Morgunblaðið - 12.03.1983, Side 45

Morgunblaðið - 12.03.1983, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MARZ 1983 45 H M « JJ VtLVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS lU'i/MUiavi-UM-V Lf Dönskukennsluþættirnir: Reynt er að sýna danskt mannlíf eins og það er Sæbjörg Richardsdóttir skrifar: „Kæri RH3. Ég veit ekki af hverju ég er að svara hinu undarlega og svartsýna bréfi þínu sem birtist í Velvak- anda þann 5. mars 1983. E.t.v. hef ég einhverja dulda þörf í mér að mótmæla þegar verið er að dæma, að því er mér virðist, heila þjóð fyrir afglöp einstakra manna. Líkt og að Þjóðverjar eru af mörgum dæmdir frekir, drottnunargjarnir og annað slíkt, en það er allt ann- að mál. Fyrst nefnir þú óhóflega drykkju. Ég hef aldrei horft á mann verða fullan í þessum þátt- um. Þar er okkur íslendingum sýnt að hægt er að opna vínflösku án þess að klára úr henni. Þar gæti landinn lært sitt af hverju. í öðru lagi ber okkur íslending- um að varast að kalla önnur tungumál hrognamál. Öllum þykir okkur vænt um okkar mál og þá ekki síður Dönum um dönskuna en okkur um íslenskuna. Kæri RH3. Þá er það þriðja at- riðið. Ef þú skoðar ferðabæklinga um tsland, þá er landið oft teiknað sem eitt stórt eldfjall, nokkrum laxveiðiám og fossum bætt í kring og er þetta oft eina vitneskja út- lendinga um landið. Nokkrir vita þó af sauðfjárrækt og fiskveiðum Islendinga. Það er því skiljanlegt að útlendingur sem aldrei hefur komið hingað hafi þessa hugmynd um tsland. Við höfum sjálf skapað hana. Hin setningin sem skrifuð er á dönsku kemur eins og skrattinn úr sauðarleggnum og er ekki meiri móðgun við okkur en fyrir Dani að skrifað er í einu mest lesna dag- blaði okkar (85,01% íbúa höfuð- borgarsvæðisins lesa það) að danska sé hrognamál. Það skal tekið fram að hvort tveggja ber nokkurn vott um fáfræði. Þá vil ég einnig benda á að ís- lendingar voru ekki sveltir þrátt fyrir einokunina, heldur svalt þjóðin vegna fáfræði sinnar um hvað væri hægt að éta og hvað ekki. Eins og við segjum í dag, kæri RH, er fleira matur en feitt kjöt. Þá skal hér einnig bent á að einokun var líka á sama tíma í Danmörku og hér á landi. Mér finnst líka skrítið hversu lítið álit þú hefur á eigin þjóð. Það er e.t.v. fengin reynsla þín. Að lokum vil ég þakka fyrir góða dönskukennslu í ríkisfjöl- miðlunum, þar sem reynt er að sýna danskt mannlíf eins og það er, en ekki eins og það lítur út í ferðamannabæklingum. Með vinsemd." Bróðir, líttu þér nær Furðulegt skilningsleysi Rll 3 skrifar: „Agieti Velvakandi. Hér i þessu bréfi langar mig til að drepa á tvennt af sjónvarpsefn- inu sem saerir þjóöernisvitund mina og siógæðisvitund. í fyrra lagi dönskukennsluþaettirnir ura Hildi. Margir hafa látiö I Ijóa skiptar skoöanir á þeasura þáttum, t.a.m. aö þeir þjóni engum tilgangi og i þeim sé sýnd óhófleg dr>'kkja r3g tek ekki afstööu i þvi ináli. Ilins vegar finnst mér oþolandi, að þessi „þjóö" sem gaf þessa þætti hingaó til þcss nö kenna betur hrognamál sitt. skuli leyfa sér aö móög.t Jsland og tslendinga meö filabrondurum, sem smeygt er inn i þ.eitina hér og þar (til dæmis M'tningar sagöar af Dönum: pá Is- land er der kun fár og vulkaner, islandsk er noget volapyk o.s.frv.), og eru hreinasta móögun. Kr ekki nóg aö þessi þjóö sem geröi tslandssöguna aö slikri harmsögu, svelti okkur