Morgunblaðið - 16.03.1983, Síða 26

Morgunblaðið - 16.03.1983, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1983 Tvö skólafrumvörp á síðasta degi þings: Framhaldsskólar skólakostnaöur Sama dag og forsætisráðherra rauf þing, svo að segja í miðri ræðu Birgis ísleifs Gunnarssonar (S) um þingkjörna viðræðunefnd við Alu- suisse m.a. um hækkun orkuverðs, lagði menntamálaráðherra fram tvö frumvörp um skólamál: 1) Frumvarp um framhaldsskóla: Það frumvarp er þó naumast „lagt fram til kynningar", eins og stundum er um viðamikil laga- frumvörp, enda er það „lagt fyrir Alþingi enn á ný“, eins og segir í greinargerð „en það er að stofni til reist á frumvarpi því, sem fram- haldsskólanefndin frá 1974 samdi ... “ . 2) Fruravarp um skólakostnað: Þetta er nýtt frumvarp, en um það segir í greinargerð: „Ekki hefur náðst samkomulag um að flytja þetta frumvarp sem stjórnar- frumvarp, en ég taldi rétt að leggja það fram til kynningar. t greinargerð segir svo um þau efni er varða grunnskóla: 1. Stofnkostnaðarákvæði laga nr. 49/1967 um skólakostnað hald- ast óbreytt að mestu. Þó er gerð lítils háttar breyting á hlutdeild ríkis í byggingu heimavista og kennaraíbúða. 2. Gert er ráð fyrir að ríkið greiði kennslulaun en felld eru niður hámarksákvæði um kenndar stundir á nemanda. í stað þeirra koma ákvæði um stundafjölda sem er miðaður við námskrá og þá skipun í bekkjardeildir sem kveðið er á um í lögum um grunnskóla. 3. Ríkið greiði laun skólastjóra og annarra stjórnenda sem það ræður að skólunum og ákveður það kennsluskyldu þeirra. 4. Ríkið greiði allan kostnað við fræðsluskrifstofur og sálfræði- og ráðgjafarþjónustu. Er hér um þá breytingu að ræða að hingað til hefur verið gert ráð fyrir því að sveitarfélög greiddu heiming kostnaðar við mestan hluta þess- arar starfsemi. 5. Gert er ráð fyrir að ríkið ráði starfsfólk að skólasöfnum og greiði laun þeirra. 6. Ríkið greiði ákveðið framlag á nemanda í grunnskóla er komi m.a. í stað þess framlags sem ríkið hafði áður greitt til starfa á skrifstofu og vegna félagsstarfa. 7. Ríkið greiði eins og áður um- sjón með nemendum í heimavist og launakostnað í mötuneytum skyldunámsnemenda í heimavist- um og heimanakstri. 8. Þátttaka ríkissjóðs í aksturs- kostnaði nemenda lækki úr 85% í 80% í dreifbýli og úr 50% í 40% í þéttbýli. 9. Ríkið greiði hluta viðhalds- kostnaðar, sem það greiðir ekki nú, og húsaleigu. 10. Annan rekstrarkostnað en þann sem sérstaklega er tilgreind- ur greiði sveitarfélög án þátttöku ríkissjóðs. 11. Veigamestu breytingarnar varðandi grunnskólann eru þær að aftur er tekin upp þátttaka ríkis í viðhaldskostnaði og að rekstur fræðsluskrifstofa og sálfræði- og ráðgjafarþjónustu er alveg tekinn á ríkið. Á móti er þátttaka ríkis- sjóðs í aksturskostnaði lækkuð lít- ið eitt. Aðrar breytingar skipta litlu eða engu fjárhagslega en eru til einföldunar og hagræðingar. Um hlutdcild ríkisins í rekstri framhaldskóla segir: 1. Af stofnkostnaði vegna nem- enda á fyrsta og öðru ári greiði ríkissjóður 60% nema þegar um er að ræða kennsluverkstæði fyrir verknámsskóla iðngreina þar sem gert er ráð fyrir að hluti ríkissjóðs verði 80% af stofnkostnaði. Vegna þriðja og fjórða námsárs er gert ráð fyrir að ríkissjóður greiði all- an stofnkostnað. Þar sem rekinn er framhaldsskóli sem er fyrir allt skólastigið, þ.e. 1.—4. námsár, er gert ráð fyrir jafnaðarprósentu í stofnkostnaði, 70%, sem gildir þá fyrir allan stofnkostnað slíks skóla. 