Morgunblaðið - 10.04.1983, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. APRÍL 1983
55
Harry S. og Bess á tröppum húss síns í Independence, Missouri, þar sem þau bjuggu bæöi fyrir
og eftir ad hann gegndi forsetaembættinu.
mál að okkar mati, þar sem engin ríkis-
skjöl fylgdu þeim,“ segir dr. Zobrist, „og
aðeins örfá bréfanna er ekki unnt að birta,
þar sem þau fjalla um fólk, sem enn lifir,
og teljast ekki til fjölskyldunnar.
Bréfin frá Berlín voru send með flugi i
stjórnarpósti til Washington þar sem þau
voru síðan póstlögð til áfangastaðar i In-
dependence. Áætlað hefur verið að bréfa-
safnið telji um 500 þúsund orð. Ferrell ætl-
ar að velja um 30—40% bréfanna til birt-
ingar í bókinni „Elsku Bess“, sem útgáfu-
fyrirtækið W.W. Norton & Co hyggst
senda i bókabúðir eftir nokkrar vikur.
Bréfin ná yfir það tímabil, þegar Truman
var bóndi, stórskotaliðsforingi i Frakk-
landi í heimsstyrjöldinni fyrri, smásali,
dómari, öldungadeildarþingmaður og þau
Stórveldafundurinn í Potsdam í júlf 1945. Frá vinstri: Winston Churchill, forsætisráðherra
Breta, Harry S. Truman, forseti Bandarfkjanna, og Jósef Stalín, leiðtogi Sovétríkjanna.
tæp átta ár sem hann var forseti Banda-
ríkjanna.
„Hann hafði fyrir sið að skrifa Bess
hvern þann dag sem þau voru fjarvistum
hvort frá öðru,“ segir Ferrell. En það er
helzt þegar Truman þurfti að ferðast
vegna opinberra starfa sinna, eða þegar
Bess sneri heim til Independence til að
annast móður sina, en hún lézt 1952, eða til
að losna undan fargi samkvæmislífsins í
höfuðborginni.
í bréfunum kemur glöggt fram með
hvaða hætti ungt fólk hegðaði sér i
tilhugalífinu í byrjun aldarinnar. í fyrstu
eru þau mjög formleg og undirrituð með
fullu nafni, en smám saman verða þau
innilegri og undirrituð með fornafninu
Harry. Oft og iðulega sárbænir Truman
hana að skrifa sér oftar, því bréf hennar
meti hann umfram allt annað. Þessar
bænir Trumans um fleiri bréf frá sinni
heittelskuðu, koma fram jafnt i bréfum
fyrir og eftir giftingu þeirra árið 1919, eft-
ir heimkomuna frá vfgvöllunum í Frakk-
landi, og eftir að Truman er orðinn forseti.
Ferrell segir, að ekki sé vitað hvort bréfin
frá Bess séu enn til. Allavega hafi enginn
fræðimaður vitneskju um þau.
Mörg fyrstu bréfanna eru rituð til
ungfrú Elisabeht Virginia Wallace í Inde-
pendence og eru send frá nágrannabænum
Grandview, sem var eign Truman-fjöl-
skyldunnar. Þangað sneri Truman aftur
árið 1906 frá Kansas City, þar sem hann
vann um skeið í banka. Hann hitti Bess
fyrst i Independence árið 1890 þegar hann
var 6 ára og hún 5 ára. Þau gengu i skóla
saman og útskrifuðust saman úr gagn-
fræðaskóla árið 1901. „Ég áleit hana feg-
urstu og yndislegustu stúlku á jarðríki,"
skrifaði Truman mörgum árum síðar.
En þessi ár höfðu þau i mörgu að snúast.
Harry vann í verzlun á kvöldin og um
helgar og hann sótti píanótíma þar til
hann var 15 ára. Það var árið 1910, sem
Truman fór á biðilsbuxurnar. Það gerðist
með þeim hætti, að hann var í heimsókn
hjá Ellu frænku sinni i Independence og
skrapp yfir götuna heim til Bess til að
skila aftur kökudiski frú Wallace. Bess
opnaði dyrnar fyrir honum og hleypti hon-
um inn í húsið og reyndar líka inn i líf sitt.
(Heimild: New York Times
og Berlingtke Tidende.)
5*^ Líkamsræktin
Kjörgarði
f ^ ^ | Sími 16400
Líkamsrœkt er innlegg að framtíðar-
heilsu, við höfum toppþjálfara og toppað-
stöðu og þú mœtir þegar þér hentar. Ger-
um líkamsrœkt að lífsvenju.
Þjálfarar líkamsræktarinnar: Guðmundur Sigurðsson og
Hrafnhildur Valbjörnsdóttir, ísl.meistari í vaxtarrækt, og Gústaf
Agnarsson.
SJALFSKIPTINGAR
SÉRFRÆÐIÞ JÓNUST A
Viö höfum á aö skipa sérþjálfuðu starfsliöi og full-
komnri aðstööu til viögeröa og endurbygginga.
Viö höfum einnig fyrirliggjandi varahluti í sjálf-
skiptingar í allar algengar tegundir amerískra —
japanskra og evrópskra bíla.
Vinsamlegast pantið síma hjá verkstæðismót-
töku okkar, símar 85100 og 38725.
Sveinn Egilsson hf.
Skeifan 17, sími 85100.