Morgunblaðið - 12.03.1983, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MARZ 1983
Heitt vatn á ný úr
borholunni á Hellu
DÆLAN í borholu Hitaveitu Rang-
æinga á Hellu var sett í gang síðdeg-
is í gær og undir kvöld var hún farin
að dæla 12 sekúndulítrum af um 86
gráðu heitu vatni.
Áður en dælurnar biluðu í hol-
unni gaf hún nokkru heitara vatn
og um 20 lítra á sekúndu. Jón
Þorgilsson sagði í gærkvöldi, að
hljóðið væri nú ólíkt léttara í
mönnum og vonir stæðu til að
hægt yrði að tengja hús við hita-
veituna eftir helgi. Að öllu verður
þó farið með gát og reynt að finna
hvað raunverulega gerðist.
Umræður um álviðræðiinefnd á Alþingi:
Hjörleifur ætlaði
aldrei að semja
við Alusuisse
FRIÐRIK SOPHUSSON, varafor-
maður Sjálfstæðisflokksins, mælti í
gær fyrir þeirri tillögu meirihluta at-
vinnumálanefndar sameinaðs Al-
þingis, um skipan álviðræðunefndar,
sem felur þaö í sér að samningar við
Alusuisse verði teknir úr höndum
iðnaöarráðherra, en þess í stað yrði
málið falið sérstakri nefnd, skipaðri
sex mönnum. f ræðu sinni rakti Frið-
rik gang álmálsins og sagði að iðnað-
arráðherra hefði misnotað álvið-
ræðunefndina svokölluðu og hefði
nefndin ekki verið viðræðunefnd,
heldur áhorfendahópur, hópur stat-
Beint sjónvarp
frá þingrofi
ÚTVARPSRÁÐ samþykkti á fundi
sínum í gær að sjónvarpa eldhús-
dagsumræðum í Alþingi, sem vænt-
anlcga fara fram á mánudagskvöld.
Síðan yrði þing rofið í fram-
haldi af umræðum þessum og yrði
einnig sjónvarpað beint frá þeirri
athöfn. Enn er ekki ljóst hvort
tekst að ljúka þingstörfum á
mánudag, en að því er enn stefnt á
Alþingi.
ista. Hjörleifur Guttormsson iðnað-
arráðherra hefði aldrei ætlað sér að
semja við Alusuisse, heldur aðeins
verið að styrkja stöðu sína innan Al-
þýðubandalagsins.
Friðrik sagði að ráðherrann
hefði hafið ófræingarherferð á
hendur þeim mönnum sem gerðu
álsamninginn á sínum tíma og
þeim sem endurskoðuðu hann síð-
ar. Enda hefðu samstarfsflokkar
Alþýðubandalagsins í ríkisstjórn-
inni gefist upp á Hjörleifi og hefði
Guðmundur G. Þórarinsson sagt
að Hjörleifur hefði aldrei getað,
eða viljað ná samningum við Alu-
suisse. Friðrik sagði að ráðherr-
ann hefði þyrlað upp moldviðri í
kringum málið, sem allra síst
stuðlaði að þjóðarsamstöðu. Hann
hefði gert allt til að spilla slíkri
samstöðu, sem auðvitað væri
nauðsynleg í þessu máli.
Hjörleifur Guttormsson sagði
að málefnafátækt byggi að baki
tillöguflutningi þessum. Alusuisse
hefði sýnt óbilgirni og hafnað
sanngjörnum kröfum og því væri
einhliða hækkun nauðsynleg. Þá
gagnrýndi hann flokkana fyrir af-
stöðu í málinu og sagði að sér
þætti miður að Framsóknarflokk-
urinn skyldi bregðast í þessu máli
á úrslitastundu.
Ljósm: KrÍNtján KinarsNon.
Kirkjulist á Kjarvalsstöðum:
Koparstjakar frá 1734
Kertastjakar þessir eru meðal muna, sem verða á kirkjulistarsýning-
unni á Kjarvalsstöðum um páskana. Þeir eru úr Bessastaðakirkju, og
voru gefnir þangað árið 1734, af Katrínu Hólm, og er ártalið grafið á
stjakana, sem eru úr kopar. Katrín var á sinni tíð grunuð um að vera
völd að dauða Appoloníu Swartzkopf eða Hrafnhettu eins og hún hefur
verið nefnd af íslendingum, en mæðgurnar voru sýknaðar.
Stjakarnir eru stórir og miklir og engin smákerti, sem í þá passa, og
sagði Björn Th. Björnsson, listfræöingur, í samtali við Mbl. að hvaða
kirkja sem væri í Evrópu, myndi telja sig sæmda af gripum sem
þessum. .
Dómur í dag í máli Einars Benediktssonar
BÚIST er við, að niðurstaða fáist í
dag í máli skipstjórans á Einari
Benediktssyni í Vestmannaeyjum í
dag. Skipið var staðið að meintum
ólöglegum veiðum röskum fjórum
sjómflum undan Vík í Mýrdal síð-
astliðinn þriðjudag. Málið var tek-
ið fyrir í Vestmannaeyjum á mið-
vikudag. Frekari gagnasöfnun var
nauðsynleg í málinu þar sem mál
þetta er sérstaks eðlis. Deilan
snýst um það hvort líta beri á Ein-
ar Benediktsson sem skuttogara
eða bát, en hvað iengd varðar er
skipið ekki skuttogari, en hins veg-
ar er ágreiningur um vélarstærð
skipsins.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Mbl. fékk hjá Siglingamálstofn-
un, hefur Einar Benediktsson,
BA 377, aðeins haffærisskírteini
til bráðabirgða. Er skipið kom til
landsins á síðasta ári voru ýms-
ar athugasemdir gerðar við skip-
ið og var ekki bætt úr öllu því
sem talið var ábótavant. Það
bráðabirgðaskírteini, sem nú er í
gildi rennur út um næstu mán-
aðamót.
