Morgunblaðið - 12.03.1983, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MARZ 1983
23
Noregur:
Forstjóri hjúkrunarheimilis
fundinn sekur um fjöldamorð
Osló 11. mars. Frá fréttaritara Mbl.
FYRRVERANDI forstjóri elli- og
hjúkrunarheimilisins í Orkdal í Nor-
egi er fjöldamorðingi. Dómstóll í
Niðarósi komst í dag að þessari
niðurstöðu og fann Arnfinn Nesset
sckan um að hafa myrt 22 mann-
eskjur, en alls var hann sakaður um
að hafa stytt 25 mönnum aldur.
Það var fyrir þremur árum, i
mars 1980, sem lögreglan hóf að
rannsaka málið eftir að grunur
hafði vaknað um að Arnfinn Ness-
et, forstjóri elli- og hjúkrunar-
heimilisins í Orkdal, hefði myrt
marga sjúklinga með eitrinu cur-
acit, sem lamar öndunarfærin og
veldur hægum köfnunardauða.
Alls höfðu 60 sjúklingar látist
með grunsamlegum hætti og
skömmu eftir handtökuna játaði
Nesset. að hann hefði myrt 30
þeirra. Ákæran hljóðaði hins veg-
Arnfinn
dag.
Nesset
ar upp á 25 morð, þar sem ekki
þóttu nægar sannanir fyrir fleir-
um. Arnfinn Nesset dró síðar
játningu sína til baka og þegar
réttarhöldin hófust í október sl.,
kvaðst hann vera alsaklaus.
Réttarhöldin yfir Nesset eru
þau umfangsmestu, sem fram
hafa farið í Noregi á friðartímum.
Vitnaleiðslurnar hafa tekið næst-
um hálft ár og þótt. ákæruvaldinu
hafi ekki tekist að leggja fram af-
gerandi sannanir fyrir sekt Ness-
et, taldi rétturinn yfirgnæfandi
líkur á því að hann bæri ábyrgð á
a.m.k. dauða 22 manna. Nesset var
alltaf með sjúklingunum skömmu
áður en þeir gáfu upp andann og
stundum sást til hans með sprautu
í hendi.
Dómurinn yfir Arnfinn Nesset
verður kveðinn upp í næstu viku.
Ítalía:
Játar samstarf við
búlgarska njósnara
Róm, 11. mars. AP.
STARFSMAÐUR ítalsks verkalýðs-
sambands, sem situr í fangelsi
sakaður um njósnir og hryðju-
verkastarfsemi, hefur viðurkennt að
hafa haft samstarf við búlgarska
njósnara og tekið þátt í alls konar
ráðabruggi með þeim að því er ít-
ölsku dagblöðin greindu frá í dag.
Ekki er nákvæmlega vitað um
játningar verkalýðsstarfsmanns-
ins Luigi Scricciolo, en ítalska
fréttastofan AGI sagði, að hann
hefði veitt lögreglunni „óhemju-
miklar" upplýsingar, m.a. lista
með nöfnum ítalskra verkalýðs-
starfsmanna og búlgarskra njósn-.
ara, sem hefðu haft samstarf um
ýmis glæpaverk. ttölsk yfirvöld
hafa sakað Búlgara um að vera
riðnir við morðtilræðið við Pál
páfa fyrir tveimur árum, fyrir-
hugað samsæri um að myrða Lech
Walesa og eiturlyfja- og vopna-
smygl.
Vinstrisinnaða Rómarblaðið La
Repubblica segir, að Scricciolo
hafi „flett ofan af njósnaneti
Búlgara" á Ítalíu og játað að hafa
staðið í sambandi við búlgörsku
leyniþjónustuna þegar hann var
yfirmaður þeirrar deildar UIL-
verkalýðssambandsins, sem sá um
erlend samskipti.
Okkar gestir
vilja aöeins þaö
besta
í kvöld bjóðum við m.a.
Sauerkrout súpa bætt m/ baconi.
Nýir gratineraðir kræklingar m/ hvítlaukssmjöri.
Krabba og agúrku cockteil m/ ristuðu brauði.
Heit frönsk tómat tarte.
Innbakaðar gellur í pappír m/ kryddjurta- og sítrónu-
smjöri.
Pottsteiktir kjúklingar í rjóma m/ kantarill villisvepp-
um og kartöflum dauphine.
Eldsteikt sirlon steik m/ humarhala djúpsteiktu
broccoli og fyotsósu.
Gráðostamús m/ ristuðu brauði.
Gljáður rauöbeðuís í kampavíni.
Jón Möller og Raymond
Groeenendaal verða á sínum
stað við hljóðfærin.
(~(~
Velkomin
i
S2UI
Skólavörðustíg 12, -
sími 10848.
fMfajgutiIifiifrife
Askriftarsíminn er 83033
Nýr, glæsilegur áfangastaður Útsýnarfarþega, ALGARVE, kynntur á SUNNUDAG 13. MARZ
„Gullströndin í Albufeira“
PORTÚGALSHÁTÍÐ
ÚTSÝNAR Á BROADWAY
Kl. 19.00 Húsiö opnað — fordrykkur í boði Ríkisferða-
skrifstofu Portúgals. Kvikmynd frá Portúgal,
happdrætti, músík. Mætið sundvíslega og
missiö ekki af neinu.
Kl. 19.30 Veislan hefst. Tvíréttaður kvöldverður. Verð
aðeins kr. 270.
Heiðursgestir:
J.C. Teiexeira frá portúgölsku ríkisferöa-
skrifstofunni Fernando Hipolito frá Viagens
Rawes í Algarve.
Ferdakynning frá Portúgal
FEGURÐARSAMKEPPNI.
Þátttakendur í forkeppni Ungfrú og
herra Útsýn valdir úr hópi gesta.
Hárskurðar- og hárgreiðslu-
sýning frá Hárgreiðslu-
og rakarastofunni
Klapparstíg. 24 módel sýna
V árangur meistaranna.
Einsöngur:
Hinn frábæri tenórsöngvari,
Kristján Jóhannsson
píanóleikari, Guðrún A.
Kristinsdóttir.
Tízkusýning: Módel ’79 sýna.
frá Pophúsinu.
Portúgalski söngvarinn Joao Silva
skemmtir meö Ijúfri, portúgalskri
tónlist.
Danssýning: JAZZ-SPORT.
Hinar fjölbreyttu sólarlandaferðir
Útsýnar kynntar á sjónvarpsskermi
í neðri sal frá kl. 22.00.
Happdrætti. Ferðavinningur dreg-
inn úr miðum gesta, sem koma fyrir
kl. 20.00.
Bingó. Spilað um 3 Útsýnarferðir.
Dans. Hljómsveit Björgvins Hall-
dórssonar.
Diskótek:
Gisli Sveinn Loftsson
Ferðaskrifstofan
UTSÝN
Allir gestir fá ókeypis Polaroid-mynd viö komuna frá Mats Wibe Lund.
cccADmy
Forsala aðgöngumiða og borðapantanir í BROADWAY í dag
kl. 9—17, sími: 77500. Pantið miða tímanlega. Spariklæðnaöur.