Morgunblaðið - 10.04.1983, Side 4

Morgunblaðið - 10.04.1983, Side 4
48 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. APRÍL 1983 Óskarsverðlaunin afhent í Bandaríkjunum á morgun Indverskur stjórnmálaskörungur og leiðtogi, maður sem þyk- ist vera kona og einmana gestur utan úr heimi, hafa tekið til sín lungann af útnefningum til Óskarsverðlauna 1982, sem afhent verða í Los Angeles núna 11. aprfl. Óskar hefði yfir einhverju að brosa því það er ekki bara að árið 1982 hafí verið metár í innkomu stóru kvikmyndafyrirtækjanna (3,4 milljarðar bandaríkjadalir), heldur var árið 1982 mjög gott ár eins og sagt er um vínin, fyrir kvikmyndir og kvikmyndagerð- armenn ekki síður. Eins og við var að búast, eru það myndirnar Gandhi (11 útnefn- ingar), Tootsie (10 útnefningar) og CT The Extra-Terrestrial (9 útnefn- ingar), sem koma til með að keppa um öll helstu Óskarsverðlaunin, eins og fyrir bestu mynd, bestu leik- stjórn, bestu kvikmyndatöku, klipp- ingu og frumsamda handrit svo eitthvað sé nefnt. Þær myndir sem koma á eftir þeim með flestar út- nefningar eru Victor — Victoria með sjö útnefningar og Das Boot, vestur-þýsk mynd um þýska kaf- bátaáhöfn í seinni heimsstyrjöld- inni, sem hlaut sex útnefningar. Victor — Victoria er farsi eftir Blake Edwards sem frægur er aðal- lega fyrir Pink Panther-myndir sin- ar, og fjallar hún um, eins undar- lega og það nú kemur fyrir sjónir, konu, sem hegðar sér eins og karl- maður, sem þykist vera kona. Blake Edwards er líka þekktur fyrir allt annað en að fara troðnar slóðir með fyndni sína. í hópi með Gandhi, Tootsie og ET yfir þær myndir sem hlutu flestar útnefningar fyrir bestu kvikmynd eru Missing, Costa-Garvas, sem nú er sýnd í Laugarásbíói og The Verd- ict, eftir Sidney Lumet. Leikkonan Jessica Lange hlaut tvær útnefningar fyrir leik sinn í kvikmyndum á síðasta ári. Fyrir leik í myndinni Frances, þar sem hún leikur skapstóra leikkonu sem lokuð er inni á hæli, en myndin er gerð eftir ævisögu leikkonunnar Frances Farmer, og fyrir leik í minna hlutverki í myndinni Tootsie, þar sem hún leikur kynþokkafulla kærustu Dustin Hoffmans. Lange er fyrsta leikkonan i 40 ár sem útnefnd er til Óskarsverðlauna fyrir tvö hlutverk. Árið 1942 var leikkonan Terese Wright útnefnd til verðlaun- anna fyrir aðalhlutverkið í Pride of the Yankees og fyrir aukahlutverkið í Mrs. Miniver. Wright hlaut Óskar- inn fyrir síðarnefnda hlutverkið. Árið 1938 var Fay Bainter útnefnd til verðlaunanna fyrir aðalhlut- verkið í White Banner og fyrir aukahlutverk í myndinni Jezebel, og fékk hún Óskarinn fyrir það. Jessica Lange er þriðja leikkonan, sem út- nefnd er til tveggja Óskarsverð- launa sama árið og á hún þvi góða möguleika á að hljóta a.m.k. önnur þeirra. Lange er komin í hóp með bestu leikkonun kvikmyndanna í Ameríku og er mikið vatn runnið til sjávar frá því hún lék sitt fyrsta stóra hlutverk í mynd Dino De Laurentis, King Kong. Þar lék hún unnustu apagreysins og voru menn ósáttir um hvort væri meiri leikari, apinn eða stúlkan. Julie Andrews er útnefnd til Óskars- verðlaunanna fyrir leik sinn í mynd- inni Victor — Victoria. Asamt Jessicu Lange voru út- nefndar til Óskarsverðlaun- anna fyrir besta leik í kvenhlutverki þær Julie Andrews sem leikur karl- konuna í Victor — Victoria, Sissy Spacek, sem leikur eiginkonu týnds manns í Missing, Meryl Streep, sem leikur konu sem komist hefur lífs úr gerðeyðingarbúðum nasista f mynd- inni Sophie’s Choice og Depra Wing- er, sem leikur verkakonu í verk- smiðju sem þráir að giftast foringja í bandaríska flotanum í An Officer and a Gentleman. Þrjár þessara leikkvenna hafa unnið til öskars- verðlauna áður. Julie Andrews vann verðlaunin árið 1964 fyrir leik sinn í Coal Miner’s Daughter og Streep fyrir aukahlutverkið í Kramer vs. Kramer árið 1979. Það kemur mönnum fátt á óvart þegar þeir líta yfir lista þeirra lcikara sem útnefndir hafa verið til Sissy Spacek er útnefnd til verðlaun- anna fyrir leik sinn í myndinni Miss- ing. Óskarsverðlaunanna fyrir bestan leik f karlhlutverki. Útnefningarnar hrukku til Dustin Hoffmans fyrir leik sinn í myndinni Tootsie, en þar leikur hann leikara sem klæðir sig upp eins og kona til að fá hlutverk, Ben Kingsleys hins enska fyrir aðal- hlutverkið í Gandhi, Jack Lemmons fyrir hlutverk sitt í Missing, Paul