Morgunblaðið - 16.03.1983, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1983
Stúdentaráðskosningar í HI:
Vaka bætti
við manni
Vinstri sinnaðir töpuðu einum
VAKA, félag lýðræðissinnadra stúdenta við Háskóla íslands, vann einn
mann af vinstri sinnum er kosið var í gær til Stúdentaráðs. I>á voru tveir
fulltrúar úr hópi stúdenta kjörnir til Háskólaráðs og fengu Vaka og
vinstri menn sinn fulltrúann hvort félag eins og undanfarin ár. Kjörsókn
var 44,5%.
Úrslit í kosningunum urðu sem hér segir:
1983 1982
A-listi Vöku
B-listi vinstri
C-listi umbóta-
sinna
629 (36,3%) 5 fulltrúar
673 (38,9%) 5 fulltrúar
430 (24,8%) 3 fulltrúar
534 (31,9%) 4 fulltrúar
688 (41%) 6 fulltrúar
449 (26,5%) 3 fulltrúar
Til Háskólaráðs fóru kosningar
þannig, að A-listi fékk 645 at-
kvæði eða 37,3% og einn mann
kjörinn. í fyrra fékk A-listi 562
atkvæði. B-listi fékk 689 atkvæði
eða 39,9% og einn mann kjörinn.
í fyrra fékk B-listinn 729 at-
kvæði. C-listi fékk 394 atkvæði
eða 22,8% og engan mann kjör-
inn, en í fyrra 391 atkvæði.
„Þetta er í fyrsta skipti í 12 ár,
sem Vaka og vinstri sinnar fá
jafn marga menn í stúdenta-
ráðskosningum og það er greini-
legt, að Vaka er í sókn,“ sagði
Sigurbjörn Magnússon, formaður
Vöku, í samtali við Morgunblaðið.
„Það er greinilegt, að stúdentar
eru ánægðir með samstarfið við
umbótasinna og meirihlutinn
hefur tryggt sig í sessi. Stúdentar
kunna greinilega að meta störf
okkar að hagsmunamálum stúd-
enta og þá höfum við átt hljóm-
grunn meðal nýstúdenta. Mér
virðist sem vinstri bylgjan sé að
deyja út,“ sagði Sigurbjörn
Magnússon.
Flugleiðir:
Leigja tvær DC-8-þotur
áfram í Saudi-Arabíu
GENGIÐ hefur verið frá samning-
um Flugleiða og aðila í Saudi-Arabíu
um áframhaldandi leigu á tveimur
DC-8-þotum Flugleiða þar syðra, að
sögn Sigurðar Helgasonar, fram-
kvæmdastjóra fjármálasviðs félags-
ins.
Sigurður Helgason sagði að
samningurinn, sem hefur verið í
gildi sl. tvö ár, hafi verið fram-
lengdur um eitt ár frá 1. apríl nk.
Vélarnar eru leigðar án áhafna, og
eru aðallega í vöruflugi.
„Það hefur hentað okkur mjög
vel að leigja þessar vélar til heils
árs og geta síðan leigt inn vélar til
að sinna verkefnum félagsins
tímabundið, þegar mest er að
flytja, eins og við gerum nú,“ sagði
Sigurður ennfremur, en félagið
hefur tekið tvær DC-8-þotur á
leigu frá bandaríska flugfélaginu
World. Sú fyrri kemur inn í áætl-
un fljótlega og sú síðari í júní.
Gæzluþyrlan sótti
slasaðan sjómann
SKIPVERJI á skuttogaranum Jóni
Vídalín ÁR 1 frá Þorlákshöfn fékk
slærat höfuðhögg um borð í skipinu
síðdegis í gær. Þyrla Landhelgis-
gæzlunnar sótti manninn á haf út
og flutti á Borgarspítalann. Þar
kom í Ijós, að meiðsli voru ekki
eins mikil og óttazt var í fyrstu.
