Morgunblaðið - 16.02.1983, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1983
39
• Bjarni Guðmundsson skorar hér eitt af mörkum sínum gegn KR í
gærkvöidi í ADIDAS-hraömótinu í handbolta. Ljótmynd Kriitján Ein»r»»on.
Liverpool tapaöi
Landsliö 2 fékk verðlaunapeninga, en
KR vann
Adidas-bikarinn
— landsliðin kepptu sem gestir á mótinu
— en kemst samt
Ensku meistararnir Liverpool
töpuðu í fyrsta sinn í fimmtán
leikjum í gær er þeir mættu 2.
deildarliðinu Burnley é útivelli (
síðari leiknum í undanúrslitum
mjólkurbikarsins. Burnley sigraöi
meö einu marki gegn engu, en
Liverpool vann fyrri leikinn 3:0
þannig að liðið kemst í úrslita-
leikinn.
Eina mark leiksins gerði Derek
Scott af stuttu færi á 54. mín. eftir
að Brian Hamilton haföi skallaði tii
hans eftir aukaspyrnu Brian Laws.
Arsenal og Man. Utd. mættust á
Highbury og var þaö fyrri leikur liö-
anna í undanúrslitum sömu
UM HELGINA fór fram ungl-
ingamót KR í borðtennis og voru
keppendur 76 frá 5 félögum.
Mikla athygli vakti aö Ólafsvík-
ingar sendu 29 unglinga til
keppninnar, en þetta er í fyrsta
skipti sem þeir senda keppendur
á borötennismót í Reykjavík.
Úrslit:
13 ára og yngri:
1) Kjartan Briem KR
2) Valdimar Kr. Hannesson KR
3) Eyþór Ragnarsson KR
4) Hafþór Ólafsson Ó.vík.
Úrslitin komu engum á óvart
enda hefur Kjartan veriö ósigraöur
í sínum flokki síöastliöin tvö ár.
Valdimar má bíta í þaö súra epli aö
vera enn einu sinni í ööru sæti, en
úrsiitaleikur þeirra félaga var mjög
jafn og spennandi sem endranær.
13—15 ára:
1) Friðrik Berndsen Vík.
2) Trausti Kristjánsson Vík.
3) Snorri Briem KR
Friörik hafði nokkra yfirburöi yfir
keppinauta sína og sigraöi örugg-
í úrslit f bikarnum
keppni. United vann 4:2 og eru því
líklegir mótherjar Liverpool í úrslit-
unum á Wembley 26. mars. Nor-
man Whiteside skoraöi fyrsta
markiö á 19. mín og Stapleton
bætti ööru viö fyrir hlé.
Steve óoppell geröi þriöja
markiö á 61. mín. geröi einnig
fjóröa markið stuttu síöar. Tony
Woodcock skoraöi fyrra mark Ars-
enal á 82. mín. og Peter Nicholas
hitt mark liösins á 85. mín. Einn
leikur var í 1. deild. Notts County
tapaði á heimavelli fyrir South-
ampton 1:2. McCulloch skoraöi
fyrir County, en Puchelt og Wall-
ace fyrir gestina.
lega í öllum sínum leikjum.
15—17 ára:
1) Bergur Konráösson Vík.
2) Trausti Kristjánsson Vik.
3) Sigurbjörn Bragason KR
Leikir í þessum flokki voru hvaö
jafnastir og reyndu því mjög á
taugar leikmanna. Bergur er vel aö
sigrinum kominn, enda hélt hann
ró sinni allan tímann.
Stúlkur yngri en 17 ára:
1) Rannveig Haröardóttir UMSB
2) Arna Sif Kærnested Vík.
3) Sigríöur Þorsteinsdóttir UMSB
Stúlkurnar kepptu allar viö alla
og sigraöi Rannveig t öllum sínum
leikjum nokkuö örugglega.
Tvíl.l. yngri en 15 ára:
1) Trausti Kristjánsson/
Friörik Berndsen Vík.
