Morgunblaðið - 31.12.1982, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1982
53
Leikir — Þrautir — Fróðleikur
Klipp-galdur
Nú skaltu læra hvernig maður
klippir sundur sogpípu með bandi í
gegnum — án þess að klippa sund-
ur bandið: Þræddu band gegnum
sogpípuna og skerðu skurð á píp-
una á parti (Mynd A). Dragðu til
bandið svo að það komi út um rif-
una (Mynd B). Haltu tveimur til
þremur fingrum fyrir framan
bandið og þá má klippa sogpípuna
í sundur án þess að klippa þráðinn
(Mynd C).
Langur tími
Það er víðar en á íslandi, sem trén eru lengi að þroskast. í
Danmörku vaxa þau almennt talsvert örar en hér, en þó
eru þar trjátegundir, sem þroskast mjög seint. Beykitréð
er eitt þeirra. Það fer ekki að bera blóm og fræ fyrr en um
40—60 ára aldur, og þarf til þess að vera á sólríkum og
rúmgóðum stað. Ýmis önnur tré verða jafnvel 20 árum
eldri áður en þau teljast „fullþroska". Eikin þarf líka að ná
svipuðum aldri, en önnur lauftré eru fullþroska miklu
fyrr.