Það var um klukkan 16.50 að
Vestmannaeyjaradíó tilkynnti
Slysavarnafélagi íslands um slys
um borð í Jóni Vídalín og að óskað
væri eftir þyrlu til að sækja hinn
slasaða. Skipið átti þá eftir um
fjögurra tíma stím inn til Þor-
lákshafnar. Veður var hagstætt
og sléttur sjór. Haft var samband
við Landhelgisgæzluna og hún
beðin að senda þyrlu á staðinn og
taka jafnframt lækni af Borg-
arspítalanum. Einnig var haft
samband við Varnarliðið til vonar
og vara og beðið að hafa þyrlu
tilbúna með lækni og fór hún
einnig í loftið. Gæzlumönnum
gekk greiðlega að hífa hinn slas-
aða um borð í þyrluna. Að Borg-
arspítalanum var að nýju komið
með hinn slasaða skömmu eftir
klukkan 19 í gærkvöldi.
Liðsmenn Mezzoforte skömmu áður en þeir lögðu af stað til Englands
gær. Morgunblaðið/EFI.
Mezzoforte í 29. sæti í Bretlandi:
: Æk \ jH
k r , : «
Htíftjii lll
Menn eru ekki al-
mennilega búnir
að átta sig á þessu
— segir Eyþór Gunnarsson í Mezzoforte,
sem hélt með félögum sínum til Bretlands í
gær til upptöku í þættinum Top of the Pops
„VIÐ ERUM eins og gefur aö skilja óskaplega ánægðir, ég get a.m.k. sagt
svo fyrir mitt leyti, en ég held að menn séu ekki almennilega búnir að
átta sig á þessu öllu saman og þaðan af síður búnir að gera sér fulla grein
fyrir því hvað þetta hefur í raun í fiir með sér fyrir hljómsvcitina,“ sagði
Eyþór Gunnarsson, hljómborðsleikari Mezzoforte, þegar Morgunblaðið
ræddi við hann í gær.
Hljómsveitin náði í gær þeim
stórmerka áfanga að komast í 29.
sæti enska smáskífulistans með
tveggja laga plötu sína með lög-
unum Garden Party og Funk
Suite No. 1. Platan hefur farið
mjög geyst upp vinsældalistann
og á þremur vikum úr 86. í 29.
sæti með viðkomu í 61. og 40. sæt-
inu sitt hvora vikuna.
Þá er ekki síður eftirtektarvert
að fylgjast með sívaxandi vin-
sældum breiðskífunnar Surprise,
Surprise. Hún komst í 43. sæti í
gær úr 72. sætinu, en komst fyrst
inn á listann vikuna þar á undan
og var þá í 78. sætinu. Lætur nú
nærri að plötur Mezzoforte hafi
selst í hátt á sjötta tug þúsunda í
Bretlandi.
Það, að komast í 29. sæti vin-
sældalistans, er Mezzoforte ákaf-
lega mikilvægur áfangi. Hljóm-
sveitin hélt út til Englands síð-
degis í gær, til þess að fara í upp-
töku á þættinum Top of the Pops,
sem tekinn verður upp í dag og
sýndur um helgina. Hálf níunda
milljón Breta horfir að jafnaði á
þennan þátt. Hér er því um geysi-
lega auglýsingu að ræða fyrir
Mezzoforte og aukast líkurnar á
enn frekari velgengni við þátttök-
una í honum.
Eyþór sagði aðspurður, að
hann vissi ekki fyrir víst hvort
um frekari kynningarferðir
Mezzoforte til Bretlands yrði að
ræða áður en hljómsveitin heldur
í fyrirhugaða tónleikaferð í júní,
en það gæti þó allt eins farið svo.
Hins vegar mætti ekki gleyma að
huga að því, sem væri lykillinn að
velgengninni, tónlistinni sjálfri.
Hljómsveitin yrði að gefa sér
tíma til þess að æfa og semja ný
lög fyrir nýja plötu.
„Mezzoforte hefur til þessa ver-
ið mjög samheldin hljómsveit.
Það er hins vegar vitað mál, að
mönnum gengur alltaf betur að
halda saman í erfiðleikunum en
þegar frægðin blasir við eða er
jafnvel orðin staðreynd. Ég vona
bara að við berum gæfu til að
halda saman áfram eins og verið
hefur," sagði Eyþór.
Seyöisfjörður:
Djúpsprengja
úr E1 Grillo
sprengd í Loð-
mundarfirði
Seydisfírdi, 15. marz.
