Morgunblaðið - 12.03.1983, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MARZ 1983
15
Þetta hljóöfæri smfðaöi Mark Stevenson eftir franskri
fyrirmjnd frá fyrri hluta 18. aldar. Dæmigerður fransk-
ur semball frá þeim tíma.
Þetta hljóðfæri smíðaði Stevenson árið 1979 eftir
flæmskri fyrirmynd frá því um miðja 18. öld. Það er
sömu gerðar og semball Helgu Ingólfsdóttur.
Og hér sjáum við algengasta ítalska sembalinn frá þess- Spínet, að brezkri fyrirmynd frá fyrri hluta 18. aldar.
um tíma.
Virginall, samkvæmt flæmskri fyrirmynd frá miðri 17.
öld.
Þeir, sem það gerðu, voru miklir
„perfektionistar", óskaplega ná-
kvæmir, mældu allt upp á milli-
metra og stefnu að sem fullkomn-
ustum eftirlíkingum. Nú er þetta
að breytast, menn hafa það mikla
þekkingu, að þeir eru farnir að
geta leyft sér meira frelsi, án þess
þó að víkja frá grundvallaratrið-
um í eðli hljóðfærisins. Mark
Stevenson er einn af mönnum
þessa þriðja stigs sembalsmíðinn-
ar.“
Þarf áhuga og ást bæði
á hljóðfærinu og
verkinu sjálfu
Ég spurði Þorkel að lokum
hvaða eiginleika sá þyrfti að hafa
sem ætlaði að smiða sembal. „Því
er ekki að neita," sagði hann, „að
þetta er vandasamt verk og það
ætti enginn að reyna nema hann
sé vel laghentur. Miklu skiptir að
hafa áhuga á verkinu sjálfu, smíð-
inni sjálfri sem slíkri, — því sé
hugsunin aðeins sú að eignast
hljóðfærið er hætt við að þolin-
mæðina bresti. í bæklingum er oft
gefið upp, að ekki taki nema um
hundrað klukkustundir að setja
saman sembal en það er rangt, það
gekur a.m.k. fimm sinnum lengri
tíma. Eru framleiðendur reyndar
farnir að sjá eftir að hafa haldið
þessu fram, því það dró smám
saman úr sölu hjá þeim, þegar
fram í sótti, og margir þeirra
höfðu haft fjárhagslega meiri
hagnað af sölu ósamansettra
hljóðfæra en fullgerðra.
Nú, svo er auðvitað skilyrði, að
fólk hafi heyrt sembal, þekki
hljóðfærið. Við hittum nokkra í
Bandaríkjunum, sem höfðu smíð-
að sembal án þess að þekkja
hljóðfærið fyrir. Þeir voru oftast
„hobbyistar", sem þegar voru bún-
ir að smíða bát eða kofa og
kannski ýmislegt fleira, og datt nú
í hug að smíða hljóðfæri, — en
vissu ekkert hvað þeir voru að
gera, enda útkoman eftir því. Það
þarf sem sagt að vera fyrir hendi
sæmileg þekking ásamt áhuga og
ást bæði á hljóðfærinu og verkinu
sjálfu,“ sagði Þorkell að lokum.
Svo slysalega vildi
til í greininni um pí-
anósnillinginn
Claudio Arrau í síd-
asta þætti, að med
henni birtist ofgnótt
mynda af honum á
sama aldri. Ein
þeirra átti að vera sú,
sem hér fylgir, af
honum fimm ára,
þegar hann kom fyrst
fram á hljómleikum í
heimabæ sínum,
('hillan í Chile.
Eiðanemar
1969—1973
Rifjum úpp gömul kynni frá skólavistinni og eflum
samböndin.
Hér meö er blásiö til meiriháttar fagnaöar uppi í Sig-
túni (ath. austur dyr) föstudagskvöldið 18. mars kl.
22.
Miðaverö er kr. 200 og er í því matarverö.
Skólasystkin, makar og kennarar.
VERIÐ VELKOMIN.
Þátttaka tilkynnist til Bjarna s. 53650 allan sólar-
hringinn og Dóra s. 79913.
Hinir sjálfvöldu
Stofnfundur samtaka um kvennalista veröur sunnu-
daginn 13. mars kl. 13.30 á Hótel Esju.
Konur fjölmennið
Áhugahópur um Kvennalista til Alþingis, sími 13725.
Til fermingargjafa
Skrifborðssamstæöa meö plötu sem hægt er aö halla
aö vild. Fáanleg í eik og furu.
Verð aðeins
kr. 3.200,-
Höfum fengið aftur þessa
vinsælu skrifborðsstóla í
þremur áklæöislitum:
Brúnu, gráu og rauöu.
Verö kr. 1.430
án pumpu og
kr. 1.780 með
pumpu.
Opið um helgar fram að páskum
Laugardaga til kl. 4
og sunnudaga kl. 2-5
SÍMI 77440