Morgunblaðið - 12.03.1983, Side 48
Ruslastampar
fyrir bæjarfélög &
fyrirtæki.
aJrta, 85005
StÐUMULA 27
inuiiiö trúlofunarhri nga
litmvndalistann ffflb
<@uU Sc ásnlfttr
Laugavegi 35
LAUGARDAGUR 12. MARZ 1983
Flugleidir taka
tvær DC-8 á leigu
FLUGLEIÐIR hafa gengiö frá samningum um leigu á tveimur DC-8-63
þotum frá handaríska flugfélaginu World Airways, en fyrri vélin verður
afhent innan skamms og fer þegar inn í áætlun í Norður-Atlantshafsflugi
félagsins. Síðari vélin kemur síðan inn í áætlun í júní.
Vélarnar eru sömu gerðar og
þær DC-8-63 þotur, sem Flugleiðir
eiga og hafa verið með í rekstri
undanfarin ár.
Flugleiðir verða með þrjár DC-
8-63 þotur í Norður-Atlantshafs-
fluginu í sumar, en félagið verður
með 16 ferðir í viku yfir hafið í
sumar, þ.e. 8 ferðir til New York, 6
ferðir til Chicago og 2 ferðir til
Baltimore. Til samanburðar má
geta þess, að þegar bezt lét hjá
félaginu á árum áður voru farnar
18 ferðir í viku yfir hafið.
Ferðatíðnin til New York er sú
sama og í fyrra, en tímabilið hefur
verið lengt og framboð því aukið.
Ferðatíðnin hefur verið aukin
verulega til Chicago og Balti-
more-flug kemur inn að nýju, eftir
að það var fellt niður á erfiðleika-
tímum félagsins 1980.
Verölagning sveitarfélaga:
Alþingi vill ekki
leyfa frjálsa verð-
lagningu á þjónustu
NEÐRI deild felldi í gær, að við-
höfðu nafnakalli, að undanskilja þá
þjónustu sveitarfélga, sem greidd er
niður með beinum framlögum úr
sveitarsjóði, afskiptum verðlagsyf-
irvalda, með 21 atkvæði gegn 18, 1
sat hjá. Frumvarp þetta er flutt af
átta þingmönnum Sjálfstæðisflokks
(1. flutningsmaður Friðrik Sophus-
son).
Það tengist deilum milli borgar-
stjórnar Reykjavíkur og verðlags-
stjóra, varðandi fargjöld SVR.
Frumvarpið er rökstutt með því
að sveitarstjórnarmenn eigi að
ráða verðlagningu þjónustu hjá
stofnunum, sem sveitarfélög eiga
og bera rekstrarlega ábyrgð á. Það
sé ekki hlutverk verðlagsyfirvalda
að ákvarða niðurgreiðslur úr
sveitarsjóðum með þjónustu sveit-
arfélaga, heldur kjörinna fulltrúa
í sveitarstjórnum. Talsmenn
frumvarpsins töldu það „prins-
ippmál" og varðstöðu um sjálf-
stæði og sjálfsákvörðunarrétt
sveitarfélaga.
Með frumvarpinu greiddu at-
kvæði allir þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins í neðri deild, nema Frið-
jón Þórðarson og Pálmi Jónsson
sem greiddu mótatkvæði. Guð-
mundur G. Þórarinsson (F), Jón
Baldvin Hannibalsson (A), Magn-
ús H. Magnússon (A) og Sighvatur
Björgvinsson (A).
Gegn frumvarpinu greiddu at-
kvæði allir þingmenn Alþýðu-
bandaiags, allir þingmenn Fram-
sóknarflokks, nema Guðmundur
G. Þórarinsson og Jóhann Ein-
varðsson sem sat hjá, Vilmundur
Gylfason (BJ), Karvel Pálmason
(A), Friðjón Þórðarson (S) og
Pálmi Jónsson (S).
Vörubílstjórar mótmæltu „krónuskattinum“ við Alþingi í gær. Óku þeir í hersingu að Alþingishúsinu og lögðu
síðan bílum sínum við götur umhverfis Alþingi og þeyttu flauturnar. Að þessu loknu gengu þeir á áhorfenda-
palla.
