Morgunblaðið - 16.02.1983, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1983
13
í síðustu viku voru nokkrir skólanemendur
í starfskynningu á Morgunblaðinu. Þeir
unnu þessa grein, texta og myndir um ald-
urstakmarkanir unglinga að skemmtistöð-
um. Greinarhöfundar eru á myndinni:
Þorkell Egilsson og Þorvaldur S. Arnarson,
Æfingaskóla Kennaraháskólans, Kristján
Maack Snælandsskóla, Elín Illugadóttir,
Ólafur Kristjánsson og Jóhanna Valdi-
marsdóttir, Víðistaðaskóla, Einar Ragnar
Sigurðsson Breiðholtsskóla, Berglind
Jónsdóttir Víðistaðaskóla og Sigurður Jó-
hannesson Húnavallaskóla.
Morgunblaðið/Jón S.
Gísli (.uóbrandsson, löj»rt*i;lumaöur
Svava Borg
„Tel að árgangur-
inn eigi að ráða“
- segir dómsmálaráðherra um aldurstakmarkanir að skemmtistöðum
„ÞETTA mál er ekki til sérstakrar athugunar núna, en mín skoðun er sú,
að rétt væri að láta ekki fæðingardag heldur fæðingarár ráða, þegar um
er að ræða aðgang að skemmtistöðum. Með því móti væri komizt hjá því
að bekkjarheildir og félagahópar riðluðust,“ sagöi dómsmálaráðherra,
Friðjón l'órðarson, er Morgunblaðið innti hann álits á því hvort fæð-
ingardagur eða fæðingarár ætti að ráða þegar um aldurstakmörk á
skemmtistöðum væri að ræða.
Morgunblaðið leitaði einnig álits nokkurra vegfarenda á þessu máli og
voru flestir á þeirri skoðun, að rétt væri að fæðingarár gilti en ekki
fæðingardagur. Fara svör þeirra hér
Laufeyju Sigurðardóttur og Að-
alheiði Jónsdóttur hittum við
fyrst í Austurstraeti. Þær sögðu
að fæðingarárið ætti að ráða svo
að krakkar í sama bekk gætu
skemmt sér saman. Iöunn Kristj-
ánsdóttir, Guðrún Jónsdóttir og
Svala Jónsdóttir eru allar konur á
efri árum. Þær sögðu: „Já, okkur
finnst að fæðingarárið eigi að
ráða, en helst ætti að fella þessi
aldursmörk niður. Þegar við vor-
um ungar þá skemmtu allir sér
saman. í Austurstræti hittum
við líka þá Guðjón Einarsson og
Hjört Narfason. Þeir eru báðir 16
ára. Hirti fannst að árgangurinn
ætti tvímælalaust að ráða, en
Guðjóni fannst að fæðihgardag-
urinn ætti að ráða því hvort
maður fengi að komast inn á
skemmtistaðina eða ekki.
á eftir:
Inni á Hlemmi hittum við
Gunnar Andrésson, hann er 12
ára. Hann sagði: „Fæðingarárið
á að ráða, að minnsta kosti í bíó-
in.“ Þegar við komum út af
Hlemmi hittum við Agnar Hauks-
son. Hann er ungur maður sem
afgreiðir í sölutjaldi í Austur-
stræti. Hann sagði að fæðingar-
árið ætti að ráða.
Á Laugaveginum hittum við
Stefán Kristjánsson, hann á
heima í Hafnarfirðinum og verð-
ur 16 ára eftir 2 daga. Hann
sagði: „Mér finnst asnalegt að
fólk sem ekki væri orðið 16 ára
kæmist ekki inn.“ í vefnaðar-
vöruverslun á Laugaveginum
hittum við Þóru Pétursdóttur, 21
árs, hún sagði að árgangurinn
ætti að ráða. Það væri nefnilega
ósanngjarnt þegar vinir ætluðu
út að skemmta sér og sumir
kæmust ekki inn útaf því að þeir
væru ekki búnir að ná tilteknum
aldri, en þau sem væru kannski
mánuði eldri kæmust inn. í
sömu verslun hittum við Guð-
bjart Þór Kristjánsson.llthlíð 3,
hann verður 16 ára í nóvember.
Að hans mati ætti árgangurinn
að ráða, því ef hann fer út að
skemmta sér með vinum sínum
komast þeir ekki inn út af því að
hann er ekki orðinn 16 ára.
Svava Berg sem er 55 ára göm-
ul sagði að fæðingarárið ætti að
ráða til um það hvort maður
kæmist inn eða ekki.
Sonja Felton sagði líka að fæð-
ingarárið ætti að ráða. Hún
sagði ennfremur: „Krakkar sem
verða 16 ára á þessu ári ættu að
komast inn á Safarí, því að mér
finnst betra að þeir séu þar en að
hanga niðri á plani þar sem eng-
inn veit hvað gerist."
Loks gengum við inn á lög-
reglustöðina við tollinn. Þar
hittum við Gísla Guðbrandsson,
honum fannst að afmælisdagur-
inn ætti að ráða, annars væru
alltaf árekstrar.
Iljöriur Narfason (■uöjón Kinarsson
(iunnar Andrósson \j;nar llauksson
Sit*fán Kristjánsson Þóra Pútursdóttir
Sonja Kollon
lóunn Kristjánsdóttir oj; systurnar (iuórún oj; Svala Jónsda*tur, allar frá Vestmannacyjum
Höfóar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
Innihurðir
Hagstætt verð/góð greiðslukjör
Biðjió um myndaiista ísíma 18430
Timburverzlunin Völundur hf.
KLAPPARSTÍG 1 S. 1 8430 j SKEIFAN 19 S. 85244