Morgunblaðið - 16.03.1983, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1983
Sigurður Stefán
Bjarnason - Minning
Fæddur 11. janúar 1932
Dáinn 5. marz 1983
Sigurður Stefán Bjarnason,
pípulagningameistari, lést að
heimili sínu laugardaginn 5. mars
sl.
Hann var einn af fjórum börn-
um hjónanna Bjarna Kristjáns-
sonar og Jónu Jónsdóttur, sem
bjuggu á Suðureyri við Tálkna-
fjörð. Bjarni var sonur Kristjáns
Arngrímssonar og Þóreyjar Ei-
ríksdóttur, sem lengst bjuggu á
Sellátrum við Tálknafjörð og
kennd við þann bæ. Jóna var dótt-
ir Jóns Jónsen og konu hans Gróu
Indriðadóttur, búandi á Suðureyri.
Allt var þetta mikið dugnaðar-
og atorkufólk. Bjarni lauk námi
frá Verslunarskólanum í Reykja-
vík, en að námi loknu sneri hann
sér að sjómennsku og gerði út
opna vélbáta og var sjálfur for-
maður á þeim. Hann gerði alla
sína útgerðartíð út frá Suðureyri,
var framtakssamur og þekktur
fyrir mikinn dugnað og bjartsýni
á öllum sviðum. Allt sem hann
gerði fórst honum vel úr hendi.
í byrjun fjórða áratugarins
herti mikið að fjárhag þeirra sem
sjávarútveg stunduðu og mun það
einnig hafa komið nokkuð við
rekstur Bjarna. Bróðir hans
Kristján var þá orðinn vel þekkt-
urt dugandi togaraskipstjóri í
Boston í Norður-Ameríku. Bjarni
réðst í það að fara til hans og var
með honum um tíma.
Bjarni kom heim á tímabili, en
hélt aftur til Boston. Mun þá hafa
verið fullráðið á skipi Kristjáns,
en Bjarni ásamt systursyni sínum
Birni Einarssyni frá Sellátrum
réðust á annan togara. Það skip
fórst í október 1945 að ég held með
allri áhöfn og þar með Bjarni og
Björn.
Þau Jóna áttu þá orðið fjögur
börn, tvo syni og tvær dætur. Sig-
urður var næstyngstur barnanna.
Ekkjan stóð nú uppi með barna-
hópinn. Elsta dóttirin Ásdís var
nýgift Magnúsi Einarssyni og þau
flutt til Reykjavíkur. Það varð svo
úr að öll fjölskyldan var komin til
Reykjavíkur í árslok 1948. Jóna
byggði sér hús að Hraunteig 22, og
þar bjuggu þau um margra ára bil.
Sigurður tók gagnfræðapróf
með mjög góðri einkunn. Hann
stundaði nám í menntaskólanum
þrjá vetur og fór svo í skólann á
Hvanneyri.
Mágur Jónu, Helgi Guðmunds-
son frá „Steinhúsi" við Sveinseyri
í Tálknafirði, þekktur pípulagn-
ingameistari í Reykjavík, mun
hafa haft fullan vilja til þess að
létta mágkonu sinni lífsstarfið.
Hjá honum var í námi fyrr-
nefndur tengdasonur Jónu, Magn-
ús. Til hans fór í nám Þórir
Bjarnason og svo síðar Sigurður.
Þeir Magnús og Þórir unnu að
námi loknu í pípulögnum áfram
með Helga og tóku að Helga látn-
um við rekstri hans.
En Sigurður stundaði sína
iðngrein sér og stundaði hana,
sem pípulagningameistari, í
Reykjavík og Kópavogi meðan
heilsa hans entist.
Árið 1957, 19. janúar, giftist
Sigurður Ruth Sigurhannesdóttur.
Þau eignuðust fjögur börn, og
dóttur Ruth frá fyrra hjónabandi,
Sigrúnu Eddu, gekk Sigurður í
föðurstað.
Börnin eru: Birna Björk, gift
Guðmundi Rúnar Heiðarssyni,
Bjarni Þór, heitbundinn Ásgerði
Katrínu Hafstein, Ingibjörg
Ragna og Ásdís Guðrún.
Kynni mín af Sigurði og fjöl-
skyldu hans urðu fyrir skyldleika
eiginkonu minnar, Magneu, en þau
Sigurður voru systkinabörn.
