Morgunblaðið - 16.02.1983, Blaðsíða 40
_/\uglýsinga-
síminn er 2 24 80
^^^skriftar-
síminn er 830 33
MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1983
Ákvörðun rfkisstjórnar:
Þingkosningar
eigi síðar en 23.
apríl næstkomandi
Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra greindi frá því á Alþingi í
gær, er hann mælti fyrir frumvarpi um nýtt viðmiðunarkerfi fyrir
laun o.H., að ríkisstjórnin hefði ákveðið, samkvæmt tillögu hans
sjálfs, að kosningar til Alþingis fari fram eigi síðar en laugardaginn
23. apríl nk. Kemur ákvörðun þessi í framhaldi af samkomulagi
stjórnmálaflokkanna um breytingar á kjördæmamálinu, en formenn
Framsóknarflokks og Alþýðubandalags lögðu ríka áherzlu á að ná
fram ákvörðun um kjördag á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun, þeir
höfðu áður lagt til að kosningar færu fram þennan sama dag.
í umræðum við þingmenn í
gær kom fram að þeir reikna
með að þinglausnir verði viku
eða tíu daga af marzmánuði.
Fram að þeim tíma verði unnið
að því að koma nauðsynlegum
málum í gegnum þingið. Um-
ræða um hið nýja viðmiðunar-
kerfi er lauslega rakin á þing-
síðu Mbl. í dag.
Vertíðin fer rólega af
stað, en einn og einn
neisti bætir skap manna
VíIRTIÐIN hefur yfirleitt farið
rólega af stað og alli víðast hvar
verið rýr fram til þessa. I»ó eru á
þessu góðar undantekningar, til
dæmis öfluðu línubátar frá
Snæfellsnesi ágætlega í janú-
armánuði og þeir sem róið hafa
með línu á djúpmið fyrir Suður-
landi hafa fengið ágætan afla,
en þeir eru yfirleitt með 80 bjóð.
Einn og einn bátur hefur rek-
ið í róður. Til dæmis fékk
Hornafjarðarbátur tæp 30 tonn
í net í síðustu viku, en sáralítið
næstu daga. Ufsinn hefur brugð-
ist til þessa, en góður afli nokk-
urra báta um síðustu helgi kann
að boða betri tíð, þá kom Svan-
ur RE t.d. með góðan afla að
landi. Ufsinn hefur oft bjargað
netavertíðinni framan af.
Burtséð frá einum og einum
neista, sem hressir upp á sálar-
tetrið og skap sjómanna jafnt
sem útgerðarmanna, er yfirleitt
dauft hljóð í mannskapnum,"
sagði sjómaður nokkur í sam-
tali við Mbl. í gær. Nú er loðnan
hins vegar að ganga á hrygn-
ingarstöðvarnar fyrir Suður-
landi og ekki er ólíklegt, að
þorskurinn haldi úr djúpinu í
humátt á eftir henni.
Sól, staurar og langir skuggar í Bláfjöllum.
Ljósm. Lárus Karl.
V estmannaeyjar:
4ra ára dreng-
ur fannst
heill á húfi
Vestmannaeyjum, 15. febrúar.
í GÆRKVELDI var sett hér
af stað umfangsmikil leit að
fjögurra ára dreng. Dreng-
urinn hafdi farið að heiman
frá sér um kvöldmatarleyt-
ið, og er hann haföi ekki
skilað sér heim aftur um
klukkan 21, og fyrirspurnir
um hann ekki borið árang-
ur, var kallað út lið frá lög-
reglu, Hjálparsveit skáta og
Björgunarfélaginu, auk þess
sem fjöldi sjálfboðaliða gaf
sig fram til leitarinnar. Alls
munu um 100 manns hafa
tekið þátt í leitinni.
Það var svo um klukkan
liðlega 23 í gærkveldi að
drengurinn fannst heill á
húfi, þar sem hann var að
leik með öðrum börnum í
húsi í nágrenni við heimili
sitt. Höfðu börnin ekki
gert sér grein fyrir því
hvað tímanum leið, og am-
aði ekkert að þeim.
— Hermann
Vfsitölufrumvarp forsætisráðherra:
Afiiám samningsréttar
launafólks í landinu
- segir formaöur BSRB
- Frumvarpið gengur of skammt segir
hagfræðingur VSÍ
„Samþykkt frumvarpsins jafngild-
ir því að samningsréttur launafólks
verði afnuminn, eða svo getur að
minnsta kosti farið,“ sagði Kristján
Thorlacius, formaður B8RB, er
Morgunblaðið leitaði í gær álits
hans á svonefndu vísitölufrumvarpi
forsætisráðherra. „Frumvarpið
stefnir að mjög víðtækri vísitölu-
skerðingu," sagði Ásmundur Stef-
ánsson, forseti ASÍ, er málið var
borið undir hann í gær. „Þegar
Bráðabirgðalögin enn óafgreidd:
Tillaga frá sjávarútvegs-
ráðherra féll öðru sinni
Staðfestingarfrumvarp á bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar frá í ágúst sl.
