Morgunblaðið - 12.03.1983, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MARZ 1983
3
Flyttum til Bretlands
ef nauðsyn bæri til
Bókauppboð á morgun
KLAUSTURHÓLAR gangast fyrir
bókauppbodi á morgun, sunnudag,
og hefst það klukkan 14 í hinum
nýju húsakynnum Klausturhóla í
Breiðfirðingabúð við Skólavörðustíg.
Fjöldi gamalla og fágætra bóka
verður á uppboðinu að venju, svo
sem þessi gamla þorláksbiblía frá
1644, sem hér sést í höndum Hall-
dórs Runólfssonar verslunarstjóra
Klausturhóla.
Bækurnar verða til sýnis í
Breiðfirðingabúð í dag, laugardag,
milli kl. 13 og 18.
TÖGGURHR
UMBOÐfÐ
BÍLDSHÖFÐA 16, SÍMAR 81530-83104
— sagði Jóhann Ásmundsson í Mezzoforte
í viðtali við BBC í gær
„ÞAÐ lifir enginn góðu lífi af tón-
listinni einni saman á fslandi,"
sagði Jóhann Ásmundsson, bassa
leikari Mezzoforte, í viðtali við
breska ríkisútvarpið, BBC. Viðtali
þessu var útvarpað kl. 17.10 í gær á
alheimsþjónustu BBC, World Ser-
vice.
Áður en viðtalið við Jóhann
hófst fór umsjónarmaður þáttar-
ins lofsamlegum orðum um hljóm-
sveitina og sagði tónlist hennar
hafa vakið umtalsverða athygli í
Lundúnum og víðar á undanförn-
um vikum. Þá var lagið Garden
Party leikið í heild sinni á undan
spjallinu, sem var hið skemmtileg-
asta og kom Jóhann mjög vel fyrir
í alla staði.
í viðtalinu rakti Jóhann m.a.
kynni hljómsveitarinnar við Eng-
lendingana Geoff Calver (eigin-
mann Shady Owens) og Chris
Cameron, sem báðir aðstoðuðu við
upptöku plötunnar Surprise,
Surprise. Þá sagði hann að alls
ekki mætti skilja það svo, að sú
tónlist sem Mezzoforte léki væri
það, sem íslendingar kysu helst að
hlusta á. Plötusala bæri því best
vitni.
Jóhann sagði ennfremur, að ef
þörf krefði myndi hljómsveitin
flytja frá íslandi yfir til Bretlands
til þess að eiga hægara um vik við
tónleikahald og allar kynningar á
tónlist sinni. Hann kom einnig inn
á það, að hér heima væri lítils að
sakna fyrir tónlistarmenn. Plötur
væru orðnar svo dýrar, að fólk
væri hætt að kaupa þær.
f lokin spurði stjórnandi þáttar-
ins Jóhann að því hvort það
skelfdi þá félaga í Mezzoforte ekk-
ert, að mikill fjöldi hljómsveita
væri í harðri baráttu um markað-
inn og allir ætluðu sér að slá í
gegn. Hógvær, sem fyrr í spjall-
inu, svaraði Jóhann á þá leið, að
vissulega væru margar góðar
hljómsveitir á ferðinni í Bretlandi
en ef Mezzoforte tækist að stand-
ast samkeppnina væru engu að
kvíða.
Hluti fundarmanna á fundi SUS í gær. f ræðustól er Ólafur Isleifsson,
hagfræðingur, ritari SUS, en hann var fundarstjóri. Morgunblaðið/ÓI.K.M.
Ungir sjálfstæðis-
menn funda um
stjórnmálaviðhorfið
Björgólfur
Guðmundsson Listi sjálfstæðismanna
prédikar í
Dómkirkjunni
Kirkjan leggur lið mál-
efnum þeirra er berjast
gegn áfengisbölinu
í Reykjaneskjördæmi
BISKUP íslands hefur mælt meö því
við presta landsins, að framkvæmd
verði hugmynd, sem fram hefur komið
á vegum SÁÁ, að málefni þeirra, er
berjast gegn áfengisbölinu, verði rætt
við messugjörðir sunnudagana 13. eða
20. marz nk. eða tekið fyrir á kirkju-
kvöldum eða bænasamkomum í vik-
unni þar á milli.
