Morgunblaðið - 16.02.1983, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1983
31
Anna Blöndal
— Kveðjuorð
„f Jesú Kristi býr öll fylling
guðdómsins," skrifaði Páll til
kristinna manna. „Og þér hafið, af
því þér heyrið honum til, öðlast
hlutdeild í þessari fyllingu, enda
er hann höfuð hverskonar tignar
og valds. Af því að þér heyrið hon-
um til, eruð þér og umskornir um-
skurn sem ekki er með höndum
gjörð, við það að afklæðast holds-
líkamanum, sem er umskurn
Krists, því þér voruð greftraðir
með honum í skírninni. Og af því
að þér heyrið honum til, voruð þér
einnig með honum uppvaktir fyrir
trúna sem guð kemur til leiðar, sá
er uppvakti hann frá dauðanum."
Kól. 2, 10-12.
Ég á hlýjar og góðar minningar,
og þakkir til Önnu Blöndal og
Heiðveigar frá því þær tóku mig
að sér á sínum tíma. Einnig vil ég
þakka þér, Dísa mín, og bið guð að
blessa þig sérstaklega, og gefa þér
og ykkar nánustu sinn styrk.
„Drottinn hefur þóknun á þeim
er óttast hann, þeim er bíða mis-
kunnar hans.“ Sálmur 147,11.
Henný Bartels
Minning:
Sigurður Þórarins-
son jarðfræðingur
Við Sigurður Þórarinsson rædd-
um sjaldan um þjóðfélagsmál.
Hann var heldur ekki einn þeirra
sem velta vöngum yfir heimspeki-
hliðum vísindanna, nema þá ef til
vill einn og í hljóði. Samt má lesa
mjög ákveðna lífssýn úr öllu æfi-
starfi þessa ágæta vísindamanns.
Þann þráð vil ég nú rekja en læt
öðrum, vinum Sigurðar og fjöl-
mörgum samstarfsmönnum, eftir
að minnast á fjölhæfni hans og
gífurleg afköst, hvort sem um var
að ræða jarðvísindi, sagnfræði eða
safaríkar og jarðbundnar Bell-
mannsvísur.
Það er réttilega sögð vera þjóð-
félagsleg og siðferðileg skylda
menntamannsins að veita öðrum
hlutdeild í þekkingu sinni. Aðrir
menntamenn læra af slíku og al-
menningur öðlast nauðsynlega
þekkingu á umhverfi sínu og nátt-
úrunni. Það gerir fólk sjálfstæð-
ara, betri þegna, betri stjórnend-
ur. En visindamaðurinn verður
sjálfur að velja sér viðmælendur
og ráða hverjir fá að njóta þekk-
ingarinnar, þröngur hópur eða al-
menningur. Þekking vísinda-
manns er heldur ekki söm og jöfn,
hún breytist sífellt og þeim mun
meir sem hann ber sig eftir nýjum
niðurstöðum annarra og stundar
eign rannsóknir.
Þegar æfistarf Sigurðar Þórar-
inssonar er metið, sést glöggt að
hann sinnti skyldu sinni af meiri
natni og dugnaði en flestir aðrir
— og það í þágu fjöldans. Hann
var óþreytandi rannsóknarmaður,
bæði úti við og á bókina, og hann
lúrði ekki á niðurstöðunum eða
ályktunum. í þeim efnum varðar
mig einna mestu að hann eyddi
miklu af tíma sínum í að búa um
allan fróðleikinn á auðskiljanlegu
og lifandi máli og kom þeim fyrir
almennings sjónir, á bók, í tíma-
ritum, í kvikmyndum, fyrirlestr-
um og í kennslu. Margir muna eft-
ir bráðskemmtilegum og smelln-
um fyrirlestri um jafn hversdags-
leg fyrirbæri og afleiðingar frosts
og þíðu, hnitmiðaðan texta með
einhverri mynda ósvaldar Knud-
sens eða skilmerkilega framsetn-
ingu á öllum tiltækum fróðleik um
Grímsvötn í bókinni „Vötnin
stríð“.