2. Gert er ráð fyrir að ríkissjóð- ur greiði öll kennslulaun, laun skólastjórnenda og laun bóka- varða með sama hætti og í grunnskólum. 3. Gert er ráð fyrir að viðhald og húsaleiga greiðist í sömu hlut- föllum og stofnkostnaður. 4. Hluti ríkis í öðrum rekstr- arkostnaði þeirra skóla, sem sveit- arfélög veita forstöðu, verði með þeim hætti að ríkið greiði ákveðin framlög á hvern nemanda, mishá eftir því hvort um væri að ræða nemanda á fyrsta og öðru ári eða á síðari árum. Um nemendur á fyrsta og öðru ári mundu gilda hliðstæð ákvæði og um nemendur í grunnskóla en framlög vegna nemenda á síðari námsárum yrðu miðuð við að þau stæðu að fullu undir rekstrarkostnaði vegna þessara nemenda. 5. Þá er gert ráð fyrir að með sérstökum framlögum jafni ríkis- sjóður kostnað sveitarfélaga vegna nemenda sem dvelja í heimavistum og nemenda sem eru á skólaverkstæðum. Gert er ráð fyrri heimild til að ákveða í reglu- gerð jöfnunarframlag vegna mjög mismunandi orkukostnaðar eftir því hvort um er að ræða jarðhita- svæði eða ekki. Kveðjustund á Alþingi. Þingmennirnir Matthfas Bjarnason og Ólafur G. Einarsson takast í hendur. Á milli þeirra má sjá Lárus Jónsson. Ljósm. Mbl. Kristján. Kosið í stjórn- ir, ráð og nefnd- ir á Alþingi KOSIÐ VAR í sjö nefndir, stjórnir og ráð á síðasta fundi sameinaðs Alþingis á þessu þingi sl. mánudag og einnig voru kosnir endurskoðend- ur tveggja banka. Þessir voru kosnir í eftirtaldar stöður. Orkuráð, fimm menn til fjög- urra ára: Þorvaldur Garðar Kristjánsson, Þóroddur Th. Sig- urðsson, Daníel Ágústínusson, Aage Steinsson og Ingólfur Árna- son. Fulltrúar ríkisins í stjórn Kísil- iðjunnar hf., þrír aðal- og þrír varafulltrúar kosnir til fjögurra ára. Aðalfulltrúar voru kosnir: Lárus Jónsson, Jón Illugason og Sigurður Rúnar Ragnarsson. Varafulltrúar: Ingvar Þórarins- son, Tryggvi Finnsson og Stefán Jónsson. Fjórir aðalmenn og fjórir vara- menn í stjórn Landsvirkjunar, kosnir til fjögurra ára. Aðal- fulltrúar eru: Arni Grétar Finns- son, Böðvar Bragason, Ólafur Ragnar Grímsson og Baldvin Jónsson. Varafulltrúar eru: Stein- þór Gestsson, Páll Pétursson, Finnbogi Jónsson og Erling Garð- ar Jónasson. Stjórn Viðlagatryggingar ís- lands, fjórir aðalmenn og fjórir Varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum: Ríkisstjórnin fylgir ekki fram ályktun Alþingis — sagði Þorvaldur Garðar Kristjánsson Á þingi 1980/81 var samþykkt þingsályktun þess efnis, að fela ríkisstjórninni að undirbúa og leggja fram á Alþingi frumvarp um skipulag varna gegn tjóni af völd- um snjóflóða og skriðufalla. Af því tilefni og náttúruhamfara af völd- um snjóflóða og skriðufalla í Pat- reksfirði, með hörmulegum afleið- ingum, bar Þorvaldur Garðar Kristjánsson, alþingismaður, fram fyrirspurn til viðkomandi ráðherra, Svavars Gestssonar, hvað liði framkvæmd þessarar þingsálykt- unar, sem menn úr öllum þing- flokkum fluttu og stóðu að sam- þykkt á. Svavar Gestsson, félagsmála- ráðherra, sagði ekki hafa verið nægilega ljóst, hvar í kerfinu þetta mál eigi heima. „Þegar kemur að máli eins.og snjóflóða- vörnum, þá eru margir aðilar, sem telja sig sjálfkjörna til að hafa þar nokkra forystu," sagði ráðherra, „ ... ég vil nefna t.d. Almannavarnir ríkisins, skipu- lag ríkisins, Viðlagatryggingu íslands, Veðurstofu íslands, Raunvísindastofnun Háskólans, Vegagerð ríkisins og Rannsókn- arstofnun byggingariðnaðarins." Þrátt