I nær 500 okkur tslendingum. knröulegl skilningsleysi að skilja eV k» iö enr eru morg ógróin sár ef* : . helv danskinn" eins og m.r .i* oröa þaö aö segiaer væri brenndur á Rádhuspladsen, I þvf ég fæ ekki séö aö nokkur annar I hafi lyft penna út af þessu alvar-1 lega máli. öskandi væri aö Danir gætu 1 sýnt aö þeir væru menn en ekki mýa, ef þeir skyldu reyna að pranga inn á tslendinga tungu- málakennslu aftur, — og þá móög- analaust. Hins vegar langar mig aö spyrja, hversu lengi sjónvarpiö ætlar aö sjokkera mig og fleiri fyrir framan kassann þegar Iföur að þvf aö fólk þurfi að borga af- notagjöldin. Dillibossaauglýsingin fræga er næstum þvi virðuleg miðað viö þessa sem nú rúllar. Sjónvarpið ætti aö sjá aö þessar innheimtuauglýsingar eru barna- legar, niöurlægjandi fyrir RUV og hljóta aö kosta meira en svo, aö þaö borgi sig að „skandalfsera*' þannig f hvert skipti sem RUV vill fá aurana sina. Þvi tel ég (og reyndar margir fleiri) aö RUV bæri að láta nú nóg komiö af svo góöu. Þetta er óþolandi þjóöar- Opið bréf til RH3 „Vegna greinar RH3, sem birtist í Velvakanda 5. mars undir fyrirsögninni „Furðulegt skilningsleysi", lýsum við furðu okkar yfir því furðulega skiln- ingsleysi og fordómum, sem RH3 virðist haldinn. í fyrsta lagi: Hvað meinar RH3, þegar hann/ hún talar um „þjóð“? í öðru lagi: RH3 talar um „fílabrandara sem smeygt er inn í þættina hér og þar“, t.d. að íslenska sé „volapyk", og telur RH3 það hreinustu móðgun. En ef RH3 er svo hörundsár: Hvers vegna talar hann/ hún þá um dönsku sem „hrognamál"? Þessu næst fer RH3 að tala um íslandssöguna, þessa harm- sögu, er Danir sveltu okkur í 500 ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á i miðviku- dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hlið- stætt með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu til- efni, að frumort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. ár, og segir hann/ hún, að enn séu mörg sár ógróin. Okkur langar til að spyrja: Hvar eru þessi ógrónu sár? Og hvað mein- ar þú, RH3, þegar þú talar um „helv. danskinn"? Við teljum okkur hafa það eft- ir áreiðanlegum heimildum, að þeir Danir, sem sveltu íslend- inga, séu löngu farnir til feðra sinna og teljum því óhæft að vera að erfa nokkurn hlut við núlifandi Dani. Bróðir, líttu þér nær. Við viljum svona í lokin gjarna nota tækifærið og þakka góðan.skemmtilegan og lær- dómsríkan þátt sem Hildur er. Þökk þeim er að honum stóðu. Reykjavík, 8. mars ’83. Gunnhildur Sæmundsdóttir, Lone Hedtoft, Jón Ottar Karlsson, Margrét Hákonardóttir." GÆTUM TUNGUNNAR Sést hefur: Þeir líta á hvorn annan sem bræður og finnst þeir hafa frjálsan aðgang að eigum hvors annars. Réttara væri: Þeir líta hvor á annan sem bróður, og þeim finnst þeir hafa frjálsan aðgang hvor að annars eigum. OG EFMISMEIRA BLAÐ! RAUSN OG RISNA SKAL MYNDIN HEITA — Rætt viö Lóu Kristjánsdóttur. ÁSTRALÍA MAÐURINN SEM GEKK AÐ EIGA 105 KONUR SPENNAN í HÁMARKI OG DAUÐINN Á BEYGJUNNI — Grand Prix kappaksturinn ÓÞEKKT DÝR í SJÓ OG VÖTNUM LANDSINS LANA TURNER — Kvikmyndastjarnan fræga COVENT GARDEN HELMUT KOHL — Svipmynd á sunnudegi MISSING Um kvikmyndina KARL MARX POTTARÍM — VERÖLD — Á FÖRNUM VEGI — REYKJAVÍKURBRÉF — VELVAKANDI — DAG- BÓK — GÁRUR Sunnudagurinn byrjar á síðum Moggans

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.