Sigurðar ber að minnast sér-
staklega fyrir þá list að ná til
fólks með því að flétta saman ör-
lögum fólksins, sögunni, og jarð-
fræðinni og samúð hans og vilji
var hjá almúga þessa lands og
annarra — hvort sem var í fortíð
eða nútíð, í jafnréttisbaráttu eða í
andófi gegn óhugnaði landvinn-
ingastríða eins og dundi yfir á ár-
um Sigurðar í Svíþjóð.
Sigurður Þórarinsson dreif líka
upp almenningsfélög til að auka
náttúrufræðistörf, einmitt með
því að treysta á alþýðu manna. Til
dæmis er Jöklarannsóknarfélgið
hið eina sinnar tegundar, þar sem
lærðir og leikir taka höndum sam-
an í vísinda þágu í jöklafræðinni.
Nú er þessi kviki, blátt áfram,
dálítið hlédrægi og glettni maður
genginn mitt úr starfsönn, frá
óloknu verki, öllum til eftirsjár.
Ef einhver á skilið þá heiðurs-
nafnbót að kallast vísindamaður
fólksins, þá er það Sigurður Þór-
arinsson. Honum á að skipa á
bekk með mönnum eins og Þor-
valdi Thoroddsen og Sigurði Nor-
dal.
Vonandi verður arfleifð hans
öðrum hvatning til að efla kynn-
ingarstarf og fræðslu um vísindin.
Ari Trausti Guðmundsson
Rannsóknir á sviði
orkusparnaðar
við fiskveiðar
Á SL. ári hófst samnorrænt rann-
sóknarverkefni á sviði orkusparnað-
ar í fiskveiðum á vegum Nordforsk
með þátttöku Dana, Færeyinga,
Norðmanna og íslendinga. Nýlokið
er í Kaupmannahöfn áfangafundi,
þar sem niðurstöður af starfí síðasta
árs voru kynntar og starfsemi þessa
árs samræmd. Gert er ráð fyrir að
verkefnið standi fram á næsta ár og
heildarkostnaður er áætlaður 19,2
milljónir d.kr. Verkefni þetta er að
hluta fjármagnað af Norræna iðn-
þróunarsjóðnum. Þetta kemur fram
í fréttatilkynningu, sem borizt hefur
frá Fiskifélagi íslands.
Tæknideild Fiskifélags íslands
og Fiskveiðasjóðs Islands tekur
þátt í verkefni þessu fyrir íslands
hönd, en auk þess vinnur Raunvís-
indastofnun Háskólans að af-
mörkuðu verkefni. Verkefnið er
unnið í nánum tengslum við hags-
munasamtök í sjávarútvegi, ýms-
ar stofnanir tengdar sjávarútvegi,
ráðuneyti o.fl., og mynda fulltrúar
frá þessum aðilum svonefndan
fylgihóp.
Verkefni Fiskifélagsins eru sjö,
meðal þeirra eru: athugun á áhrif-
um botngróðurs á olíunotkun og
ganghraða; mælingar og athugan-
ir á nýtni dieselvéla og skrúfubún-
aðar við breytilegt álag og
ganghraða og nýting afgangs-
varma frá dieselvélum til upphit-
unar íbúða. Fiskifélag íslands
lagði fram niðurstöður í einstök-
um verkefnum, má þar nefna eft-
irfarandi:
• Mælingar í skuttogurum af
stærri gerð með rafofnaupphit-
un sýna að um 80.000 lítrar af
olíu fara á ári að meðaltali í
íbúðaupphitun. í flotanum eru
12 skuttogarar af stærri gerð
með rafofnaupphitun, sem þýð-
ir að hægt væri að spara nálægt
einni milljón lítra af olíu í þess-
um flota eingöngu, ef breytt
væri yfir í upphitun, þar sem
afgangsvarmi væri nýttur. At-
huganir hafa jafnframt leitt í
ljós að meirihluti stærri fiski-
skipa, er búinn rafofnaupphit-
un, svo að eftir miklu er að
slægjast.
