Morgunblaðið - 16.03.1983, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR16. MARZ 1983
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
1. stýrimann og
annan vélstjóra
vantar á 100 tonna línubát sem rær frá
Grindavík.
Upplýsingar í síma 91-50993.
Lögfræðingur
— endurskoðandi
Lögfræðingur óskar eftir viðræðum við annan
logrræðing eða löggiltan endurskoðanda um
sameiginlegt skrifstofuhald og e.t.v. ein-
hverja frekari samvinnu ef um semst.
Áhugasamir sendi línu til Mbl. fyrir nk. föstu-
dagskvöld 18. mars kl. 17, merkt: „Samstarf
— 83“.
Með allar fyrirspurnir verður farið sem trún-
aðarmál.
Framleiðslustjóri
Óskum að ráða framleiðslustjóra við fisk-
vinnslustöð okkar. Umsækjandi þarf að hafa
matsréttindi og reynslu.
Nánari uppl. í síma 61728 eftir kl. 19.00.
Fiskvinnslustöð KEA, Hrísey.
Mosfellshreppur
Starf inn-
heimtustjóra
Starf innheimtustjóra hjá Mosfellshreppi er
laust til umsóknar. Starfið er fólgið í umsjón
með innheimtu útsvara, aðstöðugjalda og
fasteignagjalda auk innheimtu hitaveitureikn-
inga o.fl.
Viðkomandi þarf að hafa staðgóða bók-
haldsþekkingu, vera töluglöggur og eiga gott
með að umgangast fólk.
Allar nánari upplýsingar gefa sveitarstjóri
eða skrifstofustjóri, Hlégarði, í síma 66218.
Umsóknum skulu fylgja upplýsingar um
menntun og fyrri störf. Umsóknarfrestur er til
25. mars nk. Æskilegt að viökomandi geti
hafið störf sem fyrst.
Sveitarstjóri Mosfellshrepps.
ÍTVJ
M
u u ií ú
V
Ólafsfjarðar-
kaupstaöur
Landsbanki Islands
vill ráða þrjá kerfisfræðinga til starfa. Æski-
leg þekking á Cobol-kerfissetningu, þó ekki
skilyröi. Góð starfsskilyröi.
Væntanlegir umsækjendur hafi samband við
starfsmannahald bankans að Laugavegi 7, 4.
hæð, við fyrsta hentugleika.
Starfsmannastjórinn.
Læknamiðstöðin Akureyri
Meinatæknar
Læknamiöstöðin á Akureyri óskar eftir
meinatækni hið allra fyrsta.
Ennfremur meinatækni til starfa í sumaraf-
leysingum 2—3 mánuði. Til greina kemur að
ráða tvo meinatækna í hálft starf.
Læknamiðstöðin, Akureyri.
Lagerstarf
Óskum eftir röskum manni til starfa á fata-
lager nú þegar. Æskilegur aldur 20—40 ára.
Uppl. aöeins veittar á staðnum hjá lager-
stjóra eftir hádegi í dag og á morgun.
HAGKAUP
Skeifunni.
Verkstjóri óskast
Okkur vantar verkstjóra meö reynslu í rækju-
vinnslu. Uppl. í síma 96-71189 og 96-71190 á |
kvöldin.
Siglósíld, Siglufirði.
Tæknifræðingar —
Verkfræðingar
Starf tækni- eða verkfræðings hjá Ólafs-
fjarðarkaupstað er laust til umsóknar.
Skriflegar umsóknir sendist undirrituðm fyrir
25. mars 1983 og veitir hann jafnframt nánari
upplýsingar.
Bæjarstjórinn í Ólafsfirði.
Sími 96-62214.
Hjukrunar-
fræðingur —
sjúkraliði
Sjúkrastöð SÁÁ, Silungapolli auglýsir eftir
hjúkrunarfræðingi og sjúkraliða í fullt starf.
Uppl. veitir hjúkrunarfræðingur í síma 81615.
Framreiðslunemi
Óskum eftir nema í framreiðslu.
Upplýsingar á staðnum milli kl.
14.00—17.00.
Veitingahúsiö Torfan.
Endurskoðunar-
skrifstofa
Óskum eftir að ráða starfskraft til skrifstofu-
starfa. Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg,
og einhver bókhaldskunnátta.
Upplýsingar um menntun og starfsreynslu
sendist inná afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir
kl. 17, 18. mars nk., merkt: „Þ — 42“.
Lausar stöður
hjá Reykja-
víkurborg
— til eftirtalinna starfa:
Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
• Staða forstöðumanns félagsmiðstöðvar-
innar Ársels. Menntun á sviði æskulýðs-
og félagsmála æskileg og jafnframt
reynsla af stjórnunarstörfum.
Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Æsku-
lýðsráðs Reykjavíkur, Fríkirkjuvegi 11, sími
21769.
Umsóknareyöublöð liggja frammi á Fríkirkju-
vegi 11.
• Starfsmann í tölvudeild Rafmagnsveitu
Reykjavíkur (RR). Reynsla á forritun og
tölvuumsjón æskileg.
Upplýsingar veitir starfsmannastjóri Raf-
magnsveitu Reykjavíkur í síma 18222.
• Starfsmenn við ýmis skrifstofustörf hjá
borgarstofnunum.
• Fóstrustöður við eftirtalin dagvistar-
heimili:
1. Dyngjuborg, Dyngjuvegi 18.
2. Efrihlíð v/Stigahlíð, hálft starf.
3. Grænuborg, Eiríksgötu 2.
4. Holtaborg, Sólheimum 21 — frá 1. júní.
5. Seljaborg v/Tungusel — frá 1. júní.
• Staða þroskaþjálfa í Múlaborg.
• Staða matráðskonu í Grænuborg, Eiríks-
götu 2.
Upplýsingar veitir forstöðumaður viðkom-
andi heimilis eða umsjónarfóstra skrifstofu
dagvista Fornhaga 8, sími 27277.
Umsóknir skulu vera skriflegar og greina
m.a. frá menntun og starfsreynslu auk al-
mennra persónulegra upplýsinga.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð,
fyrir kl. 16.00, miðvikudaginn 23. marz, 1983.
Útgáfufyrirtæki
óskar eftir starfskrafti til vinnu í augld. við
móttöku auglýsinga, frágangi reikninga,
tölvuvinnslu og fl.
Tilboð óskast sent augld. Mbl. með upplýs-
ingum um aldur, menntun og fyrri störf fyrir
21. mars merkt: „Z — 3725“.
Þjálfari
UMF Víkingur, Ólafsvík, óskar að ráða
knattspyrnuþjálfara fyrir meistaraflokk í
sumar.
Upplýsingar í síma 93-6106 eftir kl. 5.
BOKHALDSTÆKNI
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
óskar eftir að ráða:
TÆKNITEIKNARA. Við leitum að starfs-
manni með reynslu í tækniteiknum og vélrit-
unarkunnáttu. Hér getur komið til greina
starf hálfan eða allan daginn. Þarf aö geta
hafið störf 1. apríl.
BÓKHALDSTÆKNIHF
Laugavegur 18 — 101 Reykjavík — Simi 25255
BOKHALD - UPPGJOR - ENDURSKOÐUN
REKSTRARRAÐGJOF - FJARHALD - EIGNAUMSYSI.A
RAÐNINGARÞJONUSTA
SAMSTARFSFYRIRTÆKI: