Morgunblaðið - 12.03.1983, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MARZ 1983
Hjartanlegar kveðjur og þakkir sendi ég öll-
um þeim sem glöddu mig með heimsókn-
um, skeytum og margvíslegum góðum gjöf-
um í tilefni af 80 ára afmæli mínu 1. marz sl.
Kvöldstundin í Vesturhópsskóla 5. mars
verður mér ógleymanleg.
Guð blessi ykkur öll.
Frída E. Levy,
Ósum.
Félagsfundur
Stjórn Fáks boðar hér með til félagsfundar vegna
byggingamála félagsins á Víðivöllum. Meö þessu
vill félagið leita álits félagsmanna. Fundurinn verö-
ur haldinn í félagsheimili Fáks þriöjudaginn 15.
marz nk. kl. 20.30. Þetta verkefni er fjárfrekt og
skiptir miklu að vel til takist. Þess vegna er mikil-
vægt að sem flestir félagsmenn tjái sig um þessar
framkvæmdir og að sem flestir móti og standi að
þessari samþykkt, sem félagsfundur kann að taka.
Hestamannafélagið Fákur
Arshatið
félagsins veröur 25. marz aö Hótel Sögu.
NU ER RETTI TIMINN TIL AÐ
PANTA FYRIR FERMINGUNA
Kópavogsbúar
athugið!
Við bjóðum alla almenna hársnyrtingu svo sem:
Permanent, klippingu, lagningu, hárþvott, litun,
blástur, strípur, skol, djúpnæringu o.s.frv.
Opið fra kl. 9—18 á virkum dögum
og kl. 9—12 á laugardögum.
Pantanir teknar í síma 40369.
Verið velkomin.
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
ÞINGHÓLSBRAUT 19.
Hönnuður í
fjáröflun
Frá því er skýrt í ÞjóA-
viljanum í gser, að fyrrum
blaAafulltrúi Alþýðusam-
bands íslands, Haukur
Már Haraldsson, hafi verið
ráðinn sérlegur fjáröflun-
armaður Alþýðubandalags-
ins vegna kaupa Sigfúsar-
sjóðs á húsnæði handa Al-
þýðubandalaginu, en Sig-
fúsarsjóður er eitt af
stjórntækjum gömlu
kommaklíkunnar í Alþýðu-
bandalaginu á flokknum.
Haukur Már hefur á und-
anförnum árum vcrið
meira í fréttum vegna ann-
arra starfa sinna en fyrir
fyrrum vinnuveitendur
sína í Alþýöusambandinu.
Haukur Már hefur nefni-
lega þjónað tveimur herr-
um, þar sem hann er blað-
hönnuður og „útlitsteikn-
ari“ sovéska scndiráðsins í
Kcykjavík. Ásamt með
Maríu l*orsteinsdóttur,
helsta forgöngumanni Sov-
étvina á Islandi, er Haukur
Már Haraldsson starfs-
maður við útgáfu blaðs
sovéska sendiráðsins í
Reykjavík, Fréttir frá Sov-
étríkjunum.
Haukur Már hefur í
blaðaviðtali staðfest að
hann annist útlitsgerð
Frétta frá Sovétríkjunum
en hann gegnir fleiri trún-
aðarstörfum beinlínis á
vegum sovéskra aðila og er
þar átt við formennsku
hans í „Islensku friðar-
nefndinni". sem er útibú
Heimsfriðarráðsins á fs-
landi, en þaö ráð hefur aft-
ur það hlutverk að vinna
að útbreiðslu sovésks frið-
ar um heimsbyggðina.
Starfsemi hins íslenska úti-
bús Heimsfriðarráðsins
hefur verið best lýst af
Hjalta KrLstgeirssyni,
hugmyndasmiði Alþýðu-
bandalagsins í marxískum
fræðum, sem segir að
„friðarnefndin" sinni því
hlutverki aðallega að bjóða
alþýðubandalagsmönnum í
ferðir til Sovétríkjanna eða
annarra kommúnistaríkja.
Það skyldi þó ekki vera að
Heimsfriðarráðið eða eig-
andi blaðsins Fréttir frá
Sovétríkjunum, áróðurs-
miðstöð heimskommún-
ismans í Kreml, sjái sér
hag í því að erindrekinn og
starfsmaðurinn á fslandi
gerist fjáröflunarmaður
Ljúkum framkvæmdum við flokksmiðstöðina:
Nýtt átak í fjársöfnunl
Gerum klárt fyrir kosningar
llaukur Mir Haraldsson mun fara
um landið og tala við þa sem enn
hafa ekki fengið Urkiíæri til að vera
með i að Ijúka góðu verki
Gullkistan klofin?
Haukur Már Haraldsson, fyrrum blaðafulltrúi ASÍ, „útlitsteiknari“
sovéska sendiráðsins og formaður „íslensku friðarnefndarinna“, er
orðinn fjáröflunarstjóri húsakaupasjóös Alþýðubandalagsins. Til
þessa hefur Ingi R. Helgason, núverandi forstjóri Brunabótafélags
Islands, stjórnað slíkum aðgerðum Alþýðubandalagsins enda var
hann til skamms tíma gullkistuvörður flokksins. Ragnar Árnason,
einn helsti kerfiskarl ráðherra Alþýðubandalagsins, hefur verið tal-
inn arftaki Inga R. við gullkistuvörsluna. En með ráðningu Hauks
Más vaknar sú spurning hvort gullkistan hafi verið klofin til að ekki
lokaðist fyrir hinar gamalgrónu fjáröflunaræðar.
fyrir Alþýðubandalagið og
slái þannig margar flugur í
einni ferð um ísland allt?
