Morgunblaðið - 16.03.1983, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1983
13
Kirkjulist á Kjarvalsstöðum:
„Leistist hjeðan
firer christi-
legt andlát“
LEGSTEINARNIR þrír, sera í gær
voru fluttir til Kjarvalsstaða vegna
kirkjulistarsýningarinnar um
páskana, eru fulltrúar þessarar
gerðar steina, sem eru allmargir
hér á landi og flestir frá 17. og 18.
öld. Björn Th. Björnsson, listfræð-
ingur, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að mikilvægt væri að hug-
að væri að þessum steinum, sem
finna má víða um land, og forða
þeim frá eyðileggingu, og Aðal-
steinn Steindórsson, umsjónar-
maður kirkjugarða, tók í sama
streng.
Það er einkum veðrunin, sem
veldur steinunum tjóni. Úr því
má hins vegar draga verulega, sé
þess gætt að steinarnir liggi ekki
undir vatni og jarðvegi, þannig að
vetrarhörkur og gaddur nái að
skemma þá. Sagði Björn Th. að
æskilegt væri að reisa steinana
upp, til að forða þeim frá frost-
skemmdum, en á þeim tíma sem
þeir voru gerðir var í tísku að
hafa legsteina lárétta. Það er
ekki fyrr en síðar sem þeir eru
látnir standa upp á endann.
Áletranirnar á steinunum
„Deleríum búbónis"
í Hótel Hveragerði
Hveragerdi, 15. marz.
LEIKFÉLAG Hveragerðis frum-
sýndi gamanleikinn Deleríum bú-
bónis eftir bræðurna Jón Múla og
Jónas Árnasyni í Hótel Hveragerði
II. marz síöastliðinn. Húsfyllir var á
frumsýningunni, sem var ákaflega
vel tekið. Leikendum, leikstjóra og
undirleikara var innilega fagnað í
leikslok og bárust þeim blóm og
heillaskeyti. Leikstjóri er frú Ragn-
hildur Steingrímsdóttir, sem er bú-
sett hér í Hveragerði. Undirleik ann-
ast píanóleikarinn Theódór
Kristjánsson. Leikendur eru níu og
með helztu hlutverk fara: Hjörtur
Már Benediktsson, Magnús Stef-
ánsson, Kristín Jóhannesdóttir,
Margrét Ásgeirsdóttir og Garðar
Gíslason. Alls vinna um 20 manns
að sýningunni.
Þegar þetta birtist verða 2. og 3.
sýning um garð gengnar, en fjórða
sýning er fyrirhuguð fimnttudag-
inn 17. marz klukkan 21 í Hótel
Hveragerði. Þá verður barnasýn-
ing næstkomandi laugardag
klukkan 15 og á sunnudag klukkan
17 verður sýning fyrir ellilífeyris-
þega í Hveragerði. LH hefur í
mörg ár haft þá venju að bjóða
þessu fólki á sýningar sínar.
Ég vil hvetja alla Hvergerðinga
og aðra þá, sem tök hafa á, að sjá
þessa sýningu, sem er hin bezta
skemmtun.
LH hefur lagt á sig mikið starf
og tekið á sig umtalsverða ábyrgð
með því að taka á leigu Hótel
Hveragerði í tvo mánuði, til að
gera þessa sýningu mögulega, en
hótelið er annars lokað um þessar
mundir. Ég óska LH til hamingju
með gott starf.
Stjórn LH skipa Hjörtur Már
Benediktsson, formaður, Sonja
Andrésdóttir og Svava Hauksdótt-
ir.
— Sigrún.
Námsstefna
um vöruþróun
ÞRIGGJA daga námsstefna um
vöruþróun verður haldin á vegum
Iðnrekstrarsjóðs, Iðntæknistofnunar
Listi Alþýðu-
flokksins á
Norðurlandi
vestra ákveðinn
FRAMBOÐSLISTI Alþýðuflokksins
í Norðurlandskjördæmi vestra
vegna næstu þingkosninga hefur
verið ákveðinn. Listann skipa eftir-
farandi:
1. Jón Sæmundur Sigurjónsson,
hagfræðingur, Siglufirði, 2. Elín
Njálsdóttir, yfirpóstafgreiðslu-
maður, Skagaströnd, 3. Sveinn
Benónýsson, bakarameistari,
Hvammstanga, 4. Pétur Valdi-
marsson, iðnverkamaður, Sauðár-
króki, 5. Regína Guðjónsdóttir,
íþróttakennari, Siglufirði, 6.
