Morgunblaðið - 12.03.1983, Side 34

Morgunblaðið - 12.03.1983, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MARZ 1983 Minning: Steinn Ingvarsson frá Múla í Vestm.eyjum Fæddur 23. október 1892 I)áinn 1. marz 1983 í dag verður jarðsunginn frá Landakirkju í Vestmannaeyjum einn af elstu borgurum Vest- mannaeyjabæjar, tengdafaðir minn, Steinn Ingvarsson, en hann lést í sjúkrahúsi Vestmannaeyja 1. mars sl. eftir erfiða sjúkdómslegu. Steinn fæddist 23. október 1892 að Minna-Hofi á Rangárvöllum. Foreldrar hans voru Sigríður Steinsdóttir ljósmóðir og Ingvar Ólafsson bóndi. Steinn var elstur 10 bræðra, þrír þeirra létust mjög ungir. Á lífi eru þrír bræður, Guð- mundur, verslunarmaður í Vest- mannaeyjum, Magnús, bóndi á Minna-Hofi og Sigurgeir, verslun- armaður á Selfossi. Á unga aldri þurfti Steinn að leita fanga út fyrir sveit sína, eins og mjög var algengt á þessum tíma, möguleikar á vinnu voru mjög takmarkaðir í sveitinni. Hann vann í hinum ýmsu ver- stöðvum sunnanlands, en upp- gangur var mestur við útveginn, m.a. vann hann á vertíðum í Vest- mannaeyjum. Eitthvað hafa Eyj- arnar laðað hann að sér, því 1923 flytur Steinn alfarið búsetu til Eyja. í fyrstu vinnur Steinn við hverskonar störf til lands og sjáv- ar og var eftirsóttur starfskraftur fyrir dugnað og áreiðanleika. I 15 ár vann Steinn hjá einum svipmesta útgerðarmanni Vest- mannaeyja í þá daga, Ársæli Sveinssyni, eða þar til hann var ráðinn til bæjarfélagsins. Árið 1938 var Steinn skipaður framfærslufulltrúi Vestmanna- eyjakaupstaðar og sjúkrahúsráðs- maður frá sama tíma. Þessum störfum gegndi hann allt til ársins 1962, er hann lét af störfum vegna aldurs. Þar að auki gegndi hann fjölda annarra opinberra starfa, m.a. var hann stefnuvottur bæjar- félagsins í 28 ár. Voru störf hans unnin af mikilli trúmennsku og hógværð, enda maðurinn með ein- staka skapgerð og fágaða fram- komu. Samfara þessum störfum hjá bæjarfélaginu vann Steinn hjá Samkomuhúsi Vestmannaeyja í yfir 40 ár eða allt til ársins 1980. Árið 1924 giftist Steinn eftirlif- andi eiginkonu sinni, Þorgerði Vilhjálmsdóttur, sem fædd er og uppalin í Vestmannaeyjum. Þeim hjónum varð 4 barna auðið, dætra er allar lifa föður sinn. Sigríður, gift Sveini Magnússyni, Jóna, gift undirrituðum, Þóra, gift Finnboga Árnasyni og Guðrún, gift Jóhanni ólafssyni. Afkomendur þeirra hjóna eru orðnir margir, barna- börnin 11 og barnabarnabörnin orðin 17. Þau hjónin Gerða og Steinn eignuðust yndislegt heimili og voru vinsæl á meðal bæjarbúa, því ber glögglega vitni hve oft var gestkvæmt á heimili þeirra. Það er oft sagt að hægt sé að ráða í innri mann eftir því hvernig heim- ili hann býr. Ég held að það fari ekki á milli mála, að allur sá fjöldi vina og kunningja, sem heimsóttu Gerðu og Stein reglulega, sé sam- mála um að þar hafi búið samhent og dugandi hjón. Ég gleymi aldrei fyrstu ferð minni til Vestmannaeyja, ungling- ur, aðeins 18 ára gamall. Það var kvíði í mér, sem fljótlega varð ástæðulaus, því um leið og ég var kominn inn fyrir þröskuldinn á Múla var mér