Morgunblaðið - 16.03.1983, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1983
25
Geir Hallgrírasson
grundvelli þess samkomulags gátu
bæði Framsóknarmenn og Alþýðu-
bandalagsmenn tryggt, að þing yrði
ekki rofið, fyrr en báðar þessar til-
lögur um álviðræðunefnd og sam-
komudag Alþingis höfðu fengið
þinglega afgreiðslu samhliða kjör-
dæmabreytingu, en hvor flokkurinn
um sig guggnaði á því að standa að
eigin tillögum, Framsóknarmenn 1
álmálinu og Alþýðubandalagið um
samkomudag Alþingis, báðir flokk-
arnir sviku samkomulag, sem var
fastmælum bundið við Sjálfstæðis-
flokk og Alþýðuflokk af ótta við
hinn og vegna löngunar að sitja í
ráðherrastólum sem lengst og nýta
þá aðstöðu sem framast væri kostur
í kosningabaráttunni. Hundsaður
var meirihlutavilji þings og þingleg
afgreiðsla en hvort tveggja hefði
verið unnt að virða með eins til
tveggja daga lengra þinghaldi og
kosningar hefðu farið fram á ráð-
gerðum tíma, 23. apríl.
Á flótta
Allt frá því á sl. sumri, þegar
starfhæfur meirihluti á Alþingi
brast, hafa Framsóknarmenn og Al-
þýðubandalagsmenn verið á flótta, í
öðru orðinu hafa þeir sagt, að þeir
vildu kosningar sem fyrst, en í hinu
hafa þeir hundsað kröfu Sjálfstæð-
ismanna og Alþýðuflokksmanna um
kosningar, þar til nú, að þeim er
ekki stætt að standa gegn kosning-
um lengur, þegar þeir hafa siglt öll-
um málum í strand og vandinn orð-
inn þeim ofviða.
— Hvenær tilkynntu þessir flokkar
stjórnarandstöðuflokkunum að þeir
myndu ekki standa við gerða samn-
inga?
— Þingmönnum var sýnd sú
óvirðing, að Gunnar Thoroddsen lét
þess getið í samtali við fréttamann
hljóðvarps um hádegisbil á mánu-
daginn, að þingið yrði rofið þá um
kvöldið og gekk sú óvirðing líklega
jafnt yfir þingmenn stjórnar og
stjórnarandstöðu. Ráðherrar Al-
þýðubandalags og Framsóknar-
flokks gerðu hræðslusamning sín á
milli um að stöðva afgreiðslu þess-
ara mála og rjúfa þing án þess að
segja meðflutningsmönnum sínum
úr stjórnarandstöðuflokkunum frá
því, að þeir væru gengnir á bak orða
sinna.
— Eru þetta venjuleg vinnubrögð á
Alþingi?
— Ég þekki fá dæmi um það á
mínum þingferli, að þannig hafi
verið staðið að málum, en þau
dæmi, sem finnast eru einkum úr
sögu þeirrar ríkisstjórnar, sem nú
situr.
— Hver tekur ákvörðun um að
kalla saman þing að kosningum lokn-
um?
— Samkvæmt stjórnarskránni
kveður forseti saman þing að frum-
kvæði forsætisráðherra. Yfirlýs-
ingar liggja fyrir af hálfu margra
ráðherra um, að ríkisstjórnin muni
segja af sér daginn eftir kosningar
án tillits til kosningaúrslita. Ljóst
er einnig, að meirihlutavilji Alþing-
is er fyrir því, að þingið verði kallað
saman hið fyrsta eftir kosningar.
Bæði fulltrúar Alþýðubandalags og
Framsóknarflokks hafa á orði nauð-
syn efnahagsaðgerða, jafnvel viku
eftir kosningar, eins og Svavar
Gestsson í eldhúsdagsumræðunum.
Ef þessir menn ætla ekki að stjórna
með bráðabirgðalögum, sem ferill
þeirra gefur að vísu nokkurt tilefni
til að geti gerzt, verður að kalla Al-
þingi saman hið fyrsta og með til-
vísun til alls þessa verður því ekki
trúað, að það verði lengi dregið að
kalla Alþingi saman eftir kosn-
ingar.
Albert Guðmundsson:
Meirihluti sjálfstæðis-
manna betri en sundur-
lyndi vinstri flokka
„RÖKIN fyrir því að stefnt
skuli að meirihluta sjálfstæð-
ismanna á alþingi eru skýr og
augljós þegar menn líta til þess
að þær samsteypustjórnir sem
setið hafa undanfarin ár kom-
ast alltaf í sjálfheldu eftir til-
tölulega stuttan tíma,“ sagði
Albert Guðmundsson, efsti
maður á lista Sjálfstæðis-
flokksins, í gær, þegar Morg-
unblaðið leitaði til hans vegna
yfirlýsingar hans um þetta efni
í eldhúsdagsumræðunum á al-
þingi á mánudagskvöldið.
„Þegar ég hvet fólk til að
veita Sjálfstæðisflokknum
meirihluta bið ég það jafn-
framt að huga að þeirri
breytingu sem varð á stjórn
Reykjavíkurborgar við það að
sjálfstæðismenn misstu þar
meirihluta í kosningunum
1978. Okkur er í fersku minni
sú upplausn og stöðnun sem
ríkti í stjórn borgarinnar
undir samsteypustjórn
þriggja vinstri flokka. Fjög-
urra ára reynsla Reykvíkinga
leiddi til þess að þeir veittu
Sjálfstæðisflokknum að nýju
traust umboð til meirihluta-
stjórnar í höfuðborginni á
síðasta ári. Umskiptin síðan
eru á þann veg að borgarbúar
sjá að þeir gerðu rétt með
þessu. Ég vona að landsmenn
allir taki mið af því hver
munur er á samhentri stjórn
Sjálfstæðisflokksins og
Albert Guðmundsson
stjórnleysi þriggja flokka
með ólík sjónarmið.
