði komið á braut
16.
Gaddafi, Líbýuleiðtogi, fór í sína
fyrstu ferð til vestræns ríkis. Hann
fór til:
a) Austurríkis
b) Bretlands
c) Frakklands
d) Bandaríkjanna
17.
Brezhnev boðaði miklar breytingar á
sovéskum landbúnaði. Ástæðan var:
a) gífurleg offramleiðsla
b) niðurgreiðslurnar voru að sliga
ríkissjóð
c) kjöt- og mjólkurframleiðslan
fór sífellt minnkandi
d) í ljós kom að helmingurinn af
kornuppskerunni fór í heima-
brugg
18.
Víðfrægt flugfélag fór á hausinn
snemma á árinu. Þar var um að
ræða:
a) Iscargo
b) Laker Airways
c) Air Florida
d) Luftwaffe
19.
Grænlendingar efndu til þjóðarat-
kvæðagreiðslu og samþykktu:
a) að þeir væru allir komnir í
beinan karllegg frá Eiríki
rauða
b) að segja sig úr Efnahagsbanda-
laginu
c) að ganga í ríkjasamband við ís-
lendinga
d) að banna miðstöðvarkyndingu í
snjóhúsum
20.
Danskir læknar þóttu hafa unnið
mikið afrek þegar þeir björguðu
manni nokkrum, sem reyndi að
stytta sér aldur. Aðferðin, sem hann
beitti við sjálfsmorðstilraunina, var:
a) hann baöaði sig í sjónum fyrir
utan Kaupmannahöfn
b) át upp úr tíu dósum af íslensk-
um niðursuðuvörum
c) kastaði sér ofan af Himmel-
bjerget
c) drakk úr tveimur og hálfri
viskíflösku í einum teig
21.
Hneykslisfrétt barst frá bandaríska
þinginu á Capitol Hill í byrjun júlí-
Þessi eyðilega vík varð upphafið að langri deilu Breta og Argentínumanna um yfirráð yfir Falklandseyjum. Ósköpin Mannfjöldi á Kastalatorginu í Varsjá safnast saman hinn 19. ágúst umhverf-
hófust með því að argentínskir brotajárnssölumenn hófu að flytja brotajárn frá eyjunni Suður-Georgíu (sjá mynd). is kross úr blómum til að mótmela herlögum 5 landinu.
Kndalokin eru öllum kunn.