Morgunblaðið - 16.02.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1983
23
Innvegin mjólk
1,6% meiri 1982
en árið á undan
INNVEGIN mjólk allt árið 1982 var
104.573.239 lítrar, sem er 1,6%
meira en árið á undan. Mest var
aukningin hjá Mjólkurbúi Flóa-
manna 779 þúsund lítrar, en þar var
alls tekið á móti 38,4 milljónum
lítra, sem er mesta magn sem eitt
mjólkurbú tók við á síðasta ári.
Illutfalllslega mest aukning varð hjá
Mjólkursamlaginu á Djúpavogi
8,7%. Hjá þremur samlögum minnk-
uðu innlagnir mjólkur frá árinu á
undan. I»að var hjá Mjólkurstöðinni
í Reykjavík og mjólkursamlögunum
á ísafirði og Hvammstanga.
Aukning á sölu nýmjólkur-
afurða, þ.e. nýmjólkur, léttmjólk-
ur og súrmjólkur varð 1,6% miðað
við árið á undan. Salan var 46,01
milljón lítrar, þar af 38,2 milljón
lítrar af nýmjólk. 10,6% aukning
varð á sölu á skyri, en jógúrtsala
dróst lítillega saman. Af smjöri og
smjörva voru samtals seldar 1435
lestir, sem er 22.8% aukning frá
árinu áður. 1636 lestir voru seldar
af ostum innanlands, sem er aukn-
ing um 10%. Aukning á sölu
rjóma var 2.6%.
Krossinn fær
bandaríska gesti
REV. B.R. Hicks frá Jeffersonville í
Indiana er væntanleg hingað til
lands þann 16. þessa mánaðar ásamt
negrasöngkonunni Gloria Jones.
B.R. Hicks er víðkunn fyrir bibl-
íukennslu sína. Það starf sem hún
veitir forstöðu rekur biblíuskóla í
Indiana og öflugt safnaðarstarf
víðsvegar í Bandaríkjunum og
Mexíkó.
Gloria Jones er eiginkona for-
stöðumanns i negrasöfnuði í Texas
og er hún kunn fyrir söng sinn, en
hún syngur með þeim þrótti og
innblæstri sem negrum einum er
lagið.
Þessir gestir koma hingað til
lands á vegum safnaðarins Kross-
ins sem hefur aðsetur sitt að Álf-
hólsvegi 32, Kóp. og fyrsta sam-
koman verður í kvöld kl. 20.30,
miðvikudag. (Frc(l»tilkynnÍD(-.)
Rev. B.R. Hicks
Um áramótin voru birgðir af
mjólkurvörum í landinu 193 lestir
af smjöri og 740 lestir af ostum.
Helgi- og bæna-
stundir í
Hafnarfjarð-
arkirkju
Á ÞEIRRI föstu, sem nú er að
hefjast verða helgi- og bæna-
stundir í Hafnarfjarðarkirkju á
miðvikudagskvöldum og hefjast
þær kl. 20.30 og standa yfir í um
það bil hálfa klukkustund. Hin
fyrsta þeirra verður í kvöld. Fel-
ast þær í íhugun kærleiksfórnar
Krists, söng og bæn og ættu að
geta reynst endurnæring sál og
lífi.
Gunnþór Ingason,
sóknarprestur.
Menntaskólanemar
reka útvarpsstöð
DAGANA 16.—18. febrúar næst-
komandi verður gengist fyrir
svonefndum Lagningadögum í
Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Lagningadagar cru starfs- og
skemmtidagar nemenda og verður
kennsla felld niður ofangreinda
daga. Nemendur hafa þegar hafið
hópstarf til undirbúnings þeirri fjöl-
breyttu dagskrá sem flutt verður á
Lagningadögum.
Þeir vinna saman að ýmsum
áhugamálum sínum í hópunum, og
flytja síðan að lokum dagskrá sem
getur t.d. verið í formi uppákomu,
sýninga, kvikmynda eða umræðna.
Til nýjunga á Lagningadögum
telst útvarpsrekstur, en útvarpað
Wterkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
verður alla dagana frá kl. 10—17.
Sent verður út á FM-bylgju (91,5
MHz), og ætti að vera hægt að ná
útsendingunni á stórum hluta höf-
uðborgarsvæðisins. Meðal efnis
má telja viðtöl ýmiskonar, kynn-
ingar á dagskrá og svo auðvitað
létta tónlist. Ekki munu nemend-
ur sjá um alla dagskrá Lagninga-
daga, og hefur verið leitað til fólks
utan skólans, s.s. þekktra og
óþekktra skemmtikrafta, fyrirles-
ara, listamanna og íþróttafólks,
svo að dæmi séu nefnd.
(FrctUtilkynning.)
FRAM
TÖLVUSKÓT.T
Síðumúla 27, •. 39566.
(3 [3 [S| [3 [3 [3 [3 [3 [3 [3 [3 [3 [3 [3 [3 [3 [3 [3 [3 @ [3 [3 [3 [3 [3(3 [3 [3 @ [3
I HÚSBYGGJENDUR • ATVINNUREKENDUR I
TÆKNIMENN
Danska fyrirtækið SUPERFOS GLASULD A/S og
O. JOHNSON & KAABER H/F efna til kynningarfundar
í Byggingaþjónustunni, Hallveigarstíg 1, Reykjavík,
fimmtudaginn 17. febrúar og föstudaginn 18. febrúar
n.k. kl. 17.00 báða dagana.
Kynnt verður eftirfarandi:
1. Efni til endureinangrunar eldri húsa.
2. Efni til hljóðeinangrunar.
Superfos Glasuld A/S O. Johnson & Kaaber h.f.
|3í3|ci|cJ|cU3f3nclí3í3f3í3r3fE]|e]|cJíc]|3í3r3ícl|cJFcJf3|3yElf3f3í3|3rE}
Þó að reynslan hafi sýnt, að MAZDA bílar hafi lágmarksbilana-
tíðni og mjög góða endingu, þá geta alltaf skeð óhöpp, eða
smábilanir, þannig að varahluta sé þörf.
Frá því að Bílaborg hf. hóf innflutning á MAZDA bílum fyrir
rúmum 10 árum hefur ávallt verið kappkostað eftir bestu getu
að eiga jafnan til nægar birgðir af varahlutum í allar gerðir
MAZDA bíla.
Við fullyrðum að fáir bjóði betri þjónustu á þessu sviði og að
verð á okkar orginal varahlutum stenst fyllilega
verðsamanburð við óorginal varahluti.
Því skaltu hafa í huga, að ef varahluta er þörf í MAZDA bílinn
þinn — þá skaltu leita fyrst til okkar.
MAZDA gæði — öryggi — þjónusta
mmmP8 Bm ÆTm 8LkJ8 8 M 8 88 &
Smiöshöföa 23 sími 812 65
Mazda eigendur!
Ohöppin
gera ekki boð
á undan sér