Morgunblaðið - 12.03.1983, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MARZ 1983
25
1 ? í 1 1 í t I K i 1
K í J
Móöir Helga, Ingveldur Höskuldsdóttir, haföi á oröi aö Helgi væri orðinn mun
íjálfstæöari eftir meöferðina í Kurgan.
elgi á heimili sínu í gær.
Helgi áður en hann fór út.
Iliazarov læknir, sem stjórnar
sjúkrahúsinu og er maðurinn á bak
við þess aðferö, sem um er rætt.
Helgi í þvingunum, en í þessu var
hann í nær eitt ár.
Stjórn Félags bókasafnsfræðinga:
Ómaklega vegið að
bókasafnsfræðingum
MORGUNBLAÐINU barst í gær fréttatilkynning frá stjórn Félags bóka-
safnsfræöinga, þar sem geröar eru athugasemdir viö ummæli Ingvars
Gíslasonar, menntamálaráðherra í Morgunblaöinu í gær, en félagið telur
aö ráöherra hafi ráöizt ómaklega að tveimur stjórnarmönnum og enn-
fremur í garö stéttarinnar. Fréttatilkynning bókasafnsfræðinga er svo-
hljóðandi:
í Morgunblaðinu föstudaginn
11. mars er viðtal við mennta-
málaráðherra, Ingvar Gíslason,
um stöðuveitingu við Blindra-
bókasafn íslands. Þar segir orð-
rétt: „Ég er búinn að kynna mér
þetta mál mjög vel undanfarna
daga og álít að það sem gerst
hefur í stjórninni sé það að
bókasafnsfræðingar hafi ráðið
þarna ákaflega miklu. Það er til-
hneiging hjá þessum sérfræðing-
um að gera mjög mikið úr störf-
um sem snerta þeirra verksvið."
Stjórn Félags bókasafnsfræð-
inga telur að þarna sé ómaklega
ráðist að tveimur af fjórum full-
trúum stjórnarmeirihlutans,
þeim Kristínu H. Pétursdóttur,
bókafulltrúa ríkisins og Elfu
Björk Gunnarsdóttur, borgar-
bókaverði, fulltrúa Bókavarðafé-
lags íslands, auk þess sem
stjórnin harmar ummæli ráð-
herrans í garð stéttarinnar. Gef-
ið er í skyn að bókasafnsfræð-
ingar hafi verið að ota sínum
tota í máli þessu. Það verður að
teljast einkennileg niðurstaða
þegar haft er í huga að stjórn
Blindrabókasafns Islands var
sammála um að stöðunni skyldi „
gegna kennari á framhalds-
skólastigi — ekki bóka-
safnsfræðingur.
Kristín H. Pétursdóttir og
Elfa Björk Gunnarsdóttir hafa
einnig verið bornar þeim sökum
í fjölmiðlum að fordómar hafi
ráðið ákvörðun þeirra. Það er
samdóma álit stjórnar Félags
bókasafnsfræðinga að slíkar að-
dróttanir hafi ekki við rök að
styðjast, einkum ef haft er í
huga að umræddir aðilar hafa
átt drýgstan þátt í að byggja upp
bókasafnsþjónustu, að ákvörðun
þeirra hefur ekki verið tekin
nema að vel athuguðu máli og
með hag fatlaðra, þ.e. notenda-
hóps safnsins, í huga.
Ályktun stjórnar Varðar:
Sjálfstæðisfólk
standi einhuga við
framboð flokksins
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi alyktun fra stjórn Varðar,
Reykjavík:
„Stjórn Landsmálafélagsins Varðar vill beina þeim eindregnu tilmæl-
um til alls sjálfstæðisfólks um land allt að taka ekki þátt í neinum
undirskriftasöfnunum eða áskorunum til einstakra þingmanna eða
frambjóöenda Sjálfstæöisflokksins um sérframboð af einhverju tagi.
Stjórn Varðar vill því hvetja
allt sjálfstæðisfólk til að standa
einhuga og af öllu afli á bak við
framboð flokksins. Ástand þjóð-
mála og þróun á undanförnum
árum eru þess eðlis, að enginn
vafi á að geta ríkt um það meðal
sjálfstæðismanna, að ríkis-
stjórnin hefur alls ekki starfað i
anda Sjálfstæðisflokksins. Þess
vegna eru allar hugsanlegar til-
raunir til sérstakra framboða
með stuðningi sjálfstæð-
ismanna, og sem tengjast hug-
myndum um ágæti núverandi
stjórnarsamstarfs byggðar á
misskilningi sem eindregið verð-
ur að vara fólk við.