tekið eins og syni. Ég hef aldrei kynnst manni sem hafði eins góða skapgerð og Steinn, aldrei heyrði maður for- mælingu af hans vörum, og ef ein- hver vandamál komu upp var hann boðinn og búinn til að leysa þau, hvort sem um var að ræða nákomna eða ekki. Steinn var góður íþróttamaður á yngri árum og var hans uppá- halds íþrótt íslensk glíma. Keppti Steinn á mörgum ungmennafé- lagsmótum og jafnframt sýndi hann þessa fögru íþrótt víða. Steinn hélt mikla tryggð við átt- hagana og leið honum illa ef hann frétti ekki með stuttu millibili, hvernig gengi í sveitinni. Á hverju ári dvöldu þau hjónin í lengri eða skemmri tíma á Hofi og reyndu þau að haga ferðum sínum þannig að dvölin yrði um mesta annatím- ann, þ.e. um sláttinn, til að geta tekið til hendinni. Þá kom það ekki svo sjaldan fyrir að hann skrapp upp á land á haustin og tók þátt í smalamennskunni og rétt- unum. Voru þetta ógleymanlegar stundir og bjó Steinn að þessum ferðum í langan tíma á eftir. Steinn var mikill ljóðaunnandi og kunni mikið af fögrum ljóðum. Mig langar til að birta eitt af uppáhalds ljóðum hans, þvi það má segja að það lýsi vel manngerð hans og jafnvel meira en mörg orð fá lýst. TrúAu á tvennt í heimi, tign sem æAsta ber, kruó í alheims geimi, ffuA í sjálfum þér. Að lokum vil ég senda minni ástkæru tengdamóður og tengda- fólki öllu mínar innilegustu sam- úðarkveðjur um leið og fjölskylda mín þakkar Gerðu og Steini fyrir allar góðu samverustundirnar. „Far þú í friði, friður guðs þig blessi." Hilmar Guðlaugsson Það er nú að síga í hálfa öld síðan kynni okkar Steins heitins á Múla hófust. Þetta er langur tími, og þegar horft er um öxl, hrannast upp í hugann minningar um alveg einstakan mann, mann sem með lífsviðhorfi sínu, góðvild, og elsku- legheitum í daglegum háttum átti alla að vinum. Það er mikið lifslán að komast frá lífinu á þann hátt er Steinn heitinn gerði. En þetta kom ekki af engu. Skaphöfn var með þeim hætti, að hann dró mann að sér. Það var gott að vera í návist hans. Hjartahlýja, vilji til að verða að liði, frómleiki í umtali og færa allt til betri vegar var hans aðalmerki. Og enn var einn þáttur í fari Steins heitins er ekki á að liggja i láginni og það var trúmennskan. Lífshlaup Steins var að nær öllu leyti í Vestmanna- eyjum. Þar var hans starfsvett- vangur, og þar gegndi hann marg- víslegum störfum bæði í þágu ein- staklinga fyrirtækja og hins opinbera, en sama var hvar niður var borið, öll störf vann hann af einstakri trúmennsku og natni. Hann bókstaflega lifði fyrir, að manni fannst, að leysa starf sitt af hendi á þann hátt að ekki mætti að finna. Minnist ég þess marg- sinnis, að manni þótti ekki nóg um nákvæmnina er hann skilaði af sér verki. Allt eins og stafur á bók og orð stóðu. Steinn Ingvarsson fæddist 23. október 1892 að Minna-Hofi á Rangárvöllum, einn 10 bræðra. Heimilið því mannmargt og þarf- irnar að sjálfsögðu miklar. Varð hann því snemma að taka til hendi, sér og sínum til gagns. Verkefnin lágu ekki á lausu í hans heimabyggð. Þá var haldið til Vestmannaeyja. Þar