• Niðurstöður mælinga í fjórum
skipum af mismunandi stærð
gefa til kynna að val á snún-
ingshraða og skrúfuskurði get-
ur þýtt 15—30% mun í olíu-
notkun ef miðað er við að siglt
sé á ganghraða sem er 90% af
hámarksganghraða skips.
• Eitt skip hefur verið mælt fyrir
og eftir botnhreinsun og sýndu
niðurstöður að við sama
ganghraða getur olíunotkunin
verið allt að 40—50% meiri
fyrir gróið skip borið saman við
skip nýhreinsað og málað. Rétt
er að taka það fram, að í þessu
tilviki hafði skipið verið sam-
fellt rúma 15 mánuði í sjó og
þar af legið 13 Vfe mánuð við
bryggju.
Sem dæmi um það sem þátttak-
endur frá hinum löndunum eru að
vinna að má nefna:
• Norska Fiskveiðitæknistofnun-
in í Þrándheimi kynnti niður-
stöður mælinga í skipi þar sem
skipt var um skrúfubúnað og
sett hæggeng skrúfa með miklu
þvermáli, en fyrir í skipinu var
hraðgeng skrúfa með litlu
þvermáli. Niðurstöður gáfu til
kynna 20—30% olíusparnað á
siglingu.
• Danir kynntu niðurstöður lík-
antilrauna, sem Skibsteknisk
Laboratorium í Lyngby stendur
fyrir, og ganga út á að kanna
áhrif perustefnis á minni fiski-
skip.
• Þá má geta þess að Færeyingar
vinna að verkefni sem hefur
það markmið að kanna mögu-
legan orkusparnað við að skipta
frá hefðbundnu skuttogi yfir í
tveggjabáta-tog.
Á næstu mánuðum eru fyrir-
hugaðar mjög umfangsmiklar
mælingar í allmörgum fiskiskip-
um, en hjá Fiskifélaginu er mikil
áherzla lögð á þann þátt, enda hef-
ur reynsla undanfarinna ára sýnt
og sannað að beinar mælingar og
notkun mælitækja er árangursrík
leið til bættrar nýtingar orkunn-
ar. Vert er að nefna nýja mæli-
tækni sem Fiskifélagið innleiddi
hérlendis á sl. ári, en þar er um að
ræða tækjabúnað, sem mælir afl
út á skrúfuöxul, og hefur umrædd-
ur búnaður sannað gildi sitt. Á
verðlagi í dag er olíukostnaður
fiskiskipaflotans á ári um 1250
milljónir kr. og hvert prósent sem
unnt er að spara þýðir um 12,5
millj. kr.
Sundlaug við
Kópavogshælið
- eftir Sonju Helgason
Sund er holl og góð hreyfíng.
Sundíþrótt hefur löngum verið vin-
sæl hér á landi. Margir stunda
sundlaugar daglega svo lengi sem
geta leyfír, jafnvel þeir sem lítið
synda. Þeir sækjast eftir því að fara
í heitt vatn og hreyfa sig, ekki síst til
þess að varna því að liðamót stirni
reyna að hamla gegn gigt og tala um
vellíðan eftir slíkar sundlaugarferð-
ir. Félagslegi þátturinn er ekki hvað
síst mikils virði. Fólk hittist og
spjallar saman og nýtur andlcgrar
vellíðunar. Margt einmana fólk fer
gjarnan á sundstaði sér til upplyft-
ingar.