UNDANFARNA daga hafa fimm
bandarískir froskkafarar af Keflavfk-
urflugvelli og starfsmenn frá Land-
helgisgæzlunni verið að störfum við
El Grillo, sem fórst í Seyðisfirði fyrir
um 40 árum. Vitað var, að í skipinu
væru djúpsprengjur og sprengiefni. í
gær komu kafarar upp með eina slíka
sprengju. Hún var ekki meö for-
hleðslu og því ekki eins hættuleg í
meðfórum og ella. í dag verður farið
með hana út í Loðmundarfjörð og
hún sprengd þar af sprengisérfræð-
ingi Landhelgisgæzlunnar.
Ætlunin er að taka upp fleiri
sprengjur, en þar sem óljóst er um
virkni þeirra þarf að gæta mikillar
varúðar í meðferð þeirra og er nú
m.a. beðið upplýsinga erlendis frá. I
fyrrakvöld slæddi varðskipið Þór
upp kafbátagirðingu í utanverðum
Seyðisfirði. í henni voru engin
flotdufl eins og rekið hafa upp í
Seyðisfirði, síðast nú í haust. Ætl-
unin er að slæða betur og einnig er
stefnt að því, að allt sprengigóss úr
E1 Grillo verði fjarlægt úr skipinu
svo ekki stafi af því frekari hætta.
— Fréttaritari
Verður áfrýjað
í máli skip-
stjórans?
EINS og fram hefur komió í fréttum
var skipstjórinn á Einari Benedikts-
syni BA 377 sýknaður af öllum
ákæruatriðum vegna meints land-
helgisbrots síðastliöinn laugardag.
Samkvæmt niðurstöðum dómsins
má skipið stunda veiðar á svæðum,
sem togurum eru lokuð. Búist er við,
að saksóknari áfrýi.
Árið 1976 kvað samgönguráðu-
neytið upp úrskurð þess efnis, að
það breytti ekki skráningu véla þó
vélarorka væri takmörkuð með
innsigli á olíugjöf. Slíkt var gert
um borð í Einari Benediktssyni og
hestaflatalan á þann hátt lækkuð
úr 1095 hestöflum, sem skráð eru í
skipaskrá, niður í 910 hestöfl.
Gæzluvardhald
framlengt
FYRIR skömmu var framlengt til
1. júlí gæzluvarðhald yfir Þórði
Jóhanni Evþórssyni. Þórður Jó-
hann varð Oskari Blomsterberg að
bana í húsi við Kleppsveg 1. janú-
ar sl.
MMNLEIMTV
Sótt um leyfi fyrir „Cirkus Arena“ til borgarráðs:
Verður fjölleikahús
í Laugardal í sumar?
SOTT HEFUR verið um leyfi til borgarráðs um að það heimili rekstur
fjölleikahúss í Laugardal í sumar. Sá tími sem fjöllcikahúsið yrði starf-
rækt á yrði frá 15. júlí til 3. ágúst. Erindi þetta kom til umfjöllunar á fundi
borgarráðs í gær, en var ekki afgreitt, en sent umhverfismálaráði til
umfjöllunar.
Jörundur Guðmundsson sækir
um leyfið, en fjölleikahúsið sem
usn er að ræða er Cirkus Arena
frá Danmörku. Sótt er um að fjöl-
leikahúsið fái aðstöðu til sýn-
íngahalds á túninu vestan
TBR-hússins í Laugardal.
í umsókninni segir að svæðið
þurfi að vera u.þ.b. 3600 fermetr-
ar að stærð. Segir, að ef leyfi
verði veitt, þá verði kappkostað
að ganga vel um svæðið og að því
yrði skilað í sama ásigkomulagi
til baka.
Sýningahald færi fram í stóru
tjaldi og yrði sýningartími frá kl.
20.00 til 22.00 á virkum dögum og
frá kl. 15.00 til 17.00 og 20.00 og
til 22.00 um helgar. í sýningar-
hópnum eru um 30 manns, og hef-
ur hópurinn yfir að ráða 4—5
flutningabílum, auk þriggja
fólksflutningabíla og fjögurra
hjólhýsa.