var verk að vinna. Eyjarnar voru I þá tíð í miklum uppgangi, mikið um að vera, og duglegir og kappsfullir menn leituðu þangað til þess að skapa sér betra líf og athafnaþrá sinni útrás, sem oftar en ella var þröngur stakkur skorinn í þétt- setnum sveitum. Um og eftir 1920 var Steinn á vertíð hér í Eyjum, en fluttist hingað alfarið 1923, og bjó hér alla tíð, þar til yfir lauk. Skömmu eftir komuna hingað réðist Steinn til Ársæls heitins Sveinssonar er í þá tíð og að jafnaði síðan, meðan hans naut við, rak hér umfangs- mikla útgerð og fiskverkun. Gerð- ist þar brátt verkstjóri, sem var mikið og vandasamt starf, margt fólk að störfum og að mörgu að hyggja og oft erfitt um vik, þegar mikill fiskur barst að landi, hús- rými takmarkað og starfsfólk aldrei nægilegt í aflahrotum. En aflanum varð að koma í lóg og forða frá skemmdum. Þá var vinnudagurinn oft æði langur, og hart að sér lagt. Þetta lét Steinn heitinn ekki á sig fá, honum var það mest í mun að ekkert færi úr- skeiðis, sem alla jafna tókst og frá löngum verkstjóraferli fór hann með miklum sóma. Árið 1938 réðist hann til starfa hjá Vestmannaeyjabæ, sem ráðs- maður Sjúkrahússins og fátækra- fulltrúi. Þá var kreppa í landi, fjárhagur hjá almenningi og því opinbera mjög bágur. Var ekki úr miklu að spila og vandasamt að gera svo öllum líkaði. Eigi að síður sigldi Steinn frá þessum störfum góðan byr. Kom þar fyrst og fremst til réttsýni hans, umburð- arlyndi og góðvild. Auk þessara starfa sinnti Steinn ýmsum öðrum störfum, m.a. starfaði hann meira og minna við Samkomuhús Vestmannaeyja hf. og það löngu eftir að starfi hans hjá Vestmannaeyjabæ lauk við sjötugsaldurinn. Við Steinn hófum samtímis störf hjá Sam- komuhúsinu og störfuðum þar saman um nokkurt skeið. Á starfsferli mínum við Samkomu- húsið hófust okkar kynni fyrir al- vöru. Ég ætla ekki að lýsa sam- vistum okkar á þeim vettvangi nánar. En vil þó taka fram, að ég var þá ungur að árum, ráðvilltur nokkuð og hafði ef til vill ekki þau tök á starfinu, sem æskilegast hefði verið. Mér var þá oft vandi á höndum og gott að hafa svo góðan dreng sér við hlið sem Steinn svo sannarlega var. Æði oft fór ég í smiðju til Steins og leitaði ráða. Ráð hans og leiðbeiningar voru á þann veg að betra varð ekki á kos- ið og verða seint þökkuð að fullu. í einkalífi sínu var Steinn einkar farsæll og hamingjusamur. Á lokadaginn 11. maí 1924 gekk hann að eiga einhverja þá elsku- legustu konu er ég hefi kynnst, Þorgerði Vilhjálmsdóttur frá Múla í Vestmannaeyjum. Að Múla gerðu þau bú sitt og bjuggu allan sinn búskap. í upphafi voru húsa- kynnin ekki stór, þröngt setinn bekkur, en er árin liðu tókst úr að bæta, og þegar ég fór að venja komur mínar að Múla var þarna heimili er bar vott um fyrirhyggju húsbóndans, smekkvísi og mynd- arskap húsmóðurinnar. Gerða setti metnað sinn í það að búa svo að heimilinu að þar ætti öll fjöl- skyldan öruggt athvarf, og gestum þætti gott að koma og um að ganga. Samlíf þeirra hjóna var með slíkum ágætum að ekki var á betra kosið. Þar sveif yfir vötnum