Morgunblaðið - 31.12.1982, Side 9
FRÉTTAGETRAUN
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1982
41
Franskir bændur kveiktu í járnbrauUrvtfgnum, sem voru a6 koma frá Spáni
med innfluttar landbúnaðarafurðir.
mánaðar. Nokkrir þingmenn voru
þá sakaðir um:
a) að reykja í laumi
b) að flytja mál sín á hebresku
c) að lesa Morgunblaðið í þingsöl-
um
d) að eiga kynferðissamband við
unga þingsveina og neyta kóka-
íns reglulega
22.
Keagan Bandaríkjaforseti bauðst í
sumar til að senda bandarískt frið-
argæslulið. En hvert?:
a) í Valhöll til að stilla til friðar
með stríðandi öflum Sjálfstæð-
isflokksins
b) til Líbanon
c) að Alta-virkjuninni í Norður-
Noregi
d) á heimsmeistarakeppnina í
knattspyrnu á Spáni
23.
Manni nokkrum í Wisconsin-ríki i
Bandarikjunum voru í sumar dæmd-
ar sem svarar tveimur milljónum is-
lenskra króna í skaðabætur fyrir:
a) að neita að skúra skrifstofuna
kauplaust í eftirvinnu
b) að hafa misst bílinn sinn í bif-
reiðageymslubruna
c) kynferðislegar ofsóknir af
hálfu fyrrverandi yfirmanns
síns á tryggingastofnun ríkis-
ins
d) að hafa verið notaður við efna-
fræðitilraunir þvert gegn eigin
vilja
24.
Frumburður Karls Bretaprins og
Díönu prinses.su var vatni ausinn í
byrjun ágústmánaöar og gefið nafn.
Mann var skirður:
a) Guðbjartur
b) Vilhjálmur
c) Högni Kristleifur
d) Litli lávarðurinn
25.
Hinn kunni bandaríski leikari
Menry Fonda lést þann 12. ágúst.
Mann varð:
a) 59 ára
b) 86 ára
c) 74 ára
d) 77 ára
26.
Vísindamenn tilkynntu síðsumars,
að þeir hefðu fundið nýtt getnaðar-
varnalyf. Lyfíð á að nota á eftirfar-
andi hátt:
a) taka það inn með skeið
b) úða því í nasir sér
c) rjóða því í handarkrikana
d) pensla það í hársvörðinn
27.
„Ég er umkringdur sjúku fólki,
fangelsisrimlum og fangavörðum.**
Hver viðhafði þessi ummæli?:
a) einn fanganna að Litla-Hrauni
b) Sergei Batovrin, einn frum-
kvöðla sovésku friðarhreyf-
ingarinnar
c) Menotti, þjálfari fyrrum
heimsmeistara Argentínu, eftir
HM í knattspyrnu í sumar
d) Júrí Klikkonov í bréfi frá
fangabúðunum í Síberíu
28.
l’ann 14. september létust tvö þekkt
stórmenni. Upphafsstafír beggja eru
G. Þetta ágæta fólk var:
a) Gabriel og Gisela
b) Guðrún og Guðbjartur
c) Gög og Gokke
d) Grace furstafrú og Gemayel,
kjörinn forseti Líbanon
29.
Mikið öngþveiti greip um sig í
Rómaborg þann 22. september.
Astæðan var:
a) sést hafði til fljúgandi furðu-
hlutar
b) dúfnaskari hamlaði allri um-
ferð í borginni
c) haglél skall á húsaþökum og
olli ofsahræðslu
d) fólk kom saman til að fagna
heimsmeistaratign ítala í
knattspyrnu
30.
Maður nokkur, sem ákærður var
fyrir stuld á pokaskjatta með
brauðhleif og kjöti, slapp fvrir horn
þegar í Ijós kom að:
a) hann var haldinn ólæknandi
stelsýki
b) einn úr lögreglunni, hundurinn
Busby, hafði étið sönnunar-
gögnin
c) brauðið var myglað og kjötið
skemmt
d) kjötið reyndist hangikjöt og
því banvænn andskoti
31.
Nýr kanslari var kjörinn í V-Þýska-
landi þann 1. október sl. Helmuth
Kohl heitir sá ágæti maður. Virðing
hans, sem stjórnmálamanns, virðist
þó ekki vera í samræmi við stöðu
hans. Hann hefur iðulega hlotið upp-
nefni og það sem lengst hefur loðað
við hann er:
a) dreifbýlisdraugurinn
b) kálhöfuðið
c) erkifíflið
d) landsbyggðarviðrinið
32.
