Morgunblaðið - 12.03.1983, Page 19

Morgunblaðið - 12.03.1983, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MARZ 1983 19 Ræða við þúsundir lands- manna á vinnustaðafundum SÁÁ — Samtök áhugafólks um áfengisvandamálið — eru vafalítið best þekkt fyrir þá umfangsmiklu aðstoð, sem þau veita alkóhólist- um og aðstandendum þeirra, og fyrir þær endurhæfingar — og meðferðarstöðvar, sem samtökin reka. En margvísleg önnur starf- semi er einnig í gangi hjá SÁÁ, svo sem kynning á áfengisvandanum meðal almennings, í skólum, með- al ýmissa félagasamtaka á opnum fundum og víðar. Nú er búið að hleypa af stokkkunum enn einni herferðinni hjá SÁÁ, þar sem skipulega er farið í fyrirtæki og stofnanir, og áfengisvandamálið rætt við starfsmenn þeirra og stjórnendur. Það er Jóhann Örn Héðinsson, sem hefur veg og vanda af þessum fundum, og blaðamaður hitti hann að máli nú í vikunni og ræddi við hann um þessa nýjung í starfsemi samtakanna. Um sextíu fyrirtækjum sent bréf „Þetta er nýjung að því leyti, að þarna er að koma til fram- kvæmda hugmynd sem hefur verið stefntað frá stofnun SÁÁ,“ sagði J.Ó. „Um alllangt skeið höfum við verið með fræðslu- fundi og kynningarsamkomur, þar sem við höfum leitast við að miðla af þekkingu okkar og reynslu í baráttunni við alkóhól- ismann. En það sem er nýtt núna, er að við höfum skipulega tekið okkur fyrir hendur að heimsækja fyrirtæki og stofnan- ir, til að ræða við starfsfólk, kynna vandamálið, gefa ráð og svara fyrirspurnum. Við sendum bréf til sextíu fyrirtækja, þar sem við buðumst til að koma og flytja ákveðið „prógramm", sem alla jafna tek- ur um tvær klukkustundir. í því eru inngangsorð eða ávarp, kynning á vandanum, tuttugu mínútna löng kvikmynd, og síð- an frjálsar umræður og fyrir- spurnir. Það er misjafnt hvernig þessu hefur verið fyrir komið, en ekki er óalgengt að vinnuveit- andinn gefi eftir eina klukku- stund síðdegis fyrir þessa dagskrá, og starfsfólkið bæti síð- an annarri við af sínum tíma, eftir að vinnudegi lýkur." — Hefur það eitt dugað að senda fyrirtækjunum bréf, eða þurfið þið að ítreka boð ykkar? „Það er alla vega, stundum er hringt til okkar um hæl og ég beðinn að koma, ýmist af forráðamönnum fyrirtækjanna, eða af starfsmönnum eða starfsmannafélögum. Stundum heyrist ekkert frá viðkomandi aðilum, og þá erum við ófeimin að ítreka ósk okkar um fund.“ Oft mjög fjörugar umræður — En hvernig er ykkur tekið, er þið komið á vinnustaðina? „Mér hefur alltaf verið vel tek- ið, og aldrei orðið var við neins konar óvirðinu eða andúð. Menn bregðast hins vegar misjafnlega við þessu eins og öðru, umræður eru sums staðar litlar, en þó oftast mjög miklar. Það hefur komið fyrir að ég hef verið á fundi með starfsmönnum eins fyrirtækis frá klukkan fjögur - Rætt vid Jóhann Örn Héðinsson hjá SAÁ um fundi hans með starfsmönnum fyrirtækja eða fimm, til níu um kvöldið. Þá vilja menn fræðast um starfsemi SÁÁ, um alkóhólismann, hvern- ig skuli tekið á áfengisvanda- málinu á vinnustöðum, hvernig megi hjálpa þeim mönnum sem við erfiðleika eiga að glíma og svo framvegis. Umræðurnar verða alla jafna opinskáar, hreinskilnar og beinskeyttar, þar sem menn spyrja, koma með ábendingar, gagnrýni og segja frá sinni eigin reynslu." — Menn reyna ekki að gera lítið úr vandanum og þar með starfsemi ykkar? „Það hefur komið fyrir, að menn reyna að slá þessu upp í grín, og ætla að fara að tala um málið á þeim nótum. Við höfum í sjálfu sér ekkert á moti dálitlu glensi, lífið á að vera skemmti- legt, en hitt er svo annað mál, að mín reynsla er sú að fólki skilst fljótlega að okkur er full alvara, og við teljum áfengisvandamálið ekki vera gamanmál, öðru nær.