Morgunblaðið - 13.04.1983, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 1983
3
Eggert Kristjánsson og Co hf. kært fyrir grænmetissölu:
Ótækt að einn aðili haíi einkaleyfi
á sölu á grænmeti innanlands
— segir Gísli V. Einarsson framkvæmdastjóri
FYRIRTÆKIÐ Eggert Kristjánsson og Co. var kært fyrir skemmstu fyrir
að selja nýtt innflutt grænmeti, en sem kunnugt er hefur Grænmetisversl-
un landbúnaðarins, sem heyrir undir Framleiðsluráð, haft einkaleyfi á
allri grænmetissölu hér á landi.
Gísli V. Einarsson fram-
kvæmdastjóri Eggerts Krist-
jánssonar og Co. sagði í samtali
við Mbl. að hér hafi verið um eitt
tonn af nýju grænmeti að ræða
sem hefði verið eins konar til-
raunasending. „Við vildum fá úr
því skorið með því að flytja
þessa sendingu inn hvaða hags-
muni væri verið að vernda með
þeirri einokun sem nú er á
grænmetissölu. Ljóst er að hags-
munir framleiðenda, smásölu-
dreifenda og neytenda eru ekki
hafðir að leiðarljósi. Því vaknar
sú spurning hvort ekki sé ein-
ungis verið að vernda þrönga
hagsmuni Grænmetisverzlunar-
innar, sagði Gísli. Aðspurður
kvaðst hann hafa búist við að
grænmetissendingin yrði stöðv-
uð í tollinum, en svo hefði þó
ekki verið. Af þeim sökum hefði
grænmetið verið haft á boðstól-
um í verzlunum og þegar átti að
gera það upptækt var aðeins lít-
ill hluti óseldur.
„Það er ótækt með öllu og ekki
í samræmi við hugsunarhátt 20.
aldar að einn aðili hafi einka-
leyfi á grænmetissölu hér. Nú
hefur að vísu nefnd unnið að því
á vegum Verzlunarráðs síðustu
tvö ár að slakað yrði á böndun-
um, en án verulegs árangurs,"
sagði Gísli.
Hann sagði ennfremur að með
innflutningi á nýju grænmeti
hefði fyrirtækið ekki í hyggju að
fara í mikla samkeppni við ís-
lenska framleiðslu, heldur fyrst
og fremst að auka úrval og fram-
boð á grænmeti hér á landi.
„Enda kemur í ljós ef tölur um
grænmetisneyslu hér og erlendis
eru bornar saman að við neytum
miklu minna grænmetis en aðr-
ar þjóðir. Og það gefur einnig
augaleið að með vaxandi neyslu
á grænmeti batnar líka hagur
þeirra bænda sem rækta það og
selja hér á landi. En okkur
finnst einnig að fólk skuli eiga
þess kost að fá nýtt grænmeti
allan ársins hring og hafa á
boðstólum tegundir sem hér
hafa ekki fengist fram að þessu,"
sagði Gísli V. Einarsson að lok-
Myndin er af þeim bræðrum Hauki Þór, Baröa og Þórólfi er urðu efstir og
jafnir á skákmótinu.
Skólaskákmót Barðastrandar:
Þrír bræður efstir
Harrta.strönd, 4. apríl.
NÚ ER lokið skákmóti Grunn-
skóla Barðastrandar. í eldri flokki
urðu úrslit þau að jafnir í fyrsta
og öðru sæti voru þeir Haraldur
Ingvason og Heimir Ingvason, en
þriðji varð Jakob Pálsson.
í yngri flokki urðu þrír bræður í
þremur efstu sætunum, þeir
Haukur Þór, Barði og Þórólfur (7
ára) Sveinssynir.
SJ.Þ.
Hafnarfjörður:
Bæjarráð vill
aukna kennslu
6 ára barna
Á bæjarráðsfundi Hafnarfjarðar
26. mars sl. var lögð fram tillaga um
aukna þjónustu við forskólanemend-
ur (6 ára börn) f Hafnarfirði. Einar I.
Halldórsson, bæjarstjóri, sagði að
með þessari tillögu væri gert ráð fyrir
að ríkisvaldið greiddi þann kostnað
sem væri samfara vaxandi kennslu-
tfma eins og annan kennslukostnaö
skv. lögum.
Einar sagði að nú væri það í at-
hugun hjá Fræðsluráði hvort farið
yrði að óskum bæjarráðs, en
hingað til hefði ríkisvaldið verið
tregt til að taka þátt f slíkum auka-
kostnaði nema að óverulega leyti.
Sagði Einar að reynslan hefði verið
sú að sveitarfélögin hefðu fram að
þessu að mestu leyti staðið sjalf
undir þessum aukakostnaði við
kennslu 6 ára barna. En Einar
bætti því við að hér væri um tillögu
að ræða sem miðaði að aukinni
kennslu fyrir þennan aldurshóp og
því væri þess farið á leit við ríkis-
valdið að bera aukakostnaðinn.
Stálverk-
smiðjan á
Vatnsleysu-
strönd?
Vogum, 11. apríl.
Á VEGUM Stálfélagsins hf. standa
yfir jarðvegskannanir fyrir hugsan-
lega staðsetningu verksmiðju í landi
Hvassahrauns við Fögruvík hjá Kúa-
gerði á Vatnsleysuströnd. Miklar
líkur eru taldar á að verksmiðjan
verði staðsett þarna.
Á næstu vikum mun endanleg
ákvörðun um staðarvalið verða tek-
in, líklega á aðalfundi félagsins í
lok þessa mánaðar.
Hreppsnefnd Vatnsleysustrand-
arhrepps hefur gefið stjórn Stálfé-
lagsins hf. viljayfirlýsingu um
eignaraðild að fyrirtækinu, sem
gæti orðið allt að 20% hlutafjár
verði verksmiðjan staðsett í
hreppnum. Eignaraðild að fyrir-
tækinu yrði mynduð með þvf að
gjöld væntanlegrar verksmiðju til
sveitarsjóðs næstu fimm til tfu ár-
in yrðu greidd í formi hlutabréfa.
— Fréttaritari.
á fimmtudagskvöld í
l t < ;\l
WU'
Broadway-ballettinn flytur
„ Dansa frá Broadway".
Stjórnandi og
höfundur Sóley
Jóhannsdóttir
TÓNLIST ÚR SÖNGLEIKNUM DREAMGIRLS
OG MYNDINNI VICTOR — VICTORIA.
BÚNINGAHÖNNUN JÓRUNN KARLSDÓTTIR.
LJÓS OG HLJÓÐSTJÓRN GÍSLI SVEINN LOFTSSON.
TIZKUSYNING FRA
Nýr sýningarflokkur,
VIÐ FRÁ KEFLAVÍK, frumsýnir
glæsilegu vor- og sumartízkuna
frá
Hljómsveitin
Þeyr
kemur fram og flytur nokkur löfl.