Mikið moldviðri varð í Svíþjóð þegar
hálf þjóðin hóf leit að óþekktum
kafbáti innan sænska skerjagarðs-
ins. Ekki tókst að neyða kafbátinn
upp á yfírborðið þannig að þjóðerni
hans varð aldrei sannað, en Svíar
töldu sig hafa vissu fyrir því að þar
væri á ferðinni kafbátur frá:
a) Sovétríkjunum
b) íslandi
c) Kína
d) Brasilíu
33.
Starfsemi Samstöðu, óháðu pólsku
verkalýðssamtakanna, var endan-
lcga bönnuð í kjölfar atkvæða-
Verkfall járnbrautarstarfsmanna í Bretlandi orsakaði meiri umferð á þjóðvegum landsins en venjulega var. Þessi
mynd er tekin skammt frá Heathrow-flugvelli fyrsta morguninn eftir að verkfallið skall á og sýnir bilalest fólks á leið
til vinnu.
greiðslu á pólska þinginu um miðjan
október. 460 þingmenn eiga sæti á
pólska þinginu. Nokkrir þingmenn
greiddu atkvæði gegn samþykktinni
og nokkrir sátu hjá. Alls voru það:
a) 3 þingmenn
b) 33 þingmenn
c) 34 þingmenn
d) 19 þingmenn
34.
Sænsk kona deildi friðarverðlaunum
Nóbels með mexíkönskum diplómat,
Alfonso Garcia Robles, í ár. Þessi
kona hefur um árabil barist fyrir
friði og jafnrétti kynjanna og hlotið
ýmis konar verðlaun vegna friðar-
baráttu sinnar. Kona þessi heitir:
a) Rikka Mýrdal
b) Jóhann Söderstrðm
c) Gudlaug Haugen
d) Alva Myrdal
35.
Sérstakt dómsmál kom upp í Banda-
ríkjunum i haust. Sjúklingur lést er
læknismeðferð var hætt að hans eig-
in ósk. Hann þjáðist af sykursýki, en
var auk þess orðinn blindur og þjáð-
ist af fjöldamörgum öðrum kvillum.
Þrátt fyrir þetta töldu læknar að
halda hefði mátt lifínu í honura í:
a) a.m.k. 27 ár
b) 3 vikur
c) 2 klukkutíma
d) 6 mánuöi
36.
Sósialistaflokkurinn á Spáni vann
yfírburðasigur í þingkosningunum,
sem fram fóru i októberlok. Leiðtogi
flokksins er:
a) Juan Carlos Amoros
b) Jose de la Mancha
c) Felipe Gonzalez
d) Salvador Dali
37.
Upp komst um mikið njósnamál i
Bretlandi um miðjan nóvember, þeg-
ar flett var ofan af Geoffrey Prime,
starfsmanni i fjarskiptastöðinni í
Cheltenham. En hvað var það sem
leiddi lögregluna á sporið:
a) sú árátta Prime að gerast
popptónlistarmaður
b) hampræktun í stofuglugganum
á heimili hans
c) umfangsmikil alifuglarækt í
bakgarðinum
d) kynferðisafbrot gegn ungum
stúlkum
38.
Leonid I. Brezhnev, leiðtogi sovéska
kommúnistaflokksins, féll frá eftir
langvarandi veikindi um miðjan
nóvember. Brezhnev hafði setið í
valdastóli:
a) svo lengi sem elstu menn muna
b) allt of lengi
c) 16 ár
d) 18 ár
39.
Geimfarar um borð í geimferjunni
Kolumbíu uppgötvuðu merkisfund
undir eyðimerkursandinum í
SV-Egyptalandi. Innrauðar Ijós-
myndir sýndu að undir sandinum
leyndist:
a) veitingastaður
b) knattspyrnuvöllur með flóð-
ljósum frá fyrri öldum
c) djúpir dalir og árfarvegir
d) íshella
40.
Edward Kennedy lýsti því yfír seint
á árinu, að hann hygðist ekki bjóða
sig fram til forsetakjörs. Ástæðan
var:
a) ofboðsleg vatnshræðsla
b) heimilisástæður
c) ofdrykkja
d) hrörnun í ræðutækni
Stúlkan sem snýr bakinu i myndavélina á þeasari mynd greip til þess ráðs að
sýna fót á götu einni í Lundúnum í sumar I því augnamiði að safna fjármun-
um fyrir styrktarsjóð bágstaddra barna í Lundúnum. Stúlkan á myndinni og
vinkona hennar sýndu um 60 misraunandi flíkur á aðeins 10 minútum og er
hér að skipta um föt í miðjum klíðum. Uppátæki þetta færði sjóðnum 300
sterlingspund.
Lausn á erlendri fréttagetraun er á bls. 50