Morgunblaðið - 16.03.1983, Side 1

Morgunblaðið - 16.03.1983, Side 1
80 SÍÐUR 62. tbl. 70. árg. MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins Hægri sigur í Finnlandi? Frá Flenry Granberg í Helsingfors. HÆGRI menn munu vinna mikið á í þingkosningunum í Finnlandi á sunnudaginn og mánudaginn ef trúa má skoðanakönnunum. Styrkleiki þeirra og jafnaðarmanna er svipaður, og þeir munu heyja tvísýnt einvígi, sem gæti orðið til þess að flokkur hægri manna yrði stærsti stjórnmálaflokkurinn. Smáflokkarnir í miðju, fólkdemókrat- ar (kommúnistar) og jafnaðarmenn munu tapa fylgi. Kosningarnar geta orðið upp- reisn gegn þeirri miðvinstri- Fékk austur- evrópskan kafbát í vörpuna kaupmannahöfn, 15. marz. AP. VESTUR-þýzki togarinn „Ger- traud“ fékk sovézkan eða pólskan kafbát í vörpuna um 15 mílur suður af Borgundar- hólmi í dag. Skipstjórinn kall- aði á hjálp í ofboði þegar herskip austantjaldsríkja um- kringdu togarann að sögn danska sjóhersins. Danskur þyrluflugmaður sá kafbát af „Whisky“-gerð, sem eru aðeins í eigu Rússa og Pólverja, flækjast í vörp- unni. Áhöfninni var skipað upp á dekk og henni tókst að losa kafbátinn úr vörpunni eftir um það bil hálftíma. Danskur togari fékk kaf- bát í vörpuna á svipuðum slóðum á laugardaginn, en sá var danskur. Pólskt varðskip reyndi í dag að taka fiskibátinn „Er- ika West“ frá Rönne á Borg- undarhólmi fyrir meintar ólöglegar veiðar. Skipstjór- inn kvaðst vera í sænskri landhelgi. Annað hvort hefur skip- stjórinn dáleitt Pólverjana með syngjandi borgundar- hólmsku eða að Pólverjarnir hafa óttazt sænska þyrlu, sem kom á vettvang. Þeir gáfust upp og leyfðu skipinu að sigla sinn sjó. Þokast nær samkomulagi Washington, 15. marz. AP. YITZHAK SIIAMIK, utanríkisráð- herra ísraels, sagði í dag að samkomulag um brottflutning ísra- elska herliðsins frá l.íbanon hefði „færzt nær“ eftir 12 tíma viðræður við George Schultz utanríkisráðherra. Hann sagði að „nokkrar nýjar hugmyndir hefðu komið fram“ og þær yrðu athugaðar þegar hann kæmi heim. Elie Salem, utanríkis- ráðherra Líbanons, talaði einnig um „nýjar hugmyndir" á fundum með Schultz. En báðir töluðu um ágreining um öryggisgæzlu í Suð- ur-Líbanon. stefnu og því stjórnarmynztri, sem hefur verið við lýði síðasta áratug. Einingarflokkur hægri- manna mun safna til sín óánægjufylgi, sem hefur venju- lega farið til Dreifbýlisflokks Veikko Vennamos. Þetta eru fyrstu þingkosn- ingarnar síðan Urho Kekkonen lézt og jafnaðarmaðurinn Mauno Koivisto var kjörinn eft- irmaður hans. „Græningjar" bjóða fram í fyrsta skipti. Koiv- isto fékk fylgi úr öllum flokkum og sigur hans var talinn mót- mæli gegn hinum langa valda- tíma Kekkonens. Skoðanakannanirnar sýna að jafnaðarmenn munu fá 26,5% og bæta við sig 1% miðað við þing- kosningarnar 1979, en tapa miklu fylgi síðan Koivisto var kjörinn forseti með 43,1%. Hægri menn munu auka fylgi sitt úr 21,7% í 26%. Staða ann- arra flokka er sem hér segir: Miðflokkurinn 17,9 (17,3), Fólkdemókratar (kommúnistar) 15.2 (17,9), Sænski þjóðarflokk- urinn 4,5 (4,5), Frjálslyndir (sem hafa sameinazt Miðflokknum) 1.2 (3,7), Dreifbýlisflokkurinn 4,6 (4,6), Kristilegir 2,9 (4,8), Stjórnarskrárflokkurinn 0,0 (1,2), aðrir 1,2 (0,4). Dreifbýlisflokkurinn hefur aukið fylgi sitt úr 2,7% síðan í janúar. Kasparov vann Moskvu, 15. marz. AP. GARRI KASPAROV sigraði Alex- ander Belyavsky í 8. einvígisskák- inni og er með 5 v. Kasparov sigraði i 47. leik, Bely- avsky hafði hvítt. Níunda skákin verður tefld á fimmtudag. Inngangurinn að aðalstöðvum bandaríska sjóhersins eftir sprenginguna í gær. Sprengja til Thatchers London, 15. marz. AP. BRÉFSPRENGJA til Margaret Thatchers forsætisráðherra var gerð óvirk í dag, nokkrum klukkustundum eftir að bréfsprengja til aðalstöðva bandaríska sjóhersins sprakk og undirforingi særðist lítilsháttar. Sérfræðingar kanna hvort þetta er sams konar sprengja og aðrar sem sprungið hafa í Bretlandi