Morgunblaðið - 16.02.1983, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1983
Samtök áhugamanna um jafnan kosningarétt:
Skora á þingmenn að
bíða niðurstaðnanna
— Um tíu þúsund manns hafa þegar tekið
þátt í skoðanakönnuninni
SAMTÖKUM áhugamanna um jafnan kosningarétt hafa nú borist svör
frá um það bil tíu þúsund kjósendum í Reykjavík og Reykjaneskjör-
dæmi í skoðanakönnun þeirri er nú stendur yfir.
Þótt enn sé ekki búið að
flokka öll svörin, gefa þær þús-
undir, sem búið er að telja,
marktækar niðurstöður um vilja
kjósenda. Til þess að forðast að
hafa áhrif á könnunina vilja
Samtökin ekki birta sundurlið-
aðar niðurstöður fyrr en að
henni lokinni. Hins vegar benda
tölurnar til þess, að mikill
meirihluti kjósenda í Reykjavík
og Reykjaneskjördæmi vilji fara
allt aðra leið í kjördæmamálinu
en þá sem þingmenn virðast
vera að koma sér saman um án
umboðs frá kjósendum, segir í
fréttatilkynningu frá Samtök-
um áhugamanna um jafnan
kosningarétt.
Formönnum stjórnmálaflokk-
anna og þingflokka þeirra hafa
verið látnar í té bráðabirgðanið-
urstöður úr skoðanakönnuninni
sem trúnaðarmál. Með tilliti til
þess, að svo margir kjósendur
hafa lagt það á sig að koma
skoðunum sínum á framfæri,
vilja Samtökin skora á stjórn-
málamenn að fresta frekari að-
gerðum þar til endanlegar
niðurstöður úr skoðanakönnun-
inni liggja fyrir.
Forsætisráð-
herra til Dan-
merkur í dag
Forsætisráðherra, dr. Gunnar
Thoroddsen, og kona hans, frú
Vala Thoroddsen, halda í dag
utan til Danmerkur í opinbera
heimsókn. I Danmörku verður
forsætisráðherrann, Paul
Schlúter, gestgjafi Gunnars.
í tilefni 100 ára afmælis Framtídarinnar, málfundafélags Menntaskólans í Reykjavík, var haldinn málfundur í
Casa Nova í gærkveldi. Þar komu fyrrverandi forsetar Framtíðarinnar saman til ræðukeppni, þar sem hver og
einn talaði í ákveðinn tíma og um sjálfvalið efni. Á myndinni má sjá hluta fundarmanna, og Gunnar Stein
Pálsson fyrrum formann Framtíðarinnar í ræðustól, en hann valdi sér dauðarefsingu að umræðuefni.
Um bókun í ríkisstjórn og póli-
tíska ábyrgð má endalaust deila
segir Ólafur Jóhannesson, utanríkisráðherra,
í tilefni af deilunni um vísitölufrumvarpið
FORMHLIÐ vísitölufrumvarpsins,
sem Gunnar Thoroddsen, forsætis-
ráðherra, lagði fram á þingi á mánu-
Karvel býður sig
fram gegn Sighvati
— „Ætla að berjast fyrir 1. sætinu,u segir
hann í bréfi til stuðningsmanna
„HANN hefur fullan rétt til að bjóða sig fram í hvaða sæti sem hann vill. Ég
hef frétt að hann hafi sent út bréf þar sem hann tilkynnir að hann ætli að
berjast fyrir 1. sætinu. Ég hef ekki séð þetta bréf ennþá og hann hefur ekki
rætt það við mig,“ sagði Sighvatur Björgvinsson, formaður þingflokks Al-
þýðuflokksins og efsti maður á lista flokksins í Vestfjarðakjördæmi, er Mbl.
spurði hann álits á þeirri ákvörðun Karvels Pálmasonar, sem skipar annað
sæti á lista Alþýðuflokksins í kjördæminu, að berjast við Sighvat um 1. sætið.
í bréfum sem Karvel hefur sent in á þennan hátt þá verði það ekki
stuðningsmönnum flokksins á
Vestfjörðum segist hann bjóða sig
fram í 1. sæti og „ætla að berjast
fyrir því“. Karvel sagði aðspurður
það rangt vera að hann væri að
biðja fólk um að kjósa sig í 1. sæti.