Bjarni og Halldóra móðir Magneu
voru systkini.
Frændsystkini afkomenda
Kristjáns Arngrímssonar og Þór-
eyjar Eiríksdóttur hafa ræktað
með sér sterk vináttubönd. Sig-
urður var einlægur í allri fram-
komu og gerði sér far um að gleðja
aðra og naut sín vel meðal fólks.
Hann var heilsteyptur vinur vina
sinna, ráðþæginn og ráðhollur og
hafði gleði af að gera öðrum
greiða. Á gleðistundum var honum
tamt að láta öllum líða vel, sem
með honum voru. Hann var prúð-
ur í allri framkomu og kunni sig
vel meðal fólks. Dugnaður hans
var mikill, vinnugleði hans bar
hann hálfa leið að settu marki og
ég hygg að hann hafi verið sjálf-
um sér um of ósérhlífinn.
Heimili sínu var hann allt og
börn þeirra hjóna eru félögum sín-
um til fyrirmyndar.
Fyrir um átta árum fann Sig-
urður til heilsubrests og varð
hann aldrei eftir það heill heilsu.
Námsvilji hans var enn í fullu
fjöri og hann stundaði um tíma
nám í Öldungadeildinni, ef það
kynni að hjálpa honum til þess að
létta lífsstarfið.
Síðustu tvö árin sem hann lifði
átti hann við mikla vanheilsu að
stríða. Hann var um tíma á
heilsuhæli. Hann varð að hætta að
starfa í iðngrein sinni. Dugnaður-
inn dreif hann áfram og honum
tókst fyrir vináttu að fá starf við
kertagerð í verksmiðjunum Nóa,
t
Móöir okkar,
GUONÝ BERENTSOÓTTIR,
Hringbraut 44, Kellavlk,
lést aðfaranótt mánudagsins 14. mars í sjúkrahúsi Keflavíkur.
Kolbrún Leffel,
Sigríður Kristmundsdóttir,
Kristín Kristmundsdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför
ÓSKARS ÓLAFSSONAR,
Sólhliö 5, Vestmannaeyjum.
Rut Ágústsdóttir,
Ágúst Óskarsson, Oddfríöur Guöjónsdóttir,
Ólöf Óskarsdóttir, Haraldur Gíslason,
Edda Óskarsdóttir, Siguröur Jónsson,
Eygló Óskarsdóttir, Ragnar Lárusson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn,
TORFI SIGGEIRSSON,
Kirkjuvegi 13, Keflavík,
andaöist á heimili sínu 14. þessa mánaöar.
Anna Vilmundardóttir.
t
Móöir okkar,
VALGERDUR PÁLSDÓTTIR,
lézt mánudaginn 14. marz.
Sveinn Skúlason,
Gunnlaugur Skúlason,
Páll Skúlason.
t
Útför eiginmanns míns,
JÓHANNESAR HALLDÓRSSONAR,
trésmiös,
Skipasundi 10,
veröur gerö frá Fossvogskapellu, fimmtudaginn 17. mars kl. 13.30.
Fyrir hönd dætra, tengdasona og barnabarna.
Margrét Ingólfsdóttir.
t
Innilegar þakkir sendum viö öllum þeim, sem sýnt hafa okkur
samúö og hlýhug viö andlát og útför eiginkonu minnar, móður
okkar og tengdamóöur,
VILBORGAR JÓNSDÓTTUR,
Grænumörk 1, Selfossi.
Þórmundur Guömundsson,
Gunnhildur Þórmundsdóttir, Bjarni Eyvindsson,
Þórmundur Þórmundsson, Unnur Jónsdóttir.
t
Flugheilar þakkir færum viö ættingjum, vinum og öllum þeim, er
sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og jarðarför ástkærs
eiginmanns míns, föður, tengdafööur, afa og bróöur,
ÓLA SIGURJÓNS BARÐDAL.
Sesselja Guönadóttir,
Jón A. Barödal, Björk Björgvinsdóttir,
Höröur Barödal, Soffía K. Hjartardóttir,
Reynir Barödal, Helena Svafarsdóttir,
Þórir Barödal, Sigrún Pálsdóttir,
Ragnheiöur Erlendsdóttir, Pétur B. Björnsson,
barnabörn og bróöir.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug vlö andlát og útför
GUÐRÚNAR HELGADÓTTUR
frá Heggsstööum,
Vogatungu 34, Kópavogi.
