Morgunblaðið - 16.03.1983, Blaðsíða 48
^^^skriftar-
síminn er 83033
MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1983
Demantur 4®
æöstur eðalsteina -
<8HtU & áMlfur
Laugavegi 35
Um 40 togarar
moka upp blá-
löngu við Surtsey
MIKILL fjöldi togara hefur síðustu daga verið á blálönguveiðum 1 grennd
við Surtsey. Hafa þama verið um 40 togarar þegar flest var samkvæmt
upplýsingum, sem Mbl. fékk í gær, og flestir þeirra á mjög litlu svæði. Lætur
nærri að þarna hafi verið hátt í helmingur togaraflotans og afli verið góður.
Sjómaður, sem blaðið hafði tal
af í gær, sagði að það kæmi ekki
til af góðu, að menn sæktu í blá-
lönguna þarna. Undanfarið hefði
lítið sem ekkert verið að hafa af
öðrum fiski og þegar frétzt hefði
um góða veiði þarna hefðu margir
valið þann kost að halda á þessa
slóð.
Fyrir kíló af blálöngu eru
greiddar 6,14 krónur að viðbættri
kassauppbót. Fyrir stórýsu eru
greiddar 7,32 kr., fyrir stórþorsk
9,50 kr., en hins vegar ekki nema
5,16 kr., fyrir kíló af stórufsa að
viðbættri kassauppbót. Sjómenn
geta því fengið ágætan hlut á blá-
löngunni þegar vel aflast eins og
síðustu daga.
Hins vegar eru frystihúsamenn
ekki eins ánægðir. Blálangan er
yfirleitt flökuð fyrir Rússlands-
markað eða blokkaframleiðslu þar
sem ekkert er lánað vegna skreið-
arframleiðslu, en blálangan hefur
yfirleitt verið hengd upp. Nú eru
skreiðarmarkaðir hins vegar lok-
aðir og því fer aflinn í frystingu.
Munu einhver frystihús hafa
takmarkað blálönguaflann, sem
þau taka á móti, og líklegt er að
einhver skip selji aflann í Þýzka-
landi.
Boeing 737-flugvél Arnarflugs.
Afstýrðu Arnar-
flugsmenn árekstri
við herflugvél?
„ÞOTUNNI var óvænt og fyrirvaralaust steypt krappt og snögglega á
hægri vænginn og svipt til hliðar. Og næstum í sömu andrá sást til stórrar
herflugvélar rétt hjá þotunni í sömu hæð,“ sögðu farþegar, sem komu
með þotu Arnarflugs frá Amsterdam í gær í samtali við Morgunblaðið, en
eftir því sem næst verður komist var nálægð Orion-flugvélar frá varnar-
liðinu og þotunnar það mikil að ftugmennirnir gripu til sinna ráða til að
afstýra áreksturshættu. Að sögn starfsmanns í flugturninum á Keflavík-
urflugvelti hefðu flugvélarnar átt að sjást á ratsjám í turninum þegar
atvikið átti sér stað.
Atvikið átti sér stað suður af
landinu klukkan 13:15, og voru
flugvélarnar þá ofar skýjum, að
sögn farþeganna. Arnarflugs-
þotan lenti síðan í Keflavík
klukkan 13:34. Þar gerði Mekk-
ínó Mekkínósson flugstjóri
skýrslu um atvikið, sem Loft-
ferðaeftirlitinu var síðan afhent.
Arnarflugsþotan hélt stundu
síðar á ný til Amsterdam.
„Já, það er rétt að þetta atvik
átti sér stað,“ sagði Agnar Frið-
riksson forstjóri Arnarflugs í
samtali við Mbl. „Þegar okkar
vél kemur niður í 13 þúsund feta
hæð sér flugmaðurinn vél að því
er virðist í sömu hæð. Hann sýn-
ir skjót viðbrögð og sveigir til
hægri til að forða hættu. Eg get
ekkert frekar um þetta mál sagt
fyrr en niðurstöður rannsóknar
liggja fyrir, en þess má þó geta
að öll samskipti flugstjóra og
flugumferðarstjóra eru til á seg-
ulbandi og jafnframt upptökur
af ratsjám, þar sem fram koma
hæðir vélanna beggja," sagði
Agnar.
Þegar Skúli Jón Sigurðarson
hjá Loftferðaeftirlitinu var að
því spurður hvað valdið hefði því
að flugvélarnar, sem báðar voru
í blindflugi, og því á útgefnum
flugheimildum, voru á flugi á
sömu slóðum, sagði hann að ein-
hvers staðar hefðu átt sér stað
mistök. Skúli kvaðst hins vegar
ekki geta á þessu stigi málsins
sagt annað um atvikið ,en fram
kæmi í yfirlýsingu Flugmála-
stjórnar, en hún er svohljóðandi:
„í dag klukkan 13:15 þegar
Boeing 737-flugvél Arnarflugs
var í aðflugi til Keflavíkurflug-
vallar, sáu flugmenn hennar
hvar önnur flugvél var á flugi
framundan að því er virtist í
sömu hæð. Flugstjóri Arnar-
flugsvélarinnar beygði til hliðar
til þess að forðast hugsanlegan
árekstur. f Ijós kom að þarna var
um að ræða Orion-flugvél frá
Varnarliðinu. Rannsókn á atviki
þessu hófst strax í samræmi við
starfsreglur Flugmálastjórnar
og liggur niðurstaða þeirrar
rannsóknar væntanlega fyrir
fljótlega."