Þeir, sem ekki eru eins og fólk
er flest í útliti eða hegðun eiga
ekki eins hægt um vik að sækja
almenningssundstaði. Á ég þar
sérstaklega við líkamlega fatlað
fólk og ekki hvað síst við þá sem
eru bæði líkamlega fatlaðir og
vangefnir. Þjálfun og hreyfing í
vatni er ómetanleg þeim sem hafa
skerta hreyfigetu.
Stofnanir fyrir vangefna hér á
landi hafa skilið þörfina á því að
eignast sína eigin sundlaug. Það
þykir ekki neitt tiltökumál í dag
þó að fámennar fjölskyldur eigi
sundlaug heima við hús.
Sundlaug hefur verið árum
saman við Sólheima í Grímsnesi
og Tjaldanes í Mosfellssveit. Sömu
sögu er að segja af Skálatúni þar
er sundlaug til gagns og ánægju
fyrir þá sem þar búa. Við Vonar-
land á Fljótsdalshéraði er í undir-
búningi sundlaug og er mikill
skilningur á nauðsyn hennar. Á
Akureyri sækir vistfólk Sólborgar
sundlaug bæjarins, en hún er því
miður ekki sniðin eftir þörfum
fatlaðra. (Búningsklefar á efri
hæð og ganga þarf niður stiga og
útitröppur til að komast í laug-
ina.) I Reykjavík er lítil sundlaug
við Bjarkarás í Stjörnugróf, en á
sömu lóð er einnig Lækjarás og
vinnustofan Ás. Þessi litla sund-
laug hefur verið mikið notuð og
komið að gagni. Hún hefur verið
notuð bæði fyrir vistfólk á þessum
dagvistunarstofnunum og þar að
auki hafa þar verið haldin sund-
námskeið á sumrin. Þessi sund-
námskeið hafa sótt nemendur úr
Lyngási og skólanum þar, sem
núna heitir Safamýrarskóli og
reistur er af ríkinu. I hinum nýja
Safamýrarskóla er bæði ágætis
leikfimisalur og einnig sundlaug.
Salurinn hefur verið tekinn í notk-
un en sundlaugin er því miður
ekki fullgerð. Ég skora hér með á
yfirvöld að hraða framkvæmdum
við hana.
Þá er ég komin að erindi mínu
með þessum línum, en það er að
tala um sundlaugina sem er í
smíðum við Kópavogshæli. Plötu-
snúður gaf plastlaug, sem var seld
fyrir 20.000 kr. og hafist handa við
að byggja yfirbyggða laug. Vegna
fjárskorts hefur þetta verk tafist.
Vinir og aðstandendur vistfólks
hafa ákveðið að hefja fjársöfnun
til þess að ljúka megi við laugina,
svo að hún komist sem fyrst í
notkun. Ég skora á fólk að leggja
þessu máli lið. Tel mig tala af
reynslu varðandi líkamsþjálfun
vangefinna, sem ég hef starfað við
sl. 10 ár og segi: Oft er þörf, en nú
er nauðsyn að leggja hönd á plóg-
inn til styrktar góðu málefni. For-
eldra- og vinafélag Kópavogshælis
hefur gíróreikning nr. 72700-8.
Sonja llelgason
Islenskir náms-
menn í Osló:
Styðja
Hjörleif
í álmálinu
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá deild
SÍNE í Osló:
Almennur fundur í Oslóar-
deild SÍNE haldinn 3. febrúar
1983 lýsir yfir fullum og ein-
dregnum stuðningi við iðnaðar-
ráðherra Hjörleif Guttormsson
og málsmeðferð hans í álmálinu
svokallaða.
Fundurinn undirstrikar nauð-
syn þess að íslenskar auðlindir
séu í eigu Islendinga, en þeim sé
ekki stjórnað af erlendum auð-
hringum, sem virða einskis rétt
smáþjóða.
Því skorar fundurinn á ís-
lenska stjórnmálaflokka að
fylkja sér um kröfur og málsmeð-
ferð iðnaðarráðherra.
Askrifnnsnninn vr S.KW