Reynslan hefur sýnt svo ekki
verður um villst, að Sjálfstæðis-
flokkurinn er eina trausta kjöl-
festan í íslenskum stjórnmálum,
en slíks afls er mest þörf á ör-
lagatímum eins og nú eru runnir
upp. Samhentur Sjálfstæðis-
flokkur er leiðin út úr krepp-
unni.“
Úr kvikmyndinni Húsiö, Lilja í hlutverki sínu ásamt tveimur börnum.
var verið að vinna við myndina
þegar einn kaflinn kom ekki fram
á sýningu. Þá átti að sýna tilvitn-
un í trúarlega fundi, en tækin
stöðvuðust og kvikmyndin datt út,
en hljóðið hélt áfram. Engin
tæknileg skýring fannst á fyrir-
bærinu og sama varð uppi á ten-
ingnum nokkru síðar í myndinni
þegar einnig var fjallað um trú-
arleg atriði. Kvikmyndagerðin
hefur tekið rúmt ár og heildar-
kostnaður við gerð myndarinnar
er rúmar 4 milljónir króna. Um 60
þúsund áhorfendur þarf til að
endar nái saman.
Húsið — Trúnaðarmál er gerð
eftir handriti Egils Eðvarðssonar,
í upptökusal Aöstöðu og hugmyndar í gær. Frá vinstri: Þórir Baldursson höfundur tónlistar, Jón Þór Hannesson,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Björn Björnsson, einn af höfundum handrits, Jóhann Sigurðarson, annar aöalleikarinn,
Snorri Þórisson, kvikmyndatökumaöur og einn þriggja höfunda handrits, Egill Eðvarðsson, leikstjóri og höfundur handrits,
og Lilja Þórisdóttir, annar aðalleikarinn. Ljósmynd Mbl. Rannnr Axelsson
Snorra Þórissonar og Björns
Björnssonar og framleiðandi er
Saga Film. Leikstjóri er Egill Eð-
varðsson, kvikmyndatökumaður
Snorri Þórisson, leikmyndir gerir
Björn Björnsson og framkvæmda-
stjóri er Jón Þór Hannesson.
Tónlist semur Þórir Baldursson
og aðalhlutverk myndarinnar
leika Lilja Þórisdóttir og Jóhann
Sigurðarson. Auk þeirra koma
margir þekktir leikarar fram í
myndinni, m.a. Helgi Skúlason,
Þóra Borg, Róbert Arnfinnson,
Bríet Héðinsdóttir, Baldvin Hall-
dórsson, Margrét Ólafsdóttir,
Kristín Bjarnadóttir, Árni
Tryggvason, Þórunn Magnea
Magnúsdóttir, Borgar Garðarsson
og fleiri.
Klippingu myndarinnar önnuð-
ust Egill Eðvarðsson og Snorri
Þórisson, hljóðstjórn Sigfús Guð-
mundsson, búninga gerði Dóra
Einarsdóttir og förðun Ragnheið-
ur Harvey. Gunnlaugur Jónasson
útvegaði leikmuni og Þorgeir
Gunnarsson hafði urnsjón með
þeim. Aðstoðarkvikmyndatöku-
maður var Sigmundur Arthúrs-
son, aðstoðarmaður hljóðstjóra
Jón Kjartansson og aðstoðar-
tæknimaður Ágúst Baldursson.
Aðstoðarmaður leikstjóra var
Ingibjörg Briem. Auk þessara
lögðu margir hönd á plóginn t.d.
við gerð leikmyndar, en stór hluti
myndarinnar er tekinn í upptöku-
sal í Reykjavík. Auk þess fóru
upptökur frarn í Keflavík, á Húsa-
vík og síðast en ekki síst í Yínar-
borg. þar sem hluti myndarinnar
gerist. Söguþráður myndarinnar
er bæði dularfullur og spennandi
og vilja framleiðendur ekki rekja
hann frekar en orðið er, heldur
benda tilvonandi bíógestum á að
bregða sér í Háskólabíó og sjá
með eigin augum nýjasta fram-
lagið til íslenskrar kvik-
myndagerðar.