Hjálmar Eyþórsson, fyrrv.
yfirlögregluþjónn, Blönduósi, 7.
Axel Hallgrímsson, sjómaður,
Skagaströnd, 8. Baldur Ingvars-
son, verzlunarmaður, Hvamms-
tanga, 9. Sigmundur Pálsson,
húsgagnasmíðameistari, Sauð-
árkróki, og 10. Pála Pálsdóttir,
fyrrv. kennari, Hofsósi.
íslands og Teknologisk Institut í
Danmörku dagana 15., 16. og 17.
mars á Hótel Esju í tengslum við
Vöruþróunarviku Iðnrekstrarsjóðs
og Iðntæknistofnunar, sem hófst á
mánudag með kynningarfundi fyrir
ýmsa aðila.
í frétt frá Iðntæknistofnun Is-
lands segir, að markmið náms-
stefnunnar sé að stuðla að mark-
vissri vöruþróun í íslenskum iðn-
fyrirtækjum og skiptist hún í þrjú
eins dags námskeið, miðuð við
ákveðin svið í iðnaði, þ.e. vélar og
tæki fyrsta daginn, síðan mat-
væla- og efnaiðnað og loks neyt-
endavörur með áherslu á útlits-
hönnun.
Viðfangsefni námsstefnunnar
eru stefnumörkun, mat og val á
þróunarverkefnum; leit að nýjum
framleiðslutækifærum út frá
greiningu á þörfum notenda;
skipulagning og framkvæmd vöru-
þróunar í fyrirtækjum og hlutverk
og starfshættir Iðnrekstrarsjóðs.
Starfið á námskeiðunum fer fram
með fyrirlestrum, hópverkefnum,
umræðum og lýsandi dæmum, en
leiðbeinendur eru þrír, tveir
starfsmenn rekstrartæknideildar
Teknologisk Institut í Danmörku,
verkfræðingarnir Elisabeth Nils-
son og Karsten Bogh, deildar-
stjóri, og Elías Gunnarsson, véla-
verkfræðingur, ráðgjafi um vöru-
þróun í málmiðnaði.
Legsteinarnir þrír, sem nú eru komnir til Kjarvalsstaða: Þingvallasteinninn, Kálfatjarnarsteinninn og Garðasteinn-
inn. Líkur má færa að því að tveir síðarnefndu steinarnir séu eftir sama mann, stutt er á milli þeirra bæði í tíma og
rúmi, letrið áþekkt og stcinninn líklega úr Krísuvík, segir Árni Óla. Morgunblaðið/ Kristján Orn Elíasson.
þremur eru hliðstæðar. Steinninn
úr Garðakirkju er legsteinn Guð-
mundar Sigurðssonar, sem lést
árið 1674. A steininum stendur:
„Hjer under hvíler greptrað er-
legt guðsbarn, Guðmundur Sug-
urðsson. Leistist hjeðan firer
christilegt andlát á 75. áre sins
aldurs, 5. Decembris anno 1674.“
Steinninn í Þingvallakirkjugarði
er á leiði Þórðar Þorleifssonar,
sem lést 1676, og steinninn í
Kálfatjarnarkirkju er legsteinn
Eyjólfs Jónssonar, lögréttu-
manns, sem andaðist 14. sept-
ember 1669.
— AH.
Völundar gluggar
Smíðum glugga úr furu, oregonpine og teakviði.
Einnig smiðum við glugga úr gagnvarinni furu,
sem fjórfaldar endingu glugganna.
Stuttur afgreiðslufrestur. Hagstætt verð.
Valin efni, vönduð smíð og yfir
75 ára reynsla tryggir gæðin.
Gjörið svo vel og leitið tilboða.
Timburverzlunin Yolundur hf.
KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244