Morgunblaðið - 16.02.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.02.1983, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR 38. tbl. 70. árg. MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1983_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Skoðanakönnun í Bretlandi: Stóraukið fylgi íhaldsflokksins Fengi 140 þingsæta meiri hluta í kosningum nú Ixtndon, 15. febrúar. Al\ Líbanskir hermenn kanna persónuskilríki ökumanna í austurhluta Beirút í gær. Her Líbanonsstjórnar tók þennan borgarhluta á sitt vald í fyrrinótt, en her kristinna hægrimanna hafði haft yfirráð yfír honum frá því í borgarastyrjöld- inni 1975—1976. Mynd af Bashir Gemayel hangir uppi í bakgrunni myndarinnar. Hann var á sínum tíma kjörinn forseti landsins, en var myrtur. Her Líbanons tekur austurhluta Beirút Öll borgin nú undir yfirráðum Líbanonsstjórnar Beirút, 15. febrúar. AP. ÞRÁTT fyrir verkfoll, mikið at- vinnuleysi og deilur um kjarnorku- mál hefur brezki íhaldsflokkurinn með frú Margaret Thatcher forsæt- isráðherra í broddi fylkingar aukið fylgi sitt svo, að flokkurinn hefur nú 13% fram yfír helzta stjórnar- AP Að loknum löngum kossi Dino DeLorean og Barbara Kane voru að niðurlotum komin þegar loksins slitnaði á milli þeirra eft- ir fímm daga og tólf stunda lang- an koss í búðarglugga í Los Ang- eles. Hér reyna þau eftir atvikum að brosa sínu blíöasta til Ijós- myndaranna en afrekið geröi það að verkum, að nú verða þau skráð sem heimsmeistarar í kossaflensi í metabók Guinness. Sjá á bls. 18: „Nýtt heims- met.“ Afganistan: UM 60% færri stúdentar þreyttu inn- tökupróf við háskólann í Kabúl í ár en í fyrra sökum þess ofurkapps, sem stjórnvöld í Áfganistan leggja nú á að kalla sem flesta unga menn í herinn. Er það haft eftir áreiðanleg- um heimildum, að ungir piltar ekki eldri en 15 ára gamlir séu gripnir á götum úti eða sóttir á hcimili sín og að slíkir atburðir heyri ekki til und- antekninga heldur séu daglegt brauð. Kommúnístastjórnin í Kabúl fyrirskipaði fyrir löngu, að engir karlmenn fengju að taka próf við háskólann, nema þeir hefðu áður gengt tveggja ára herskyldu. Nú telur stjórnin það enn brýnna en áður að fá nýja hermenn í stað þeirra, er annað hvort hafa fallið eða gerst liðhlaupar í stríðinu við frelsissveitirnar, sem nú hefur staðið í þrjú ár. Her kommúnistastjórnarinnar, sem berst við hlið 100.000 manna innrásarliðs Sovétmanna í Afgan- istan, var um 90.000 manns fyrir þremur árum. Nú er hins vegar talið, að ekki séu nema 30.000 andstöðuflokkinn, sem er Verka- mannaflokkurinn. Kom þetta fram í skoðanakönnun í London í dag. Þetta þýðir, að íhaldsflokkurinn myndi vinna yfírburðasigur í al- mennum þingkosningum, ef þær færu fram nú og fengi sennilega um 140 þingsæta meirihluta. Það var sjálfstæð skoðana- könnunarstofnun, sem fram- kvæmdi þessa skoðanakönnun fyrir blaðið The Evening Stand- ard. Niðurstaða könnunarinnar var sú, að íhaldsmenn fengju 45% atkvæða, Verkamanna- flokkurinn 32% og hinn nýi flokkur sósíaldemókrata 21%. I sams konar skoðanakönnunum að undanförnu hefur íhalds- flokkurinn haft 8—12% forskot. Hið aukna forskot íhaldsflokks- ins nú er talið auka mjög líkur á því, að frú Thatcher láti efna til þingkosninga annaðhvort í júní eða október næstkomandi. Nú- verandi fimm ára kjörtímabili lýkur hins vegar í maí 1984. Fylgi Ihaldsflokksins var kom- ið langt niður fyrir 30% síðla árs 1981, en fór aftur vaxandi snemma á árinu 1982 og jókst síðan mjög í Falklandseyjastyrj- öldinni við Argentínumenn, en henni lauk með sigri Breta 14. júní sl. Þá hefur brezka stjórnin náð miklum árangri í baráttunni við verðbólguna, sem var yfir 20% fyrir tveimur árum en er nú aðeins um 5% á ári og er þetta ekki hvað sízt skýringin á gengi íhaldsflokksins nú. manns í þessum her. Talið er, að um 2.500 stúlkur hafi tekið inntökupróf í Kabúl- háskóla 4. febrúar sl. ásamt 1.500 piltum, sem annað hvort höfðu lokið herskyldu eða voru synir embættismanna kommúnista- flokksins. EFTIR margra mánaða hik tók líb- anski herinn af skarið f dag og hélt inn f austurhluta Beirút, þar sem hann tók á sitt vald borgarhluta krist- inna manna. Fram til þessa hafa kristnir hægrimenn ráðið yfír þessum borgarhluta og létu þeir hann af hendi nú mótspyrnulaust. Sagði í til- kynningu líbönsku stjórnarinnar, að með þessu lyti öll Beirútborg, jafnt borgarhluti kristinna manna sem mú- hameðstrúarmanna, stjóm líbanskra stjórnvalda. Amin Gemayel, forseti Líbanons, gaf hernum skipun skömmu eftir miðnætti í nótt um að halda inn í austurhluta borgarinnar og var öll- um hernaðaraðgerðum lokið fyrir dögun. Kristnir menn, sem höfðu haft borgarhlutann á sínu valdi frá því í borgarastyrjöldinni 1975—1976, lýstu því samtímis yfir, að dvöl herliðs þeirra þar væri lok- ið. „Heimurinn beinir augum sínum til okkar til þess að sjá, hvaða gildi' hið líbanska ríki hefur og hvort það er þess megnugt að rísa aftur upp,“ sagði Gemayel forseti, áður en líb- anski herinn hélt inn í austurhlut- ann. „Látið alla þegna okkar finna, að þið eruð þeirra her og her Líb- anons. Sannfærið þá um, að þið haldið ekki með einum hóp gegn öðrum," sagði hann ennfremur. För lfbanska hersins inn í aust- urhluta Beirút er talin þáttur í þeirri viðleitni Gemayels að ávinna sér frekara traust múhameðstrú- armanna í landinu, en þeir hafa lagt hart að forsetanum frá því í fyrrahaust að ná yfirráðum yfir austurhlutanum. London, 15. febrúar. AP. KISAVAXINN sovézkur kafbátur, sem gefíð hefur verið nafnið „Hvirfilvind- ur“, kann að fela í sér mikla hættu fyrir Vesturlönd í framtíðinni, þar sem unnt er að skjóta frá honum samtímis fjórum eldflaugum af gerðinni SS-20, en hver þeirra ber 12 kjarnorku- sprengjur. Skýrðu varnarmálasérfræð- ingar frá þessu í London í kvöld. Talið er, að Sovétmönnum hafi tekizt að leysa tæknileg vandamál, sem eru samfara því, að skjóta svo mörgum SS-eldflaugum samtímis frá einum kafbát. Þessi nýi kafbátur Líbönsk stjórnvöld vísuðu í dag á bug þeirri staðhæfingu Israels- manna, að þau hefðu fallizt á, að herlið Saad Haddad hershöfðingja yrði hluti af stjórnarher Líbanons. Var sagt, að Haddad hefði áður verið ákærður fyrir liðhlaup og sú ákæra hefði ekki verið felld niður enn. Sovétmanna er sennilega stærsti kafbátur, sem nokkru sinni hefur verið smíðaður eða um 30.000 tonn. Til samanburðar má nefna, að kafbáturinn er þrisvar sinnum lengri en þota af júmbó-gerð. Hann er knúinn af tveimur kjarnorku- hreyflum og nær 25 hnúta hraða. Þá á kafbáturinn að vera með tvöföld- um byrðing, svo sterkum að flest þau tundurskeyti, sem Vesturlönd ráða nú yfir, eiga ekki að geta grandað honum. Stjórnskipuð nefnd í Svíþjóð vill leyfa sifjaspell sé fólk orðið 18 ára Stokkhólmi, 15. febrúar. Al\ STJÓRNSKIPUÐ nefnd í Svíþjóð hefur lagt til, aó viðurlög við sifja- spellum verði afnumin ef um er að ræða fullorðiö fólk, sem gengur óþvingað til leiksins. Nefndin vill hins vegar að tekið verði miklu harðar á nauðgunum en hingað til. Nefndin, sem skipuð var árið 1977, skilaði áliti sínu nú fyrir nokkrum dögum og segir þar, að helsta takmark hennar hafi verið að „auka fordæmingu samfélags- ins á nauðgunum". Hins vegar segist hún vilja, að hætt verði að refsa skyldmennum, sem hafa kynmök, ef það er gert með sam- þykki beggja. Lagt er þó til, að viðurlög verði aukin þegar um er að ræða sifjaspell þar sem börn eru annar aðilinn og einnig að melludólgum og þeim, sem hagn- ast á vændi annarra, verði refsað harðar en nú. „Við í nefndinni spurðum okkur þeirrar spurningar, hvort systk- ini, sem ælust upp fjarri hvort öðru, fremdu glæp með því að fella hugi saman síðar og taka upp samlíf," sagði einn nefndar- manna, Ingrid Almdahl. Frjáls- lyndi flokkurinn, sem er í stjórn- arandstöðu, er á móti nefndarálit- inu og telur að Svíar eigi „ekki að afnema lög, sem gilda í öllum sið- menntuðum samfélögum" auk þess sem sifjaspell væru talin óeðlileg af langmestum hluta fólks. Samkvæmt núverandi lögum má dæma foreldri í tveggja ára fangelsi ef það hefur kynmök við barn sitt uppkomið og það varðar árs fangelsi þegar systkini eiga í hlut. Stúdentum smalað í stjórnarherinn Islamabad, Pakistan, 15. Tebrúar. AP. Nýr risavaxinn kafbátur Rússa Getur skotið fjórum SS-eldflaugum samtímis

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.