Morgunblaðið - 16.03.1983, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 16.03.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1983 5 FRETTIN um Ærulaunapcninginn, sem kom í leitirnar, og getið var um hér í sunnudagsblaðinu, vakti mikla athygli. Hefir Ragnari Borg, for- manni Myntsafnarafélagsins nú verið sagt frá 3 Ærulaunapeningum til viðbótar og einum verðlaunapening, sem er eins og Ærulaunapen- ingarnir, en með dönskum texta. Vera má, að til séu fleiri Ærulaunapeningar og birtast því mynd- ir af peningunum svo menn geti glöggvað sig betur á hvernig þeir líta út. Þetta eru stórir silfurpeningar, 48 mm í þvermál. Forsetinn heimsækir Rangárþing á sunnudag „Ánægð með útkomu kvenna í skoðanakönnuninni“ — segir Sigurlaug Bjarnadóttir um niðurstöður skoðanakönnunar sérframboðs sjálfstæð- ismanna á Vestfjörðum FORSETI íslands, frú Vigdís Finn- bogadóttir, heimsækir Rangárþing næstkomandi sunnudag. Heimsækir hún meðal annars Hellu, Hvolsvöll og Odda í for sinni og verður vid- stödd hluta af Rangæingavöku. Farið verður frá Bessastöðum snemma sunnudagsmorguns og Reykjavík: haldið austur að Hellu þar sem forsetinn heimsækir meðal annars ellíheimili. Þá verður helgistund í kirkjunni að Odda og á Hvolsvelli heimsækir forsetinn héraðsbóka- safn. Sýslunefnd býður til hádeg- isverðar á Hvolsvelli og eftir há- degi verður forseti íslands við- staddur hátíðardagskrá Rang- æingavöku í Félagsheimili Vest- ur-Eyfellinga. Loks kemur forseti við á bænum Lambey í Fljótshlíð áður en haldið verður heim á leið. f næsta mánuði heldur frú Vigdís Finnbogadóttir í opinbera heimsókn til Frakklands og Port- úgals. Frekari opinberar heim- sóknir forseta til annarra landa eru ekki ákveðnar á þessu ári, en innanlands er líklegt að forsetinn heimsæki Vestfirði í sumar. „ÉG ER mjög ánægð með niður- stöður skoðanakönnunarinnar og hvernig hún fór fram. Fólk fékk að vera í friði, það var ekkert glamur eða auglýsingar í kringum þetta. Ég er sérstaklega ánægð með góða út- komu kvenna, sem eru í þremur af fimm efstu sætum, og vil nota tæki- færið til að þakka það traust sem mér er sýnt,“ sagði Sigurlaug Bjarnadóttir er hún var innt álits á niðurstöðum skoðanakönnunar sér- framboðs sjálfstæðismanna á Vest- fjörðum. nÉg er einnig ánægð með að dreifing atkvæðanna var nokkuð jöfn, það var enginn mjög neðar- lega og enginn sem trónar upp úr. Ég er ánægð með mína útkomu, hún er vonum framar. Og nú er kosningaslagurinn framundan. Og úr því ég er að tala við Morg- unblaðsmann vil ég enn láta i ljós, að ef rétt verður á málum haldið, þá ætti þetta framboð að geta orðið Sjálfstæðisflokknum til styrktar, en ekki til sundrung- ar. Auðvitað stefnum við á að fá mann kjörinn og i okkar hópi er mikil bjartsýni. Það hefur verið afskaplega ánægjulegt að vinna með þessum hópi, þetta er áhuga- fólk og samstarf allt og samvinna hefur verið með miklum ágæt- um,“ sagði Sigurlaug. Reykjavík: Ákvörðun um framboðslist- ann tekin í kvöld í KVÖLD, miövikudag, heldur Full- trúaráð sjálfstæðisfélaganna f Reykjavík fund í Súlnasal Hótel Sögu og hefst hann kl. 20.30. Þar verður reglum samkvæmt tekin ákvörðun um framboðslista Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík fyrir al- þingiskosningarnar 23. aprfl. í