fyrir þessa óvissu hafi ráðuneytisstjóri sinn tekið sam- an skýrslu (dags. 21.12. ’82) um málið. Ennfremur hafi forstjóri Rannsóknarráðs ríkisins tekið saman yfirlit um vinnubrögð til að bæta varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum. Ráðherra sagði ekki skorta lög heldur skipulag um þetta efni. Niðurstaðan hafi verið að skipa starfshóp til að efla þessar varn- ir. Hún á að skila „fyrstu yfir- litstillögum fyrir septemberlok 1983“. Það er fjárveitingavaldið sem hefur úrslitaáhrif á fram- vindu málsins, sagði félagsmála- ráðherra að lokum. 0 Þorvaldur Garðar Kristjánsson (S) taldi ýmislegt athugavert í svörum ráðherra: • 1) Fyrirmæli Alþingis til rík- isstjórnar hljóðuðu upp á gerð heildstæðs frumvarps um varnir gegn snjóflóðum og skriðu- föllum. Svar ráðherra gekk fyrst og fremst út á að afsaka þær tafir, sem þetta mál hafi sætt í meðförum hans og ríkisstjórnar- innar. • 2) Meginafsökunin hafi verið sú, að ekki hafi verið ljóst, hvar í hinu margfræga „kerfi" stjórn- sýslunnar þetta mál hafi átt lögheimili! • 3) Skýrslugerð og skipun starfshóps kunni að vera af hinu góða, en kjarni málsins sé þó sá, að hyggileggt og óhjákvæmilegt sé að setja heildarlöggjöf um þetta efni, eins og Alþingi hafi tjáð sig um. • 6) Auðvitað er þetta mál fjár- hagsmál, en í ríkisstjórn situr og ráðherra þeirra mála, flokks- bróðir félagsmálaráðherra. En það er ekki sízt skipulagsmál, hvern veg haldið er á þessum málum og þar munu liggja fyrir skýr fyrirmæli Alþingis til ríkis- stjórnarinnar, sem grautað hef- ur í málinu, en ekki fylgt fram vilja Alþingis; þó aðstæður víða um land séu með þeim hætti, að ekki sé verjandi að láta málið velkjast um „kerfið" árum sam- an án marktækrar niðurstöðu. varamenn kosnir til fjögurra ára, Þessir voru kosnir aðalmenn: Jó- hannes Árnason, Friðjón Guðröð- arson og Ólafur Jónsson. Vara- menn eru: Úlfar Thoroddsen, Benedikt Sigurðsson og Erlingur Viggósson. Endurskoðendur reikninga Landsbanka íslands, kosnir til tveggja ára: Ragnar Jónsson og Sveinn Aðalsteinsson. Endurskoðendur reikninga Út- vegsbanka íslands, kosnir til tveggja ára: Ingi R. Jóhannsson og Haukur Harðarson. Einn maður kosinn í yfirkjör- stjórn Vestfjarðakjördæmis í stað Jóns Ólafs Þórðarsonar lögfræð- ings: Guðmundur Sigurjónsson lögfræðingur. Einn inaður í stjórn Landshafn- arinnar í Keflavíkurkaupstað, kosinn til ársloka 1985, í stað Páls Jónssonar sparisjóðsstjóra: Mar- geir Jónsson. Fjórir menn í nefnd til að endurskoða lög um Verðlagsráð sjávarútvegsins. Eftirtaldir voru kosnir: Matthías Bjarnason, Mar- teinn Friðriksson, Garðar Sig- urðsson og Sighvatur Björgvins- son. Alþingi: Ríkisábyrgð vegna Het Wapen samþykkt FRUMVARP til laga um heimild til ríkisstjórnarinnar um að ábyrgjast lán vegna björgunar skipsins Het Wapen, var samþykkt í efri deild Alþingis með 8 atkvæðum gegn 7 í gær. Frumvarpið felur það í sér að lánsábyrgðin verði ekki veitt, nema fyrir lánsupphæðinni séu þær tryggingar sem fjármála- ráðuneytið telur fullnægjandi, enda liggi fyrir samþykki fjárveit- inganefndar. Þá varð að lögum frumvarp til lánsfjárlaga, en það var síðasta málið sem þetta þing afgreiddi. Frumvarpið var samþykkt í efri deild með 10 atkvæðum gegn 2. Loks var í neðri deild samþykkt frumvarp um bann við ofbeldis- kvikmyndum, en það var síðasta lagafrumvarpið sem sú þingdeild afgreiddi frá sér.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.