Einnig þökkum viö læknum og hjúkrunarlið! gjörgæsludeildar
Landspítalans fyrir góöa umönnun.
Siguröur Tómasson,
Helgi Sigurösson,
Helgi Hauksson, Elín S. Sigurðardóttir,
Ástríður H. Siguröardóttir,
Tómas Sigurösson,
systkini og barnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúö og hlýhug viö andlát og jarðar-
för eiginkonu minnar, móöur, systur, tengdamóöur og ömmu,
ÓLAFAR MAGNÚSDÓTTUR,
Digranesvegi 74, Kópavogi.
Höröur Sigurjónsson,
Magnús Haröarson, Sigurdís Haraldsdóttir,
Kristján Haröarson, Helga Jóhannesdóttir,
Sigríöur Haröardóttir, Magnús Magnússon,
Elísabet Haröardóttir, Einar Tómasson,
Höröur Haröarson, María Davíðsdóttir,
Skúli Magnússon, Jean Magnússon,
Guömundur Á. Magnússon, Svava Scheving Jónsdóttir
og barnabörn.
Hreini og Siríus og vann við það
um tíma seinustu stundir ævi
sinnar.
Ég er honum alúðlega þakklátur
fyrir þau kynni, sem við hjónin og
fjölskylda okkar áttum við hann.
Ég votta konu hans og börnum
og öllum öðrum ættingjum hans
innilega samúð okkar.
Algóður Guð veri með honum og
leiði hann á nýjum vegum.
Baldur Guðmundsson
Hann Siggi frændi er látinn. Nú
er hann horfinn yfir móðuna
miklu og kannski hefur það verið
honum kærkomið að fá hvíld, frið
og ró.
Nú fer sól að nálgast æginn
nú er gott að hvíla sig
og vakna ungur einhvern daginn
með eilífð glaða kringum sig.
(l»orst. Erk)
Sigurður var fæddur á Suður-
eyri í Tálknafirði 11. janúar 1932.
Foreldrar hans voru Jóna Þ. Jóns-
dóttir frá Suðureyri og Bjarni E.
Kristjánsson frá Sellátrum,
Tálknafirði. Þau voru mikið
sæmdar- og gæðafólk enda bar
Sigurður það besta frá þeim báð-
um.
Minningar frá bernsku okkar
frændsystkinanna á eyrinni eru
mér hugstæðar. Við áttum svo
margt sameiginlegt. Þar var leikið
sér saman að legg og skel og oft
var farið í berjamó í litla dalinn.
Mikil hátíð var hjá okkur þegar
við fengum að fara í sundprófin á
Sveinseyri. Þá var glatt á hjalla.
Oft fórum við í kirkjuferðir á litl-
um trillum yfir fjörðinn. Stundum
vorum við pínulítið hrædd þegar
brim og úfinn sjór blasti við þegar
út í bátinn var komið og sæta varð
lagi að lenda í vör.
Nú þegar minn kæri frændi er
horfinn, er mér efst í huga allir
hans góðu mannkostir og hlýja
sem hann hafði í svo ríkum mæli.
Við hjónin vottum ástvinum
Sigurðar hlýja samúð.
Ema R. Jónsdóttir
Vesalingarnir
í Regnboganum
Kvikmyndaklúbbur Alliance
Francaise sýnir í E-sal Regnbogans í
kvöld og annað kvöld fyrri hluta
myndarinnar „Les Miserables" eða
Vesalingana, sem byggð er á sam-
nefndri skáldsögu Victor Hugo.
Þessi kvikmynd var gerð af Ra-
ymond Bernard árið 1934 og fram
koma frægustu leikarar þess tíma:
Harry Baur (Jean Valjean), Charl-
es Vanel (Javert), Charles Dullin
(Thenardier), Florelle (Fantine),
Marguerite Moreno (la Thenardi-
er) og fleiri.
Kvikmyndin er í tveim hlutum.
Fyrri hlutinn er nefnist „Jean
Valjean" verður sýndur 16. og 17.
mars. Seinni hlutinn „Cosette"
verður síðan á dagskrá miðviku-
daginn 23. og fimmtudaginn 24.
mars.
esió
reglulega af
ölhim
fjöldanum!