“ Menn koma eftir fundina — Verður andrúmsloftið aldrei þvingað, þar sem meðal fundarmanna eru menn sem eiga við áfengisvandamál að etja, finnst þeim ekki nærri sér höggvið? „Eg minnist þess ekki, að hafa orðið þess var á fundum að and- rúmsloftið væri þvingað af þess- um ástæðum. Hins vegar er ekki vafi á því, að margir hugsa sitt, bæði alkóhólistar og vinnufélag- ar þeirra. — Þessir menn koma oft til okkar á eftir og vilja ræða vandamálið, og stundum verður heimsókn okkar til að menn vilja reyna að takast á við vandann og gera bragarbót á lífi sínu. Einu sinni gerðist það, eftir vinnustaðafund, að til mín kom maður, sem liðið hafði hinar mestu þjáningar á fundinum. Hann hélt að til fundarins hefði verið boðað sín vegna, hann hafði á tilfinningunni að allir væru að horfa á sig, eða tala um sig, hann vissi ekki að fundurinn var einn margra á fundarher- ferð. — Hann kom til mín og ræddi þetta, og niðurstaðan varð sú, að hann sá að hann varð að gera eitthvað í sínum málum og fór í meðferð. Ég gæti nefnt þér fjölmörg dæmi af þessu tagi, en í raun vitum við ekkert hver árangur- inn af starfi okkar er í þessu til- liti. Við vitum ekki um hve margir grunnskólanemendur byrja ekki að drekka vegna funda með okkur, við vitum ekki hve margir starfsmenn fyrir- tækja taka sig á eftir heimsókn- ir okkar. Það verður ekki brugð- ið neinni mælistiku á þetta starf, sem er í senn leiðbeinandi og fyrirbyggjandi, en við erum þess fullviss að þetta ber árangur, og að við séum á réttri leið.“ Allir geta óskað eftir fundum — Hvernig eru þessi sextíu fyrirtæki, sem þið senduð bréf, valin? „Fyrst og fremst var haft að leiðarljósi, að um væri að ræða fjölmenna vinnustaði, að minnsta kosti nú í byrjun. Við höfum ekki mannafla eða fjár- muni til að fara á alla vinnu- staði, og höfum því reynt að ná til sem flestra með þessum hætti. Ég hef þegar farið á eina tólf, fjórtán staði í þessari lotu, og talað við hundruð manna, og þessu verður haldið áfram. Þetta er ekki tímabundið verkefni, heldur er ætlunin að það verði fastur liður í starfsemi okkar framvegis. Við erum reiðubúin að koma hvert á land sem er, til að hitta starfsfólk, verði þess óskað. Um leið höldum við áfram fræðslu- fundum okkar í skólum, við för- um iðulega á fundi hjá hvers kyns klúbbum og áhugamanna- félögum; J.C., Kiwanis, Lions og fleiri. í baráttunni við áfengis- vandamálið verður aldrei gefið vopnahlé, og það er um að gera að berjast á sem flestum víg- stöðvum samtímis. Skilningur á áfengisvandamálinu og á eðli alkóhólisma sem sjúkdóms fer vaxandi, og fordómar láta smám saman í minni pokann fyrir þekkingu og skynsamlegum um- ræðum, en betur má ef duga skal. Vinnustaðaheimsóknirnar eru aðeins einn angi baráttunn- ar,“ sagði Jóhann Örn að lokum. - AH —BÍLASÝNING— SÝNUM1983 ÁRGERÐIRNAR AFISUZU OG OPEL, ÁSAMT GLÆNÝJUMBLAZER Á GLÆSILEGRIBÍLASYNINGU LAUGARDAGINN12. MARS KL. 10-17 OG SUNNUNDAGINN13. MARS KL. 13-17 Verið velkomin i sýningarsal okkar og njótið þess að skoða úrvalsbila Bjóðum sýningargestum að bragða á gómsætum réttum frá GHÐA kl. 14-17, báða dagana @ VÉLADEILD SAMBANDSINS Armúla 3 Revkiavík (HALLAR MULAMEGIN) Sími38 900

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.