á síðustu mánuðum. Frú Thatcher fékk síðast bréfsprengju 30. nóvember frá dýravinum. Sprengja var gerð óvirk í bandaríska sendiráðinu í febrúar. I janúar voru sams konar sprengjur sendar sovézka sendiráðinu og skrifstofum sovézks vikublaðs, Aeroflot og Intourist. Lögreglan efast um að sprengjurnar hafi komið frá Varnarsambandi Gyðinga eins og haldið hefur verið fram. Stjórn Thatchers boðar skattalækkun London, 15. marz. AP. SIR GEOFFREY HOWE, fjármálaráðherra Breta, boðaði í dag „verulega" lækkun á sköttum fyrirtækja og einstaklinga til þess að ýta undir efnahags- bata í Bretlandi, en hækkaði skatta á áfengi, vindlingum og benzíni. Þetta kom fram í fimmta fjárlagafrumvarpi hans, e.t.v. hinu síðasta fyrir kosn- ingar. Howe sagði að skattalækkanirn- ar næmu 1,5 milljörðum punda og miðuðu að því að auka efnahags- bata, sem grundvöllur hefði verið lagður að. Tekjumörk hækka um 14% og skattlagning hefst við tekjur að upphæð 15.490 pund. Frádráttarbærar tekjur ein- hleypra hækka úr 1.565 pundum í 1.785 pund og hjóna úr 2.445 pund- um í 2.795 pund. Verð á vindlingapakka hækkar um 3 pens, skattur á einu galloni af'benzíni um 4 pens og bifreiða- Annað olíuverðstríð eftir lækkun Rússa? New York, 15. marz. AP. LÍKUR á nýju olíuverðstríði jukust í dag þegar þær fréttir bárust að Rússar hefðu lækkað verð sitt á olíu í 28 dollara í kjölfar ákvörðunar OPEC um 29 dollara viðmiðunarverð. Rússar lækkuðu verðið úr 29,25 dollurum og lækkunin er miðuð við 1. marz sl. Rússar framleiða rúmlega 12 milljón tunnur á dag og eru mestu olíuframleiðendur heims. Mexíkanar hafa tilkynnt að þeir muni lækka verð sitt í 29 dollara tunnuna, en hingað til hafa þeir selt tunnuna á 32,50 dollara. Áður en verðlækkun OPEC var ákveðin seldu flest olíusöluríki tunnuna á 29—30 dollara og á skyndimarkaði fór verðið niður í 27,50 dollara. Bandarískir sérfræðingar segja að OPEC-lækkunin muni ekki lækka benzínverð í Bandaríkjun- um. Ef lækkunin dregur úr offramboði má vera að benzín hætti að lækka í verði og fari að hækka aftur í haust. Ahmed Yamani, olíuráðherra Saudi-Arabíu, spáir því að verð á olíu fari að hækka aftur eftir hálf- an mánuð. Fjármálaráðherra Bandaríkj- anna, Donald T. Regan, fagnaði verðlækkun OPEC og kvað hana „góðar fréttir fyrir Bandaríkin og efnahagslífið í heiminum“. Hann spáði þvi einnig að lækkunin mundi ýta undir efnahagsbatann í heiminum. Nokkur blöð í Persaflóaríkjum kalla lækkunina sigur vestrænna ríkja og efnahagslegan ósigur arabískra olíusöluríkja. Tass sagði að Bandaríkjamenn vildu upp- lausn OPEC og lét í ljós vonbrigði með lækkunina. skattur um 5 pund í 85 pund. Viskýflaska, sem kostar 7,30 pund, hækkar um 25 pens, flaska af léttu víni, sem kostar 2 pund, hækkar um 5 pens og hálflítri af bjór hækkar um 1 pens. Howe hét olíuiðnaðinum 800 milljóna punda aðstoð næstu fjög- ur ár við olíuleit í Norðursjó. Skattur af hagnaði fyrirtækja í iðnaði verður 52% eins og áður. Skattur smáfyrirtækja, þar sem skattskyldur hagnaður er innan við 90.000 pund, verður lækkaður um 38%. Howe sagði að engin breyting yrði á þeirri stefnu að skera niður útgjöld stjórnarinnar hvar sem því yrði við komið til að draga úr verðbólgu. Hann sagði að svipaðar ráðstafanir Ronald Reagans for- seta í Bandaríkjunum væru lífs- nauðsynlegar til þess að rétta við efnahag Vesturlanda. „Margt bendir til þess að farið sé að draga úr mestu vandamálun- um í efnahagslífi heimsins," sagði hann. „Olíuverðið hefur lækkað. Þess sjást enn greinilega merki að heimurinn er að venja sig af verð- bólguhugsunarhætti síðásta ára- tugar.“ Áður hafði brezka viðskipta- ráðuneytið tilkynnt að iðnfram- leiðsla Breta hefði aukizt um 0,2% og hefði ekki verið meiri síðan í ágúst 1980. Jafnframt boðuðu fjórir stærstu bankar Bretlands lækkun vaxta í 10V4% úr 11%. Lækkunin mun ásamt lækkun olíuverðs treysta stöðu iðnaðarins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.