Albert Guðmundsson á fundi með stuðningsmönnum:
Eindreginn vilji til sam-
stöðu sjálfstæðismanna
„ÉG EFNDI til fundar með um
100 mönnum úr stuðningsmanna-
hópi mínum í prófkjörinu á
fimmtudagskvöldiö og þar kom
fram eindreginn vilji til að reyna
að koma í veg fyrir klofningsfram-
boð frá sjálfstæöismönnum og
standa vörð um Sjálfstæðisflokk-
inn,“ sagði Albert Guðmundsson,
efsti maður á lista Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík, í samtali við
Morgunblaðið í gær.
„Það var góður hugur í
mönnum á þessum fundi," sagði
Albert ennfremur, „og þar voru
allir þeir sem unnið hafa að mál-
efnum Sjálfstæðisflokksins í síð-
asta prófkjöri og endranær
hvattir til þess að vinna dyggi-
lega að góðum sigri flokksins í
komandi kosningum og vel-
gengni þeirra mála sem flokkur-
inn berst fyrir. Auk þess yrðu
menn að vera undir það búnir að
taka þátt í skipulegu kosninga-
starfi flokksins næstu vikur og á
kjördag.
Það kom sem sé fram eindreg-
in ósk um það að ekki yrði klofn-
ingsframboð og sjálfstæðismenn niðurstaða þessa fundar og um
gætu allir staðið að sigri Sjálf- hana var samstaða," sagði Al-
stæðisflokksins. Það var megin- bert Guðmundsson að lokum.
Valtýr Bjarnason fyrrv.
yfirlœknir látinn
ÞANN 10. mars sl. lést í Reykjavík
Valtýr Bjarnason, fyrrverandi dós-
ent og yfirlæknir á svæfinga- og
gjörgæsludeild Landspítalans, eftir
langvinn veikindi.
Valtýr fæddist 6. mars 1920 í
Meiri-Tungu í Holtum. Hann lauk
læknaprófi frá Háskóla íslands
1952 og sérfræðinámi við Mayo
Clinic, Rochester í Banda-
ríkjunum 1957. Hann starfaði eft-
ir það sem svæfingalæknir við
Landspítalann og síðar sem yfir-
læknir svæfingadeildar. Jafn-
framt því var hann lengi forstöðu-
maður Blóðbankans. Hann var
einn af stofnendum Svæfingafé-
lags Islands og lengi formaður Valtýr Bjarnason
þess. Eftirlifandi eiginkona Valtýs unarfræðingur og eignuðust þau 4
er Sigríður Jóhannsdóttir hjúkr- börn> sem ðll eru uppkomin
Yfirlýsing frá fulltrúum VSÍ og Verzlunarráðsins:
Verðlagsráð ákveði ekki verð
niðurgreiddrar þjónustu
MORGUNBLAÐINU barst í gær yfirlýsing frá fulltrúum Vinnuveitcndasam-
bands íslands og Verzlunarráðs íslands í Verðlagsráði vegna SVR-málsins, sem
verðlagsstjóri hcfur kært til Rannsóknarlögreglu ríkisins og krafizt lögbanns á
þá aðgerð, að ekki séu seld afsláttarkort í vögnunum. Yfirlýsing fulltrúanna,
Árna Árnasonar og Skúla Jónssonar er svohljóðandi:
„Að gefnu tilefni viljum við full-
trúar Vinnuveitendasambands ís-
lands og Verzlunarráðs íslands í
Verðlagsráði taka það fram, að við
höfum ekki með atkvæðum okkar í
Verðlagsráði stutt þær aðgerðir og
þá málsmeðferð, sem Verðlags-
stofnun hefur viðhaft gagnvart far-
gjaldahækkunum Strætisvagna
Reykjavíkurborgar, eða lagt bless-
un okkar yfir þær. Höfum við ítrek-
að lýst okkur ósammála málsmeð-
ferð Verðlagsstofnunar.
Grundvallarsjónarmið okkar hef-
ur ávallt verið að verðlagning
niðurgreiddrar opinberrar þjónustu
eigi ekki að vera ákvörðunaratriði
Verðlagsráðs. Niðurskurð á hækk-
unarbeiðni SVR, sem er upphaf
deilu SVR og Verðlagsstofnunar,
teljum við ekki hafa samrýmst
hlutverki Verðlagsráðs, enda var
með því verið að ákveða hvernig
Reykjavíkurborg ráðstafar útsvör-
um Reykvíkinga.
Við lentum i þessu máli í minni-
hluta í Verðlagsráði. Að svo miklu
leyti sem málefni SVR hafa síðar
komið til afgreiðslu í Verðlagsráði,
en ekki verið afgreidd og ákveðin að
frumkvæði Verðlagsstofnunar, hafa
sjónarmið okkar orðið undir í ráð-
inu.
Verkaskipting Verðlagsráðs og
Verðlagsstofnunar leiðir af sér, að
Verðlagsráð þarf ekki að sam-
þykkja lögbannsaðgerðir stofnun-
arinnar, enda hefur ekki verið eftir
slíkri samþykkt leitað.
Þótt verðlagsstjóri hafi starfað á
grundvelli laga og meirihlutasam-
þykkta Verðlagsráðs í þessu máli,
sem við viðurkennum fyllilega,
verður það ekki skoðað sem stuðn-
ingur okkar við meðferð málsins."