Morgunblaðið - 31.12.1982, Side 30
62
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1982
A DROmNSWI
UMSJÓN:
Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir
Gunnar Haukur Ingimundarson
Séra Ólafur Jóhannsson
Hefurdu svarið???
í árslok er viðeigandi að rifja
upp fáeina atburði úr kirkju og
kristnihaldi landsmanna á ár-
inu. Spurt er einfaldrar spurn-
ingar, og lesendum gefin fjögur
svör — þeir eiga að velja það
eina rétta. Góða skemmtun, og
ef þið finnið ekki rétt svar, eru
svörin gefin á bls. í blað-
inu í dag.
1. í sumar var vígður nýr vígslu-
biskup Hólastiftis. Hann er:
a) Sr. Birgir Snæbjörnsson á
Akureyri,
b) Sr. Bjartmar Kristjánsson á
Laugalandi,
c) Sr. Ólafur Hallgrímsson á
Bólstað í A.-Hún.,
d) Sr. Sigurður Guðmundsson
á Grenjaðarstað í S.-þing.
2. A árinu kom út á íslensku bók-
in „Með kveðju frá Kölska" e.
C.S. Lewis, í þýðingu sr. Gunn-
ars Björnssonar. Útgefandi er:
a) Bókaútgáfan Salt,
b) Bókaútgáfan Skálholt,
c) Bókaútgáfan Vaka,
d) Skollaútgáfan.
3. Nýr flokksstjóri tók við hjá
Hjálpræðishernum í Reykja-
vík á árinu:
a) .Daníel Óskarsson,
b) Einar Solli,
c) Lise Strandberg,
d) Mirjam Óskarsdóttir.
4. Á nýafstöðnu Kirkjuþingi var
m.a.:
a) mótmælt framkomnu frum-
varpi á alþingi um þreng-
ingu fóstureyðingalöggjafar,
b) samþykkt að fá fram stofn-
un embættis ellimála-
fulltrúa kirkjunnar,
c) samþykkt að fjölga biskup-
um, og skal framboð ráða
eftirspurn,
d) samþykkt að ísland segi sig
úr NATO til þess að stuðla
að auknu valdajafnvægi og
eflingu friðar í heiminum.
5. Á árinu voru vígðir kristniboð-
ar til starfa í Afríku á vegum
Sambands íslenskra kristni-
boðsféiaga. Til Kenýa fara
hjónin:
a) Kjellrún og Skúli Svavars-
son,
b) Kristjana I. Svavarsdóttir
og Jón V. Guðlaugsson,
c) Sigríður Hrönn Sigurðar-
dóttir og Ragnar Gunnars-
son,
d) Valdís Magnúsdóttir og
Kjartan Jónsson,
6. Fjöldi fermingarbarna á ári er
nú u.þ.b.:
a) 2000,
b) 3000,
c) 4000,
d) 6000.
7. Nýtt málgagn kirkjunnar fór
áð koma út á árinu, gefið út af
Skálholti:
a) Bjarmi,
b) De rerum natura,
c) Fagnaðarboðinn,
d) Víðförli.
8. Við Hallgrímskirkju í Rvík tók
til starfa nýr organisti á árinu:
a) Guðni Þ. Guðmundsson,
b) Hörður Áskelsson,
c) Ólafur W. Finnsson,
d) Skarphéðinn Hjartarson.
9. í upphafi alþingis sl. haust
hlýddu þingmenn á guðsþjón-
ustu sr. Ólafs Skúlasonar, sem
vakti athygli, því að prestur-
inn:
a) áminnti þingmenn einarð-
lega um að vanrækja ekki
kirkju og kristni,
b) bað ríkisstjórninni langlífis,
c) mótmælti bráðabirgðalögum
ríkisstjórnarinnar,
d) sagðist vera að íhuga að fara
í prófkjör eins flokksins.
10. Á aðfangadagskvöld kl. 20.30
settu flestir landsmenn kerta-
Biblíulestur
vikuna 2.-8. jan.
Sunnudagur 2. jan.:
Matt. 2:16—23.
Mánudagur 3.jan.:
Sálmur 101
Þriójudagur 4.jan.:
Matt. 1:18—25
Miövikud. ð.jan.:
Matt. 2:1—6
Fimmtud. (i.jan.:
Matt. 2:7—12
Föstudagur 7. jan.:
Matt. 2:13—23
Laugardagur 8.jan.:
Matt. 3:1—12
Ijós í glugga sína að áskorun
kirkjunar t.þ.a.:
a) benda nágrönnum sínum á
vistkreppu og nauðsyn
orkusparnaðar,
b) minna hver annan á boðskap
jólanna um ljós heimsins er
einn veitir sannan og varan-
legan frið,
c) mótmæla hækkun bruna-
bótamats,
d) þíða hélu af rúðunum.
11. Nýr farprestur Þjóðkirkjunnar
var vígður á árinu:
a) Sr. Dalla Þórðardóttir,
b) Sr. Jón Ragnarsson,
c) Sr. Pétur Þorsteinsson,
d) Sr. Rúnar Þór Egilsson.
