Morgunblaðið - 12.03.1983, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MARZ 1983
Njósnarinn MacLean
látinn í Moskvu
Lét Rússum í té upplýsingar um mikil-
vægustu kjarnorkuleyndarmál Vesturlanda
London, II. mars. AP.
DONALD MacLean, sem eitt sinn var brezkur sendistarfsmaður í Washing-
ton, gaf Sovétríkjunum upplýsingar um kjarnorkuleyndarmál og flýði síðan
til Moskvu 1951, er látinn. Njósnamál hans var eitt stærsta mál sinnar
tegundar, sem átt hefur sér stað í Bretlandi. Talið er, að MacLean hafi látizt
sl. sunnudag, en sovézka fréttastofan TASS skýrði fyrst frá láti hans í gaer.
Banamein MacLeans var krabbamein, en hann var 69 ára gamall, er hann
lézt.
Brezka blaðið Daily Mail sagði í
dag, að MacLean hafi verið einbúi
er hann lézt. Hafi hann að undan-
Osló, II. mars, frá fréttaritara Mbl.,
Jan Krik Lauré.
GREENPEACE-skipið Sírius kom til
Noregs í dag og telja norsk yfirvöld
að skipið sé ólöglegt í norskri land-
helgi. Talið var að skipið myndi
dregið úr norskri landhelgi síðdegis,
en utanrfkisráðuneytið taldi þess
ekki þörf.
förnu búið í íbúð í Moskvu, en áður
hefði hann dvalið í Botkin-sjúkra-
húsinu.
Sírius er við strendur Noregs til
að mótmæla sel- og hvalveiðum
Norðmanna og mun fara milli
staða í Noregi til að mótmæla
veiðunum. Ekki er vitað í hvaða
formi þessi mótmæli verða.
Guy Burgess, náinn vinur og
njósnafélagi MacLeans lézt árið
1963 og var þá orðinn áfengis-
sjúklingur. Burgess var líka hátt-
setur starfsmaður í brezku utan-
ríkisþjónustunni, áður en hann
flýði land, en hann var látinn vita
1951, að brezka leyniþjónustan
hefði komizt á snoðir um njósnir
þeirra í þágu Rússa. Hinn 29. maí
þetta ár — á 38 ára afmælisdegi
MacLeans — fóru þeir félagar svo
lítið bar á, með ferju frá Englandi
til Frakklands og komust síðan til
Moskvu.
Árið 1963 fetaði Harold „Kim“
Philby í fótspor þeirra og flýði til
Moskvu, en hann var þriðji mað-
urinn í njósnahringnum. Philby
hafði starfað í gagnnjósnaþjón-
ustu Breta og komst til Sovétríkj-
anna frá Beirút, eftir að hann
hafði fengið aðvörun um, að flett
hafði verið ofan af njósnastarf-
semi hans. Philby starfar enn í
Moskvu á vegum leyniþjónustu
Sovétríkjanna, KGB.
Greenpeace-menn
mótmæla við Noreg
Kista MacLean borin út úr stofnuninni, þar sem hann starfaði, en þar stóð
kista hans í hálfa klukkustund áður en útfórin fór fram.
Aðalfundur
Samvinnubankans
Aöalfundur Samvinnubanka Islands hf.
verður haldinn að Hótel Sögu, Átthagasal,
Reykjavík, í dag laugardaginn 12. mars
1983 og hefst kl. 13.30.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður
lögð fram tillaga um heimild til bankaráðs um
útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar
til fundarins verða afhentir á fundarstað.
Bankaráð Samvinnubanka íslands hf.
Blaöburðarfólk óskast!
\ x *j jjj* llM?-
Vesturbær Granaskjól Kópavogur Hrauntunga
ptéíCi0tm!bitabií>
i
Á SKÍÐUM 1983 1. JANÚAR — 30. APRÍL
Skráningarspjald
Allt sem gera þarf er að fara fimm
sinnum á skíði á tímabilinu, eina
klukkustund í senn.
Hver einstaklingur er talinn með í keppn-
inni.
Allar tegundir skíða gilda. Einn fer á
svigskíði, annar á gönguskíði eða hvoru
tveggja.
Nafn Heimilisfang Héraö Hve oft
Skilið skráningarspjaldinu til skíðafélags, á skíðastað eða til annarra aðilja sem verða
auglýstir síðar.
SENDA MÁ SPJALDIO MERKT SKÍÐASAMBANDI ÍSLANDS,
ÍÞRÓTTAMIÐSTÖDINNI, LAUGARDAL, 104 REYKJAVÍK.
NORRÆN
FJÖLSKYLDULANDS-
KEPPNI Á SKÍÐUM
1983