for- föllum Guðmundar Garðarssonar stjórnar varaformaður Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson fundinum. Formaður kjörnefndar, Gunnar Helgason, mun skýra frá tillögu kjörnefndar, sem starfað hefur og gerir tillögu um 24 sætin á listan- um, en í henni eiga sæti 15 manns. í Fulltrúaráði sjálfstæðisfélag- anna í Reykjavík eiga sæti 1300 manns og eru þeir hvattir til að mæta. Fundurinn markar upphaf kosningabaráttunnar. Framboðslisti Alþýðuflokksins Framboðslisti Alþýðuflokksins í Reykjavík vegna næstu þingkosn- inga hefur verið ákveðinn, og er hann svohljóðandi: 1. Jón Baldvin Hannibalsson, al- þingismaður, 2. Jóhanna Sigurð- ardóttir, alþingismaður, 3. Bjarni Guðnason, prófessor, 4. Maríanna Friðjónsdóttir, dagskrárgerðar- maður, 5. Guðriður Þorsteinsdótt- ir, framkvæmdastjóri, 6. Ragna Bergmann, form. Verkakv.fél. Framsóknar, 7. Jón Þorsteinsson, lögfræðingur, 8. Viggó Sigurðsson, íþróttamaður, 9. Lísbet Berg- sveinsdóttir, ritari, 10. Hrafn Marínósson, lögregluþjónn, 11. * Agúst á Mæli- felli prestur íslendinga í Kaupmannahöfn SÉRA Ágúst Sigurðsson á Mælifelli í Skagaflrði hefur verið ráðinn prestur íslendinga í Danmörku. Hann flytur sína fyrstu messu í Kaupmannahöfn á páskadag. Það er biskup fslands, sem ræður í stöðuna að fenginni samþykkt kirkjumálaráðherra. Séra Jóhann Hlíðar, sem verið hefur prestur íslend- inga í Danmörku undanfarin ár, lætur nú af starfl fyrir aldurs sakir. Þrír um- sækjendur voru um starflð. Kristín Jónsdóttir, nemandi, 12. Thorvald Imsland, kjötiðnaðar- maður, 13. Brynjar Jónsson, verkamaður, 14. Helga Guð- mundsdóttir, skrifstofumaður, 15. Hörður Björnsson, skipstjóri, 16. Bjarni Þjóðleifsson, læknir, 17. Katla Ólafsdóttir, meinatæknir, 18. Regína Stefnisdóttir, hjúkrun- arkennari, 19. Margrét Péturs- dóttir, húsmóðir, 20. Viðar Schev- ing, múrari, 21. Guðrún Guð- mundsdóttir, kaupakona, 22. Bjarni P. Magnússon, fram- kvæmdastjóri, 23. Emilía Samú- elsdóttir, framkvæmdastjóri og 24. Eggert G. Þorsteinsson, for- stjóri. Sjöfn kosin formaður NEMA AÐALFUNDUR Nemendasambands Mcnntaskólans á Akurcyri, „NEMA“, var haldinn í Torfunni, þriðjudaginn 22. febrúar sl. Þetta var 9. aðalfundur sambandsins, sem var stofnað 6. júní 1974, en markmið þess eru m.a. að skapa aukin tengsl milli fyrrverandi nemenda MA og stuðla að sambandi þeirra við núverandi nem- endur og kennara skólans. f stjórn nemendasambandsins voru kjörin Sjöfn Sigurbjörnsdótt- ir, formaður, Málfríður Þórarins- dóttir, fulltrúi 10 ára stúdenta, Lov- ísa Sigurðardóttir, fulltrúi 25 ára stúdenta, Eva Ragnarsdóttir, full- trúi 40 ára stúdenta, og Pétur Guð- mundsson. f varastjórn Ingibjörg Bragadóttir, Vilhjálmur Skúlason, Héðinn Finnbogason og Þyri Lax- dal. Endurskoðendur Þórður ólafs- son og Þorsteinn Marinósson. Vorfagnaður nemendasambandsins verður haldinn að Hótel Sögu, föstu- daginn 3. júní nk. og verður hann nánar auglýstur síðar. Þeir vekja athygli sem klæðast fötunum frá okkur Vid bjódum jakkasett á aðeins kr. 2.445, stakar buxur á kr. 695, mittisjakkar á kr. 1.250, skyrtur á kr. 395 og skó á 640. Austurstnuti 10 inu 27211 Glæsibæ simi 34350 Snorrabraut simi 13505 Hamraborg sími 46200 Miðvangi sími: 53300

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.