Morgunblaðið - 16.03.1983, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1983
27
SÁÁ-menn hafa haldið fundi víða um land með almenningi og fólki sem aðstoðar þá við söfnunina. Ófært var á
Vcstfirði í 5 daga og var þá gripið til þess ráðs að flytja hópinn í frönsku þyrlunum, sem staddar voru hér á landi
þá. Hér sést hópurinn sem fór í ferðina. Morgunblaði4/RAX
Söfnunin í fullum gangi
„MARKMIÐIÐ með söfnuninni er að safna nægjanlegu fjármagni
til að Ijúka við byggingu sjúkrastöðvar SÁÁ í Grafarvogi, en hún á að
vera tilbúin til móttöku sjúklinga 1. október 1983. Það vantar 25—30
milljónir króna að raungildi til þess að það geti tekist," sögðu þeir
Magnús Hreggviðsson, stjórnarformaður Frjáls framtaks, og Hend-
rik Berndsen, varaformaður SÁÁ, þegar Morgunblaðið spjallaði við
þá um gang söfnunarinnar, sem SÁÁ hefur hafið og annað það sem
hana snertir, eins og til að mynda það hvers vegna ráðist er í hana
nú.
Innheimta
„Söfnunin er tvíþætt, annars
vegar er leitað til einstaklinga
og hins vegar til fyrirtækja, fé-
lagasamtaka og sveitarfélaga,"
sagði Magnús. „Einstaklingum
voru send tvö gjafabréf að upp-
hæð 1800 krónur hvórt, vaxta-
laus og án vísitölu, annað á nafn
viðkomandi en hitt ónafnsett, ef
viðkomandi hefur áhuga á að fá
einhvern annan til að skuld-
binda sig til greiðslu á þessari
upphæð eða vill gefa meira sjálf-
ur. Gjafabréfin eiga að greiðast
á 5 gjalddögum, með þriggja
mánaða millibili, þeim fyrsta 5.
júní 1983 og þeim síðasta 5. júní
1984. Til stórra og smárra fyrir-
tækja er einnig leitað með gjafa-
bréf og þar er um tvær upphæðir
að ræða, 6 og 18 þúsund krónur.
Þau eru einnig vaxtalaus og
óverðtryggð og bera sömu gjald-
daga og gjafabréf einstaklinga.
Gjafabréfin eru frádráttarbær
til skatts og Búnaðarbankinn sér
um innheimtu þeirra. Til að
verðlauna skilvísa greiðendur,
þá verður dregið úr tíu 100 þús-
und króna verðlaunum á hverj-
um gjalddaga, sem eru fimm
talsins eins og fyrr greindi, en
það gera samtals 5 milljónir
króna.
Fyrst var öllum karlmönnum
á aldrinum 30—70 ára send bréf-
in, en vegna fjölda kvartana frá
þeim, sem voru undir og yfir
þessu aldursmarki, ákvað stjórn
SÁÁ að senda þessum aldurs-
flokkum einnig gjafabréf."
Ljúka bygging-
unni á 13 mánuðum
„Upphaf þessa máls má rekja
til þess að SÁÁ setti í gang
happdrætti fyrir tæpu ári eða í
apríl 1982. Þá voru um 70 þúsund
konum sendir happdrættismið-
ar,“ sagði Hendrik Berndsen, er
hann var spurður um tildrög
söfnunarinnar. „Viðtökurnar
voru með þeim hætti, að SÁÁ
réðst í byggingu sjúkra- og með-
ferðarstöðvar og nú sitjum við
uppi með hálfkarað hús, sem við
ætlum að ljúka á 13 mánuðum.
Fyrstu skóflustunguna að hinni
nýju sjúkrastöð tók forseti ís-
Iands, frú Vigdís Finnbogadótt-
ir, 16. ágúst 1982 og byggingunni
á að vera að fullu lokið og hún
tilbúin til notkunar 1. október
1983. Nú leitum við því til karl-
mannanna og vonum að viðtök-
urnar verði ekki síðri en hjá kon-
unum.
Það er exki að ástæðulausu að
við erum að drífa þessa byggingu
upp, því við erum í húsnæði á
Silungapolli, sem við fengum til
bráðabirgða. Það húsnæði á að
rífa og við fáum einungis að vera
þar til haustsins.
Við fórum af stað með þessa
söfnun í febrúar og viðtökur
hafa verið jákvæðar, enn sem
komið er. Við höfum haldið
fundi víða um land, bæði með
fólki sem aðstoðar okkur við
söfnunina og almenningi."