Sjálfstæðismenn leggjast gegn nýja veggjaldinu:
Vörubflstjórar mót-
mæla við þinghúsið
BIFREIÐASTJÓRAR á vöruflutn-
ingabifreiðum fjölmenntu á bflum
sínum við Alþingishúsið til þess að
mótmæla nýjum skatti fjármála-
ráðherra á bifreiðir, svokölluðum
„krónuskatti“ fyrir hvert kg, sem
bifreið vegur. Varð mikið öngþveiti
í miðborginni umhverfis Alþingis-
húsið meðan á mótmælum
bifreiðastjóranna stóð. Einnig fjöl-
menntu þeir á þingpöllum.
%
Inni í þinghúsinu lögðust full-
trúar Sjálfstæðisflokksins í fjár-
hags- og viðskiptanefnd neðri
deildar, Matthías Á. Mathiesen,
Matthías Bjarnason og Albert
Guðmundsson, gegn frumvarpi
fjármálaráöherra um enn einn
skattinn á umferðina, veggjald,
sem miðast við þunga bifreiðar.
Þeir bentu á að þungaskattur hafi
vcrið felldur niður 1974 en í þess
stað tekið upp benzíngjald, þann
veg að skattlagning miðist við
notkun en ekki þunga bifreiðar.
Ríkisstjórnin hafi síðan dregið til
sín, frá Vegasjóði, tekjur af um-
ferðinni og þann veg rýrt tekjur
ríkissjóðs og jafnframt skorið
niður fjárlagaframlög til vegagerð-
ar. Nú eigi síðan að bæta við enn
einum skattinum.
Til vara flytja þeir breyt-
ingartillögu, þess efnis að „und-
anþegin gjaldinu séu ökutæki,
sem skráð eru í eigu manna sem
náð hafa 67 ára aldri fyrir upp-
haf gjaldárs og manna, sem
njóta örorkulífeyris, samkvæmt
lögum um almennar trygging-
ar“. Þá flytja Árni Gunnarsson
(A) og Jón Baldvin Hannibals-
son (A) breytingartillögu þess
efnis, að lögin gildi aðeins í eitt
ár, en þingmenn Alþýðuflokks
hafa ekki lagzt gegn skattinum.
Harðar deilur á Alþingi um framgang þingmála:
Lifur fyrir 1,2
milljónir til
Tékkóslóvakíu
UTFLYTJENDUR á ýmsum ís-
lenzkum afurðum voru fyrir
nokkru í Tékkóslóvakíu. Meðal
annars var gengið frá sölu á niður-
soðinni lifur í þessari söluferð og
sagði Eyþór Olafsson, sölustjóri
SL, að góður árangur hefði náðst í
þessari ferð. Auk lagmetis var sam-
ið um sölu á ostum, lýsi og frystri
sfld í ferðinni.
Eyþór sagði, að samið hefði
verið um sölu á 200 þúsund dós-
um af niðursoðinni þorsklifur að
andvirði um 60 þúsund dollara
eða sem nemur rösklega 1,2
milljónum króna. Lifrin er niður-
soðin í Vestmannaeyjum og sagð-
ist Eyþór áætla að framleiðsla
fyrirtækisins í ár yrði í kringum
eina milljón dósa. Hann sagði, að
eftirspurnin væri meiri en fram-
boðið og vaxandi, og því fengju
færri en vildu. Mest af lifrinni er
selt til Sovétríkjanna og Kanada
auk Tékkóslóvakíu.