var loks afgreitt frá neðri deild Alþingis í gær, að lokinni þriðju umræðu,
með 19 atkvæðum stjórnarliða gegn 7 atkvæðum Alþýðuflokks og Bandalags
jafnaðarmanna, 12 þingmenn Sjálfstæðisflokks sátu hjá, 2 þingmenn vóru
fjarverandi. Breytingartillaga frá Steingrími Hermannssyni, sjávarútvegs-
ráðherra, þess efnis, að taka skuli 5,5% gjald (gengismun) af útfluttum
skreiðarafurðum, var felld að viðhöfðu nafnakalli með jöfnum atkvæðum,
19:19, 2 þingmenn vóru fjarverandi, þ.á m. Hjörleifur Guttormsson, iðnaðar-
ráðherra.
Frumvarpið þarf aftur til efri
deildar, vegna breytingartillögu,
sem neðri deild samþykkti við
aðra umræðu.
Frumvarpið í upphaflegri mynd
gerði ráð fyrir að taka 6,5% geng-
ismun af skreiðarafurðum, en
breytingartillaga Matthíasar
Bjarnasonar og Matthíasar Á.
Mathiesen, sem samþykkt var,
felldi niður þessa gengismunar-
kvöð skreiðarframleiðsiunnar.
Það þýðir að skreiðarafurðir verða
greiddar á kaupgengi, sem í gildi
er þegar útflutningsskjöl eru af-
greidd í banka við gjaldeyrisskil.
Sjávarútvegsráðherra brást svo
við þessari breytingu, að hann
flutti tillögu á ný við þriðju um-
ræðu og nú um 5,5% gjald af
skreiðarafurðum (gengismun). Sú
tillaga var felld í gær, sem fyrr
segir, á jöfnum atkvæðum.
Efri deild vannst ekki tími til að
taka frumvarpið fyrir á ný í gær.
Þar sem forsætisráðherra, sem
sæti á í efri deild, er á förum utan,
kann málið að dragast unz hann
kemur aftur heim, en afgreiðsla
frumvarpsins í fjarveru hans er þó
enganveginn útilókuð.
bráðabirgöalögin voru gefin út í ág-
úst voru boðaðar víðtækar efnahags-
aðgerðir, en í stað þess að móta sam-
ræmda efnahagsstefnu, eru við-
brögðin þau ein að ráðast enn á ný á
kaupið. Með því opinberast á hörmu-
iegan hátt það úrræöaleysi, sem nú
einkennir íslensk stjórnmál," sagöi
Ásmundur einnig.
Kristján Thorlacius sagði það
einkum þrennt sem BSRB hefði
við frumvarpið að athuga. 1 fyrsta
lagi að verðbótavísitala skuli eiga
að reiknast út á fjögurra mánaða
fresti, í stað þriggja nú. í öðru lagi
að óbeinir skattar skuli teknir út
úr vísitölunni. í þriðja lagi að verð
á heitu vatni og rafmagni til hús-
hitunar skuli eiga að taka út úr
vísitölunni. Varðandi ákvæðið um
óbeina skatta sagði Kristján, að
það gæti jafngilt afnámi samn-
ingsréttar launafólks í landinu.
Stjórnvöldum á hverjum tíma
væri í lófa lagið að hækka óbeina
skatta þegar á eftir til jafns við
launahækkunina, og gera hana
þar með að engu. „Þess vegna höf-
um við í bréfi til Alþingis hvatt til
þess að frumvarpið verði fellt,"
sagði Kristján.
Vilhjálmur Egilsson, hagfræð-
ingur Vinnuveitendasambands ís-
lands, segir á hinn bóginn í sam-
tali við Mbl. í dag, að „við erum í
sjálfu sér ekki á móti því, þó okkur
finnist það að vísu ganga of
skammt". Segir hann frumvarpið
ekki ganga nógu langt í viðleitn-
inni til að hefta víxlverkanir verð-
lags og kaupgjalds.
Ásthildur Erlingsdóttir, for-
maður launamálaráðs BHM, vildi
í gær ekki tjá sig um efni frum-
varpsins. Sagði málið verða rætt
innan BHM í dag, miðvikudag.
Sjá viðtöl við Ásmund Stefáns-
son, Kristján Thorlacius og Vil-
hjálm Egilsson á miðopnu í Morg-
unblaðinu í dag.
„Bankaræningi“ gómað-
ur í Garðabæ:
Ætlaði að
stela víxli
sem féll
í gær
„BANKARÆNINGI" var
gómaður í Búnaðarbankanum í
Garðabæ klukkan rúmlega 6 í
gærmorgun.
Maðurinn hafði brotið rúðu
og komist á þann hátt inn í
bankann. Ekki var ætlun
mannsins að stela peningum,
heldur ætlaði hann að eigin
sögn að hafa á brott með sér
7.500 króna víxil, sem átti að
falla í gær og maðurinn gat
ekki borgað. Ekki var hann bú-
inn að finna víxilinn þegar
hann var gómaður. Maðurinn
var ölvaður.