andi svo góður að maður oft á tíð- um fylltist lotningu. í sambúð sinni eignuðust þau fjögur börn, stúlkur, hver annarri mannvæn- legri er reyndust foreldrum sínum með ágætum og hafa sýnt á sinni lífsbraut að þær bjuggu að góðu veganesti úr foreldrahúsum. Barnabörnin og barnabarnabörn- in eru orðin æði mörg. Það var og er því oft æði margmennt að Múla, húsráðendum til mikillar gleði. Glöggt var fylgst með gangi hvers og eins, því að þeirra stærsta gleði var að afkomendunum farnaðist sem allra best. Heimilið að Múla er heimur út af fyrir sig. Þar var svo gott að koma, og þar leið manni alltaf vel. Ég og fjölskylda mín vorum þar heimilisvinir. Alltaf er mann bar að garði, var þar fyrir giaðværð, gestrisni og umfram allt alúð og umhyggja, er þau hjónin voru svo samhent í að sýna af sinni eðlis- lægu hógværð og góðvilja. Margra góðra stunda naut maður á heim- ili þessara heiðurshjóna, stunda er seint fyrnast, og ég og fjölskylda mín munum alltaf minnast með miklu þakklæti. Nú þegar Steinn vinur minn er allur, er mér efst í huga þakklæti, fyrir að hafa átt þess kost að kynnast og vera samvistum við svo góðan dreng. Gerða mín, ég og mitt fólk send- um þér og þínu skylduliði öllu, okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum ykkur blessunar um ókomin ár. Björn Guðmundsson Vestmannaeyjum. + Systir okkar, KRISTÍN VALDIMARSDÓTTIR, Birkiteig 16, Keflavík, lést í Sjúkrahúsi Keflavikur föstudaginn 11. marz. Kolbrún Valdimarsdóttir, Jón A. Valdimarsson. t Litla dóttir okkar og systir, AUDUR GYLFADÓTTIR, lést á Gentofte-sjúkrahúsinu í Danmörku þann 27. febrúar. Útförin hefur farlð fram. Gylfi Gunnlaugsson, Ragnhildur Hannesdóttir, Sigrún Gylfadóttir. + Hinn 9. mars sl. lést i Kaupmannahöfn, SKJÖLDUR HLÍÐAR. Vandamenn. + Faöir okkar, BJÖRN HELGASON frá Lssk, Skagaströnd, andaðist í Sjúkrahúsinu á Blönduósi 11. marz. Jarðarförin auglýst síðar. Guörún M. Björnsdóttir, Helgi Ó. Björnsson. Faðir okkar. + TEITUR GUDMUNDSSON, málarameistari, Lindargötu 29, lést 20. febrúar. Jaröarförin hefur farið fram, þökkum auösýnda samúð. Kristín Teitsdóttir, Guömundur Teitsson. + Móöir mín, KRISTJANA GUOJÓNSDÓTTIR frá Patreksfiröi, Hjallavegi 2, Reykjavík, verður jarðsungin mánudaginn 14. mars, kl. 13.30, frá Fossvogs- kapellu. Blóm afþökkuö, en þeir sem vilja minnast hennar er vinsamleaa bent á Patreksfjaröarsöfnun, gírónr. 170070. Þórir Magnússon. + Eiginkona min, móöir okkar, tengdamóöir og amma, GUDNÝ JÓNA JÓNSDÓTTIR, lést þann 3. mars. Útförin hefur fariö fram aö ósk hinnar látnu. Siguröur L. Ólafsson, Sigríöur H. Siguröardóttir, Einar B. Sigurösson, Guörún Siguröardóttir, Skúli Jóhannesson, Guöný R. SiguröardðMi- Líndís L. Siguröardóttir. Sigurþór L. Sigurösson, Sólrún Siguröardóttir, Ásrún Siguröardóttir, Siguröur H. Sigurösson, Guömundur Sigurösson, Jón Þór Sigurösson, Sigurjón Ólafsson, Halldór Bjarnason, Jakobina Jónsdóttir, Guömundur Gíslason, Guömundur Friöriksson, Guörún Sigurðardóttir, Sólrún Sævarsdóttir, og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.