„Ég hvet fólk aðeins til að taka
þátt i prófkjörinu, en ég dreg eng-
an dul á að ég berst um fyrsta
sætið. Ég hlýt að hafa sama rétt
til þess og aðrir," sagði hann.
Hann kvað það alls ekki rétt vera
að hann væri að bjóða sig fram
gegn einum eða neinum.
Sighvatur Björgvinsson sagði að
samstarfið við Karvel hefði ætíð
verið prýðisgott. Hann sagði einn-
ig: „Ég vona að þó baráttan sé haf-
til að varpa skugga á hana. Ég hef
ekkert frumkvæði um slíkt haft.“
Aðspurður í lokin um hvort hann
túlkaði þetta sem vantraust af
hálfu Karvels, sagði hann: „Nei, en
mér hefði þótt vænt um að frétta
af þessu með öðrum hætti.“
O'
INNLENT
dag hefur orðið deiluefni á Alþingi.
Ráðherrann situr í efri deild en lagði
frumvarpið fram f neðri deild eins og
um stjórnarfrumvarp væri að ræða.
Kom málið til kasta Sverris Her-
mannssonar, forseta neðri deildar,
sem úrskurðaði það sem stjórnar-
frumvarp þótt ráðherrar Álþýðu-
bandalagsins væru því andvígir.
Byggði þingforseti úrskurð sinn á því,
að forseti Islands hefði áritað frum-
varpið og fallist á flutning þess eins
og um stjórnarfrumvarp væri að ræða.
Forseti ber ekki ábyrgð á stjórnarat-
höfnum og fer því að tillögu ráðherra
í rnálum sem þessum.
í samtali við Olaf Jóhannesson,
utanríkisráðherra, sem birtist á
miðsíðu Morgunblaðsins í dag er
hann spurður: „Nú segir Alþýðu-
bandalagið, að forsætisráðherra sé
að brjóta ákvæði stjórnarsáttmál-
ans með því að flytja vísitölufrum-
varpið. Til þess hafi þurft samþykki
allra aðila ríkisstjórnarinnar.
Hvert er þitt álit á þessu?
„Þeir segja, að flutningur forsæt-
isráðherra á þessu máli brjóti í
bága við hin skráðu ákvæði stjórn-
arsáttmálans," sagði utanríkisráð-
herra.
Sem sé ekki leynisamkomulagið?
„Ef þú vilt kalla hina óbirtu yfir-
lýsingu við stjórnarmyndunina því
nafni. En menn verða að átta sig á
því að ríkisstjórnin er ekki fjölskip-
að stjórnvald. Einstakir ráðherrar
hafa forræði hver á sínu sviði. Þeir
leggja mál fram í ríkisstjórninni og
þar geta ráðherrar að vísu gert at-
hugasemdir en ekki svipt aðra for-
ræði þeirra mála sem undir þá
heyra. Stjórnskipulega ætti þetta
að duga til að ráðherra flytji mál
sem stjórnarfrumvarp, en hugsan-
lega gæti hann gerst brotlegur við
stjórnarsamning eða pólitískt sam-
komulag. Þá eru til mál sem ríkis-
stjórnin verður lögum samkvæmt
að standa að í heild og við meðferð
þeirra getur komið til þess að í rík-
isstjórn myndist meirihluti en
minnihlutinn kjósi að bóka sérstöðu
sína. Hitt er annað mál sem ég vil
ekki fara út í, hvort menn geta firrt
sig ábyrgð með bókun einni saman.
Vafalaust má segja að það sé unnt
hvað lagalegu ábyrgðina varðar en
um pólitísku ábyrgðina er enda-
laust deilt.““
(Sjá viðtal við Olaf Jóhannesson
á miðopnu blaðsins um flugstöð-
ina, varnarliösframkvæmdir,
kjördag, kjördæmamálið, neit-
unarvaldið, stjórnskipulegt vald
ráðherra og hvort Olafur ætli að
verða forsætisráðherra á ný.)
Regnboginn:
Sjötti sýningar-
salurinn bætist við
— og enn fleiri síðar
SJÖTTI sýningarsalurinn mun innan tíðar verða tekinn í notkun hjá kvikmynda-
húsinu Regnboganum í Reykjavík, að því er Jón Ragnarsson forstjóri Regnbogans
sagði í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gærkveldi. Nú eru fimm sýn-
ingarsalir í Regnboganum, sem samtals rúma tæplega 700 sýningargesti, en nýi
salurinn mun taka 90 manns í sæti að sögn Jóns Ragnarssonar.