Einangrun
Yinstrimanna
í háskólanum
Kosið verður til Stúd-
entaráðs Háskóla íslands á
þriðjudag. Þrír listar eru í
boði: frá Y’öku, félagi lýð-
ræðissinnaðra stúdenta,
Félagi vinstrimanna og Fé-
lagi umbótasinna. Vöku-
menn og umbótasinnar
hafa haft meirihluta í stúd-
entaráði undanfarin tvö ár
og við það hefur öll starf-
semi ráðsins og þeirra
fyrirtækja sem rekin eru í
þágu stúdenta lekið
stakkaskiptum. Vinstri-
menn í háskólanum hafa
einangrast í eigin sérvisku
eins og vera ber, og í síð-
asta Stúdentablaði lýsir
formælandi þeirra, Krist-
ján Ari Arason, því yftr, að
hvorki komi til álita að
vinstrimenn vinni með
Vöku né umbótasinnum að
stjórn stúdentamála að
komandi kosningum lokn-
um. Kristján segir meðal
annars um þetta atriði:
„Hvað varöar samstarf við
umbótasinna tel ég það ill-
mögulegt meðan stefna
þeirra er á slíku reiki að
ekki er hægt að byggja á
henni.“ Af þessum orðum
verður ekki annaö ráðið en
þeir stúdentar séu að kasta
atkvæði sínu á glæ sem
kjósa lista vinstrimanna á
þriðjudaginn.
En hverjir mynda hið
sérviskulega Félag vinstri-
manna (FVM) í háskólan-
um. „Það segir sig sjálft að
FVM er mislitur hópur,“
segir Kristján Ari Arason,
„allt frá hægfara umbóta-
sinnum yfir í gallharða
marxLsta." Og eitn segir
Kristján um helstu baráttu-
mál félagsins: „FVM tekur
t.d. ákveðna afstöðu gegn
hernum og NATO og öllum
andverkalýðssinnuðum
hernaðarbandalögum."
Þessi skilgreining á hern-
aðarbandalögum er ný-
mæli og það er undarlegt
aö afstaða manna sem
segja að friður verði fyrst
tryggður með því aö leggja
hemaðarbandalögin niður
skuli lýsa því yfir að það
ráðist af því hvort banda-
lögin eru „andverkalýðs-
sinnuð" eða ekki hvort þau
beri að leggja niður.
Áhrif Brynjólfs
Telur Kristján Ari Ara-
son Varsjárbandalagið
„verkalýðssinnað" hernað-
arbandalag? Af ummælum
hans um þjóðfélagskerfin
má draga þá ályktun að
hann telji stjórnkerfi
kommúnistalandanna fyrir
austan tjald, aðildarríkja
Varsjárbandalagsins,
„verkalýðssinnað“. Þar
með er hernaðarbandalag
þessara ríkja vafalaust
einnig „verkalýðssinnað“
að hans dómi. Hafi Krist-
ján Ari verið að leggja það
til með orðum sínum að
Varsjárbandalagið ætti að
hverfa hefði hann auðvitaö
sagt það skýrt og skorinort.
Stefna Félags vinstri-
manna í öryggismálum er
því sú samkvæmt eðli-
legum skilningi á orðum
talsmanns þess, að NATO
verði lagt niður en Y'ar-
sjárbandalagið starfi áfram
í þágu Sovétríkjanna.
Kemur þessi skoðun
Kristjáns Ara heim og
saman við viðhorf Brynj-
ólfs Bjarnasonar, eins af
stofnendum Kommúnista-
flokks íslands 1930, sem
flutti erindi um þaö á veg-
um vinstrimanna í háskól-
anum 1. desember síðast-
liðinn að þá fyrst ríkti ör-
yggi á íslandi að hér ríkti
hinn sósíalski, sovéski frið-
ur í anda Brezhnev-kenn-
ingarinnar, Maríu Þor-
steinsdóttur og Hauks Más
Haraldssonar.
Glæsilegt úrval af nýjum og
notuðum DAIHATSUBÍLUM
Ju
)‘
ir
BILASYNING OG BILAMARKAÐUR I DAG KL. 13-18
Fyrír þá sem
ekki treysta
sér í nýja
Frábær kaup
í velmeðförn-
um notuðum
Notaðar bifreiðar sem eru til sölu hjá okkur þessa stundina
Bifr. teg.
Daihatsu
Daihatsu
Daihatsu
Daihatsu
Daihatsu
Daihatsu
Daihatsu
Daihatsu
Daihatsu
Charade Runabout
Charade XTE
Charade XTE
Charade Runabout
Charade Runabout
Charade Runabout
Charade XTE
Charade XTE
Charmant 1400
Árgeró Ekn. km Litur
82 9.000 Gullbrons
81 30.000 Vinrauöur
81 30.000 Blar met
81 28.000 Silfur met
80 43.000 Rauöur
80 52.000 Silfur met
80 30.000 Kremgulur
80 43.000 Vinrauöur
79 40.000 Vinrauöur
Verö kr.
160.000
140.000
140.000
140 000
1 15.000
115.000
1 10.000
110.000
85.000
DAIHATSUUMBOÐIÐ, ARMULA 23, 85870 - 81733