2) Lárus Jónasson/
Halldór Steinsson Örninn
Tvíl.l. 15—17 ára:
1) Bergur Konráösson/
Bjarni Bjarnason Vík.
2) Sigurbjörn Bragason/
Kristinn Emilsson KR
KR-ingar unnu Adidas-bikarinn I
í handbolta í gærkvöldi. Landslið '
2 fékk að vísu flest stig í mótinu,
en landsliðin tvö léku sem gestir
á mótinu þannig að þeir gátu ekki
unnið bikarinn. Leikmenn lands-
liðs 2 fengu þó verðlaunapeninga
og eru þaö nokkrar sárabætur.
Fimm leikir fóru fram í gær, og
sáust oft skemmtilegir kaflar þó
ansi kæmu slakir kaflar inn á
milli.
Fyrst léku Víkingur og Valur.
Víkingur sigraði 19:18 (9:10). Sig-
uröur Gunnarsson skoraöi mest
fyrir Víking, 10 mörk, og Jakob
Sigurösson geröi 6 mörk fyrir Val.
Landslið 2 lék síöan viö KR og
sigraði 17:13 (10:6). Bjarni Guö-
mundsson skoraöi 6 fyrir landsliö-
iö og þrír leikmenn skoruöu þrjú
mörk hver fyrir KR; Anders-Dahl,
Guömundur Albertsson og Stefán
Halldórsson.
í þriöja leiknum sigraöi Landsliö
1 Val meö 25 mörkum gegn 21.
Staöan í hálfleik 11:8. Slakur leik-
ur, en Brynjar Kvaran varöi mjög
vel fyrir landsliöiö. Steindór Gunn-
arsson skoraöi mest fyrir landsliö-
iö, 6 mörk, og Þorbjörn Guö-
mundsson geröi jafn mörg fyrir
Val.
Næstsíöasti leikurinn var á milli
KR og Víkings og sigruðu KR-ingar
í þeim leik, 16:15. Þeir uröu því
sigurvegarar á mótinu — þrátt
fyrir aö landsliö 2 fengi flest stig.
Landsliöin kepptu sem gestir á
mótinu, þannig aö KR fékk Adi-
das-bikarinn. Leikmenn landsliðs
2 fengu verðlaunapeninga fyrir aö
veröa efstir á mótinu.
í síöasta leiknum burstaði
landsliö 2 Landsliö 1 27:17. Lands-
liö 2 var mun sterkara eins og sést
á tölunum, en í því voru m.a. Páll
Ólafsson, Bjarni Guömundsson,
Alfreö Gíslason, Kristján Arason,
Guðmundur Guömundsson, Þor-
björn Jensson og markverðirnir
Einar og Kristján. — SH.
Staöaní
göngunni
SOVÉTMAÐURINN Alexandre
Zavialov sigraði í 15 km skíöa-
göngu í heimsbikarnum í Sara-
jevo fyrir helgina. Fékk hann
sex sek. betri tíma en Juha Mi-
eto frá Finnlandi og rúmlega
tuttugu sek. betri tíma en sá er
varð þriðji — Rússinn Mikhail
Deviatiarov.
Zavialov fékk tímann 44:07,0
mín., Juha Mieto fór á 44:13,0
min. og Deviatiarov á 44:27,8.
Fjóröi keppandinn var Norðmað-
ur, Arild Monsen, á 44:35,2 en
margir Sovétmenn voru á meðal
þeirra efstu.