Svavar og Steingrímiir óska hvor
öðrum heilla í nýjum meirihluta
— Forseti sameinaðs þings sagður
hafa misbeitt valdi sínu
MIKLAR deilur uróu á Alþingi í gær um tvö ágreiningsmál, sem bæði eru talin
geta valdið stjórnarslitum og voru deilurnar ekki síst á milli framsóknarmanna
og alþýðubandalagsmanna. Annarsvegar var deilt um þingsályktunartillögu
um samkomudag Alþingis að kosningum loknum og hins vegar um þá ákvörð-
un Jóns Helgasonar, forseta sameinaðs Alþingis, að láta halda áfram umræð-
um um skipan álviðræðunefndar, sem felur í sér að „álmálið“ svokallaða er
tekið úr höndum iðnaðarráðherra. Jón ákvað að fresta ekki fundi í sameinuðu
þingi, en það höfðu formenn þingflokka Sjálfstæöisflokks, Alþýðubandalags og
Alþýðuflokks farið fram á á fundi með forsetum deilda Alþingis, í því skyni að
koma frá efri deild tillögunni um samkomudag Alþingis. Um síðir náðist þó
það samkomulag, að gera hlé á fundi sameinaös þings klukkan 22.00 og láta þá
fara fram fundi í deildum og var tillagan þá samþykkt með 12 atkvæðum gegn
6 að viðhöfðu nafnakalli í efri deild. Að því loknu var haldið áfram umræðum
um álviðræðunefndina.
í deildum þingsins urðu fyrri-
partinn í gær deilur um samkomu-
dag Alþingis. Tillagan felur það í
sér að þing verði kallað saman eigi
síðar en 18 dögum eftir alþingis-
kosningar. { umræðum um tillög-
una mæltu framsóknarmenn hart
gegn samþykkt hennar, og sagði
Olafur Jóhannesson, að það væri
„alveg sjálfsagt að núverandi ríkis-
stjórn segði af sér, þegar að lokn-
um alþingiskosningum". Stein-
grímur Hermannsson óskaði Svav-
ari Gestssyni til hamingju með
hinn nýja meirihluta sem skapast
hefði á Alþingi um þetta mál, þ.e.
meirihluta Sjálfstæðisflokks, Al-
þýðubandalags og Alþýðuflokks.
Svavar sagði aftur á móti að óskir
Steingríms væru út í hött og gæti
hann allt eins óskað Steingrími til
hamingju með „hinn nýja ál-
meirihluta sem myndast hefur hér
í þinginu". Matthías Bjarnason vís-
aði á bug hugmyndum um nýjan
meirihluta á Alþingi og sagði að
einungis væri samstaða um fram-
gang tillögunnar um samkomudag
Alþingis að loknum kosningum.
Síðari hluta dagsins var forseti
sameinaðs Alþingis, Jón Helgason,
harðlega gagnrýndur fyrir þá
ákvörðun sína að fallast ekki á
frestun fundar í sameinuðu þingi,
til þess að koma á fundi í deildum,
en tilgangurinn með því var að af-
greiða frá efri deild tillögu um
samkomudag Alþingis. Kom fram í
umræðum um þetta mál að for-
menn þriggja þingflokka, Sjálf-
stæðisflokks, Alþýðubandalags og
Alþýðuflokks, hefðu óskað eftir því
að svo yrði. Framsóknarmenn
hefðu hins vegar verið því mót-
fallnir. Hefðu þingflokksformenn
talið að þetta fyrirkomulag myndi
greiða fyrir þingstörfum, en óvíst
væri um það, næðist ekki sam-
komulag um málið. Leiddi Ólafur
Ragnar Grímsson, formaður þing-
flokks Alþýðubandalagsins að því
getum, að forystumenn Framsókn-
arflokksins hefðu lagst á Jón
Helgason með þessum hætti, og
fengið hann til að misbeita forseta-
valdi sínu. Slíkt væri ljótur leikur.
Jón Helgason kvað þetta ekki
ástæðuna, heldur hitt, að fundir
sameinaðs þings hefðu mjög vikið
fyrir deildafundum undanfarið.
Ólafur G. Einarsson, formaður
þingflokks Sjálfstæðisflokksins,
lýsti vonbrigðum sínum með niður-
stöðu forseta sameinaðs þings og
sagði að afstaða Framsóknar-
flokksins í máli þessu leiddi til þess
að menn lentu í vandræðum með
þinghaldið á mánudag.
f gærkveldi náðist samkomulag,
eins og áður gat, og eftir deildar-
fundi hélt fundur í sameinuðu
þingi áfram og stóð hann fram á
nótt.
Sjá þingsíðu.