Ljósmynd Emilía.
Þríburarnir útskrifaðir f gær:
... svo eru þau engar tennur með“
ÞRÍBURARNIR sem fæddust 6.
febrúar síðastliðinn hafa nú náð
um það bil 10 marka þyngd og
voru útskrifaðir af Landspítalan-
um í gær. Hafdís litla 4ra ára systir
þeirra var mjög spennt að fá systk-
ini sín heim enda verður hún nú
stóra systir. „Puttarnir eru svo litl-
ir ... svo eru þau engar tennur
með,“ sagði hún hissa eftir að hafa
rannsakað þrfburana í krók og
kring.
Þau Reynir Arnórsson og Guð-
munda Brynjólfsdóttir munu því
fljótlega halda heim á Djúpavog
þremur börnum ríkari. Vfst er
að það mun breyta miklu hjá
þeim og nú þegar hefur Reynir
sagt upp stöðu sinni á togaran-
um og útvegað sér vinnu í frysti-
húsinu, til að geta hjálpað til við
uppeldið."
„Við ætlum að vera í Reykja-
vík fram yfir skoðun sem þríbur-
arnir eiga að fara í eftir viku,
hálfan mánuð. Það er okkur
fyrir mestu að börnin eru
hraust, svo hvað með það þó
þetta eigi eftir að vera svolítið
strembið. Við munum fá heimil-
ishjálp á meðan við dveljumst
hér og frá sveitarfélaginu fyrir
austan, höfum við fengið já-
kvæðar viðtökur og vilyrði fyrir
að fá heimilishjálp, þegar heim
kemur."
Hrekkur húsnæðið sem þið
hafið ekki skammt þegar þrír
bætast við?
„Það er allavega óhætt að
segja að það verður þröngt á
þingi í hjónaherberginu á næst-
unni. Það verður svo að fara eft-
ir efnum og ástæðum hvort við
stækkum við okkur."
Þríburarnir virðast líkir svona
í fljótu bragði?
„Já við þorðum ekki annað en
að halda armbandinu á B-stelp-
unni svo við rugluðum þeim
tveim ekki saman. Þau hafa ekki
fengið nein nöfn ennþá, svo við
köllum þau eftir röð, A, B og C.“
Álafossbruninn:
Tjónið nemur 40 til
50 milljónum króna
Spunaverksmiðian aftur í sang eftir tvær vikur
„Heildartjónið af eldsvoðanum nemur líklega milli 40 og 50 milljón-
um króna, en endanlegar tölur liggja ekki fyrir ennþá. enda erfitt að
meta það,“ sagði Guðjón Hjartarson verksmiðjustjóri á Alafossi í Mos-
fellssveit í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær.
„Það var ullargeymslan sem
brann, og spunaverksmiðjan
skemmdist einnig mikið, mikil-
vægasti hlekkurinn í verksmiðj-
unni,“ sagði Guðjón ennfremur.
Hráefni að verðmæti um 13 millj-
ónir kr. skemmdist, 450 fermetra
hús stórskemmdist, raflagnir,
vélar og fleira. Þegar fram-
leiðslutap bætist við má áætla að
tjónið hlaupi á 40 til 50 milljón-
um.“
Guðjón sagði eldsins hafa orðið
vart milli hálf sex og sex í gær-
morgun, og var það vaktmaður
sem kom til Guðjóns og lét vita,
en símakerfið í verksmiðjunni
var þá óvirkt vegna eldsins. Þeg-
ar var hringt á slökkviliðið í
Reykjavík, sem kom á vettvang
um klukkan sex, og var búið að
hefta útbreiðslu eldsins um
þremur klukkustundum síðar.
Að sögn Guðjóns vinna um 300
manns á Álafossi, þar af um 120 í
spunasalnum og geymslunni sem
brann. Vinna mun hefjast þegar í
dag, miðvikudag, og mun starfs-
fólk spunadeildarinnar aðstoða
við hreinsistarfið. „Við reiknum
með því að byrja aftur í þeirri
deild eftir tvær vikur," sagði
Guðjón, „þá verði búið að endur-
byggja húsið og lagfæra vélarnar.
Þarna eru framleidd 6.500 kg af
vörum á sólarhring, svo brýnt er
að aðrir hlutar verksmiðjunnar
fái þaðan vörur eins fljótt og
unnt er. Þangað til verður notast
við lager sem til er, og eftir að
byrjað verður á ný, munum við
reyna að vinna með auknum af-
köstum."