Morgunblaðið - 06.02.1983, Side 2
42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1983
ERLENT NAMSKEIÐ
LT
Konur í stjórnunarstörfum
Á liönum áratug hafa konur í vaxandi mæli ráöiö sig til
starfa í stöður stjórnenda innan fyrirtækja og stofnana.
Vegna hefðbundinna viöhorfa í þjóðfélaginu ná konur oft
ekki aö skipa þann sess innan fyrirtækisins sem stjórnun-
arstaöa þeirra gefur tilefni til.
Á námskeiöinu veröur m.a. fjallaö um
eftirfarandi atriði:
— Hlutverk stjórnandans.
— Eöli stjórnunarstarfa og forysta.
— Mannleg samskipti.
— Konan sem stjórnandi.
— Viðurkenndar stjórnunaraöferöir.
— Þróun eigin stjórnunarhæfileika.
Námskeíö þetta er ætlaö konum sem
hafa meö höndum stjórnunarstörf inn-
an fyrirtækja eða stofnana.
Leila Wendelken
Staöur og tími:
Hótel Esja, 2.
hæð, 23.-25.
febrúar kl.
09.00—17.00.
sía*^°inandi á námskeiðinu er Leila Wendelken, en hún
sta. ,5r Sem framkvæmdastjóri eigin ráögjafarfyrirtækis í
Kaliforníu í Bandaríkjunum.
Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélagsins í
síma 82930.
STJÚRNUNARFÉLAG
ISLANDS
SIÐUMULA 23 SIMI 82930
ÞAKRENNUR
úr plasti eöa stáli?
Plátisol er lausnin
Plátisol þakrennur, niöurföll og tilheyrandi er
framleitt úr 0,7 mm þykku galv. stáli sem er húöaö
meö PVC efni í lit. • Meö þessari aöferö hefur
rennan styrk stálsins og áferö þlastsins. • Efniö
er einfalt í uþpsetningu. • Viö seljum þaö og þú
setur þaö upp án þess að nota lím eöa þéttiefni.
• Hagstætt verð.
Kaupið þakefnið hjá fagmanninum
m) Lindab Plátisol
Þakrennukerfi framtíðarinnar
Heildsala — smásala.
'B
BREIÐFJÖRÐS
BLIKKSMIÐJA HF
Leitió nánari upplýsinga
aó Sigtúni 7 Simi:29022
Mþ
wm*
Knimmi á Kleifaheiði og hefill Vegagerðarinnar í fjarska.
Saga af hröfnum og vegagerðarmönnum á Kleifaheiði:
„Þeir éta iðulega
allt nestið okkar“
„HRAFNARNIR tveir bíða okkar
alltaf við Ósa og fylgja okkur suð-
ur yfir Kleifaheiði niður í Hauka-
bergsdal, en þar hverfa þeir sjón-
um okkar enda komið að endi-
mörkum yfirráðasvæðis þeirra.
Hrafnarnir eru ákaflega spakir og
sækja ætið sitt — þeir éta iðulega
allt nestið okkar,“ sagði Eiður
Thoroddsen, veghefilstjóri hjá
Vegagerö ríkisins á Patreksfirði í
samtali við Mbl.
„Ég hóf störf hjá Vegagerð-
inni 1969 og þá voru tveir hrafn-
ar, sem höfðu fylgt vegagerðar-
mönnum á heiðinni um nokkurra
ára skeið.
Fyrir nokkrum árum drapst
annar fylgdarhrafninn, en hans
skarð var fljótlega fyllt. Við
þekktum þann er hvarf á göngu-
laginu; hann hafði fótbrotnað og
stakk við fæti.
Hrafnarnir krefjast ætis síns
og engra refja, enda stundum lít-
ið að hafa á heiðinni. Þeir sjást
sjaldan á sumrin, sem von er,
enda nóg æti að fá. Hrafnarnir
setjast á ljóskeilur veghefilsins
þegar þeir eru soltnir. Og ef æti
gengur af, þá stinga þeir því í
ruðning og hylja. Þeir eru ekki
hrifnir af ókunnugum — eitt
sinn reyndum við að gefa þeim te
til þess að ylja sér á í nepjunni,
en þá kom bifreið aðvífandi og
þeir flugu á brott. Þeir hopa
nánast undantekningalaust ef
ókunnugir nálgast. Einnig er
þeim lítt um aðkomuhrafna gef-
ið og reka þá miskunnarlaust á
brott, ef þeir slæðast inn á yfir-
ráðasvæði þeirra á heiðinni,"
sagði Eiður.
r*
t
Það er lítið æti að hafa á Kleifaheiði yfir vetrarmánuðina og hrafnarnir bíða þá matar síns, sem vegagerðar-
menn gauka að þeim.
lenna-
Ivinir
Sautján ára japönsk stúlka með
áhuga á íþróttum, tónlist og mats-
eld:
Satomi Watanabe
1-1 Ohata-Danchi,
Kumagaya-city,
Saitama-ken,
360 Japan.
Atján ára piltur í Ghana, sem
safnar póstkortum auk annarra
áhugamála:
Georg Pinkrah,
Community one,
Tema,
Ghana.
Færeysk stúlka, 25 ára gömul,
búsett í Kaupmannahöfn, óskar
eftir pennavinum:
Iiirgit Hansen,
Esbern Snares Gade 14, St.Th.,
1725 Köbenhavn V.
Denmark.
Fimmtán ára japönsk stúlka með
áhuga á íþróttum:
Miyako Tachibana,
1455 Inabazaki-cho, 3-chome,
Nobeaka-shi,
Miyazaki,
882 Japan.
Fimmtán ára piltur í Ghana með
margvísleg áhugamál:
Oppong Doris,
Box 2,
Bomaah-Bar,
Ghana.