Newmans fyrir leik sinn í The Verd- ict og Peter O’Tooles fyrir leik í My Favorite Year. Hoffman hlaut verðlaunin 1979 fyrir leik f Kramer vs. Kram- er. Lemmon hlaut þau 1973 fyrir Save the Tiger, en hann hefur einnig hlotið Óskarinn fyrir leik í auka- hlutverki, 1955 í myndinni Mr. Rob- erts. Hann er einn þriggja leikara sem hlotið hafa verðlaunin fyrir báða þessa pósta. (Hinir eru Robert de Niro og Ingrid heitin Bergman.) f r ■ MmÉm Peter OToole hefnr sjö sinnum ver- ið útnefndur til óskarsverðlaun- anna. Meryl Streep í hlutverki sfnu f myndinni Sophies Choice. Hart er barist um gullstuttuna Dustin sæti Hoffman f hhitverki sínu í myndinni Tootsie. Newman og O’Toole hafa margoft verið útnefndir til verðlaunanna, en aldrei hlotið þau. Eru aðdáendur þeirra og þá sérstaklega Newmans, ediksúrir yfir því að uppáhaldið þeirra skuli ekki hafa hlotið þessi eftirsóttu verðlaun enn, og segja að oft hafi verið tilefni til að veita hon- um góssið. Annars er það helst að frétta af Newman að hann er mikið að velta því fyrir sér að fara í for- setaframboð í henni Ameríku og feta þar f fótspor núverandi forseta, Reagans sem áður en hann fór að daðra við pólitíkina, var leikari í Hollywood. Ben Kingsley hefur þá sérstöðu að hafa verið næsta ger- samlega óþekktur leikari í Englandi áður en hann skaust upp á tind frægðarfjallsins með leik sínum í Gandhi. K annski valið á bestu karlleik- urum í aukahlutverki hafi ver- Paul Newman f hlutverki sínu í myndinni The Verdict. ið hvað erfiðast fyrir þá 1.122 með- limi bandarísku kvikmyndaaka- demíunnar, sem útnefna leikara til Óskarsverðlauna. í þeim flokki þóttu vera mjög góðir leikarar og erfitt að gera upp á milli þeirra. Útnefningar hlutu Charles Durning en hann leikur fylkisstjóra í The Best Little Whorehouse in Texas, Luis Gosset, sem leikur harðsoðinn liðþjálfa í An Officer and a Gentie- man, John Lithgow, sem leikur fót- boltakappa sem fer í kynskiptiað- gerð í The World According to Garp, James Mason sem leikur sleipan og slóttugan lögfræðing í The Verdict og Robert Preston sem leikur glað- væran homma í Victor — Victoria. Meðal leikara, sem þóttu líklegir til að hljóta útnefningu en fengu ekki voru, Mickey Rourke, Daniel Stern og Kevin Bacon f Diner. Scott Glenn í Personal Best, George Gay- nes í Tootsie og vinur ET sá ungi Henry Thomas. Þær leikkonur, sem keppa við Jessicu Lange um Óskarinn fyrir leik í aukahlutverki eru Glenn Close í The World According to Garp, Teri Garr í Tootsie, Kim Stanley f Franc- es og Lesley Ann Warren í Victor — Victoria. Engin af þessum leikkon- um hefur verið orðuð við Óskar áður og Glenn Close lék í fyrsta sinn á ævinni í kvikmynd á síðasta ári. Ef það er eitthvað sameiginlegt með þeim hlutverkum sem hæst bar á góma á síðasta ári, eru það kyn- skiptihlutverk. Hoffman er klæddur eins og kvenmaður mikinn hluta myndarinnar Tootsie, Andrews er klædd ein'S og karlmaður mikinn hluta af Victor — Victoria, Lithgow leikur kynskipting í The World Acc- ording To Garp og Robert Preston dregur upp sérlega samúðarfulla mynd af manni, sem vill svo til að er hommi f Victor — Victoria. Utnefndir fyrir bestu leikstjórn voru þeir Wolfgang Petersen (Das Boot), Steven Spielberg (ET) Richard Áttenborough (Gandhi), Sidney Pollack (Tootsie) og Sidney Lumet (The Verdict). Útnefning Petersens kom ekki á óvart því hann hafði fyrir stuttu verið út- nefndur til verðlauna af samtökum leikstjóra í Bandaríkjunum. Leik- stjórinn Taylor Hackford var einn- ig útnefndur af þeim fyrir mynd sína, An Officer and a Gentleman, en kvikmyndaakademían tók Sid- ney Lumet fram yfir hann í sínu vali. Það vakti nokkra undrun að mynd Hackfords skyldi ekki hljóta fleiri útnefningar en raun varð á því hún hefur verið mjög vel sótt í Banda- rfkjunum og hefur verið lofuð f há- stert af flestum gagnrýnendum. Þeir sem mikið fylgjast með óskars- útnefningunum héldu að mynd hans hefði góða möguleika á að vera út- nefnd með bestu kvikmyndunum, bestu leikstjórn og fyrir bestan leik í aðalhlutverki (Richard Gere) og aukahlutverki (David Keith). Vinsældir eða óvinsældir kvikm- ynda virðast hafa nokkur áhrif á þá sem útnefna til Óskarsverð- launa, þó það sé ekki algilt. Það vakti nokkra undrun að Victor —

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.