12. Samhjálp Hvítasunnumanna
hefur gefið út bækur og
hljómpiötur og selt þær til
styrktar starfi sínu. Það starf
felst annars í:
a) aðstoð við drykkjumenn og
meðferð drykkjumanna,
b) aðstoð við kaupsýslumenn,
sem eru að verða gjaldþrota,
c) heimilishjálp við aldraðar
húsmæður í Vesturbænum,
d) samtökum fólks sem glímir
við trúarlegar efasemdir.
Frið læt ég yður
eftir
Gamlársdagur
Jóh. 14. 27
Einu sinni vann ég á skrifstofu hálfan daginn.
Þegar ég settist við ritvélina á morgnana byrjaði ég
á að vélrita ritningarvers og líma það á borðbrúnina
hjá mér. Ég gerði það af því að einhver hafði gefið
mér hugmyndina og sagt að hún reyndist vel. Mér
fannst það líka. Versið kom fyrir augu mín þegar ég
fór ofan í skúffurnar og greyptist í huga minn. Kon-
urnar, sem ég vann hjá, hlógu að mér góðlátlega en
einn daginn sagði önnur: Hún Gunna, sem vinnur í
þínu sæti eftir hádegið, er orðin svo spennt fyrir
miðunum þínum. Hvað skyldi nú standa í dag? segir
hún þegar hún byrjar að vinna.
Versin okkar í dag eru orð, sem er gott að rifja
upp aftur og aftur.
Frió læt ég yóur eftir, minn frió gef ég yóur.
Kkki gef ég ydur ein.s og heimurinn gefur.
Hjarta yóar skelfist ekki né hra*óist.
Höfum þessi vers yfir með sjálfum okkur aftur og
aftur í dag, látum þau sökkva niður í huga okkar svo
að þau blessi okkur.
Kæru lesendur. Við, sem önnumst þessa síðu,
þökkum fyrir árið, sem er að kveðja, og biðjum ykk-
ur blessunarríks nýárs.
13. Sr. Miyako Þórðarson starfar
hér á landi sem:
a) prestur Asíubúa á íslandi,
b) prestur heyrnarlausra,
c) prestur við erlend sendiráð
hérlendis.
NÚ árið er liðið í aldanna skaut
og aldrei það kemur til baka,
nú gengin er sérhver þess gleði og þraut,
það gjörvallt er runnið á eilífðar braut,
en m'nning þess víst skal þó vaka.
Ó, gef þú oss, Drottinn, enn gleðilegt ár
og góðar og blessaðar tíðir,
gef himneska dögg gegnum harmanna tár
gef himneskan frið fyrir lausnarans sár
og eilífan unað um síðir.
V.Briem.
d) skólaprestur við fornmála-
deild MR.
14. Á aðventu voru haldnir all-
sérstæðir „hitatónleikar" í
hálffrágengnu kirkjuskipi í
Reykjavík, til þess að safna
fyrir hitalögn í kirkjuna. Þetta
gerðist:
a) í Ássókn,
b) í Fella- og Hólasókn,
c) í Hallgrímssókn,
d) í Langholtssókn.
15. í árslok er yngsti prófastur
landsins:
a) Sr. Gunnar Kristjánsson á
Reynivöllum,
b) Sr. Hjálmar Jónsson á Sauð-
árkróki,
c) Sr. Jón Einarsson í Saurbæ
á Hvalfjarðarströnd,
d) Sr. Kristinn Ágúst Frið-
finnsson á Suðureyri.
Og hafirðu ekki þegar fengið
nóg, koma þrjár aukaspurningar
úr erlendum fréttum:
16. Árið 1983 verður 6. heimsþing
Alkirkjuráðsins haldið undir
yfírskriftinni „Jesús Kristur
— líf heimsins". Þingið verður
í:
a) Genf í Sviss,
b) Manilla á Filippseyjum,
c) Novotrotzkygrad í Síberíu,
d) Vancover í Kanada.
17. í deilum stjórnvalda og al-
mennings í Póllandi hefur
mikið borið á erkibiskupi
kirkjunnar þar í landi. Hann
heitir:
a) Bogdan Wiola,
b) Josef Glemp,
c) ' Lech Walesa,
d) Vladimir Prötjz.
18. I Noregi hafa staðið yfír mála-
ferli milli ríkisins og sr. Barre
Knudsen, sem telur ríkisvaidið
ekki standa við sitt gagnvart
norsku ríkiskirkjunni. Upphaf
málsins er:
a) Embættisbústaður sr.
Knudsens heldur hvorki
vatni né vindum,
b) Organistinn vildi ráða,
hvaða sálmalög væru notuð,
c) presturinn neitaði að jarða
þá, sem höfðu ekki verið
kirkjuræknir,
d) rýmkuð fóstureyðingar-
löggjöf Norðmanna.
svör.við sp.
’(P'8i ‘(q ii ‘(p'9i ‘(q si ‘(p ti
‘(q'8I ‘(®'Zl ‘<q*II ‘(q oi ‘(«'6 ‘(q'8
‘<p'L (3'9 ‘ó s ‘(q t ‘(p t: ‘(« 2 ‘(p i