Morgunblaðið - 16.02.1983, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1983
33
fclk í
fréttum
Dýrír drykk-
ir í París
+ Lögreglan í París lokaði nú á
dögunum næturklúbbi nokkrum
í hinu alræmda Pigalle-hverfi
og hafa eigandi hans og fram-
kvæmdastjóri verið sakaðir um
óheyrilegt okur á viðskiptavin-
um staðarins, sem einkum eru
ferðamenn.
Reikningarnir, sem gestirnir
fengu í hendur, voru oft hinir
ævintýralegustu, gátu numið
allt að 16.000 kr. fyrir drykkj-
arföngin ein, og ef þeir tregðuð-
ust eitthvað við að borga komu
útkastararnir á vettvang og
„töluðu þá til“.
Aðferðin við að plata sveita-
manninn var alltaf sú sama.
Leigubílstjórar komu ferða-
mönnunum á framfæri við
vændiskonur, sem lofuðu þeim
öllu fögru eftir að þeir hefðu
boðið þeim upp á veitingar á til-
teknum stað og var sjaldan neitt
í veginum með það. Ferðamenn-
irnir máttu hins vegar heita
góðir ef þeir voru borgunar-
menn fyrir víninu, hvað þá að
þeir ættu fyrir blíðu gleðikvenn-
anna.
+ Patrick Duffy,
öðru nafni Bobby
í „Dallas", er
margt til lista
lagt. Hann þykir
t.d. góður söngv-
ari og nú ætlar
hann að fara að
syngja inn á
plötu með
frönsku söngkonunni Mireille
Mathieu. Munu upptökurnar fara
fram í Las Vegas.
/ stöðugu stríði
við aukakílóin
.+ Charlene Tilton, eða Lucy í
Dallas-þáttunum, fékk mömmu
sína, Kathrine Mance, í heim-
sókn til sín í stúdíóið nú ekki alls
fyrir löngu og var þá þessi mynd
tekin af þeim saman.
Kathrine mamma á við það
sama að stríða og dóttirin, hún
stendur í eilífu stríði við auka-
kílóin. Charlene reynir að ná
þeim af sér með steppi og dans-
æfingum og segist hafa lést all-
nokkuð upp á síðkastið. Innst
inni óttast hún þó, að hún verði
að lokum jafn þrifleg og mamma
hennar.
Þeim mæðgunum kemur mjög
vel saman enda hefur Charlene
ekki gleymt því hve mamma
hennar þrælaði fyrir henni í
æsku og til að hún menntaði sig.
Faðir Charlene lét sig hverfa
þegar hún var tveggja mánaða
og þá brá Kathrine á það ráð að
yfirgefa sitt heimaland,
Jógóslavíu, og gerast innflytj-
andi í Bandaríkjunum. Kathrine
finnst það alveg stórkostlegt, að
dóttir hennar skuli vera orðin
kvikmyndastjarna en ánægðust
er hún yfir ömmubarninu, henni
Cherry litlu.
+ Það er bandarískur hugvitsmaður,
sem á heiðurinn af þessu sérkenni-
lega farartæki hér á myndinni. Það
er 13 metra langt og kemst hraðar
en nokkurt annað farartæki, sem
eingöngu er knúið vöðvaafli. Vélin
samanstendur af fimm íþrótta-
mönnum og er sá fremsti með sér-
stök gleraugu til að geta séð út um
plasthlífina framan á „Vindlinum"
eins og farartækið hefur verið kall-
að. Þegar það var reynt á íþrótta-
leikvangi í Los Angeles komst hrað-
inn upp í 65 km á klst. en hins vegar
fylgdi það ekki sögunni hve lengi
mennirnir héldu hann út.
— Minntu mig á að vid þurfum að láta gera við læsinguna.
+ írski gamanleikarinn Dave Allen,
sem íslenskum sjónvarpsáhorfend-
um er að góðu kunnur, og kona
hans, Judith Scott, eru nú skilin eft-
ir 19 ára hjónaband. Þau hafa ekki
búið saraan í tvö ár og nefna það
sem eina af ástæðunum fyrir skiln-
aðinum. Þau eiga þrjú börn saman.
„Það er ekkert um þetta að segja.
Allir sem vettlingi valda standa nú í
því að skilja og við viljum ekki vera
neitt öðru vísi en annað fólk,“ segir
Dave Allen.
Morþfunblaðiö/ Steinar
llöfn, 11. febrúar.
í dag kom Gissur Hvíti til Hafnar eftir 8V2 mánaða klössun í Esbjerg í
Danmörku. Skipt var um aðalvél og sett 880 hestafla Callesen vél í staðinn
fyrir 450 hestafla Stork vél. Kinnig voru settar nýjar Ijósavélar og skipt um
öll spil, rafmagn og sett auto-troll útbúnaður. Voru gerðar ýmsar breytingar
til bóta. Báturinn hélt strax á netaveiðar.
Leigjendasamtökin:
Undirbúa stofnun bygg-
ingasamvinnufélags
„þAÐ ER mikill áhugi í okkar sam-
tökum fyrir stofnun byggingasam-
vinnufélags," sagði Jón frá Pálm-
holti, formaður Leigjendasamtak-
anna, í samtali við Morgunblaðið í
gær.
Jón staðfesti að unnið væri að
undirbúningi stofnunar bygg-
ingarsamvinnufélags af hálfu
Leigjendasamtakanna. Af hálfu
samtakanna væru fulltrúar
þeirra á leið til Svíþjóðar til að
kynna sér starfsemi hliðstæðra
byggingasamvinnufélaga þar í
landi.
Jón sagði að þar sem ástandið
á leiguíbúðamarkaðinum væri
slæmt og útlitið dökkt, teldu
menn einna vænlegast að ráðast
í stofnun byggingasamvinnufé-
lags. Aðspurður kvaðst hann
vart búast við stofnun félags fyrr
en með vorinu, en í framhaldi af
því yrði líklegast sótt um bygg-
ingarlóð og ráðist í framkvæmd-
ir.
Bestu kveðjur og þakkir til allra sem sýndu
mér vinarhug á sjötugsafmæli mínu.
Lifið heil.
Jóhann Kr. Pétursson
Svarfdælingur.
Prófkjör Sjálfstæöisflokksins
í Reykjaneskjördæmi 26.—27. febrúar 1983
Stuðningsmenn
Ólafs G. Einarssonar
hafa opnað skrifstofu aö Skeiðarási 3,
Garðabæ (húsi Rafboða hf.).
Skrifstofan verður opin kl. 17—22
virka daga og kl. 13—19 um helgar.
Sími 54555
Amsterdam
Páskar, vorþeyr og
menning í alda-
gömlum höfuöstaö
lista í Hollandi.
TakiÖ ykkur viku
hvíld og njótiö lífsins
á lúxushóteli. Brott-
för 29. mars.
Vesturgötu 4.
Sími 17445.
f erða+UrUitoían
IFarandi