Á hrakhólum
með húsnæði
„Það hafa margir furðað sig á
því hvers vegna SÁÁ hafði þann
háttinn á að leita til Frjáls
framtaks með framkvæmd söfn-
unarinnar, en gerði það ekki á
eigin spýtur. Til þess liggja ein-
faldar ástæður. Reynsla okkar af
happdrættinu á sínum tíma
sýndi okkur, að þetta yrði það
umfangsmikið verkefni að við
mundum ekki ráða við það með
góðu móti. Þetta er miklu um-
svifameira fyrirtæki en happ-
drætið var á sínum tíma. Frjálst
framtak hf. hafði bæði góða að-
stöðu og þjálfað starfsfólk til
slíks skipulags sem söfnun sem
þessi krefst og því þótti okkur
vænlegt að leita aðstoðar þess.
Komið hefur verið upp „neti“ að-
stoðarfólks um allt land til þess
að vinna að söfnuninni, en það er
gert með kynningarstarfi, hring-
ingum og einnig verður víða
gengið í hús og fólk þannig
minnt á söfnunina, upplýst um
SÁÁ og hvatt til að taka þátt í
henni. Hópur fólks heimsækir
einnig fyrirtæki f sama tilgangi.
SÁÁ hefur nú verið starfandi i
5 ár og aðsóknin hefur svo sann-
arlega sýnt að það var þörf fyrir
þessa starfsemi. Á þessum árum
hafa 5500 manns farið í meðferð
hjá samtökunum. öll þessi ár
höfum við verið á hrakhólum
með húsnæði, enda höfum við
verið á fjórum stöðum á þessum
fimm árum. Fyrst vorum við í
leiguhúsnæði í Reykjadal, síðan
eitt sumar í Langholtsskóla áður
en við fengum húsnæðið að Sil-
ungapolli, sem við verðum að
rýma í haust."
Hamingjusamara
fólk
„Auk sjúkrastöðvarinnar á
Silungapolli rekum við fræðslu-
upplýsinga- og kynningar-
miðstöð um áfengisvandamálið
að Síðumúla 3—5 og þangað
fáum við 3—400 heimsóknir
vikulega. Við erum með endur-
hæfingarstöð að Sogni í ölfusi,
þar sem geta verið 30 sjúklingar
í einu. Sams konar rekstur erum
við með að Staðarfelli í Dölum
og þar geta verið 32 sjúklingar í
einu.
Rekstur meðferðar- og endur-
hæfingarstöðvanna er fjármagn-
aður með daggjöldum, en
fræðslustöðvarinnar með frjáls-
um framlögum meðlima SÁÁ.
Alls starfa hjá samtökunum um
50 manns sem skiptast þannig: á
Sogni 10, á Staðarfelli 8, á Sil-
ungapolli með ráðgjöfum, lækn-
um og öllu 22—23 og 5—6 ráð-
gjafar í Sfðumúlanum. Á skrif-
stofunni sjálfri vinna tveir
menn,“ sagði Hendrik.
„Ég hef unnið sem endurskoð-
andi og rekstrarráðgjafi í 13 ár.
Að undanförnu hef ég fengið
tækifæri til að kynna mér starf-
semi SÁÁ. Ég held að fáar
rekstrareiningar geti státað af
jafnmikilli hagkvæmni og er í
öllum rekstri hjá SÁÁ,“ sagði
Magnús Hreggviðsson. „Það er
annað sem mig langar til að
nefna og það er hversu frábæru
starfsfólki SÁÁ hefur á að skipa,
sem vinnur þar hin ýmsu störf,
og hversu vel því tekst að skila
hamingjusömum einstaklingum
út í lífið á ný. Fólkið er jákvæð-
ara en það var áður og miklu
meiri gleðigjafar öðru fólki. Mér
hefur fundist þetta sérstaklega
áberandi," sagði Magnús að lok-
um.
Magnús Hreggviðsson, stjórnarformaður Frjáls framtaks hf., Erna Arn-
ardóttir, starfsmaður söfnunarinnar, og Hendrik Berndsen, varaformað-
ur SÁÁ, með nokkur gjafabréfanna, sem þegar hafa borist.
Um borð í þyrlunni.
Á fundi með 6. bekk Verslunarskólans, en hann aðstoðar við söfnunina.
Frá fundi á Akranesi.