Þetta markmið um meiri-
hlutastjórn næst ekki nema
allir sjálfstæðismenn og aðr-
ir þeir sem vilja reyna eitt-
hvað nýtt í forystumálum á
sviði þjóðmála taki höndum
saman.
Ég sé það á viðbrögðum
Þjóðviljans í dag, en hann
slær hvatningu minni um
meirihlutastjórn Sjálfstæðis-
flokksins upp með risafyrir-
sögn yfir þvera forsíðu, að
orð mín hafa haft mikil áhrif
á alþýðubandalagsmenn. í
sjálfu sér má fagna því að
Þjóðviljinn veki þannig ræki-
lega athygli á markmiði
Sjálfstæðisflokksins í næstu
kosningum, en ákafi Alþýðu-
bandalagsins og viðbrögð
annarra andstæðinga okkar
sjálfstæðismanna sýna að
þeir eru óttaslegnir. Þeir
óttast einnig þann saman-
burð sem fólk fengi á vinnu-
brögðum og árangri sjálf-
stæðismanna annars vegar
og þeirri ringulreið sem
vinstri menn skilja eftir sig í
þjóðfélaginu nú.
Samstaða og góður vilji
sem ríkti á nýafstöðnum
fundi sjálfstæðismanna í
Borgarnesi hefur kveikt hjá
mér von um að það megi tak-
ast að ná hreinum meiri-
hluta, svo framarlega sem við
getum komið hinum réttu
skilaboðum til fólksins í
landinu, því að allir vilja
landi og þjóð vel.
Ég mun reyna af öllu afli
að sameina alla sjálfstæð-
ismenn í samtakaheild til að
ná þessum árangri," sagði
Albert Guðmundsson að lok-
um.
u svæði verða samtals um 390 íbúðir og koma lóðirnar til úthlutunar á þessu ári. Megin umferðargötuna í hverfinu má sjá lengst
arvog.
Ráðstefna um menntun og rannsóknir í sjávarútvegi:
Taka skal upp menntun
í sjávarútvegsfræðum
var samhljóða niðurstaða
VERKFRÆÐl- og raunvísindadeild Háskóla fslands stóð fyrir ráðstefnu um
rannsóknir og kennslu í sjávarútvegi fóstudaginn 11. og laugardaginn 12.
mars. Meðal annarra sem erindi fluttu á ráðstefnunni voru tveir Norðmenn,
sem sérstaklega voru boönir hingað í tilefni hennar, þeir Arne M. Bredesen
prófessor og Torbjörn Digernes fra Fiskeriteknologi.sk Forskningsinstitutt í
Þrándheimi.
Valdimar K. Jónsson prófessor
hafði umsjón með ráðstefnunni og
flutti þar einnig erindi, en hann er
formaður nefndar sem mennta-
málaráðherra hefur skipað til að
undirbúa og kanna grundvöllinn
fyrir námi í útvegsfræðum á há-
skólastigi hér á landi. Valdimar
var spurður um niðurstöðu ráð-
stefnunnar.
„Niðurstaða ráðstefnunnar var
tvímælalaust sú, að það bæri að
taka upp kennslu í sjávarútvegs-
fræðum á háskólastigi hér á landi.
Nú þegar auðlindir sjávar virðast
vera mikið til fullnýttar, liggur
möguleikinn á frekari þróun í auk-
inni hagnýtingu og þaF kemur
þekkingin — menntun og rann-
sóknir — til sögunnar.
Það voru einkum ræddir þrír
möguleikar á fyrirkomulagi á
námi í sjávarútvegsfræðum, en
flestir vildu fara þá leið að byggja
námið sem þverfaglegt nám ofan á
sérnám í viðskiptafræðum eða
verkfræði, með ríka áherslu á
rannsóknaverkefni í einhverri
grein sjávarútvegs. Þörfin er
tvímælalaust fyrir hendi, meðal
annars sökum breyttra viðhorfa í
atvinnuveginum og almenns
hækkaðs menntunarstigs í þjóðfé-
laginu. Þessi þekking sem þarna
væri aflað gæti bæði nýst sölu-
samtökum og f.vrirtækjum í sjáv-
arútvegi, rannsóknastofnunum og
öðrum opinberum stofnunum og
jafnvel verkfræðistofum við
vinnslu verkefna í sjávarútvegi. í
erindi mínu áætlaði ég að þarna
gætu til að byrja með útskrifast
5—10 nemendur árlega, en farið
fljótlega upp í 10—20 nemendur
eftir að námið hlyti viðurkenningu
í atvinnulífinu. Námið þarf að
þróa í nánu samráði við rannsókn-
ir og rannsóknastofnanir í ís-
lenskum sjávarútvegi, því að
rannsóknir hljóta að vera grund-
völlur kennslu í sjávarútvegsfræð-
um á háskólastigi og það er spurn-
ing hvort ekki borgi sig að koma á
fót nefnd, sem hefur bæði yfir-
umsjón með rannsóknunum og
menntuninni, en þannig er skipu-
lagið á þessu í Noregi og hefur
gefist vel. Slík yfirnefnd þyrfti að
hafa fastan tekjustofn, til að veita
til rannsókna, þar sem þeirra væri
mest þörf hverju sinni, en svo er
einmitt i Noregi og hefur það gefið
mjög góða raun,“ sagði Valdimar
að lokum.