Af þessu tilefni predikar Björg-
ólfur Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri, formaður SÁÁ, í messunni í
Dómkirkjunni á morgun kl. 11. Jafn-
framt munu aðrir félagar úr sam-
tökunum flytja bænir og ritningar-
texta, en sr. Þórir Stephensen þjónar
fyrir altari og Dómkórinn syngur
undir stjórn organistans Marteins
H. Friðrikssonar. Þess er vænst, að
sem flestir leggi leið sína í messuna
á morgun til að sýna stuðning sinn
við hið brýna málefni.
Frá Dómkirkjunni.
KJÖRDÆMISRÁÐ Sjálfstæðis-
flokksins i Reykjaneskjördæmi sam-
þykkti framboðslista flokksins í
kjördæminu vegna væntanlegra
þingkosninga á fundi sínum hinn 10.
mars. Skipan listans er þessi:
1. Matthías Á. Mathiesen, al-
þingismaður,
Hringbraut 59, Hafnarfirði.
2. Gunnar G. Schram, prófess-
or,
Frostaskjóli 5, Reykjavík.
3. Salome Þorkelsdóttir, alþing-
ismaður,
Reykjahlíð, Mosfellssveit.
4. Ólafur G. Einarsson, alþing-
ismaður,
Stekkjarflöt 14, Garðabæ.
5. Kristjana Milla Thorsteins-
son, viðskiptafræðingur,
Haukanesi 28, Garðabæ.
6. Bragi Michaelsson, fram-
kvæmdastjóri,
Birkigrund 46, Kópavogi.
7. Ellert Eiríksson, sveitar-
stjóri,
Melbraut 3, Gerðahreppi.
8. Helgi Jónsson, bóndi,
Felli, Kjósarhreppi.
9. Dagbjartur Einarsson, út
gerðarmaður,
Ásbraut 17, Grindavík.
10. Sigurgeir Sigurðsson, bæjar
stjóri,
Miðbraut 29, Seltjarnarnesi.
SAMBAND ungra sjálfstæðismanna
gekkst í gær fyrir sambandsráðsfundi,
þar sem saman voru komnir 40 til 50
fulltrúar frá hinum ýmsu félögum
ungra sjálfstæðismanna víðs vegar um
landið. Á fundinum voru flutt 7 ítarleg
erindi um ýmsar hliðar efnahags- og
atvinnumála og voru flutningsmenn
sérfræðingar hver á sínu sviði og allir
félagar í SUS.
Á fundinum spunnust fróðlegar
umræður m.a. um skattamál, rikis-
útgjöld, vísitölumál og vandamál
landbúnaðarins. Á fundinum var
einnig rætt um væntanlegar kosn-
ingar og stöðu og undirbúning
Sjálfstæðisflokksins við þær. I fund-
arlok var samþykkt ályktun, þar sem
m.a. er fjallað um helztu úrlausnar-
efni, sem bíða nýrrar ríkisstjórnar
og varða ungt fólk sérstaklega, svo
sem atvinnu- og húsnæðismál. Fagn-
að var samstöðu um kjördæmamálið
og á það bent, að komi stjórnar-
skrármálið til heildarafgreiðslu á
næsta kjörtímabili, eigi að sjálf-
sögðu að reyna að ná fram frekari
leiðréttingum í kjördæmamálinu.
Kveikt á um-
ferðarljósum
í Engidal
LAUGARDAGINN 12. mars er áætlað
að taka í notkun umferðarljós á Hafn-
arfjarðarvegi í Engidal og á Hrauns-
holLshæð. Kveikt verður á Ijósunum kl.
14.00.
Á Hraunsholtshæð eru gangbraut-
arljós, en í Engidal venjuleg gatna-
mótaljós. Með tilkomu þessara ljósa
er framkvæmdum við Hafnarfjarð-
arveg frá Vífilsstaðavegi að Engidal
lokið.
Morgunblaðið/ Kristján Einarsson.
NÖTAÐIR
QG
NYIR
Qpió í dag til kl4
SAAB- eigendur athugið,
tökum þann gamla upp í nýjan
-eða seljum hann fyrir þig
ef þú vilt heldur. Mikil
eftirspurn tryggir hagstæð skipti.