Bandartkjamaðurinn Bill Koch
hélt forystunni í stigakeppninni
um heimsbikarinn þrátt fyrir aö
hann lenti i 35. sæti. Hann tafðist
þegar hann missti annan skíöa-
staf sinn. Thomas Wassberg,
Svíþjóð, sem varö sjöundi í þess-
ari keppni, er annar í stigakeppn-
inni. Aöeins munar einu stigi á
þeim. Efstu menn eru þessir:
Bill Koch, Bandaríkjunum 39
Lars Thomas Wassberg, Svíþjód 38
Alexander Zavialov, Sovétr. 31
Vladimír Nikitine, Sovétr. 30
louri Bourlakov, Sovétr. 29
Andreas Grunenfelder, Sviss 29
Juha Mieto, Finnlandi 29
Jan Ottosson, Svíþjóö 26
Paal Mikkelsplass. Noregi 26
Alexandre Batiouk, Sovétr. 24
Robson velur
menn til vara
EINS og við sögðum frá í gær
valdi Bobby Robson landsliðs-
hóp sinn fyrir leikinn við Wales
i Bresku meistarakeppninni um
helgina. Hann bætti síðan
nokkrum varamönnum við í
gær, ef einhverjir hinna kynnu
að meiðast. Þessum köppum
bætti hann við: Paul Walsh, Lut-
on, Steve Williams og David
Armstrong, báðir frá South-
ampton, Russel Osman frá
Ipswich og Joe Corrigan,
markvörð frá Man. City.
Spánn mætir
Hollandi
í kvöld
SPÁNN og Holland mætast í
kvöld í Evrópukeppninni í
knattspyrnu, en þjóðirnar leika
sem kunnugt er í sama riðti og
ísland. Leikurinn fer fram í Sev-
illa á Spání, og er leiksins beöið
meö nokkurri eftirvæntingu.
Liöin hafa fjórum sinnum
mæst áöur og hafa Spánverjar
þrisvar sinnum unniö og Hollend-
ingar einu sinni. Hollendingar eru
í efsta sæti í riölinum með fimm
stig eftir þrjá leiki, Spánn er með
þrjú stig úr tveimur leikjum, tr-
land er með þrjú stig úr tveimur
leikjum, Malta er með tvö stig úr
tveimur leikjum og ísland rekur
lestina meö eitt stig úr fjórum
leikjum.
Fimm frá Swansea
í landsliöi Wales
MIKE England, landsliðsein-
valdur Wales, valdi í fyrradag
landsliðshóp sinn fyrir lands-
leikínn gegn Englandi 23. þ.
mánaöar.
Markveröir eru Neville South-
all (Everton) og Dai Davies
(Swansea). Aörir leikmenn eru
Joey Jones, Chelsea, Paul Price,
Tottenham, Kenny Jackett, Wat-
ford, Kevin Ratcliffe, Everton,
Brian Flynn, Burnley, Robbie
James, Swansea, Mickey Thom-
as, Stoke, John Mahoney,
Swansea, Gordon Davies, Ful-
ham, lan Rush, Liverpool, Jer-
emy Charles, Swansea, Leighton
James, Sunderland, Alan Curtis,
Swansea, Nigel Vaugham, New-
port.
• Carl Lewis kemur í mark á nýju heimsmeti í 60 m hlaupi. Hann er
núna fótfráasti maður í heimi.
Lewis með heimsmet
BANDARÍSKI blökkumaðurinn Carl Lewis setti nýtt heimsmet í 60
yarda hlaupi innanhúss á miklu innanhússmóti sem fram fór í Dallas
fyrir skömmu. Lewís sem er heimsfrægur frjálsíþróttamaður hljóp
vegalengdina á 6,02 sek. 60 yardar eru 54,86 metrar. Carl Lewis stefnir
nú markvisst að því aö ná góðum árangri á heimsmeistaramótinu í
frjálsum íþróttum sem fram fer í Helsinki í sumar og jafnframt hefur
hann ákveðið að gera langstökkið aö aðalgrein hjá sér, en þess verður
varla langt að bíða að þessi frábæri íþróttamaöur setji heimsmet í
þeirri grein. Besti árangur Lewis er 8,76 í langstökki en heimsmetiö er
8,90 metrar. Lewis verður eitt stærsta tromp Bandaríkjanna á
Ólympíuleikunum í Los Angeles á næsta ári. — ÞR.
• Borötennisiþróttin á vaxandi vinsældum að fagna meðal unga fólks
ins hér á landi.
Ólafsvíkingar sendu
keppendur í fyrsta sinn