Jón kvað nýja salinn verða í sama
húsnæði og nú hýsir myndbanda-
leigu, við hlið Regnbogans. Mynd-
bandaleiguna sagði hann verða þar
áfram, og stefnt væri að því að hinn
nýi salur yrði aðeins sá fyrsti af
fleiri, sem opnaðir yrðu í því hús-
næði, en munu tengjast því húsnæði
sem Regnboginn er í nú þegar. Sjötti
salurinn verður tekinn í notkun eftir
mánuð eða þar um bil, en Jón sagðist
ekki geta sagt hvenær fleiri fyrir-
hugaðir salir yrðu teknir í notkun.
Storð kemur út í
25.000 eintökum
Gengismunargjald á skreið:
Móti í fyrradag
með í gær
— breytileg afstaða Guðmundar J.
EINS og fram kom í þingfréttum Morgunblaðsins í gær greiddi Guð-
mundur J. Guðmundsson (Abl.) atkvæði með breytingartillögu sjálfstæð-
ismanna við bráðabirgðalögin, eftir aðra umræðu þeirra í fyrradag, þess
efnis, að niður falli 6,5% gjald af skreiðarafurðum. Tillagan var samþykkt
með 19:18 atkvæðum, svo máli skipti, hvoru megin hryggjar atkvæði
þingmannsins lá.
Þá vakti það athygli að Ingvar
Gíslason, menntamálaráðherra,
sat hjá við atkvæðagreiðslu um
breytingartillögu Magnúsar H.
Magnússonar (A) um ráðstöfun
gengismunar. Sú tillaga féll,
þrátt fyrir hjásetu ráðherrans,
svo afstaða hans réð engum úr-
slitum.
Steingrímur Hermannsson.
sjávarútvegsráðherra, flytur til-
lögu um að taka gengismunar-
gjald á skreiðarafurðir enn á ný
við þriðju umræðu, nú að vísu
5,5% í stað 6,5%.
Þá bregður svo
við að Guðmundur J. Guð-
mundsson (Abl.) greiðir atkvæði
með gjaldinu og ráðherra. Finn-
ur því sitt hvað til foráttu í
ræðustól, en kveðst greiða at-
kvæði með því, til sátta. Tillagan
fellur engu að síður, 19:19.
FVRSTA tölublaðið af STORl), hinu nýja tímarití, sem Almenna bókafélagið og
Iceland Review eru að búa sig undir að gefa út sameiginlega, verður prentað í
24.000—25.000 eintökum, sem er að sögn útgefanda, langtum stærra upplag en
tíðkast um íslensk tímarit.
Nýlega áttu aðstandendur
STORÐAR fund með fulltrúum
auglýsingastofanna og kynntu þeim
málið og af því tilefni hafði Mbl.
samband við Brynjólf Bjarnason,
framkvstj. Almenna bókafélagsins.
Sagði hann, að undirbúningur væri á
lokastigi og ákvörðun hefði verið
tekin um að senda fyrsta eintakið til
allra meðlima í bókaklúbbi Almenna
bókafélagsins, sem eru 15.000. Ritið
yrði að sjálfsögðu líka á almennum
markaði, verið væri að leggja drög
að kynningarmálum — og að öllu
samanlögðu hefði niðurstaðan orðið
sú að prenta í þessu stóra upplagi.
„Auglýsendur okkar eru líka
hressir yfir þessu stóra upplagi. Það
var ekki fyrr en um síðustu helgi að
við byrjuðum að bjóða auglýsingar
og viðbrögð hafa orðið mjög góð eftir
því sem ég best veit,“ sagði Brynjólf-
ur.
„Við leggjum áherslu á hágæðarit,
ef ég mætti svo að orði komast — og
nægir í því sambandi að benda á Ice-
land Review, sem að vissu marki er
hliðstæða hvað frágang snertir. Rit-
stjóri beggja er hinn sami, Haraldur
J. Hamar."
“Við ráðgerum að fyrsta tölublað
STORÐAR líti dagsins ljós í apríl,
það verður ársfjórðungsrit. Rit-
stjórnarlega er því að mestu lokið,
við erum aðallega að hugsa um 2. og
3. tölublað núna — og svo auðvitað
að taka við auglýsingum í fyrsta
tölublaðið."